Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 12

Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 6. mars | HANDBOLTI 1. deild kvenna Kl. 16:30 ÍR-Valur Kl. 16:30 Fram - Stjarnan Kl. 16:30 Grótta KR - KA Kl. 16:30 ÍBV - Haukar KI. 16:30 Víkingur - FH 2. deild karla Kl. 16:30Breiðabl. - Völsungur ■ BLAK 1. deild karla Kl. 12:00 Þróttur R - KA KI. 16:00 Stjarnan - Þróttur N 1. deild kvenna KI. 13:30 Þróttur R. - KA Kl. 13:30 Víkingur - Þróttur N ■ KÖRFUBOLTI 1. deild kvenna - VlS-deild Kl. 17:00 KR - Keflavík Kl. 17:00 Njarðvík - Grindavík Sunnud. 7. mars ■ KÖRFUBOLTI DHL-deildin Kl. 20:00 ÍA - KFÍ Kl. 20:00 Grindavík - Njarðvík Kl. 18:00 Keflavík - Þór Kl. 20:00 Tindastóll - KR Kl. 20:00 Haukar - Snæfell Kl. 16:00 Valur - Skallagrímur ■ handbolti Nissandeildin Kl. 20:00 ÍR - Grótta KR KI. 20.00 HK - Haukar Kl. 20:00 FH - Valur Kl. 20:00 KA - Fram Kl. 20:00 Selfoss - Stjarnan Kl. 20:00 ÍBV - UMFA 2. deild karla Kl. 14:30 Ögri - Völsungur Kl. 13:30 Hörður - Víkingur Á SKJÁNUM Laugard. 6. niars Skíði Kl. 11:00 Heimsbikarkeppnin Brun karla - Útsending frá Noregi. Kappakstur Kl. 12:00 Formúla 1 Tímataka frá Astralíu. KI. 02:45 Formúla 1 Bein útsending frá Astralíu. Friálsar íþróttir Kl. 13:00 HM í Japan Samantekt. Kl. 00:55 HM f Japan Bein útsending. Kl. 05:00 HM í Japan Bein útsending. Fótbolti KI. 14:25 Þýski boltinn Hertha Berlín - Kaiserslautern Handbolti Kl. 16:15 1. deild kvenna Fram - Stjarnan Fótbolti Kl. 12:00 Alltaf í boltanum Kl. 14:45 Enski boltinn Arsenal - Derby Körfubolti Kl. 12:30 NBA-tilþrif S Hnefaleikar Kl. 22:45 Hnefaleikar Reggie Johnson - Will Taylor Cesar Bazan - Stevie Johnston Sunnud. 7. mars Kappakstur KI. 11:30 Formúla 1 Endursýnt. Frjálsar íþróttir Kl. 16:50 HM ÍJapan Samantekt. íþróttir Kl. 22:55 Helgarsportið Handbolti Kl. 23:05 Handboltakvöld Nissandeildin íþróttir Kl. 12:30 Iþróttir á sunnudegi Fótbolti Kl. 13:55 ítalski boltinn Fiorentina - Parma Körfubolti Kl. 16:00 DHL-deildin Valur - Skallagrímur Fótbolti Kl. 13:45 Enski bikarinn Man. United - Chelsea Kl. 15:50 Enski bikarinn Newcastle - Everton Kl. 19:25 ítalski boltinn Sampdoria - Juventus KI. 21:30 ítölsku mörkin Golf Kl. 17:55 Golfmót í Evrópu Kl. 18:55 19. holan Oðruvísi golfþáttur. Samkvæmt tímaseðlum frá HM í Japan hóf Jón Arnar Magnússon keppni í sjöþraut í nótt. Þrautin hófst með keppni í 60 m hlaupi kl. 01:00, langstökki kl. 01:40, kúluvarpi ld. 03:20 og hástökki kl. 05:00. I nótt heldur svo þrautin áfram með keppni í 60 m grind kl. 01:00, stang- arstökki kl. 02:00 og 1000 m hlaupi kl. 07:20 í fyrramálið. (íslenskur tími) Glæsilegur áraiigur Vala Flosadóttir náði þeim glæsilega ár- angri á HM í Japan að verða í öðru sæti stangarstökkskeppn- innar. Vala Flosadóttir gerði sér lítið fyr- ir og vann til silfurverðlauna á heimsmeistaramótinu innanhúss sem nú stendur yfir í Japan. Vala stökk 4,45 metra í þriðju tilraun og átti síðan góðar tilraunir við 4,50 metra, þegar hún háði spennandi keppni um gullið við þýsku stúlkuna Nastju Ryshich. Þýska stúlkan hafði betur í lokin og náði að stökkva 4,50 metra í sfðustu tilraun og vann þar með heimsmeistaratitilinn. Vala er í mjög góðu formi þessa dagana og var mikill kraftur í stökkum hennar á mótinu. Hún fór þó rólaga af stað, en sýndi mikla keppnishörku þegar Ieið á keppnina. Hún fór yfir byrjunar- hæðina, 3,85 metra í fyrstu til- raun, stökk næstu hæð, 4,05 m einnig í fyrstu tilraun, en átti svo í smá erfiðleikum með næstu tvær hæðir, sem voru 4,20 m og 4,35 m. Hún fór yfir 4,20 í ann- ari tilraun og 4,35 í þeirri þriðju, en skellti sér svo yfir 4,45 í fyrstu tilraun, sem er hennar besti ár- angur til þessa og nýtt glæsilegt íslands- og Norðurlandamet. Þá var komið að 4,50 m, en þá Va/a var hársbreidd frá gullinu. hæð felldi Vala þrisvar sinnum. Mun meiri kraftur var nú í stökk- unum hjá Völu en í undanförnum keppnum og var hún yfirleitt vel yfir slánni, en var þá of nálægt og felldi í niðurleiðinni. Það má því segja að heimsmeistaratitillinn hafi verið innan seilingar og þar munaði aðeins hársbreidd. I þriðja sæti keppninnar lentu þær Zsuzsa Szabo og Nicole Rieger-Hunbert, sem báðar stukku 4,35 m. Þórey Edda Elísdóttir, stóð sig einnig mjög vel í keppninni, en hún stökk 4,20 metra og lenti í 9.-10. sæti. Alls voru 24 stúlkur skráðar til keppni í stangarstökkinu og 15 þeirra náðu að stökka 4,20 m. BRIDGE íslandsmótið í sveitakeppni hófst í gærdag og verður spilað fram á sunnudagskvöld. Gerður hefur verið samstarfssamningur við Europay Island og heitir mít- ið nú: Islandsmótið í sveita- keppni 1999 - „MasterCard- mótið“. Eurocard hefur stutt bridgehreyfinguna á Islandi dyggilega undanfarin ár. Undankeppni mótsins fer fram í Þönglabakkanum og spila 40 sveitir úr öllum landshlutum um 10 sæti f úrslitunum sem verða spiluð 31. mars-3. apríl. Dregið var í 5 riðla samkvæmt styrkleika sveitanna og lítur dæmið þannig út: A-riðiII: Landsbréf Reykjavík, Spotlight Club Reykjavík, Sigfús Þórðar- son Suðurlandi, Aðalsteinn Jónsson Austurlandi, Arni Bragason Vesturlandi, Guðrún Óskarsdóttir Reykjavík, Sveinn T. Pálsson Nl-eystra, Sparisj. Húnaþings N-vestra. B-riðill: Samvinnuferðir Reykjavík, Grandi hf. Reykjavík, Heitar Samlokur Reykjavík, Gummi Pé kaup Reykjavík, Sigurður Tóm- asson Vesturlandi, KEA Búbót Nl-eystra. I dag hefst spilamennska kl. 11.00 og verða spilaðir 3 leikir. A sunnudag verður byrjað kl. 10.00 og spilaðir 2 leikir. Mót- inu lýkur 17.35 skv. dagskrá. Frakkarnir uiinu Islandsmótið í sveitakeppni kvenna fór fram um síðustu helgi með þátttöku 12 sveita. Mótið var mjög jafnt og spenn- andi. Þegar 8 umferðum var lokið voru 3 sveitir efstar og jafn- ar, en sveit Þriggja Frakka átti góðan endasprett og hampaði Is- landsmeistaratitlinum að lokum. Úrslit urðu þessi: 1. Þrír Frakkar - Ljósbrá Baldursdóttir 205 2. FBA - Guðrún K. Jóhannesd. 192 3. Islenska útvarpsfélagið - Una Árnadóttir 190 4. Norðan4 - Stefanía Sigurbjörnsd. 188 5. Norðurljós - Ragnheiður Haraldsd. 178 Dræmt hjá yngri spilurum Islandsmót yngri spilara í sveita- keppni fór einnig fram um síð- ustu helgi. Mjög dræm þátttaka var í mótinu, en einungis þrjár sveitir voru skráðar í mótið. Sveit Sigurbjörns Haraldssonar vann nokkuð örugglega með 157 stig, en Daníel Sigurðsson hlaut 123 stig. 40 bestu sveitir iandsins ieiða saman hesta sína um helgina á íslandsmótinu í sveitakeppni. Myndin er tekin á Bridgehátíð og munu margir sem þarna eru eigast við um helgina. Guðmundur Páll Arnarson er þekktur fyrir að vera vel á verði í spilinu en á þessari mynd virðist sem síðasta spil hafi gengið heldur nærri honum! - mynd: bþ & pjakkarnir Reykjavík, Kristinn Kristjánsson Vestfjörðum, Bíla- spítalinn Reykjanesi, Lífeyrissj. Austurlands, Sigurður Skagfjörð Vestfjörðum. C-riðill: Strengur Reykjavík, Þrír Frakkar Reykjavík, IR-sveitin Reykjavík, Herðir Austurlandi, nota bene Reykjavík, VÍS Reykjanesi, Eimskip Reykjavik, Síldarvinnslan Austurlandi. D-riðiIl: Stilling Reykjavík, Þröstur Ingi- marsson Reykjanesi, Kf. Þingey- inga Nl-eystra, Vírnet Vestur- landi, Kjötv. Sigurðar Reykjavík, Neta- og veiðarfæragerðin N- vestra, Sparisjóður Norðlend- inga Nl-eystra, Skúli Jónsson NI- vestra. E-riðill: Holtakjúklingur Reykjavík, Ingv- ar Jónsson Nl-vestra, Kristján M. Gunnarsson Suðurlandi, Þróun Reykjanesi, Mjólkurbú Flóamanna Suðurlandi, Ríkis- Islandsmótið í sveitakeppni

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.