Dagur - 19.02.1999, Síða 8
24-FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
rD^tr
Símon Hólm Reynisson í Deiglunni
SímonHólm Reynisson opnar
málverkasýningu í Deiglunni i
Listagilinu á Akureyri á morgun
klukkan 14. Þetta er fyrsta sýn-
ing Símonar, sem fæddur erá
Eskifirði en býr nú á Sambýlinu
við Þrastarlund 3.
Þau málverk sem Símon sýnir
eru flest unnin á líðandi vetri, ým-
ist undir handleiðslu Jónasar Við-
ars myndlistarmanns, eða í
Hvammshliðarskóla. Sýning Stm-
onar er opin laugardag 20. febr-
úar og sunnudag 21. febrúar
klukkan 14 -18 báða dagana.
Öll verkin eru til sölu. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Njálunámskeið á Akureyri
Erlingur Sigurðarson, forstöðu-
maður Sigurhæða - Húss
skáldsins, kennir á Njálunám-
skeiði í Sigurhæðum á þriðju-
dagskvöldum klukkan 20-22
frá 2. mars til 18. maí, samtals
12 vikur.
Skráning og allar upplýsingar
hjá Erlingi í síma 462 6648 kl.
13.30 -16. Innritun lýkur
fimmtudag 25. febrúar eða fyrr
ef fullt verður. Gert er ráð fyrir
ferðalagi á Njáluslóðir undir lok
námskeiðs.
Konudagsskemmtun í Sjallanum
Á konudag-
inn, sunnu-
daginn 21.
febrúar,
stendur Tóm-
stundastarf
aldraðra á Ak-
ureyri fyrir ár-
legri konu-
dagsskemmt-
un í Sjallanum
á Akureyri.
Skemmtunin hefst klukkan 15.00 með glæsilegu kaffihlaðborði ásamt
skemmtidagskrá sem Skíðaráð Akureyrar sér um. Síðar verður stiginn
dans við undirleik Hljómsveitar Pálma Stefánssonar. Aðgangseyrir er
kr. 1.000,- og eldri borgarar í nágrannabyggðarlögum Akureyrar eru
sérstaklega boðnir velkomnir.
■ HVAD ER Á SEYfll?
HÖFUÐBORGARSVÆÐID
Ljósmyndasýning í Hinu húsinu
A morgun kl. 16.00 verður opnuð sýn-
ing mynda úr ljósmyndasamkeppni FF,
Ljósbrots í Gallerý Geysi, Hinu húsinu
og stendur til 7. mars.
Sýningar í Listasafhi ASI
Á morgun verða opnaðar þrjár sýning-
ar í Listasafni ASI. Brynhildur Þor-
geirsdóttir sýnir skúlputúr og Steinunn
Helgadóttir, málverk, auk þess verður
opnuð sýning á nýjum aðföngum
safnsins. Opið frá kl 14.00 -18.00.
Tréristur í Sverrissal
Nú stendur yfir sýning á tréristum Sig-
urlaugs Elíassonar í Sverrissal Hafnar-
borgar. Sýningin er opin frá kl. 12-18
alla daga utan þriðjudaga.
Víðerni Norðursins
Einnig stendur yfir í Hafnarborg sýn-
ing á verkum sænsku textíllistakon-
unnar Gun Johansson sem opnuð var
um síðustu helgi.
Siðferðilegar spurningar í MÍR
Á sunnudaginn kl. 15.00 verður gömul
rússnesk kvikmynd, „Ýmis örlög“
(Razníe súbdí) sýnd í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10. Enskur texti er með
myndinni. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Fræðsla um Fjallagrös
Fræðslufundur og myndasýning um
fjallagrös verður á mánudag kl. 20.30 í
stofu 101 í Odda, Hugvísindahúsi Há-
skóla Islands. Heimir Þór Gíslason,
kennari á Höfn í Hornafirði llytur
erindi og sýnir myndir. Aðgangur er
ókeypis.
Sýning í Kringlunni
Nú stendur yfir í sýningarrými Kringl-
unnar og Gallerís Foldar sýning á mál-
verkum Hrafnhildar Bernharðsdóttur.
Verk hennar eru unnin með olíu á tré.
Sýningin stendur til 6. mars.
„I raun og veru“ í Hafnarfirði
Á laugardag frumsýnir Unglingadcild
Leikfélags Hafnarfjarðar, nýtt leikrit
sem heitir „I raun og veru“ eftir Garð-
ar Borgþórsson og Hildi Kristjánsdótt-
ur í Hafnarfjarðarleikhúsinu við Vest-
urgötu.
Moðhaus á Síðdegistónleikum
Hljómsveitin Moðhaus kemur fram á
Síðdegistónleikum Hins Hússins og
Rásar 2 í dag kl. 17. Aðgangur er
ókeypis.
Tríó Reykjavíkur í Hafnarborg
Tríó Reykjavíkur leikur á tónleikum f
Hafnarborg á sunnudag kl. 20.00.
Gestur tríósins er pólska mezzosópran-
söngkonan Alina Dubik.
Portrett af rithöfundum
I dag verður opnuð sýning á portrett-
í helgarbladi Dags
A ölbátnum í
Færeyska hliðin á Hjálmari Árnasyni alþingismanni
Með sam-
eiginlegan tón
Castro og
Kúba
Áskriftarsíminn er 800-7080
ljósmyndum eftir sænska Ijósmyndar-
ann Ullu Montan í anddyri Norræna
hússins. Sýningin verður opin daglega
kl. 9-18 nema sunnudaga kl. 12-18 og
Iýkur sunnudaginn 21. mars.
Sýning í Listhúsi Ofeigs
Sigurður Magnússon myndlistarmaður
opnar sýningu á morgun í Listhúsi
Ofeigs, Skólavörðustíg 5. Sýningin
stendur til 6. mars og verður opin
mánudaga til föstudaga frá kl. 10 til
18 og laugardaga frá kl. 11 til 14.
Kirkjan í heimi breytinga
I tilefni af 1000 ára afmæli kristnitök-
unnar mun Kjalarnesprófastsdæmi
standa fyrir röð málþinga nú á
vormisseri. Fyrsta málþingið verður á
morgun kl. 13.30 í Strandbergi, safn-
aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og ber
það yfirskriftina „Siðfræðin og lækna-
vísindin". Einar Árnason prófessor og
séra Kristfn Þórunn Tómasdóttir flytja
íyrirlestra. Málþingin eru öllum opin.
Orgel og slagverk
Sunnudaginn 21. febrúar klukkan 17
munu þeir Douglas A. Brotchie og
Steef van Oosterhout leika þrjú verk
fyrir orgel og slagverk á tónleikum í
Hallgrímskirkju. Verkin eru eftir Egil
Hovland, Paul Creston og Petr Eben.
Sýning Kristjáns Davíðssonar
Eftir messu á sunnudag verður opnuð
sýning á málverkum eftir Kristján Dav-
íðsson í Hallgrímskirkju.
Húnvetningafélagið
Félagsvist verður í Húnabúð í Skeif-
unni 11 á laugardag klukkan 13.00.
Allir velkomnir.
LANDIÐ
Skákfélag Akureyrar
Skákþing Akureyrar í yngri flokkunum
fer fram laugardagana 20. og 27. febr-
úar. Teflt verður í þremur flokkum, 13-
15 ára, 10-12 ára og 9 ára og yngri.
Taflið hefst klukkan 13.30. Þátttöku-
gjald er 300 krónur og eru allir vel-
komnir. 10 mínútna mót fyrir 45 ára
og eldri verður haldið í skákheimilinu
að Þingvallastræti 18, Akureyri, í kvöld
kl. 20.00.
Ferðafélag Akureyrar
Laugardaginn 20. febrúar verður
óvissuferð (auðveld). Skíðaferð eftir
færð og aðstæðum. Brottför klukkan
9.00.
Fatlaðir í framhaldsskólum
Kynningar- og umræðufundur á veg-
um Þroskahjálpar á Norðurlandi eystra
um nám fatlaðra nemenda í fram-
haldsskóla verður haldinn á Fosshótel
KEA á morgun kl. 11-14. Fyrirlesarar
eru Ingibjörg Auðunsdóttir, Svanfríður
Larsen, Gunnhildur Bragadóttir og
Lilja Guðmundsdóttir. Þátttökugjald er
kr. 1000, innifalin hádegisverður. Þátt-
taka er öllum heimil.
,2i
VIKINGI
Stjómandi iistans er |
, Þróinn Brjánsson
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
LAG FLYTJANDI
Hard knock life Joy-Z
You don't know me Armon von helden
More then this Emmie
1 wont you for me self Another level
Ladyshove Gus Gus
Mo Boker Boney M og Sosh
One ond one Edyto Gorniok
Bod girls Juliet Roberts
Birtir til Lond og synir
It's oll been done Bore naked lodies
It moy be winter outside Emmo
Upside down Risquée
1 never told you Flip do scrip
A good sign Emilio
Can't get enough Soulseorcher
Given up Mirrorboll
Didn't 1 Aquo
Kiss me red Crispy
You moke love come down Sweetbox
Nóttin til oð lifo Skítomórall
íjfÐASTA VIKUR
VIKA Á LISTA
13
iwn
15
Listinn er spilaður á föstudögum mitli kl. 20 og 22
Hlustaðu á Frostrásina í beinni á internetinu httpV/nett.is/frosrasin •
E-mail: frostras@nett.is • Stjórnandi listans er Þráinn Brjánsson
"■■H'T