Dagur - 18.02.1999, Qupperneq 2

Dagur - 18.02.1999, Qupperneq 2
18 — FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 .Ð^ur LÍFIÐ í LANDINU SMATT OG STORT UMSJON: SIGURDÓR SIGURDÓRSSON Björn Bjarnason. GULLKORN „í miðborginni geta legið mikil verðmæti sem ekki er hægt að taka sem sjálf- sagðan hlut...“ Eyþór Arnalds varaborgarfulltrúi í grein í Mbl. Herráðið og Pol Pott Þegar Björn Bjarnason menntamálaráðherra, eða Bí Bí eins og gárungar á Alþingi kalla hann upp á ensku, hætti við að fara í varafor- mannsframboð i Sjálfstæðisflokknum Iagði hann til að embættið yrði lagt niður. Þess í stað lagði hann til búið yrði til fimm manna ráð, sem sumir kölluðu herráð, sem tæki við af varaformannsembættinu. Menn skildu þetta illa enda þótt Björn hefði alltaf verið áhuga- maður um her og hernað og eitt sinn lagt til að stofnaður yrði her á Islandi. En síðan kom skýringin á hugmyndinni um herráðið. Björn skrifaði um það á heimasíðu sinni á netiu á dögunum að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, sá stjórnmálamaður á Islandi sem sjálfstæðismenn óttast meira en alla aðra, væri farin að taka upp vinnubrögð Qöldamorðingj- ans Pol Pott og virtust fleiri stjórnmálamenn á vinstri væng ætla að feta í fórspor hennar. Það veitir ekki af herráði í stað varaformanns þegar svona er komið málum á klakanum. Fortíðardraumar Á þriðjudaginn voru liðin 100 ár frá því að hið upprunalega KR var stofnað og þess var minnst í blöðum og loftmiðlum. Það sem vakti mesta athygli við afmælið var að menn töluðu ekkert um afrek knattspyrnumanna, hand- knattleiksmanna, körfuboltamanna eða frjáls- íþróttamanna félagsins að undanförnu, nema kvennaflokkanna. Það kom í Ijós við uppriljun blaðanna að 41 ár er liðið síðan KR varð Is- landsmeitari í handknattleik, 31 sfðan félagið var Islandsmeistari í knattspyrnu og ftjáls- íþróttadeildin er sögð við dauðans dyr. Og svo koma gárungar og segja að „gamla, góða KR“ verði ekki oftar Islandsmeistari í handbolta og fótbolta karla. I handboltanum er komið nýtt nafn, Grótta/KR og í knattspyrnunni KR hf. með nýtt nafnnúmer. Krókaleiðimar Ymsir hafa á það bent í sambandi við miðlæg- an gagnagrunn á Islandi, þar sem m.a. á að rekja sjúkdóma eftir ættum að þar geti farið illa því ekki hafi allir verið rétt feðraðir á Is- landi í gegn um tíðina. Þess vegna sé þetta með gagnagrunninn eins og ættfræðina að lít- ið sé að marka hann þegar upp verði staðið. Eitt sinn heyrðí ég vísu um þetta mál en veit ekki hver höfundurinn er en hann hefur verið snjall hagyrðingur: Þjóðin öll í orðumfám yfir sannleik breiðir. Ekki sjást í ættarskrám allar krókaleiðir. Talið er að 2% unglingsstúlkna eigi við vandamái að stríða vegna lystarstols og lotugræðgi. Eiríkur Örn Arnarson er yfirsálfræðingur á geðdeiid Land- spítalans. - mynd: gva. Lotugræðgi algengari en lystarstol Endurmenntunarstofnun Há- PcjfílT líkílTtlÍTlTl VCTÖUT sem rnagasýran skemmir glerung skóla Islands stendur fyrir nám- tannanna. Fyrir nokkrum árum skeiði á Akureyri um lotugræðgi SVOllíl gTailTlholdaþá rannsökuðu nemendur Eiríks og lystarstol. Umsjón með nám- . lystarstol meðal nemenda í skeiðinu hefur dr. Eiríkur Örn JlXfjlTÚ clllTÍ líliclTflSStílTJ- læknadeild og af þeim 352 sem • t -j. ... i'c tóku þátt í rannsókninni voru um scmi, hitastig hkamans F Arnarson. Eiríkur Örn er dósent í sálfræði við læknadeild háskól- ans og hefur starfað sem yfirsál- fræðingur á geðdeild Landspítal- ans að mestu óslitið frá árinu 1979. Hann skrifaði kafla um Iystarstol í Sálfræðibókina, sem að Mál og menning gaf út. „Anorexia er oft dulið vanda- mál á svipaðan hátt og lotu- græðgin. Vandamálið virðist vera að aukast. Það er haldið að ungu kynslóðinni þessari grönnu líkamsímynd. Við horfum á sjónvarpið og sjáum ungt og grann- holda fólk auglýsa vörur. Lystarstol er ekki bundið við ungar konur. Það getur komið fram á öllum aldurskeiðum en er mest áberandi hjá yngstu kynslóðinni," segir Eiríkur Örn. Missa tilfumingu fyrir útliti Hann segir að stúlkur með lystarstol reyni að grenna sig til að líkja eftir þeim fyrirmyndum sem haldið er að þeim en missi síðan stjórn á afstöðu sinni til matar og þyngdar. Þá sé gripið til ýmissa ráða. „Þetta kemur kannski fram í því að þær fari í líkamsræktarstöð tvo þrjá tíma á dag í þeim tilgangi að tálga af sér fitu. Samhliða þessu missa þær tilfinningu fyrir útliti sínu og sjá fitu sem enginn annar sér.“ Eiríkur Örn segir að Iotugræðgi sé algengari en lýstarstol. Hann segir að stúlkur sem að þjá- ist af lotugræðgi haldi yfirleitt eðlilegri þyngd en hún komi hinsvegar niður á tannheilsunni, þar lækkar og þær vcrða kaldarog vcrða því að klæða sig mikið. 8 sem uppfylltu skilmerki fyrir annað hvort lystarstol eða lotu- græðgi sem eru rétt um 2%. Eiríkur segir niðurstöðurnar vera mjög áhugaverðar. „Þetta er hóp- ur sem ætti kannski að vera betur uppfræddur um næringu og heil- brigði en flestir aðrir.“ SPJALL Dylja vaxtarlagið Hann segir niðurstöðurnar koma heim og saman við það sem komið hefur fram í öðrum Iöndum. Þetta vandamál er oft dulið um lengri eða skemmri tíma. Foreldrar átta sig ekki á því að börnin eru að ná af sér aukaþyngd fyrr en þau eru orðin mjög grönn. Stúlkur með lyst- arstol reyna að klæða af sér hversu grannar þær eru til þess að forðast umtal um það. Þær klæð- ast til dæmis tvöföldum buxum og tvöföldum peysum og dúnúlpum. „Þegar líkaminn verður svona grannholda þá hægir á allri líkamsstarf- semi, hitastig líkamans lækkar og þær verða kaldar og verða því að klæða sig mikið,“ segir Eiríkur. Hann segir að lystarstol og lotugræðgi sé helst meðhöndluð á geðdeild en stundum á lyflæknisdeild. Námskeiðið á Akuyeyri er um næstu helgi. Heiðdís Sigurðardóttir, sálfræðingur á Barna- og unglingageðdeild, og Dr. Ástráður Hreiðarssön, hormónasérfræðingur, yfirlæknir á Landspítal- anum, koma að því auk Eiríks Arnar. -PJESTA FRA DEGI TIL DAGS ,yAð gera ekkert er leiðin til að verða ekkert.“ Nataniel Howe Þetta gerðist 18. februar • 1878 var Alþýðuskólittn í Flensborg í Hafnarfirði stofnaður. • 1885 fórust 24 manns þegar snjóflóð féll á Seyðisfirði. • 1885 kom fyrst út bók Marks Twains um Stikilsberja-Finn. • 1910 fórust tuttugu manns í snjóflóði í Hnífsdal. • 1930 uppgötvaði bandaríski stjarnfræð- ingurinn Clyde Tombaug reikistjörnuna litlu, Plútó. • 1934 var Sjúkrahús Hvítabandsins í Reykjavík vígt. • 1964 tók rfkisstjórn Papandreós við völdum á Grikklandi. Þau fæddust 18. febrúar • 1745 fæddist ítalski vísindamaðurinn Alessandro Giuseppe Antonio Anastasio Volta, en hann fann upp raf- hlöðuná. • 1838 fæddist austurríski eðlisfræðing- urinn Ernst Mach. • 1896 fæddíst franska skáldið André Bréton. • 1898 fæddist Jón Thoroddsen skáld. • 1949 fæddist Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. • 1954 fæddist bandaríski leikarinn John Travolta. • 1955 fæddist Stefán Jón Hafstein, fyrr- verandi ritstjóri Dags. • 1964 fæddist bandaríski leikarinn Matt Dillon Vísan Vísa dagsins er tileinkuð lönguföstu sem hófst á miðvikudaginn: Enginn mátti nefna ket, alla föstuna langa; hver það afsér heyra lét hann var tekinn tilfanga. Afmælisbam dagsins Hallgrímur Helgason rithöfundur, myndlistarmaður, teiknimynda- hetja og sitthvað fleira, mun vera fertugur í dag. Síðast sendi þessi geðþekki prakkari frá sér kvæða- bók í bundnu máli, og er hún álíka mikil að vöxtum og ljóðasafn Matthíasar Jochumsonar. Dagur óskar honum að sjálfsögðu til ham- ingju með daginn. Glæpir borga sig ekki Innbrotsþjófur sem skreið inn um kjallara- glugga í afskekktu húsi f vesturbænum í Kópavogi hrökk illilegá’ í kútinn þegar hann heyrði gamla konurödd skrækja á sig: „Skammastu þín, Jesús sér til þín!“ Hann öskraði á þá gömlu og þegar hann sveiflaði vasaljósinu sínu kom hann auga á páfagaukabúr í einu horninu. Fuglinn skrækti: „Skammastu þín, Jesús sér til þín!“ Þjófurinn var mjög feginn og hélt upp stigann upp á efri hæðina. Þá sá hann risastóran, dóbermann hund sem beið hans efst f stiganum. Þá heyrist í páfagauknum: „Urrd’ann, bítt’ann Jesús!“ muiloHii niuiiiti2c ðnv-/ nv iiuóinii nuin >r. tu.k.v'ju -ti/liov muotj i be 6i;tJ go munki Jiovd nnib/. 13 6ntl .Diolinl mjAAo u’/i .iáloi u.;eo(J 6. oijil ujjolyi;;!;!

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.