Dagur - 16.02.1999, Qupperneq 13
TJagwr.
ÞRIÐJUVAGUR 16. FEBRÚAR 1999 - 13
IÞROTTIR
Bergsveinn sá iiin FH-inga
Bergsveinn Bergsveinsson, Bjarki Sigurðsson, Jón Andri Finnsson og Ásmundur Einarsson fagna sigri.
Bergsveinn Berg-
sveinsson, markvörð-
ur Aftureldingar, átti
stjömuleik þegar lið
hans sigraði FH-inga
26-21 í úrslitaleik SS-
bikarsins í handbolta,
sem fram fór í Langar-
dalshöHinni á laugar-
daginn.
FH-ingar mættu ákveðnir til leiks
í bikarúrslitaleikinn gegn Aftur-
eldingu á Iaugardaginn og sýndu
glimrandi Ieik allan fyrri hálfleik-
inn. Þeir léku mjög agaðan sókn-
arleik, og vörnin var geysisterk.
Leikmenn Aftureldingar virtust
nokkuð spenntir í byrjun og eftir
að hafa náð tveggja marka for-
skoti 5-3 í upphafi, hrundi Ieikur
þeirra og FH-ingar skoruðu sex
mörk í röð og komust í 5-9. Þá
lifnaði aftur yfir Aftureldingu og
þeir áttu næstu þrjú mörkin og
staðan orðin 8-9. Það sem eftir
var hálfleiksins var jafnræði með
Iiðunum, en FH-ingum tókst þó
að auka við forskotið og höfðu
tveggja marka forystu í hálfleik
10-12.
Mikil spenna í byrjun seinni
háifleiks
I byijun seinni hálfleiks Iá mikil
spenna í loftinu og liðunum tókst
ekki að skora fý'rr en f fimmtu
sókn. Magnús markvörður FH-
inga hafði þá varið tvö skot og
Bergsveinn eitt, áður en FH-ingar
misstu boltann útaf. Leikur þeirra
virtist vera að brotna og um leið
náðu Mosfellingar upp hörku
vörn, sem FH-ingar áttu ekkert
svar við. Magnús Már minnkaði
muninn í 11-12, með sínu eina
marki í leiknum og Bjarki jafnaði
síðan í 12-12 með góðu skoti.
FH-ingar voru þó ekki á því að
gefast strax upp og reyndu hvað
þeir gátu og voru þar „gömlu
mennirnir“, Gunnar, Hálfdán,
Guðjón og Magnús fremstir í
flokki. Hálfdán kom sínum
mönnum aftur yfir 12-13, en
Gintas, sem átti mjög góðan leik,
jafnaði leikinn aftur, áður en
Gunnar Beinteinsson náði að
koma FH yfir í síðasta skipti í
leiknum. Mark Gunnars var mjög
skrautlegt, en hann stökk inn í
teiginn úr horninu og sló boltann
í netið.
Afturelding ft'kur völdin
A þessum tímapunkti urðu
straumhvörf í Ieiknum og Aftur-
elding tók öll völd á vellinum á
meðan ekkert gekk hjá FH-ing-
um. Bergsveinn fór að veija eins
og berserkur og eftir að Jón Andri
hafði jafnað leikinn í 14 - 14 skor-
aði Bergsveinn mark yfir þveran
völlinn. Hann kom Mosfellingum
þar með yfir í fyrsta skipti í leikn-
um frá því í byrjun og gaf sínum
mönnum tóninn.
„Eg ætlaði að gefa boltann fram
í hraðaupphlaup á Magnús Má,
sem var kominn upp völlinn. Þá
hleypur Magnús, markmaður FH-
inga, út úr teignum, þannig að
markið blasti við mér galopið. Það
var því ekki um annað að ræða en
Iáta vaða og það heppnaðist.
Enda eins gott því ég hefði sjálf-
sagt verið tekinn í karphúsið, ef
þetta hefði klikkað.
Þetta var mikið stemmnings-
mark og virtist virka sem vítamín-
sprauta á okkar menn og hleypti
nýju blóði í okkar Ieik. Annars var
mjög góður stígandi í þessu hjá
okkur í seinni hálfleik og það kom
mér mjög á óvart hvað FH-ingar
brotnuðu fljótt eftir góðan fyrri
hálfleik," sagði besti maður leiks-
ins, Bergsveinn Bergsveinsson
markvörður Aftureldingar.
Blendnar tilfinningai
- En hverju þakkar Bergsveinn
sigurinnf
„Við komum vel undirbúnir til
leiks og höfum verið að æfa mjög
vel í vetur. Bætt var við æfingarn-
ar frá því í fyrra og við æfum nú
tvo tíma í senn í staðinn fyrir einn
og hálfan í fyrra. Það er að skila
sér og allt liðið er í virkilega góðu
formi. Þetta var þvf sigur liðs-
heildarinnar og svo hafði góður
stuðningur áhorfenda mjög mikið
að segja. Þeir voru frábærir.11
- En hvernig var að leika gegn
sínum gömlu félögum í FH?
„Það var auðvitað svolítið sér-
stakt fyTÍr mig að undirbúa mig
fyrir þennan leik. I undirbúningn-
um hugsar maður auðvitað mikið
um fyrri úrslitaleiki og þá kom FH
alltaf strax upp í hugann. Þetta
var því frekar erfitt og tilfinning-
arnar blendnar,“ sagði Berg-
sveinn.
Allt loft úr FH-íngiun
Eftir mark Bergsveins var allt loft
úr FH-ingum og þeir misstu bolt-
ann útaf strax í næstu sókn. Fjög-
ur mörk fylgdu svo í kjölfarið hjá
Aftureldingu og þeir komust í 19
- 14. Eftirleikurinn varð Mosfell-
ingum auðveldur og náðu þeir
mest sjö marka forskoti, fyrir
leikslok.
Það segir sina sögu um frammi-
stöðu FH-inga í seinni hálfleik að
þeir skoruðu aðeins níu mörk á
móti sextán mörkum Afturelding-
ar. Þar munaði mestu um frábæra
markvörslu Bergsveins Berg-
sveinssonar, auk þess sem FH-
ingar gerðu sig seka um allt of
mörg mistök í sóknarleiknum.
Auk Bergsveins áttu þeir Bjarki
Sigurðsson og Litháarnir, Gintas
og Gintaras, mjög góðan leik hjá
Aftureldingu. Bergsveinn varði
alls 18 skot í leiknum og Bjarki
var markahæstur með 10/6 mörk.
Gintas skoraði 7 mörk, en aðrir
minna.
Of mikið fyrir „gömlu
meunina"?
Hjá FH-ingum barðist allt liðið
mjög vel í fyrri hálfleik, með þá
Guðjón, Hálfdán, Gunnar og
Magnús markvörð sem bestu
menn. Einnig áttu Guðmundur
Petersen og Knútur Sigurðsson
ágætan leik, en minna bar á ungu
mönnunum. Það er því spurning-
in: Var það of mikið fyrir „gömlu
mennina" hjá FH að leika heilan
Ieik á fullu gegn geysisterku Iiði
Aftureldingar, án þess að geta
treyst þeim yngri fyrir ábyrgðinni.
Þeir Gunnar Beinteinsson,
Hálfdán Þórðarson og Knútur
Sigurðsson voru markahæstir
FH-inga með fjögur mörk hver og
Magnús markvörður varði alls 14
skot.
Bergsveinn Bergsveinsson, maður úrslitaleiksins, hafði ástæðu til að fagna
í leikslok.
Heidursmaðitr á
Highbury
Arsene Wenger sýndi
óvenjulegt drenglyndi.
Mandiester United
slapp með skrekkinn.
GlókoUur bjargaði
Chealsea. Ungu menn-
irnir góðir hjá Ev-
erton. Liverpool eins
og liðið lík á The
VaUey.
Sá óvænti en skemmtilegi atburð-
ur átti sér stað á Highbury á laug-
ardaginn að Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, sýndi af
sér óvenjulegt drenglyndi er hann
bauðst til að Ieika að nýju bikar-
leikinn við Sheffield United, sem
Arsenal hafði unnið. Leikmenn
Arsenal gerðu sig seka um óvenju-
lega óíþróttamannslega framkomu
þegar þeir skoruð sigurmarkið, 2 -
1, gegn fyrstudeildar liðinu frá
Sheffield. Markmaður Sheffield
United, Alan Kelly, hafði sparkað
boltanum útaf meðan hugað var
að meiðslum eins samherja hans.
Er Ray Parlour ætlaði að kasta
boltanum aftur til Kelly, hljóp
Nigeríumaðurinn, Nwanko Kanu,
inn í sendinguna og renndi bolt-
anum á Marc Overmars sem ekk-
ert gat gert við boltann annað en
að læða honum yfir marklínuna.
Þetta mislíkaði Wenger og‘ bauð
Steve Bruce, stjóra Sheffield,
strax að leikurinn yrði leikinn að
nýju. Riddaramennska af þessu
tagi er ekki venjuleg og hana ber
að þakka.
Aimars ekkert óvænt í
bikamum
Að öðru leyti fópu úrslitin í'bikam-
um nokkuð eftir bókinni. Everton
Iagði Coventry, 2 - 1, þar sem tán-
ingurinn Jeffers skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Everton. Annar
kjúldingur á Goodison Park, Oster
skoraði seinna mark heimamanna
áður en Gary McAlister minnkaði
muninn fyrir Coventry.
Fyrstudeildarliðið Barnsley rúll-
aði yfir Bristol Rovers, 4-1 og
Huddersfield, sem einnig er í
fyrstu deildinni, gerði 2-2 jafntefli
við Derby.
George Graham kom í heim-
sókn til sinna gömlu lærisveina í
Leeds þar sem hann var heppinn
að ná jafntefli. Tim Sherwood
stimplaði sig inn hjá Tottenham
með markinu sem tryggði þeim
aðra tilraun til þess að ná í undan-
úrslitin.
Chealsea náði að tryggja sér
sæti í undanúrslitunum, á kostnað
Sheffield Wednesday, með marki
frá „glókollinum" Di Matteo fimm
mínútum fyrir Ieikslok.
Fufiham óheppið á Old
Trafford
Loks kom að því að Fullham varð
að'játa-sig sigrað-í-bikarkeppninni.
Það var Manchester United sem
knúði fram 1 - 0 sigur gegn Kevin
Keegan og frábæru liði hans.
United réði gangi mála en Full-
ham fékk sín færi og hefði með
heppni getað náð jafnteflinu.
Leikur Newcastle og Blackbum
var frábær skemmtun með fullt af
færum en engum mörkum.
LíkÍTi frá liverpool
Charlton vann sinn annan leik í
röð í deildinni er liðið tók á móti
Liverpool. Sigurinn var sanngjarn
enda leikmenn Liverpool áhuga-
lausir með öllu og nánast eins og
Iiðin lík á vellinum. Aðeins einu
sinni sýndi yfirlíkið, Gerard
Houllier, einhver svipbrigði. Þegar
hann þusaði út af rauða spjaldi
Jamie Carragher. Herstjórn Frakk-
ans og Phil Thompson hjá Rauða
hernum er ekki með þeim hætti
sem ætlast er til og nú hljóta þeir
að fá gula spjaldið frá stjórn fé-
lagsins.
Enn varð Nottingham Forest að
játa sig sigrað. Nú 2-1, gegn West
Ham. Forest vermir enn botnsæti
úrvalsdeildarinnar, Ijórum stigum
á eftir Southampton. — GÞÖ