Dagur - 16.02.1999, Page 4

Dagur - 16.02.1999, Page 4
4- I’RIDJUD AGU R 16. FEBRÚAR 1999 FRÉTTIR Ðggur LOGREGLA 16 gnmaðir um ölvun Um helgina, frá föstudagsmorgni til mánudagsmorguns, urðu 55 umferðaróhöpp þar sem eignatjón varð, 16 voru grunaðir um ölvun við akstur, 33 um of hraðan akstur, 8 sinntu ekki stöðvunarskyldu og jafnmargir óku gegn rauðu umferðarljósi, samkvæmt dagbók lögregl- unnar í Reykjavík. Þóttust í vinnuleit Upp úr hádeginu Þá hafði piltur komið inn í fyrirtæki í austurborg- inni til að sækja um vinnu og hafði fengið að fara inn á salerni. Þar nálægt voru föt starfsmanna og hurfu úr þeim peningar, ávísanahefti og greiðslukort. Um svipað leyti komu tveir piltar inn í annað fyrir- tæki á sömu slóðum og þóttust vera að sækja um vinnu. Þeir fóru í yfirhöfn starfsmanna og stálu Iyklakippu og síðan bifreið af bíla- stæði. Það fréttist af piltunum á bifreiðinni í Hveragerði en á laug- ardag voru tveir piltar handteknir í Rvík grunaðir um þessa þjófnaði og bifreiðin fannst nokkru síðar. GrímuMæddur með hníf KI. rúmlega tíu á föstudagskvöld var tilkynnt að grímuklæddur mað- ur með stóran hníf í hendi hafi komið inn í 11-11 verslunina við Norðurbrún, ógnað starfsfólki og krafist peninga. Hann fékk um 100.000 kr í peningum og gekk á brott. Strax var hafin víðtæk leit sem lauk með því að grunaður maður var handtekinn í íbúð í ná- grenninu og þar fundust peningarnir og munir sem tengdu hann við ránið. Stal leigubíl Um þrjúleytiö aðfaranótt sunnudags kom leigubifreiðarstjóri á lög- reglustöðina og vildi Iosna við farþega úr bifreið sinni. A meðan stal farþeginn bifreiðinni, ók á bifreið á Snorrabraut og síðan útaf á Rú- staðvegi við Valsheimilið þar sem hann var handtekinn. Áður en þetta gerðist hafði sami maður ráðist á annan mann á veitingastað. Sá síðarnefndi fór úr axlarlið og var fluttur á slysadeild. 26 áu beltis Lögreglan hefur undanfarna daga kannað sérstaklega hvort menn notuðu öryggisbelti og annan slíkan búnað í bifreiðum. Um helgina urðu lögreglumenn varir við 26 sem ekki fóru eftir þessum reglum. Á sunnudag var var bifreið stöðvuð sem ekið var á 103 km hraða á Suðurlandsvegi. I bifreiðinni var einum farþega of mikið og 11 ára farþegi var ekki í belti. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hvað slíkt háttalag er vítavert. / vikunni hefjast viðræður á miiii Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar þar sem kannaður verður möguleiki á því að hvort sú rafmagnsframleiðsla sem hefur verið í Elliðaárvirkjun, geti farið fram á Nesjavöllum. Niðurrif kostar iiin SOmiUjóiiir Ákvörðim uiii framtíð raforkuvmnslu í Elliðaárdal í sumar. Skiptar skoðanir. Við- ræður við Landsvirkj- un eftir helgi. Talið er það muni kosta um 25 milljónir króna að taka niður Ár- bæjarstífluna og annað eins að fjarlægja þrýstivatnsæðina í Elliðaárvirkjun, eða samtals rúmlega 50 milljónir króna. Al- freð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur, segir að framtíð raforkuvinnslu í Elliðaárvirkjun verði skoðuð heildstætt þegar niðurstöður Iig- gja fyrir í þeim rannsóknum sem unnið hefur verið að á Iífríki EI- Iiðaánna. Gert er ráð fyrir að þær niðurstöður verði Ijósar í apríl n.k. Rætt við Landsvirkjun I vikunni hefjast viðræður á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar þar sem kannað- ur verður möguleiki á því hvort sú rafmagnsframleiðsla sem hef- ur verið í Elliðaárvirkjun, geti farið fram á Nesjavöllum. Stjórn- arformaður Orkuveitunnar segir að hægt sé að framleiða þessa orku á Nesjavöllum fyrir utan samninginn við Landsvirkjun. Ekkert rafmagn hefur verið framleitt í Elliðaárstöðinni um skeið en töluverðar skemmdar urðu á henni á sl. ári. Skiptar skoðanir Stjórnarformaður Orkuveitunnar býst við að framtíð stöðvarinnar muni skýrast í byrjun sumars. Hann minnir hinsvegar á að skiptar skoðanir séu um málið. Annarsvegar séu þeir sem vilja færa árnar í það horf sem var fyr- ir virkjun og hinsvegar þeir sem vilja að stöðin verði rekin áfram. Hann bendir einnig á að stöðin og jafnvel sjálf stíflan hafi menn- ingarsögulegt gildi. Hinsvegar sé Ijóst að það þurfi að ráðast í við- gerð á æðinni sem fór í sundur í fyrra, óháð ákvörðun um framtíð raforkuvinnslunnar. Æðin sé úr viði og því brýnt að gera við hana svo hún fúni ekki og verði eyð- ingu að bráð. -grh Gekk berserksgang Ölvaður maður ærðist í heimahúsi við Grensásveg á föstudagskvöld. Hann réðist á vin sinn gestkomandi og eftir að Hnurinn fór gekk sá ölvaði berserksgang og braut og bramlaði í íbúðinni. Hann réðist einnig á lögreglumenn sem komu á staðinn og fékk eftir það gistingu í fangageymslu. Meig út um glugga Sfðar um nóttina hafoi lögreglan afskipti af farþegum í bifreið á Kringlumýrarbraut en einn þeirra var hálfur út um gluggann að kasta af sér vatni. Farþegarnir tóku illa afskiptum lögreglu og var þeim öll- um vísað út úr bifreiðinni að beiðni ökumanns. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fleiri mönnum þessa nótt er þeir köstuðu af sér vatni annarsstaðar en á salernum. Miölungs ölvuu Nokkuð var af fólki í miðborginni eftir að veitingastöðum var Iokað á laugardagskvöldið og flest á aldrinum 18-25 ára. Ölvun var miðl- ungi mikil en börn undir 16 ára ekki áberandi og þurfti ekki að hafa afskipti af neinu þeirra. Handtaka þurfti 6 manns vegna ölvunar eða óspekta og einn var fluttur á slysadeild. Banaslys á Bústaðavegi Um kl. eitt var bifreið ekið á Ijósastaur á Rústaðavegi/Sogavegi. Öku- maður reyndist látinn við komu á slysadeild. Ymislegt bendir til að skyndileg veikindi ökumanns hafi valdið árekstrinum. Farþegi fékk skurð á hnakka og heilahristing og var einnig fluttur á slysaideild. Samflot gegn borginni í heitavatiisinálummi Oftekin heitavatns- gjöld og arðgreiðslnr í borgarsjóð. Sameigin- legt hagsmunamál ná- grannasveitarfélaga. „Eg held að menn hljóti að skoða og reifa málið betur heima í hér- aði áður en menn gefa út ein- hverjar slíkar yfirlýsingar," segir Magnús Gunnarsson, hæjarstjóri í Hafnarfirði, aðspurður hvort ætlunin sé að láta reyna á orku- deiluna við Reykjavíkurborg fyrir dómstólum. Sömu hagsmunir •Þessi deila um oftekin•* heita*. vatnsgjöld, arðgreiðslur og samn- ingstíma á milli Hafnarfjaðar og Reykjavíkurborgar er ekki aðeins bundin við þessi tvö sveitarfélög. Magnús segir að nágrannasveit- arfélögin fylgist vel með þróun þessa máls, enda sé um sameig- inlegt hagsmunamál þeirra að ræða. Þessutan hafa forustu- menn þessara sveitarfélaga rætt málið sín í milli og m.a. að hafa með sér eins mikið samflot og hægt sé. Þarna sé um að ræða Kópavog, Garðabæ og Ressa- staðahrepp. Óhófleg gjaldtáka Á fundi bæjarstjórnar Kópavogs fyrir skömmu Iagði Flosi Eiríks- son bæjarfulltrúi fram fyrir- spurnir um að bæjarlögmaður at- hugi hvort Kópavogsbúar eigi kröfur á hendur borginni vegna viðskipta við Hita- og Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Jafnframt yrði Iagt mat á um hvæ miklar upp- hæðir væri að tefla. I umræðum um málið taldi Gunnar I. Birgis- son, oddviti sjálfstæðismanna í meirihluta bæjarstjórnar, að fyl- gst yrði grannt með framvindu þessa máls. Bæjarstjórinn var einnig sömu skoðunar. Ármann Kr. Ólafsson bæjarfulltrúi, sem jafnframt er aðstoðarmaður sam- gönguráðherra, taldi háar arð- greiðslur í borgarsjóð endur- spegla óhóflega gjaldtöku Hita- veitunnar. -GRH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.