Dagur - 06.03.1999, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - 11
Tfc^ur
ERLENDAR FRÉTTIR
Kreppan reynist
Kínverjum erfið
Þing alþýðimnar í
Kína var sett í gær og
boðar forsætisráð-
herrann samdrátt og
baráttu gegn spill-
ingu.
Fjármálakreppan í Asíu hefur
komið verr niður á kínversku
efnahagslífi heldur en kínversk
stjórnvöld hafa hingað til reikn-
að með. Zhu Rongji, forsætisráð-
herra, skýrði frá þessu við þing-
setningu kínverska þjóðþingsins
í gær.
Kínversk stjórnvöld hyggjast
grípa til margvíslegra efnahags-
ráðstafan til þess að ráða bót á
þessu. Ríkisútgjöld verða aukin
um 14,7%, en við það hækkar
Ijárlagahallinn um 56% og verð-
ur nærri 1.300 milljarðar ís-
lenskra króna. Jafnframt verða
ríkisskuldir auknar. Er meining-
in að auka eftirspurn almenn-
ings með þessum ráðstöfunum.
Jafnframt hvatti Zhu Rongji
Kínverja til þess að Ieggja sitt af
mörkum til þess að efla hagvöxt-
inn. Sagði hann stjórnvöld
stefna að því að hagvöxtur verði
7% á þessu ári, en á síðasta ári
var hagvöxturinn í Kína 7,8%.
Zhu dró upp miklu dekkri, og
að áliti erlendra fréttaskýrenda
mun raunsærri, mynd af kín-
versku efnahagslífi heldur en
forveri hans í embætti, Li Peng,
hafði nokkru sinni gert. Lagði
Zhu áherslu á mikilvægi þess að
viðhalda stöðugleika á þessum
„erfiðu tímum“.
Um Ieið boðaði hann herta
baráttu gegn spillingu á öllum
sviðum þjóðlífsins. Jafnframt
ætlar hann að lækka skatta á
bændur og hvatti héraðsstjórnir
til þess að veita atvinnulausum
verkamönnum námsstyrki. Hins
vegar hafnaði hann því alfarið að
Tölvuþrjót-
arherja
á Pentagon
ABC-fréttastofan í Bandaríkjun-
um skýrði frá því í gær að
óþekktir tölvuþrjótar reyni nú
ákaft að brjótast inn í tölvukerfi
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið, Pentagon. Aður hafa ung-
lingar stundum reynt hið sama,
en að þessu sinni mun vera um
þrautreynda kunnáttumenn að
ræða, og telja embættismenn að
þeir séu staðsettir utan Banda-
ríkjanna.
Svo virðist sem tölvuþrjótarnir
séu annað hvort í Rússlandi, eða
beini „árásum“ sínum á tölvur
ráðuneytisins a.m.k. í gegnum
tölvur í Rússlandi. Um skipuleg-
ar aðgerðir virðist vera að ræða.
John Hamre, aðstoðar\farnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
staðfesti á fimmtudag í viðtali
við ABC sjónvarpsstöðina að
þetta hafi átt sér stað nokkra
undanfarna mánuði og verði að
teljast alvarlegt mál, mun alvar-
legra en fyrri tilraunir til að
brjótast inn í tölvukerfið.
Hins vegar háfi öryggi tölvu-
kerfisins verið bætt til muna frá
þ\a töh'uþrjótar gerðu harða hríð
að því í febrúar á síðasta ári.
beita alræðiskenndum aðferðum
við að vinna bug á efnahags-
kreppunni, enda sé kreppan sjálf
nægileg byrði á almenning þótt
stjórnvöld fari ekki að fæla hann
frá sér með ofríki.
Kínverska alþýðulýðveldið
verður hálfrar aldar gamalt á
þessu ári, og verður þess minnst
með ýmsum hætti í Kína á árinu.
Jafnframt eru liðin 10 ár atburð-
unum á Tiananmen-torgi, þegar
herinn réðst grímulaust gegn
stúdentum og öðrum sem kröfð-
ust lýðræðisumbóta.
Þing alþýðunnar stendur yfir í
11 daga og sitja það 2.869 þing-
menn. Þingið kemur saman einu
sinni á ári í Höll alþýðunnar,
sem stendur við Tiananmen-torg
í Beijing. — GB
ilHIÓIIJKMél
Hneykslun á Ítalíu
ÍTALÍA - ítalir eru hneykslaðir og skilningsvana á úrskurði dómstóls
í Bandaríkjunum um að flugmaðurinn sem sleit í sundur togvír kláf-
feiju í Cavalese á síðasta ári teljist saklaus af ákærum. Massimo D’Al-
ema, forsætisráðherra Italíu, segir blóðbaðið hafa verið svo gífurlegt
að Italir hafi reiknað fastlega með því að réttlætið myndi sigra. 20
manns létust þegar bandarísk herþota sleit í sundur togvír feijunnar,
og hafa vinir og vandamenn hinna Iátnu brugðist ókvæða við úrskurð-
inum. Flugmaður þotunnar heldur því fram að kláfferjan og togvírinn
hafi ekki verið merkt inn á kortið sem hann flaug eftir þannig að hann
hafi enga möguleika átt á því að koma í veg fyrir slysið.
Sprengjuárás á tyrkneskan
héraðsstjóra
TYRKLAND - A.m.k. íjórir létust þegar gerð var sprengjuárás á hér-
aðsstjórann í Cankiri á Tyrklandi í gærmorgun. Ekki var vitað hverj-
ir báru ábyrgð á sprengjunni, en liðsmenn PKK, samtaka aðskilnað-
arsinnaðra Kúrda, lágu undir grun. Tveir lífvarða héraðsstjórans og
tveir gangandi vegfarendur létust, og héraðsstjórinn sjálfur hlaut al-
varleg meiðsli. Ekki var Ijóst í gær hvort fleiri hefðu slasast eða lát-
ist. Sprengjan sprakk í kyrrstæðum bíl þegar bifreið rfkisstjórans ók
framhjá.
Fangavist Noriegas stytt um 10 ár
BANDARÍKIN - Bandarískur dómstóll hefur stytt
um 10 ár fangelsisdóm, sem Manuel Noriega, fyrr-
verandi einræðisherra í Panama, hlaut fyrir eitur-
lyfjasmygl og peningaþvætti. Upphaflega átti
Noriega að sitja inni í 40 ár, en nú hljóðar dómurinn
upp á 30 ár. Noriega hefur þegar afplánað níu ár í
fangelsi í Miami, en samkvæmt reglum bandaríska
réttarkerfisins á hann nú möguleika á að sleppa út
gegn tryggingu vegna góðrar hegðunar strax á næsta
Manuel ári. Bandaríski herinn réðst inn í Panama árið 1990
Noriega. til þess að handtaka Noriega.
Tvöfalt ríkisfang takmarkað við höm
ÞYSKALAND - Ríkisstjórn Jafnaðarmanna og Græningja í Þýska-
landi hefur stefnt að þvf frá byrj u n að koma á tvöföldum ríkisborg-
ararétti handa útlendingum, en mætt mikilli andstöðu með þau
áform sín. Nýjasta hugmyndin er sú að takmarka tvöfalt ríkisfang að
mestu við börn, sem fædd eru í Þýskalandi af erlendum foreldrum.
Fullorðnum verði aðeins í vissum undantekningartilvikum heimilt að
öðlast þýskan ríkisborgararétt án þess að glata ríkisfangi uppruna-
lands síns.
nniDotBYj
D I G I T A L
ItriArlm
nyjfl bio
t : ' _ _
RÁÐHUSTORGI
Sýnd laugard. kl. 19 og 21 - sunnud. kl. 19 - mánud. kl. 19
Sýnd laugard. kl. 15 og 17 Sýnd sunnud. kl. 13,15 og 17 Sýnd mánud. kl. 17 - ísl. tal. Sýnd laugard. kl. 23 Sýnd sunnud.- mánud. kl. 21 Power sýning ÍTHX
A/VuIan Sýnd laugard. kl.13 Miðaverð kr. 300 kr.