Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 11

Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 11 Tfc^ur ERLENDAR FRÉTTIR Kreppan reynist Kínverjum erfið Þing alþýðimnar í Kína var sett í gær og boðar forsætisráð- herrann samdrátt og baráttu gegn spill- ingu. Fjármálakreppan í Asíu hefur komið verr niður á kínversku efnahagslífi heldur en kínversk stjórnvöld hafa hingað til reikn- að með. Zhu Rongji, forsætisráð- herra, skýrði frá þessu við þing- setningu kínverska þjóðþingsins í gær. Kínversk stjórnvöld hyggjast grípa til margvíslegra efnahags- ráðstafan til þess að ráða bót á þessu. Ríkisútgjöld verða aukin um 14,7%, en við það hækkar Ijárlagahallinn um 56% og verð- ur nærri 1.300 milljarðar ís- lenskra króna. Jafnframt verða ríkisskuldir auknar. Er meining- in að auka eftirspurn almenn- ings með þessum ráðstöfunum. Jafnframt hvatti Zhu Rongji Kínverja til þess að Ieggja sitt af mörkum til þess að efla hagvöxt- inn. Sagði hann stjórnvöld stefna að því að hagvöxtur verði 7% á þessu ári, en á síðasta ári var hagvöxturinn í Kína 7,8%. Zhu dró upp miklu dekkri, og að áliti erlendra fréttaskýrenda mun raunsærri, mynd af kín- versku efnahagslífi heldur en forveri hans í embætti, Li Peng, hafði nokkru sinni gert. Lagði Zhu áherslu á mikilvægi þess að viðhalda stöðugleika á þessum „erfiðu tímum“. Um Ieið boðaði hann herta baráttu gegn spillingu á öllum sviðum þjóðlífsins. Jafnframt ætlar hann að lækka skatta á bændur og hvatti héraðsstjórnir til þess að veita atvinnulausum verkamönnum námsstyrki. Hins vegar hafnaði hann því alfarið að Tölvuþrjót- arherja á Pentagon ABC-fréttastofan í Bandaríkjun- um skýrði frá því í gær að óþekktir tölvuþrjótar reyni nú ákaft að brjótast inn í tölvukerfi bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið, Pentagon. Aður hafa ung- lingar stundum reynt hið sama, en að þessu sinni mun vera um þrautreynda kunnáttumenn að ræða, og telja embættismenn að þeir séu staðsettir utan Banda- ríkjanna. Svo virðist sem tölvuþrjótarnir séu annað hvort í Rússlandi, eða beini „árásum“ sínum á tölvur ráðuneytisins a.m.k. í gegnum tölvur í Rússlandi. Um skipuleg- ar aðgerðir virðist vera að ræða. John Hamre, aðstoðar\farnar- málaráðherra Bandaríkjanna, staðfesti á fimmtudag í viðtali við ABC sjónvarpsstöðina að þetta hafi átt sér stað nokkra undanfarna mánuði og verði að teljast alvarlegt mál, mun alvar- legra en fyrri tilraunir til að brjótast inn í tölvukerfið. Hins vegar háfi öryggi tölvu- kerfisins verið bætt til muna frá þ\a töh'uþrjótar gerðu harða hríð að því í febrúar á síðasta ári. beita alræðiskenndum aðferðum við að vinna bug á efnahags- kreppunni, enda sé kreppan sjálf nægileg byrði á almenning þótt stjórnvöld fari ekki að fæla hann frá sér með ofríki. Kínverska alþýðulýðveldið verður hálfrar aldar gamalt á þessu ári, og verður þess minnst með ýmsum hætti í Kína á árinu. Jafnframt eru liðin 10 ár atburð- unum á Tiananmen-torgi, þegar herinn réðst grímulaust gegn stúdentum og öðrum sem kröfð- ust lýðræðisumbóta. Þing alþýðunnar stendur yfir í 11 daga og sitja það 2.869 þing- menn. Þingið kemur saman einu sinni á ári í Höll alþýðunnar, sem stendur við Tiananmen-torg í Beijing. — GB ilHIÓIIJKMél Hneykslun á Ítalíu ÍTALÍA - ítalir eru hneykslaðir og skilningsvana á úrskurði dómstóls í Bandaríkjunum um að flugmaðurinn sem sleit í sundur togvír kláf- feiju í Cavalese á síðasta ári teljist saklaus af ákærum. Massimo D’Al- ema, forsætisráðherra Italíu, segir blóðbaðið hafa verið svo gífurlegt að Italir hafi reiknað fastlega með því að réttlætið myndi sigra. 20 manns létust þegar bandarísk herþota sleit í sundur togvír feijunnar, og hafa vinir og vandamenn hinna Iátnu brugðist ókvæða við úrskurð- inum. Flugmaður þotunnar heldur því fram að kláfferjan og togvírinn hafi ekki verið merkt inn á kortið sem hann flaug eftir þannig að hann hafi enga möguleika átt á því að koma í veg fyrir slysið. Sprengjuárás á tyrkneskan héraðsstjóra TYRKLAND - A.m.k. íjórir létust þegar gerð var sprengjuárás á hér- aðsstjórann í Cankiri á Tyrklandi í gærmorgun. Ekki var vitað hverj- ir báru ábyrgð á sprengjunni, en liðsmenn PKK, samtaka aðskilnað- arsinnaðra Kúrda, lágu undir grun. Tveir lífvarða héraðsstjórans og tveir gangandi vegfarendur létust, og héraðsstjórinn sjálfur hlaut al- varleg meiðsli. Ekki var Ijóst í gær hvort fleiri hefðu slasast eða lát- ist. Sprengjan sprakk í kyrrstæðum bíl þegar bifreið rfkisstjórans ók framhjá. Fangavist Noriegas stytt um 10 ár BANDARÍKIN - Bandarískur dómstóll hefur stytt um 10 ár fangelsisdóm, sem Manuel Noriega, fyrr- verandi einræðisherra í Panama, hlaut fyrir eitur- lyfjasmygl og peningaþvætti. Upphaflega átti Noriega að sitja inni í 40 ár, en nú hljóðar dómurinn upp á 30 ár. Noriega hefur þegar afplánað níu ár í fangelsi í Miami, en samkvæmt reglum bandaríska réttarkerfisins á hann nú möguleika á að sleppa út gegn tryggingu vegna góðrar hegðunar strax á næsta Manuel ári. Bandaríski herinn réðst inn í Panama árið 1990 Noriega. til þess að handtaka Noriega. Tvöfalt ríkisfang takmarkað við höm ÞYSKALAND - Ríkisstjórn Jafnaðarmanna og Græningja í Þýska- landi hefur stefnt að þvf frá byrj u n að koma á tvöföldum ríkisborg- ararétti handa útlendingum, en mætt mikilli andstöðu með þau áform sín. Nýjasta hugmyndin er sú að takmarka tvöfalt ríkisfang að mestu við börn, sem fædd eru í Þýskalandi af erlendum foreldrum. Fullorðnum verði aðeins í vissum undantekningartilvikum heimilt að öðlast þýskan ríkisborgararétt án þess að glata ríkisfangi uppruna- lands síns. nniDotBYj D I G I T A L ItriArlm nyjfl bio t : ' _ _ RÁÐHUSTORGI Sýnd laugard. kl. 19 og 21 - sunnud. kl. 19 - mánud. kl. 19 Sýnd laugard. kl. 15 og 17 Sýnd sunnud. kl. 13,15 og 17 Sýnd mánud. kl. 17 - ísl. tal. Sýnd laugard. kl. 23 Sýnd sunnud.- mánud. kl. 21 Power sýning ÍTHX A/VuIan Sýnd laugard. kl.13 Miðaverð kr. 300 kr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.