Dagur - 16.02.1999, Síða 2

Dagur - 16.02.1999, Síða 2
2 - ÞRIDJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 ro^tr FRÉTTIR „Móttökur voru sérdeilis góðar og salurinn mjög skemmtilegur. Við vorum alsæl með þessa sýningu, við Guðrún, “ segir Eriingur Gíslason. Rommí vel tekið norðan lands „Þetta tókst alveg frábærlega," segir Kristján Sverrisson á Bing Dao-Renni- verkstæðinu á Akureyri um Norður- landsfrumsýningu á ieikritinu Rommí með leikurunum Guðrúnu Asmunds- dóttur og Erlingi Gíslasyni í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. „Þetta voru frábærar viðtökur og tækniliðið að sunnan hafði orð á því að það hefði verið gaman ef þetta hefði verið aðal- frumsýningin," segir Kristján. Erlingur Gíslason segist ánægður með þetta framtak. „Móttökur voru sérdeilis góð- ar og salurinn mjög skemmtilegur. Við vorum alsæl með þessa sýningu, við Guðrún." Leikritið hefur gengið í Iðnó síðan í september en er nú sýnt á báðum stöðum. „Aðalsprengjan“ verður um næstu helgi en þá er fyrirhugað að FRÉT TA VIÐTALIÐ sýna leikritið sama daginn á Akureyri kfukkan 14.00 og í Reykjavík klukkan 21. Mildlvægt samstarf „Þeir höfðu orð á því frá Iðnó hve allt stæði opið fyrir okkur hérna fyrir norð- an,“ segir Kristján og nefnir sem dæmi að Byggingavörudeild KEA hafi lánað mótatimbur, Sandblástur og málm- húðun lánuðu rör og fleira í loftið og margir á sveitabæjum í nágrenninu lögðu til hluti í leikmyndina, Iþrótta- höllin lánaði stóla og Kristnesspítali og Sjúkrahúsið opnuðu gömlu geymsl- urnar og Iánuðu bekken, hjólastóla og fleira. Bing Dao-Renniverkstæðið er í sam- vinnu við Islandsflug og Dag um sýn- ingarnar og er viðskiptavinum Islands- flugs og áskrifendum Dags boðið 20 prósenta afsláttur af miðaverði. „Þessi samstarfssamningur er stærsta hjálpin sem ég fæ hérna í leikhúsinu. Dagur og Islandsflug hafa gert mér ldeift að vera með þetta í vetur. Þetta er mjög góður samningur fyrir alla aðila og vonandi verður þetta áfram á öllum verkum sem ég verð með hérna fram að sumri.“ Varðandi framhald á sýningum á Rommí norðan heiða segist Kristján ætla að sjá til eftir aðsókninni en í fljó- tu bragði sagðist hann telja líkur á að verkið ætti að ganga fram að páskum. A dagskránni er að fá Hellisbúann og Sex í sveit norður. Skrifað var undir samninga um þau verk i gærkvöld en ekki er Ijóst um nánari tímasetningar. - HI ___________________Hmttj Gárungamir í pottiuum full- yrða að engirni sc ánægðari með úrslittn í prófkjöri Sam fyUdngarimiar í Norðurlandi eystra en Steingiimur J. Sig- fússon, formaður nýja flokks- ins - VG. Sú óánægja sem ríki með úrslitin hafi nánast gull- tryggt glæsilega kosningu Steingrímur J. hans í kjördæminu í vor. Eins Sigfússon. geti framsóknarmcnn vænst þess að fá óánægðar konur í kjördæminu yfir til sín, því eftir atburði helgarinnar sé Framsókn eina kvemiaframboðið á Norðurlandi eystra. í pottinum ræða menn kosn- ingamálin á Austurlandi. Framsóknarmenn eystra hafa bent á að Samfylkingarmenn hampi lítið stefnu flokksins á landsvísu. Frammarar hafa sínar skýiingar á þess og segja að síst vilji menn tala um stefnuskrá Samfylkingarinn ar, sem liljóði upp á „að bcrj- ast á móti atvinnuuppbygg- ingu í fjórðungnum og skattleggja sjávarútveginn jafnt stóra scm smáa“. Hins vegar er sagt að séra Gmmlaugur Stefánsson hafi ráð þegar í harðbakkan slær ogþað sé að segja, að ef stefna Samfylkingarinn- ar á landsvísu rekst á vlð stefnu SamiýUdngariimar á Austurlandi þá gangi sú síðamefnda iýrir.. Því var hvíslað í heita pottin- um að Sólveig Pétmsdóttir hafi fyrir hclgina haldið ijöl- mennan fund á Seltjamamesi þar sem konur hylltu hana sem varaformann. Þetta cr að sögn ískyggileg tiðindi fyrir Sigríði Önnu, en harkan vex nú hröðum skrefum í varafor- mannsslagnum í Sjálfstæðis- flokknum, og hyggm Sólveig á strandhögg meðal kvemia í Rcykjaneskjördæmi. Sólveig Pétursdóttir. Gunnlaugur Stefánsson. Sesselja Jónsdóttir sveitastjóri Ölfushrepps Ölfushreppur og Reykjavík- urborg ætla að hefja samstarfí jarðhita- og orkumálum og sviði hafna- og umhverfismála. Sveitarstjóri Ölfushrepps er hjartsýnn á að það eigi eftirað eflahyggðí Ölfusi. Ertuii ekki að falla í faðm stóra bróður - Ölfushreppur afsalaði sér forkaupsrétti ó hluta í 7 jörðutn sem Reykjavíkurborg keypti í haust sem leið. Hvers vegna? „Þetta er sala upp á 377 milljónir króna og við hér í þessu litla sveitarfélagi eigum 50 milljónir afgangs á hverju ári til að fjár- festa og framkvæma fyrir. Það er óraunhæft að leggja í slíka fjárfestingu þegar maður sér ekki hvenær eða hvort maður getur not- að hana.“ - Hvaðfelst í þessari viljayfirlýsingu um samstarf? „I fyrsta lagi er þetta viljayfirlýsing um samstarf í orkumálum. Við vitum ekki hvert breytt umhverfi í orkumálum leiðir okkur en vonandi í þá átt að allir komist inn á landsnetið. Þá er möguleiki að raforka hér í Olfushreppi verði seld á sama verði og í Reykjavík. I þessu felst líka að við ætlum að fá a.m.k áheyrnarfulltrúa í Jarðgufufélaginu sem Reykjavíkurborg og ríkið eru eigendur að. Það var leitað til borgarstjóra 1995 með sölu á raforku og land undir pappírsverk- smiðju. Borgin hefur ekki þetta land en á kannski raforkuna og það er hugsanlegt að verksmiðjan verði reist hér. í þessu felst einnig að sveitarfélögin hafa ákveðið að kanna til hlítar möguleika á samstarfi hafnanna í Reykjavík og Þorláks- höfn. Þar er m.a. verið að horfa til þess að það verði hægt að nota höfnina hér ef hér verður reist stór pappírsverksmiðja." - Það er einnig rætt utn samstarf í um- hverfismálum. Hvað er þar á ferðinni? „Lönd sveitarfélaganna Iiggja saman á stóru svæði, bæði á Hengilsvæðinu og Hell- isheiðinni. Þetta svæði þarf að skipuleggja með tilliti til orkuvinnslu og útivistar og annara þátta. I öllu þessu, jarðhita-, hafna- og umhverfismálum, verður skipaður sér- stakur starfshópur til að fara yfir stöðuna og skila tillögum. Svo erum við sammála um að skipa starfshóp til að skoða með hvaða hætti Reykjavíkurborg geti veitt okk- ur sérfræðiaðstoð á sviði t.d brunavarna, fé- lagsþjónustu, fræðslumála og atvinnu- mála.“ - 1 samburði við Ölfushrepp er höfuð- borgin óskaplega stór. Þið eruð ekkert hrædd um að verða undir í svona sam- starfi? „Nei við erum ekkert hrædd um það. Við eigum hér nóg Iand og við eigum raforku. Við erum skipulagsaðilar að þessu svæði og erum ekkert að sameinast Reykjavík." - Er mikill ávinningur að þessu fyrir Ölfusinga? „Ég tel það. Það þarf svo lítið hér í þetta Iitla sveitarfélag til að auka tekjurnar. Margfeldisáhrifin er hér svo mikil. Ég tala nú ekki um ef þessi stóra verksmiðja verður reist hér. Við erum alsæl með þetta. Við telj- um að í þessu sé stórt tækifæri til að efla hér byggð til hagsbóta fyrir íbúana og fyrir- tækin. Ég vil taka fram að sveitarfélagið hér er mjög vel rekið og hefur í mörg ár skilað rekstrarafgangi. Við erum ekki að þessu af því að við séum búin að gefast upp eða reksturinn sé í molum. Þetta er gert til að efla enn frekar byggðina og samfélagið. Við erum ekki að falla í faðm stóra bróður. Ég vil líka taka fram að þetta brölt okkar með Reykjavík á ekki að hafa nokkur áhrif á samstarfið innan Sunnlenskrar orku. Olf- ushreppur er aðili að Sunnlenskri orku ásamt Rarik og Hveragerðisbæ og það er ekki á nokkurn hátt ætlunin að koma því samstarfi upp í loft.“ - vj

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.