Dagur - 16.02.1999, Side 1
Verð ílausasölu 150 kr.
82. og 83. árgangur -31. tölublað
Alverið er enn
á dagskránni
Fyrirhugaður niðurskurður hjá
norska stórfyrirtækinu Norsk
Hydro hefur engin áhrif á samn-
ingaviðræður við Islendinga um
byggingu álvers á Reyðarfirði.
Þórður Friðjónsson, ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu, sagði
í samtali við Dag í gærkvöld að
formaður viðræðunefndar og
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
Eivind Retan, hafi fullvissað sig
um þetta í gærmorgun. Þórður
segir að vissulega sæki erfiðleikar
að Norsk Hydro en það hafi hins
vegar ekki orðið til þess að ákveð-
ið hafi verið að breyta vinnuáætl-
uninni varðandi hugsanlegt álver
á Reyðarfirði, sem menn lögðu
upp með í nóvember sl. og unnið
hefur verið eftir. „Samkvæmt
þessari áætlun er gert ráð fyrir að
ákveðnum áfanga verði náð í
þessum undirbúningi nú um
mitt ár. Þá er hugmyndin að taka
sólarhæðina og ákveða framhald-
ið. Það verður fundur í viðræðu-
nefnd í júní,“
sagði Þórður í
gær.
Niðurskurður
Hagnaður Norsk
Hydro var um
þriðjung minni í
fyrra en árið áður
eða 3,75 milljarð-
ar norskra króna
samanborið við
5,2 milljarða
1997. Afkoma fyr-
irtækisins var
kynnt á frétta-
mannafundi í
Osló í gær og þar
var boðaður mikill niðurskurður
á mannafla og í íjárfestingum.
Fækka á um 1500 ársverk fyrir
sumarið 2000 og Ijárfesta á fyrir
12 milljarða norskra króna á
móti 13,5 milljarða króna fjár-
festingum í fyrra. I netútgáfu Af-
tenposten segir að aðeins mjög
arðbærar Ijárfest-
ingar muni kom-
ast í gegnum nið-
urskurðarnálar-
augað.
Ekki kosniuga-
mál
Aðspurður hvort
verið væri að
draga það að af-
skrifa endanlega
álverið fram yfir
kosningar, sagði
Þórður það af og
frá. Áætlunin sé
einfaldlega
óbreytt frá því
sem verið hefur og markmiðið
hafi verið að á fundinum í sumar
myndu menn vera komnir með
ákveðna fjárhagslega þætti máls-
ins á hreint, auk þess sem þá
muni liggja fyrir niðurstöður úr
þeim umhverfisathugunum sem
verið sé að gera á svæðinu.
Alverð 1 lágmarki
„Það liggur vissulega í hlutarins
eðli,“ segir Þórður aðspurður um
hvort líkur á byggingu álvers hafi
ekki minnkað verulega, „að þegar
álverð er að nálgast sögulegt lág-
mark þá hefur það áhrif á allar
hugmyndir manna um fjárfest-
ingar í næstu framtíð. En þess
ber að geta að aðdragandinn að
svona verksmiðju eins og menn
hafa verið að velta fyrir sér hér er
frá 3 og upp í 5 ár, frá því að
menn skuldbinda sig og þar til
framleiðsla hefst. Það væri þá
mjög skrítin aðferðafræði hjá fyr-
irtæki að taka allar ákvarðanir
um fjárfestingar sem eiga að
skila framleiðslu eftir nokkur ár
út frá álverðinu í dag.“ Þórður
segir því ljóst að þær ákvarðanir
sem Norsk Hydro var að taka í
dag muni ekki hafa áhrif á það
ferli sem er í gangi varðandi ál-
versbyggingu á Islandi. Vj/BG
Þórður Friðjónsson, ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu.
„Agrein
ingsráð“
Starfshópur um agamál og skóla-
reglur í grunnskólum stefnir að
því að senda frá sér skýrslu um
eða uppúr næstu mánaðamót-
um. Hópurinn hefur að undan-
förnu leitast við að móta hug-
myndafræði sem vinnulagsreglur
eiga að byggja á og hefur meðal
annars rætt um að komið verði á
fót sérstöku hlutlausu ágrein-
ingsráði, sem geti komið að
lausn mála þegar allt virðist
komið í hnút og áður en kæra er
lögð fram á æðra stjórnsýslustigi.
Dagur greindi frá vinnu þessa
starfshóps þegar agavandamálin
í Hagaskóla og fleiri skólum voru
hvað mest til umræðu uppúr síð-
ustu áramótum.
Auk hugmynda um ágreinings-
ráð hefur verið rætt um sífellt
mikilvægara hlutverk umsjónar-
kennara, aukið vægi aga- og
bekkjarstjórnunar í kennara-
menntuninni, bætt foreldrasam-
starf og fleira- - fþg
Sprengidagur er í dag og má gera ráð fyrir að saltkjöt og baunir verði á borðum fjölmargra landsmanna. í Hrísa-
lundi á Akureyri, eins og í verslunum um land allt, var mikið að gera við kjötborðið, og flestir að kaupa saltkjöt.
mynd: brink
Tónlistarhúsið í Kópavogi: Úæski-
legt móbergsefni í gólfinu hefur
kvarnast út og myndað göt. Einn
dagur fer í að fylla upp í götin
með steinlfmi.
GaUi í gdlfi
Komið hafa í Ijós steypugallar í
gólfi nýja tónlistarhússins í
Kópavogi, sem rakið er til þess
að móberg blandaðist inn í gólf-
efnið. Verktakinn vinnur nú að
viðgerðum, sem að sögn að-
standenda hússins eru smávægi-
legar og hafa engin áhrif á starf-
semina.
Bæði Vigdís Esradóttir, fram-
kvæmdastjóri tónlistarhússins,
og Gunnar I. Birgisson, formað-
ur bygginganefndar hússins,
fullyrða að um minniháttarmál
sé að ræða og að mjög sé orðum
aukið að rífa þurfi gólfið upp.
„Vegna móbergsins hefur á fá-
einum stöðum dottið upp úr
gólfinu og myndast örlítil og lítt
áberandi göt. Ekkert sem gert er
er fullkomið en þetta er ekki
meira mál en svo að það tekur
einn dag að lagfæra þetta," segir
Vigdís.
„Það er ljóst að það tókst ekki
að sigta allt móbergið út og því
hafa myndast þessi örsmáu göt.
Það er sett steinlím í þetta, sem
sérfræðingar eru sammála um
að sé endanleg lausn, og menn
eru sammála um að þá sé vanda-
málið úr sögunni," segir Gunn-
ar. - FÞG
Margrét er
talsmaður
Ákveðið hefur
verið að Margrét
Frímannsdóttir,
formaður Alþýðu-
bandalagsins,
verði formlegur
talsmaður
Samfylkingar-
innar í komandi
kosningabaráttu.
Sighvatur Björgvinsson staðfesti
í gær að Alþýðufokksforustan
hefði gengið frá þessu af sinni
hálfu á fundi í gær.
Sjá einnig „Skrumskæling
lýðræðis" bls. 5 og Norðurlands-
blað.
Margrét
Frímannsdóttir
ATQteiadir samaæcmrs
SZ9 Zf
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524
LA