Dagur - 19.02.1999, Side 1
Land Rover er órjúfanlegur
hluti íslenskrar sveitamenn-
ingarí hugum margra. Sá
gamli lifirenn. Land-Roverfé-
lag Norðurlands er til marks
um það.
Ottar Ingason, fangavörður á Akureyri, er
einn af stofnendum Land-Roverfélags
Norðurlands, ekur um á Land Rover og er
með annan í „smíðum".
Góðverk fyrir sláttumaim
„Mér datt aldrei í hug að ég myndi fara að
keyra svona bíl,“ segir Ottar um kynni sín
af Land-Rovernum. „Þetta byrjaði með því
að fyrir um fjórum árum fórum ég og fé-
lagi minn í sunnudagsbíltúr aðeins út fyr-
ir bæinn. Við fórum niður á Hauganes,
bara svona til að skoða. Þar sáum við
mann sem var að slá með orfi og ljá og vor-
um bara að horfa eitthvað á hann. Hann
var að slá í kringum gamlan Land-Rover
sem var ansi hrörlegur.
Við dólum okkur þarna eitthvað og þá
kallar karlinn í okkur og spyr hvort við get-
um nú ekki gert sér greiða, tekið Land-
Roverinn og komið honum á haugana eða
eitthvað í burtu svo hann geti slegið al-
mennilega þarna. Við litum hvor á annan
og hugsuðum sem svo að það væri best að
gera gamla manninum góðverk og draga
bílinn í burtu. Bíllinn var kolfastur, við
þurftum að fara með sleggju á felgurnar til
að losa hann. Við drógum hann hingað í
bæinn og ætluðum að fara með hann nið-
ur í Sindra."
Aður en til þess kom að losa sig endan-
lega við hræið ákváðu þeir félagarnir að
staldra við og fá sér kaffi. Ottar fór síðan
eitthvað að skoða bílinn nánar og viti
menn: Gamli Land-Rover fór í gang. „Þá
var hægt að keyra bílinn," segir Ottar, „en
hann var ægilega hrörlegur. Eg ákvað að-
eins að doka við og hugsaði með mér: Það
væri nú kannski gaman að keyra hann í
mánuð eða svo, bara í einhverjum fíflalát-
um, ekki henda honum alveg strax."
Óttar Ingason, fangavöröur á Akureyri, varð eiginlega Land-Rover eigandi fyrir tilviljun.
- mynd: brink
Flaug í gegnum skoðun
Ottar komst fljótlega að því að mikið var
til af svona bílum, „úti um öll tún,“ eins og
hann orðar það. Honum gekk vel að fá
varahluti og Land-Roverinn „flaug“ í
gegnum skoðun. Uppátækið vakti ekki
beint aðdáun í fyrstu, félagi Ottars fussaði
og sveiaði en þegar frá leið komst hann að
því að Land-Roverinn var til ýmissa hluta
nytsamlegur. „Það endaði með því að ég
fór að flytja dót fyrir hann og svo þurfti
hann að draga kerru og Land-Roverinn
var alltaf notaður," segir Ottar. Það fór
enda svo að þeir fóru á stúfana og fundu
annan handa félaganum.
„Ferðin á haugana" hafði þannig vafið
utan á sig. „I blokkinni heima var einn
sem átti Rússajeppa og það var alltaf eitt-
hvert bilerí. Ég óð alveg í varahlutunum
og hann ákvað að selja Rússann og fékk
sér Land-Rover,“ segir Óttar.
Óttar „datt“ niður á annan Land-Rover í
Nesi í Fnjóskadal og vinnur nú að því að
setja Range-Rover hásingar og fleira und-
ir hann. „Ég veit ekkert hvenær því lýkur,“
segir hann um það verkefni. „Þetta er nú
svona fimm ára áætlun. Þetta er orðin
baktería." Vinnukostnaður er ekkert reikn-
aður enda ánægjan helstu launin.
Margir út úr skápniun
- Hvernig kom til að þið stofnuðuð Land-
Rovetfélag Norðurlands?
„Við vorum oft að þvælast saman þrír, ég
Sigurður Helgi Jóhannsson og Þórður
Jónsson. Oft gerðu menn grín að okkur og
spurðu: Er bara Land-Rover félagið á ferð-
inni? Við ákváðum að stofna bara þetta fé-
lag, auglýstum og þátttakan varð geisilega
góð. Þar með var boltinn byrjaður að
rúlla.“
Skráðir félagar eru nú 25 og árshátíð er
á dagskránni á næstunni með myndasýn-
ingu og fleiru. „Þegar til kom var miklu
betra að vera með þetta félag," segir Óttar.
„Menn skiptast á varahlutum og fleiru.
Það kom í ljós að menn voru með bíla inni
í skúr og margir komu út úr skápnum með
þetta, það þorði enginn að viðurkenna
þetta áður.“ - HI
Þvottavél WG 1035
• Tekur 5,0 kg
• Þvottakerfi 15
• Hitastillir stiglaus
• Vinduhraði 1000 - 600 sn/mín.
• Sjálfvirk vatnsskömtun
• Öryggislæsing
• Belgur ryðfrír
• Tromla ryðfrí
• Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 49.900.- stgr.
Þvottavél WG 1235
• Tekur 5,0 kg
• Þvottakerfi 15
• Hitastillir stiglaus
• Vinduhraði 1200 - 600 sn/mín.
• Sjálfvirk vatnsskömtun
• Öryggislæsing
• Belgur ryðfrír
• Tromla ryðfri
• Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 52.900.- stgr.
vinaunraoi yuu - duu sn/min.
• Sjálfvirk vatnsskömtun
• Öryggislæsing
• Tromla ryðfrí
• Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Kr. 39.900.- itgr.
ki barka)
áttir
• Ryðfrí tromla
• Valhnappur fyrir venjulegt
eða viðkvæmt tau
• Tvö þurrkkerfi
• Aðvörunarljós fyrir vatnslosun
• Aðvörunarljós fyrir lósigti
• Rúmmáltromlu 106 Itr.
• Stórt hurðarop 40 cm
• Hægt að breyta hurðaropnun
• Mál: hxbxd: 85x60x60 cm
Kr. 56.900.- stgr.
Þurrkari SG 510
• Barki fylgir
• Tekur4,5 kg
• Snýr tromlu í báðar áttir
• Ryðfrítromla
' Hnappur fyrir kaldan blástur
• Tvö þurrkkerfi
• Barki fylgir
• Mál: hxbxd 85x60x54 cm
Kr.29.900.- stgr.
Lágmúla 8 • Slmi 533 2800
4-