Dagur - 16.02.1999, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 - 3
FRÉTTIR
Útgerðarmeim berí
ábyrgð á eigin gerðiun
Útgerðarmeim kvóta-
lítilla báta geta engr-
ar aðstoðar vænst frá
ríkisstjóminni að því
að Þorsteinn Pálsson
segir.
Sighvatur Björgvinsson spurði
sjávarútvegsráðherra, í óundir-
búnum spurningatírha á Alþingi í
gær, um málefni kvótalausra
báta. Hann sagði að Kristinn H.
Gunnarsson, formaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis, hefði í
sjónvarpsfréttum sagt að hann
væri fyrir sitt leyti reiðubúinn til
að opna lögin um stjórn fiskveiða
og taka tillit til þeirra sjónar-
miða, sem fram hafa komið frá
útgerðum kvótalítilla báta. Sig-
hvatur sagði Kristin H. hafa
hvatt útgerðarmenn þessara
skipa til þess að skila til sín og
sjávarútvegsnefndar hugmynd-
um og tillögum um breytingar til
að tryggja kvótalitlum bátum
kvóta svo þeir gætu stundað
veiðar með eðlilegum hætti.
Sighvatur Björgvinsson spurði sjávar-
útvegsráðherra, í óundirbúnum spurn-
ingatíma á Alþingi í gær, um málefni
kvótalausra báta.
„Nú hlýtur þetta að hafa verið
rætt við sjávarútvegsráðherra og
ég ætla að spyrja hvort hann sé
ekki reiðubúinn til að staðfesta
það. Einnig hvort ekki sé opinn
möguleiki hjá ríkisstjórn og
stjórnarflokkunum að taka fisk-
veiðistjórnarlögin aftur upp til
endurskoðunar og taka þá tillit
„Ég vara við hugmyndum um það að
hér eigi að fara að handstýra þróun
sjávarútvegsins með geðþóttaákvörð-
unum.
þeirra útgerðarmanna sem hefur
svo vel verið tekið af formanni
sjávarútvegsnefndar," sagði Sig-
hvatur.
Beri ábyrgð á eigin gerðum
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagðist \ilja taka fram,
vegna þessarar fyrirspurnar, að
innan ríkisstjórnarinnar hefði
það ekki verið rætt að flytja afla-
heimildir frá einum hópi fiski-
skipa yfir til annars. Sá hópur
fiskiskipa, sem Sighvatur hefði
rætt um og á litlar aflaheimildir,
á möguleika á þ\á að kaupa til sín
aflaheimildir ef þær fást við eðli-
legu verði. Þar verði lögmál
markaðarins einfaldlega að ráða.
„Eg vara við hugmyndum um
það að hér eigi að fara að hand-
stýra þróun sjávarútvegsins með
geðþóttaákvörðunum. Þeir sem
hafa keypt báta með litlar afla-
heimildir og hinir sem hafa selt
frá sér aflaheimildir, verða sjálfir
að bera ábyrgð á þeim tjárfest-
ingum sem þeir hafa ráðist í og
þeim ráðstöfunum á aflaheimild-
um sem þeir hafa selt frá sér,“
sagði Þorsteinn Pálsson.
Hann sagði eftir umræðurnar í
samtali við Dag að Fiskistofa
myndi taka fyrir mál kvótalausa
bátsins frá Patreksfirði og reka
málið samkvæmt lögum en
heimildir væru fyrir því að svifta
kvótalausa báta því veiðileyfi
sem þeir hafa. — S.DÓR
ÓlafurG. Einarsson, forseti Alþingis.
Miuna mas
og út með
farsímaiia
Nú eru hafnar annir á Alþingi.
Það lifa enda ekki nema 19 virk-
ir dagar af þingtímanum en fyr-
irhugað er að Alþingi Ijúki störf-
um 10. mars. Venjulega eru ekki
þingfundir á föstudögum og ef
þeir eru taldir frá eru þing-
fundadagar ekki nema 15. Fjöldi
mála liggur óafgreiddur á Al-
þingi nú.
Forseti Alþingis, Ólafur G.
Einarsson, benti þingmönnum á
það í gær að fyrir Alþingi lægju
nú 80 þingmannamál óafgreidd
íyrir utan lagafrumvörp sem rík-
isstjórnin ætlar að fá afgreidd
fyrir þinglok. Ólafur G. sagði að
ef samstarfsvilji væri fyrir hendi
hjá þingmönnum og að þeir
myndu nú stytta mál sitt og
miða við svo sem eins og fimm
mínútur á ræðu, væri von til
þess að hægt yrði að taka öll
þessi mál fyrir. Þá bað Ólafur G.
Einarsson þingmenn að virða
það bann sem er við því að vera
með opna farsíma í þingsalnum.
Hann sagði að þeir trufluðu
tölvuvinnsluna og einnig upp-
töku á ræðum þingmanna.
- S.DÓIÍ
Veiðir án kvóta
og vill prófmál
Svavar Guðnason, út-
gerðarmaður, segir
veiðamar mótmæli
gegn kvótalögum sem
ekki standist lög og
tilgangurinn sé að
draga sig og kvóta-
kerfið fyrir dóm og
það verði prófmál.
Vatneyri BA-238, kvótalaus 227
tonna togbátur frá Patreksfirði,
einn hinna svokölluðu austur-
þýsku tappatogara, landaði í vik-
unni um 20 tonnum af fiski í
gáma á Eskifirði. Skipið hafði
ekki kvóta, en gámafiskur þarf
ekki að fara gegnum hafnarvigt
en Ieyfilegt er að vigta slíkan afla
erlendis ef landað er fyrir viður-
kennt sölufyrirtæki. Aflinn
fékkst á Hvalbakshalla. Báturinn
var í gær á leið vestur með Norð-
urlandi með 35 tonna afla sem
landað verður á Vestfjörðum nú í
morgunsárið. Fiskistofa hefur
svipt skipið öllum veiðiheimild-
um í íslenskri lögsögu og kært
útgerð og skipstjóra til sýslu-
mannsins á Patreksfirði. Þegar
sýsluskrifstofunni var lokað í gær
hafði sú kæra ekki borst að sögn
Þórólfs Halldórssonar, sýslu-
manns á Patreksfirði.
Svavar Guðnason, útgerðar-
maður, segir að um sé að ræða
að mótmæla kvótakerfinu sem
ekki standist lög. Tilgangurinn
sé að Iáta draga sig og kvótakerf-
ið fyrir dóm og það verði próf-
mál. Svavari sárnar það sam-
stöðuleysi sem kvótalausir út-
gerðarmenn hafi sýnt í þessu
máli, það sé í engu samræmi við
þær yfirlýsingar sem áður hafi
fallið um þetta mál. Þegar á
reyni hlaupi menn í felur og hver
hugsi um sitt. Það sé sama
hvernig málið fari, ef ekkert
verði gert sé kerfið hrunið, falli
sýknudómur er kerfið hrunið og
einnig ef hann verði dæmdur.
Svavar gerir einnig út bátinn Há-
hyrning BA, sem er nýkominn úr
veiðiferð fýrir leigukvóta. Verið
er að gera Háhyrning kláran í
næstu veiðiferð, kvótalausan.
Svavar Ieggur 10% af aflaverð-
mæti inn á bankabók og 20% að
auki ofan á verð fisks, sem flutt-
ur er óunninn úr landi, og segist
vilja greiða þjóðinni veiðileyfa-
gjald en ekki kvótaeigendum
sem í raun eigi ekki kvótann.
Þetta hafi hann tilkynnt stjórn-
völdum. Fundað verður um mál-
ið á Hótel Lofteiðum næsta
laugardag.
Vatneyrin var síðdegis í gær
stödd norður af Eyjafirði á vest-
urleið í miklum sjó. Björn Krist-
jánsson, skipstjóri, sagðist eiga
von á því að verða dreginn til
ábyrgðar. Þegar haldið var á veið-
ar hafi útgerðarmaðurinn ætlað
að útvega kvóta á móti aflanum,
en það síðan ekki tekist, enda
ekkert að hafa til leigu á Kvóta-
banka. Björn sagðist vantrúaður
á að það tækist áður en landað
yrði á þriðjudagsmorgun. — GG
Klám og vændi
Gísli S. Einars-
son spurði
dómsmálaráð-
herra að því, í
óundirbúnum
fyrirspurnar-
tíma á Alþingi í
gær, hvort
hann ætlaði g/y/ 5
ekki að beita Einarsson.
sér fyrir aðgerð- ---
um gegn klámi
og vændi, sem
hann sagði flæða yfir þjóðina.
Dró Gísli upp úr pússi sínu
heila auglýsingasíðu úr DV með
eintómum auglýsingum um
klámþjónustu, lagði hana á
ræðupúltið í þingsal og sagðist
ætla að skilja hana þar eftir svo
ráðherra gæti séð um hvað mál-
ið snérist.
Þorsteinn Pálsson sagði að
dómsmálaráðuneytið aðhefðist
ekkert í málinu en ef grunur
vaknaði um ólöglega starfsemi
myndi Iögreglan og saksóknari
að sjálfsögðu grípa inn í. - S.DÓR
Úttekt á almaima-
tryggingakerfinu
Magnús L.
Sveinsson og
sex aðrir þing-
menn Sjálf-
stæðisflokks-
ins, hafa lagt
fram þingsá-
lyktunartillögu
um að úttekt
verði gerð á
framtíðarstöðu
og þýðingu á
almannatrygg-
ingakerfinu í ljósi ítarlegrar um-
ræðu í þjóðfélaginu um lífeyris-
og tryggingamál.
Reykingaundan-
þágur
Magnús A. Magnússon hefur
lagt fram fyrirspurn til heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, þar
sem hann spyr um rökin fyrir því
að veitinga- og skemmtistaðir
skuli undanþegnir reglum um
reykingabann í ljósi þess að
þetta eru líka fjölmennir vinnu-
staðir. Hann spyr líka hvað
starfsfólk þessara staða sem
hafa sérmenntað sig til viðveru á
þeim eigi að gera og hvort ráð-
herra viðurkenni skaðabótarétt
þessa fólks vegna mismununar.
Lágmarkslaun
Gísli Einarsson, Jóhanna Sig-
urðardóttir og Guðmundur Árni
Stefánsson hafa lagt fram laga-
frumvarp þess efnis að lágmarks
mánaðarlaun í landinu skuli
vera 88.000 á mánuði fyrir full-
an vinnudag hjá 18 ára og eldri.
Ofbeldi gegn
bömum
Kristín Astgeirsdóttir leggur
fram þingsályktunartillögu um
að ríldsstjórninni verði falið að
skipa nefnd er undirbúi og hafi
umsjón með rannsókn á orsök-
um, umfangi og afleiðingum
hverskyns ofbeldis gegn börn-
um. Nefndin komi með tillögur
til úrbóta. - S.DÓR