Dagur - 25.02.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1999 - 19
LÍFIÐ í LANDINU
Síðasti bókamarkaður aldarinnar
Ákveðinn hópur
grúskam eralltaf
mætturum leið og
hókamarkaðurinn er
opnaður...
Hinn árlegi risabókamarkaður
Félags íslenskra bókaútgefanda
verður opnaður í dag í Perlunni
á Oskjuhlíð og Frostagötu 3c á
Akureyri (áður plastiðjan Bjarg).
Perlumarkaðurinn er opinn í tíu
daga eða til sunnudagsins 7.
mars. A þessum tíu dögum selst
meira af eldri bókum en alla
hina þrjúhundruðfimmtíuog-
fimm daga ársins. Það er þvf til
mikils að vinna fyrir þessa
nokkra tugi útgefenda sem
koma bókalagerum sfnum fyrir á
markaðnum. Þarna eru margar
bækur á kostakjörum enda
Yfir 20.000 titlar eru samankomnir í
hawaí-stemmningu Periunnar.
margir sem birgja sig upp af
bókum fyrir komandi afmælis-
og jólagjafir á markaðnum.
Yngstu bækurnar eru frá árínu
1996 en elstu bækurnar verða
sennilega frá því á 17. og 18. öld
og verða þær í horni Braga
Kristjónssonar fornbókasala.
Gnóttarborð spennusagna
Utsendarar blaðsins skruppu
upp í suðræna stemmninguna í
Perlunni, þar sem
vertíðarfílingur var
í starfsfólki, menn
stöfluðu af miklum
móð en sáust þó
öðru hveiju gleyma
sér, stóðu upp á
endann niður-
sokknir í einhverja
bókina. A markaðn-
um er álíka mikið
af titlum og síðari
ár og sömu efnis-
flokkar, m.a.
myndabækur,
handbækur, hesta-
bækur, ættfræði-
bækur, matreiðslu-
bækur o.s.fn'.
Spennusagnaborð-
ið var þó nokkra
metra á lengd og
kemur kannski dá-
lítið á óvart í ljósi
þess hversu vel
þýddar erlendar
spennusögur seljast
fyrir hver jól. En
þarna var gnóttar-
borð spennu- og af-
þreyingarsagna,
Ijöldinn allur af
FoIIett, MacLean
(og alltaðþví nafna
hans Alistair Mac-
Neill), Francis, Auður Rán og
Cunning, Mary
Higgins Clark og
fleiri og fleiri afþreyingarhöf-
unda. Megnið af afþreyingarsög-
unum voru af nýrri kantinum en
á öðru borði var þó smekklega
komið fyrir ýmis hefti af Sönn-
um sögum, Tígulgosanum, tíma-
ritinu EVA og fleiri slíkum
sjoppublöðum.
Ljóðabækur vinsælar
Eldri ljóðabækur og þjóðlegur
fróðleikur seljast iðulega mjög
vel á bókamörkuðum að sögn
Onnu framkvæmdastjóra. Gífur-
Iegur frjöldi íslendinga hefur
sjálfur gefið út ljóðabækur sínar
á eigin kostnað og alltaf kemur
einhver hluti af þeim til að setja
lagerinn sinn í umboðssölu á
bókamarkaðinn.
Flestar ljóðabókanna eru þó
sígildar og eftir þekkta höfunda
en inn á milli finnast nöfn sem
ekki hljóma verulega kunnug-
Helga Soffía tóku þátt í lokahnykknum við að raða bókum áður en milliveggirnir
I Periunni voru opnaðir almennum bókalesendum í dag.
lega. Þarna var t.d. að finna
bækur eftir Helga Valtýsson og
heitir A hverfanda hveli og ein-
hvern veginn kom efni Ijóðsins
Þessi skáldsaga heitir því skáldlega nafni: Leið-
beiningar fyrir konur um framhjáhald og er nú
ekki verðlögð hátt, eða 298 kr. „Bók um nú-
tímakonur sem njóta frelsis tii að elska og
frelsis til að þjást."
íslands æska á fyrstu opnu ekki
mjög á óvart: „I dag kallar ætt-
jörðin á / og sjá einnig mig og
þig / vér erum hjartabörn henn-
ar / sem hún vill að elski sig.“
Bamabækur
Bamabækur seljast iðu-
lega einna best á bóka-
mörkuðum FIB en afar
mikið er um að fólk
birgji sig upp af barna-
bókum á Bókamarkaðn-
um enda hægt að fá þar
prýðisgóðar bækur í gjaf-
ir fyrir lítið verð. Þá er
einnig algengt að leik-
skólar, skólar og bóka-
söfn nýti sér þennan
markað til að endurnýja
safnkostinn, segir Anna.
En alveg út í enda, þar
sem maður getur staðið í
friði fyrir þeim sem eru
gramsa í barnabókunum,
að
ljóðabókunum og þjóðlega fróð-
leiknum eru bækur sem saman-
legt ættu, eftir titlunum að
dæma, að geta veitt þér ansi
mikla visku um lífið hinum meg-
in grafar. Og reyndar einnig því
hvernig hægt er lifa lífinu Rétt
hérna megin líka því þar voru
saman komnar bækur um yoga
heimspeki, sálræna heilun,
hafayoga heilsufræði, gnaniyoga
leið til vitsmuna, raya yoga leið
hugræktar o.sfn'. Og vilji menn
nú enda þessa andans hugrækt
með allsherjar úttekt á heimin-
um í dag væri hægt að Ijúka
lestrinum á Hnykknum 1999 -
síðasta áratugi mannkyns. Ef
svo fer fram sem þessi indverski
rithöfundur spáir þá verður
þetta ekki bara síðasti bóka-
markaður aldarinnar heldur og
Síðasti Bókamarkaðurinn með
stórum staf og föstum greini.
Þessi indverski heimsendaspá-
maður heitir Narendra og er raf-
magnsverkfræðingur að mennt.
Utgefandi er ekkert að fara eins
og köttur í kringum heitan
graut: „Eigi skal dregin dul á að
hér verður borin fram heim-
sendisspá. Sumt fólk myndi þá
sjálfsagt ekki kæra sig um að
Iesa lengra. Alþekkt er að öfga-
goggar og svikahrappar ógna
fólki með heimsendi og dóms-
degi. En svo er þeim ósköpum
jafnan frestað...“ Ekki er ólíklegt
að herra Narendra hafi neyðst
til að fresta sínum heimsendaó-
sköpum... — lóa
Nokkru áður en Mjólkursamsalan sá
hversu tilvaldar mjólkurfernur voru til
að kynna orðsins list tók Jónas Guð-
mundsson blaðamaður sig til og gaf
útpistlasafn I geymsluþolnum
mjólkurfernuumbúðum.
Söfnuður í stormi og logni
Friðurríkirnúíís-
lenska söfnuðinum í
Noregi.
Eftir miklar róstur, storm og
hallarbyltingu í íslenska söfnuð-
inum Noregi á síðasta ári er nú
logn komið á í safnaðarstarfinu.
Söfnuðurinn fékk prestinn sem
hann vildi, Sigrúnu Oskarsdótt-
ur, gegn vilja þáverandi for-
manns safnaðarstjórnar, Þór-
halls Guðmundssonar og Olafs
Skúlasonar biskups sem neitaði
að setja Sigrúnu inn í embætti.
Sunnudaginn 7. febrúar síð-
astliðinn messaði séra Sigrún í
Amerísku kirkjunni f Osló.
Kirkjusókn var góð sem og ræða
prestsins. Islenski kórinn sá um
að leiða kirkjugesti í sálmasöng.
Hápunktur athafnarinnar var
þegar Valur Björn Eiríksson og
Helga Rut Einarsdóttir báru lít-
inn dreng sinn til skírnar. Móðir
Helgu Rutar, Bára Bjarnadóttir,
hélt dóttursyni sínum undir
skírn. Sveinnin, sem hlaut nafn-
ið Einar Ymir, tók hraustlega á
móti vatnsaustrinum.
Þegar að skírninni kom kallaði
séra Sigrún á öll börn sem mætt
voru til messunnar og bauð
þeim að koma að skírnarfontin-
um og fylgjast með athöfninni.
Að skfrninni lokinni var börnun-
um boðið til sunnudagaskóla.
Eftir messu bauð „kvenfélagið“
upp á kaffi og vöflur með sýrð-
um rjóma. Undirritaður kann
betur að meta hefðbundnar ís-
lenskar vöflur með rabbabara-
sultu og þeyttum rjóma. - GÞÖ
Sigrún Úskarsdóttir skírir Einar Ými.
Bára Bjarnadóttir, amma Einars
heldur á honum undir skírn. Móðirin
Helga Rut Einarsdóttir og systur
hennar.Thelma Björk og Þórhildur,
ásamt föður Einars, Vali Birni Eiríks-
syni fylgjast með afathygli.