Dagur - 16.02.1999, Síða 6
6 - ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 617HAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Óvænt niðurstaða
í fyrsta lagi
Niðurstöður í prófkjörum Samfylkingarinnar á Norðurlandi
komu mjög á óvart og munu vafalítið valda hinu sameiginlega
framboði nokkrum erfiðleikum. I Norðurlandskjördæmi eystra
var Svanfríði Jónasdóttur, alþingismanni, hafnað - að vísu með
afar litlum atkvæðamun. I vesturkjördæminu hirtu Siglfirðingar
efsta sætið og ýttu um leið alþýðubandalagsmönnum út úr ör-
uggu þingsæti. Fram hefur komið að um tólf hundruð siglfirsk-
ir kjósendur hafi tekið þátt í prófkjörum Samfylkingar og Fram-
sóknarflokks að undanförnu, en allir kjósendur í bæjarfélaginu
eru um eitt hundrað færri. Slíkt framferði dæmir sig sjálft.
í öðru lagi
Hörmulegt er til þess að vita að kjósendur annarra flokka mis-
noti opin prófkjör pólitískra andstæðinga með þeim hætti sem
augljóslega hefur gerst á Siglufirði nú í vetur - í það minnsta af
hálfu þeirra kjósenda sem tóku þátt í prófkjörum tveggja flokka
með nokkurra vikna millibili. Það dregur óhjákvæmilega úr
stuðningi innan flokkanna við almenn prófkjör - sem eru þrátt
fyrir hættuna á misnotkun lýðræðislegasta aðferðin til að leyfa
stuðningsmönnum flokka eða framboða að velja einstaklinga á
lista. Margir virðast gleyma því að þátttaka í slíku prófkjöri felur
í sér siðferðislegar skyldur.
í þriðja lagi
Með prófkjörum helgarinnar er að koma heildarmynd á fram-
boðsmál Samfylkingarinnar. Niðurstaðan er vafalaust erfiðust
fyrir Alþýðubandalagið. Fulltrúar þess leiða lista Samfylkingar-
innar í aðeins tveimur kjördæmum af þeim sjö sem þegar hafa
raðað í efstu sæti - á Suðurlandi og Austurlandi. I fjórum kjör-
dæmum - Reykjanesi, Vestfjörðum og Norðurlandi öllu - eru
oddasætin í höndum Alþýðuflokksmanna, en Þjóðvaka í Reykja-
vík. Þetta getur að sjálfsögðu orðið vatn á milli Vinstrihreyfing-
ar Steingríms J. Sigfússonar, sem eðlilega höfðar mjög til fyrrum
félaga sinna í Alþýðubandalaginu.
Elías Snæland Jónsson.
Nýir talsmenn
Utanríkismálin eru gríðarlega
þýðingarmikill málaflokkur í
íslenska stjórnarráðinu. Aðild
okkar að hinum ýmsu alþjóða-
stofnunum getur skipt sköp-
um fyrir þessa Iitlu þjóð, sem á
allt sitt undir utnaríkisvið-
skiptum og góðum tenglsum
við útlönd. Þannig er Evrópu-
samstarfið mikilvægt, Norður-
landasamstarfið er
mikilvægt og sam-
starfið í NATO er
einn af homstein-
um íslenskrar ut-
anríkisstefnu. Á
seinni árum hefur
þátttaka okkar í
Vestur Evrópu-
sambandinu
hernaðarlegum
armi Evrópusam-
bandsins einnig
vakið athygli en þar
erum við með
aukaaðild. Garri
hefur oft hitt erlenda menn
sem eru óþreytandi á að benda
á hversu snjallir Islendingar
eru að geta spilað á þetta al-
þjóðasamstarf og þannig náð
að tryggja hagsmuni sína á
sem víðustum grundvelli.
NATO - það er ég
Allir þessir erlendu menn hafa
einmitt talað um það líka, að
utanríkisþjónusta Islendinga
sé kraftmikil og skilvirk. Þar
komi menn ótrúlega miklu í
verk með Iitlum mannafla og
tilkostnaði. Galdurinn liggur í
mannskapnum, sem tekur af
alefli þátt í störfum þessara al-
þjóðlegu stofnana, eru hvort
tveggja í senn talsmenn síns
lands og viðkomandi stofnana.
Þetta eru menn og konur sem
trúa á gildi þessara aljijóða-
stofnana og eru tilbúnir að
verja þær af lífsins krafti ef svo
ber undir. Starfsmenn utanrík-
V
öðrum
þessa al-
þjóðasamstarfs, þeir eru
NATO, þeir eru Vestur Evr-
ópusambandið, þeir eru EES,
o.s. fr.
Af vettvangi stjónunál-
anna
Því er það sérstakt gleðiefni
þegar fréttist af þvf
að utanríkisþjón-
ustan fær til sín
menn af vettvangi
stjórnmálanna,
sem áratugum
saman hafa staðið
vörð um utanríkis-
stefnu stjórnvalda
á hinum pólitíska
vettvangi. Menn
sem hafa verið hið
póiitíska skjól
embættismann-
anna. Jón Baldvin
Hannibalsson er
slíkur maður - fyrrverandi ut-
anríkisráðherra sjálfur og einn
af arkitektunum að mikilvæg-
um þáttum í utanríkisstefn-
unni. Þorsteinn Pálsson er
annað dæmi um stjórnmála-
mann sem allan sinn feril hef-
ur haldið hornsteinum hinnar
íslensku utanríkisstefnu hátt á
Iofti. Nú er þriðji stjórn-
málaforinginn kominn í þenn-
an fríða flokk. Svavar Gests-
son er einmitt rétti maðurinn
til að standa vörð um þessi
grundvallargildi. Enginn getur
með trúverðugri hætti túlkað
sjónarmið NATO. Enginn er
öflugri útskýrandi EES. Það er
full ástæða til að óska ríkis-
stjórninni og þjóðinni til ham-
ingju með þennan nýja tals-
mann utanríkisstefnu sinnar!
GARRI
isþjónustunnar eru
fremur holdgerving
r-w JÓHAJVNES
SIGURJÓNS
/ SON
skrifar
Menn hafa nokkrar áhyggjur af
vaxandi ofbeldi í íþróttum, ekki
síst íþróttum ungmenna. Börn
og ungiingar láta í síauknum
mæli hendur og fætur skipta
þegar dómgæsla er þeim ekki að
skapi og brúka kjaft í tíma og
ótíma. Þau kunna sem sé ekki að
tapa og eru agalaus að auki.
Iþróttaleiðtogar telja að þarna
þurfi að taka á málum. Það þurfi
að innprenta íþróttaæskunni það
frá fyrstu tíð að í knattleikjum
gilda ákveðnar reglur sem fara
þarf eftir. Dómar dómara eru
endanlegir og ekki þýðir að deila
við dómarann. Og í knattleikjum
er það yfirleitt svo að einhver
verður að tapa og menn verða að
taka tapi með jafnarðgeði og
reisn á hvaða aldri sem er.
Þessu þarf að troða inn í haus-
inn á æsku þessa lands.
Bad loosers
En það eru fleiri sem þurfa á
svona meðferð að halda, það eru
Hundshaus afrainbj ó ö endur
fleiri en ungt knattleikjafólk sem
þola ekki mótlæti og kunna ekki
að taka tapi. Pólitík er keppni
ekki síður en fótbolti. Þar er leik-
ið eftir settum reglum sem þátt-
takendur þekkja fyrirfram þegar
gengið er til
leiks. Þar vinna
sumir og aðrir
tapa.
Það er reyndar
ekki beinlínis
hægt að tala um
vaxandi ofbeldi í
pólitíkinni en æ
fleiri ganga þar
frá keppni með
hundshaus og
hafa í hótunum.
Þetta hefur
glögglega komið
í ljós í prófkjörum að undan-
förnu. Viðbrögð þeirra sem fara
halloka eða ná ekki þeim árangri
sem að var stefnt, eru oftar en
ekki heldur svona afundin.
Menn kunna ekki skýringar á
slæmu gengi, telja þó að hugsan-
lega hafi verið um samsæri eða
samblástur að ræða. Jú, vissu-
lega sættu þeir sig við prófkjörs-
reglurnar með semingi þó margt
hefði verð athugavert við þær og
þær augljóslega verið misnotaðar
í prófkjörinu. En fyrst svona
hefði farið þá væri sjálfsagt ekki
annað að gera en að una úrslit-
um óglaðir úr því sem komið
væri.
Tapsárin gróa
Þessi viðbrögð bera ekki síður
vott um vanþroska en sóðakjaft-
ur og ofbeldi unglinga sem
kunna ekki að tapa í boltaleikj-
um. Þessvegna er orðið nauðsyn-
legt að stofna þjálfunarbúðir fyr-
ir stjórnmálamenn sem hyggjast
taka þátt í prófkjörum. Þar verð-
ur farið yfir prófkjörsreglur og
nemendur fyrirfram upplýstir
um alla samsæris- og misnotk-
unarmöguleika í reglunum. Og
síðan auðvitað lögð höfuðáhersla
á þær grundvallarreglur í pólitík
og íþróttum, að það þýðir ekki að
kæra eftir á, eða setja upp
hundshaus vegna reglna sem
samþykktar eru áður en gengið
er til leiks.
Tapsárir frambjóðendur sem
eiga bágt með að sætta sig við
lýðræðislega niðurstöðu í próf-
kjörum og kosningum eiga auð-
vitað ekkert erindi í pólitík. Ekki
frekar en ofbeldismenn í íþróttir.
-Víupir
snyrOhi
svauraio
Er skynsamlegt að stofn-
anirfari í samningavið-
ræðurvið álfa og huldu-
fólk?
(Sjúkrahús Suðurlands á Sel-
fossi hefur leitað til álfasér-
fræðings vegna samskiptaörð-
ugleika á stofnuninni ogfyr-
irhugaðrar nýbyggingar.)
Guðmundur Kristinsson
söguritari á Seifossi
„Þegar ég skrif-
aði Sögu Selfoss
fór ég ítarlega í
ömefnasögu á
Selfossi. Þar
komu í Ijós þrír
huldufólksbæir
á bökkum Ölfu-
sár, fyrir norðan Selfossbæi og
kirkjuna. Þórishólar, austast í
Selfossbyggð, þar sem sjúkrahús-
ið er, er ævafornt ömefni. í ör-
nefnatali getur Símon Jónsson,
bóndi á Selfossi, ekki um álfa
eða huldufólk f Þórishólum, en
segir munnmæli herma að Þórir
Asson landnámsmaður hafi þar
verið heigður. Margar frásagnir
hef ég um að huldufólk hér um
slóðir sé enn sprelllifandi. Margir
sjáendur hafa lýst þeim rækilega.
Sjálfur hef ég reynt að vissara er
að fara varlega þar sem huldu-
fólksbyggir eru.“
Ari Trausti Guðmundsson
jarieðHsfræðingur.
„Heilbrigt fólk
kann muninn á
Jjjóðtrú og raun-
veruleika og það
á enginn að taka
þetta svo alvar-
Iega að úr spinn-
ist samningavið-
ræður við álfa og huldufólk hvað
þá blaðamatur. Eitt er það hvort
menn halda við þessari þjóðtrú
sem menningararfleifð, en að op-
inber stofnun fari út í svonalagað
er ósköp svipað og að stjörnuspá-
maður yrði hafður með í ráðum á
Alþingi.“
Inguttn Guðmundsdóttir
forsetibæjarstjómar Árborgar.
„Ef stjórnendur
Sjúkrahúss Suð-
urlands telja að-
gerðir af þessu
tagi vera þeirra
áætlunargerð til
framdráttar þá
geri ég eklu at-
hugasemdir ýið þetta. Sjálfri
finnst mér sögur af álfum og
huldufólki afar skemmtilegar og
vil að þeim sé haldið við, en þeg-
ar komið er út í raunveruleikann
efast ég í trúnni.“
„Það er skyn-
samlegt að leita
allra Ieiða sem
færar eru til að
leysa vandamál
sem upp koma.
Þó heimildir
greini ekld frá
Jjví að álfar og huldufólk hafi búið
þar sem sjúkrahúsið stendur nú
bendi ég á að þessar vættir flytja
búferlum um hver áramót og þar
sem eitt sinn var ekkert líf getur
verið fjör í hverjum kletti nú.“
Jón Jónsson
jrjóðfræðingur.