Dagur - 19.02.1999, Side 2

Dagur - 19.02.1999, Side 2
° 18 - fö s t irb'Ad'u r ' 'i9 .n fe'RRU'a'R 199 9 'D&gjúir LÍFIÐ í LANDINU ÞAÐ ER KOMIN HELGI Hvað ætlarþúað gera? „Á árshátíð Flugleiða, segir Hrönn Greips- dóttir. Sjúkrasaga í Súlnasal „Á föstudagskvöld verður hér í Súlnasalnum lokaæfing Sjúkrasögu, á sýningunni sem hér verður næstu helgarnar. Þetta er saga af doktor Klára og gangrunninum þar sem koma við sögu ýmsir leikarar einsog Halli og Laddi, Steinn Armann og þetta sígilda gengi okkar,“ segir Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri á Radison Hót- ei Sögu. - „Eg sé fyrir mér að bæði Iaugardagur og sunnudagur fari að miklu leyti í vinnu hjá mér, en nú standa yfir miklar breytingar á starfsháttum hér á hótelinu með því samstarfi sem kennt er við Radison. Á Iaugardagskvöld ætla ég þó að gefa mér tíma til að fara, með manni mínum, á árshátíð Flugleiða sem haldin verður á Broadway og ég efa ekki að þar verður mikið um dýrðir, einsog gjarnan hefur verið á árshátíðum fyrirtækisins." „Á laugardagsmorgun I sund, “ segir Vilhjálm- ur Hjálmarsson. Gengið til húsverka „Við hjónin göngum til húsverka á laugardag- inn. Ég strýk af fólkinu og ryksuga en kona mín þurrkar af og pússar. Þetta er svo sem ekki mikið verk í þessari 65 fermetra íbúð okkar hér á Asvallagötunni, en nokkuð sem verður þó að gera,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson, fv. ráð- herra. „Um ellefu leytið á Iaugardagsmorgun fer ég væntanlega í sund í Vesturbæjarlauginni, en Iengi hef ég haft þann sið að sækja sund- laugarnar. Síðan má vel vera að ég dragnist á einhverja málverkasýninguna, en það er til siðs að bjóða sérstaklega á opnun þeirra fyrrverandi menntamálaráðherrum. - Ég veit ekki hverju ég nenni á sunnudaginn, vel má þó vera að við Margrét kona mín förum eitthvað og heim- sækjum góða félaga, því bæði erum við heilsu- góð og getum þessvegna hreyft okkur eitthvað.“ „Fertugsafmæli í Mið- húsaskógi, “ segir Eiríkur Hjálmarsson. í frosti, kulda og heitum potti „Um helgina ætla ég í fertugsafmæli mágkonu minnar sem haldið verður í sumarbústað aust- ur í Miðhúsaskógi í Biskupstungum," segir Eiríkur Hjálmarsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar. „Þarna ætlum við að vera í frosti og kulda og ylja okkur svo í heitum pottinum. Já, ég hef nokkrum sinnum áður verið þarna fyrir austan og þetta er alveg unaðslegur staður. Og sögu- frægur eftir því, þarna skammt frá er Brúará þar sem þeir drekktu Jóni biskupi Gerrekssyni um árið, alveg einsog kettlingi. Náttúrufegurð á þessum slóðum er einnig alveg viðbrugðið, einkum í Brúarárskörðum ef ske kynni að mað- ur legði í að fara í daglanga gönguferð þangað inneftir," segir Eiríkur. Afmælisbarn vikunnar er Knattspyrnufélag Reykjavíkur, en félagið fagnar þessa dagana 100 ára afmæli sínu. Þrátt fyrirháan aldur er félagið býsna frísklegt og hefur elst vel. Það sama má segja um frægasta KR-ing allra tíma, Ellert B. Schram. Þrátt fyrir að hann sé kominn fast að sextugu er hann bæði léttur í lund og á löpp - og heldur sér vel rétt einsog íþróttafélagið hans. ■ LÍF OG LIST Hin sívirka auðlind „Ég er að lesa bókina Sjálfstæðið er sívirka auðlind eftir Ragnar Arnalds," segir Anna Kristín Gunnarsdóttir, skipu- Iagsstjóri Farskóla Norðurlands vestra, sem um liðna helgi hafnaði í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar þar í kjör- dæmi. „I bókinni fjallar Ragnar um sjálfstæði Islendinga og út- listar þróun mála hér í ljósi þess hvernig við höfum komist af eftir að við fórum að stjórna okkar eigin málum sjálf. Hann ber það saman við aðstæður í öðrum löndum þar sem menn hafa ekki getað stjórnað eigin málum. Þetta er áhugaverð Iesning, skýrt fram sett og enginn þarf að velkjast í vafa um meiningu höfundar. - Doris Lessing er einn af mínum eftirlætishöfunum í fagurbókmenntum og ég hef bæði Iesið eftir hana skáldsögur og smásögur, allt góðar bækur." Hlustað á Kiri Te Kanawa „Undanfarið hef ég mikið hlustað á Kiri Te Kanawa, þá frábæru óperu- söngkonu. Síðan er ég líka hér uppi með Leontyne Price, sem ekki er síðri á sama sviði. Ég er mest fyrir óperusöng, en hlusta annars mikið á sígilda tónlist. Mér fellur hún alltaf best af því sem býðst, og hin sígilda tónlist spannar svo vítt svið að alltaf er hægt að velja það sem best á við hvetju sinni. - Af dægurtónlist hlusta ég einna helst á það sem glymur í útvarpinu hverju sinni, en vil þó helst hlusta á talað mál í útvarpinu." Traffic með Tati „Ég horfi nánast aldrei á mynd- bönd, nema ég gerði þó undan- tekningu um daginn þegar ég sá gamla mynd eftir Tati sem heitir Traffic. Þetta er frönsk gaman- mynd, kaldhæðin kímni einsog hún gerist best og þessháttar kímni eru Frakkar reyndar vel þekktir fyrir. Hvað varðar sjónvarpsáhorf er ég algjör fréttafíkill og svo finnast mér breskir sakamála- þættir og aðrir þættir frá því landi alltaf skemmti- legir. Breskur húmor er alltaf mjög skemmtilegur, Bretum er betur en mörgum öðrum lagið að gera grín að sjálfum sér.“ ■ fra degi til dags ^Ástin er blind en sjónin fæst við gift- inguna.“ Lichtenberg Þau fæddust 18. febrúar • 1743 fæddist ítalska tónskáldið Luigi Boccherini. • 1877 fæddist þýski listmálarinn Gabriele Múnter. • 1911 fæddist breska kvikmyndaleikkon- an Merle Oberon. • 1912 fæddist bandaríski djasstónlistar- maðurinn Stan Kenton. •1912 fæddist pólski rithöfundurinn Ad- olf Rudnicki. • 1925 fæddist Sveinn Björnsson listmál- ari. Þetta gerðist 18. febrúar • 1878 fékk Thomas Alva Edison skráð einkaleyfi á hljóðritunargræjunum sín- um, sem hann kallaði fónógraf. • 1920 gengu Hollendingar í Þjóða- bandalagið. • 1949 hlaut Ezra Pound fyrstu Boll- ingen-verðlaunin í bókmenntum. • 1959 gerðu Bretar, Grikkir og Tyrkir með sér samkomulag um sjálfstæði Kýpur. • 1960 voru efnahagsráðstafanir viðreisn- arstjórnarinn samþykktar á Alþingi. • 1976 slitu Islendingar stjórnmálasam- bandi við Bretland vegna landhelgis- deilunnar. • 1986 skutu Rússar geimstöðinni Mír á loft. Vísan Vísa dagsins er af gefríu tilefni ort um bragfræði. Guðjón Þorgilsson sendi Degi hana með kveðju: Saman skellur borð við borð d Bragavelli er gaman. I stuðla fellur stafur, orð; stakan smellur saman. Afmælisbam dagsins Hannes Hólmsteinn Gissurarson er 46 ára í dag. Hann var einu sinni fyrir mörgum árum einn helsti skelfir íslenskra vinstrimanna, sem kannski einmitt þess vegna höfðu yfirleitt óskaplega gaman af að Iesa óheftar hugmyndir hans um frelsi fjármagnsins. Nú hefur hann um nokkurt skeið verið prófessor við Háskóla íslands og Iætur æ minna fyrir sér fara í fjölmiðlum. Keppni Jónas og GuðmundurÁkváðu að prófa að fara í fallhlífastökk. Jónas fór á undan og opnaði fallhlífina og naut þess að svífa hljóðlega til jarðar, og dáðist að útsýn- inu. Guðmundur stökk á eftir, togaði í spottann á fallhlífinni en ekkert gerðist. Hann togaði aftur, í þetta skiptið eins fast og hann gat en ennþá gerðist ekkert. Hann reyndi að opna varafallhlífina en elckert gerðist. Guðmundur fór á ægiferð framhjá Jónasi, eins og eldflaug. Jónas leit á hann, tók af sér fallahlífina og sagði, „svo að þig langar í keppni.“ Veffang dagsins Menningarborgin Reykjavík er nýlega komin með íslenska útgáfu af vefsetri sínu, sem finna má á www.reykja- vik2000.is

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.