Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 06.03.1999, Blaðsíða 5
X^u- LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - S FRÉTTIR Sverrir Hermannson ætlar í fram- boð á Vestfjörðum. Ferfram á Vest- fjörðum Sverrir Hermannsson formaður Frjálslynda flokksins verður í fyrsta sæti á lista flokksins á Vestfjörðum. Framboðsmál flokksins að öðru Ieyti eru ófrá- gengin en stefnt að því að listar verði klárir í öllum kjördæmum í fyrir páska. Forystumenn Frjálslynda flokksins kynntu í gær útfærða stefnu sína í sjávarútvegsmálum. Þeir vilja að núverandi kvótaút- hlutun verði afnumin og bann lagt við framsali aflaheimilda. Stundaðar verði frjálsar veiðar með sóknarstýringu í a.m.k 2 ár og hafi bátaflotinn forgang á grunnslóð. Ef sóknarstýringin þyki hafa reynst vel verði henni haldið áfram. A þessum 2 ára reynslutíma á að undirbúa nýja fiskveiðilöggjöf sem byggist á út- boði til leigu á öllum afla- eða sóknarheimildum. Þá vill Frjáls- lyndi flokkurinn að 3 mönnum skipuðum af Hæstarétti verði falin yfirstjórn umskiptanna frá gildandi lögum til nýrra. - VJ Bændasamtökm og ríMsjóöur semja iliii 424-472 milljónir á ári til nútímavæðing- ar í búrekstri. „Ég held að við höfum hér orðið vitni að merkum atburði í þróun- arsögu íslensks landbúnaðar", sagði Ari Teitsson eftir undir- skrift fulltrúa Bændasamtak- anna og ríkissjóðs á nýjum 5 ára samningi um 424-472 milljóna framlög á ári, til verkefna sam- kvæmt nýjum búnaðarlögum. „Ég tel að þessi samningur hafi í raun og veru sýnt að innan rfkis- stjórnarinnar er skilningur á þörf fyrir framþróun í íslenskum land- búnaði - skilningur á því að það eigi að stuðla að breyttum áhersl- um: Það eigi að stuðla að nú- tímavæðingu í rekstrargreiningu og rekstraraðstoð, stuðla að bættu umhverfi og að það eigi al- mennt að framþróa þessa at- vinnugrein eins og aðrar“, sagði Ari sem þakkaði ráðherrum og öðrum kærlega fyrir. Trygging „Samningur samkvæmt þessum lögum er í raun trygging fyrir því að þessar fjárhæðir og þessi stuðningur standi með öruggari hætti heldur en verið hefur, sam- kvæmt lagaákvæðum sem gilt hafa hingað til, og vandi sem skapast hefur af því tilefni er nú Ieystur", sagði landbúnaðarráð- herra, Guðmundur Bjarnason. Samninginn sagði hann fyrst og Frá undirritun nýja búvörusamningsins á Hótei Sögu í gær. Tveir ráðherrar og fulltrúar Bændasamtakanna skrifuðu undir samninginn sem er til fimm ára. fremst taka til framlaga vegna jarðræktar, búfjárræktar, leið- beiningaþjónustu og nýsköpunar og þróunar í Iandbúnaði. Nýjar áherslur sagði landbún- aðarráðherrra einkum þær að með greiðslum til Ieiðbeininga- þjónustunnar sé verið að undir- strika stefnu að aukinni hag- kvæmni í landbúnaðinum, efla ræktunarmenningu, hagkvæma fóðuröflun og lágmarksröskun umhverfis. I garðyrkju er áhersl- an á gæðastýringu og lágmarks- notkun hjálparefna. I búfjárrækt- inni á aukna afurðasemi, fjöl- breyttari og betri afurðir og hag- kvæmari framleiðslu og síðan á lífræna og vistvæna framleiðslu. Mest til leiðbeininga Fjárhæðirnar í samningnum segja menn svipaðar og veitt hafi verið til þessara verkefnaflokka á fjárlögum síðustu ára. Munurinn sé sá að nú sé skilgreint til hvaða verkefna þau skuli renna og þar sé haft að leiðarljósi að styðja framsækin verkefni. Um 160- 170 milljónir á ári eiga að fara til leiðbeiningarstarfsemi. Um 40- 85 milljónir til þróunarverkefna og jarðabóta á lögbýlum. Rösk- lega 50 milljónir til búfjarræktar, m.a. skýrsluhalds og sæðinga- og ræktunarstöðva, og síðan u.þ.b. 170 milljónir til Framleiðnisjóðs. Meðal verkefna sem styrkja má á einstökum jörðum eru: Endur- ræktun vegna aðlögunar að líf- rænni ræktun, gæðaverkefni í garðyrkju og ylrækt, þróunar- verkefni í kornrækt, skýli fyrir útigangshross og að auðvelda umferð gangandi fólks um land- ið. - HEI Tryggingfyrir öruggari stuoningi Engar tUlögur fyrír kosningar Auölmdanefndin hef- ur skilað áfanga- skýrslu til forsætis- ráðherra. Þar er engar ákveðnar tillögur að finna eins og búist var við. Auðlindanefndin, sem starfað hefur síðan í fyrra og búist var við að myndi skila einhverjum ákveðnum tillögum fyrir þing- kosningarnar í vor mun ekki gera það. Einkanlega var beðið með óþreyju eftir tillögum hennar varðandi stjórn fiskveiða eða kvótamálinu eins og flestir kalla það. Nefndin hefur skilað áfangaskýrslu til Davíðs Odds- sonar forsætisráðherra og er fyr- irhugað að dreifa henni næst- komandi miðvikudag. En þar er, sem fyrr segir, engar ákveðnar til- lögur í auðlindamálunum að finna. Samkvæmt heimildum Dags er þessi áfangaskýrsla aðeins um störf nefndarinnar til þessa, Jóhannes Nordal formaður Auð- lindanefndar. ásamt þeim gögnum sem hún hefur látið vinna fyrir sig. Það kom á daginn þegar nefndin hóf störf fyrir alvöru að hér var á ferðinni miklu víðfeðmara verk- efni en nokkurn óraði fyrir. I áfangaskýrslunni skýrir nefndin frá því hvernig hún hyggst vinna málið áfram. Ekkert innleg í kosningabar- áttuna Jóhannes Nordal, formaður nefndarinnar, sagði í samtali við Dag fyrir áramót að menn gerðu sér vonir um að geta lagt ein- hverjar tillögur fram fyrir kosn- ingar f vor. I skýrslunni eru hins vegar talin upp í nokkrum tölu- liðum þau atriði sem nefndin mun vinna áfram að og hefur vinsað að sér gögnum um. Nefndarmenn telja sig vera búna að skilgreina vel hin miklu verkefni nefndarinnar og að hveiju hún muni vinna. Ef allt gengur vel telja nefndarmenn vera möguleika á að skila af sér í lok þessa árs. Og til að fyrir- byggja misskilning þá fjallar nefndin um allar auðlindir þjóð- arinnar en ekki bara sjávarútveg- inn. Margir telja að stjórn fiskveiða, kvótamálið, verði aðalmál kosn- ingabaráttunnar í vor. Þeir hinir sömu vonuðust til að fram kæmu tillögur í kvótamálinu, sem yrðu innlegg í kosningabaráttuna, en nú er ljóst að svo verður ekki. Sumir fagna því en aðrir harma það. - S.DÓR Styrkja Reykjalimd vegna 80 ára afmælis Verkstjórafélag Reykjavíkur er 80 ára um þessar mundir. A hátíðar- fundi á Radison SAS Hótel Sögu í Reykjavík í dag mun Kristján Örn Jónsson, formaður Verkstjórafélagsins, færa Reykjalundi að gjöf 300 þúsund krónur, sem fara eiga til tækjakaupa fyrir Reykjalund. - GG Frosti hættir hjá Opnum kerfum Frosti Bergsson muna hætta sem framkvæmdastjóri Opinna kerfa á mánudaginn kemur, 8. mars. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtæks- ins fyrr í dag. Frosti mun taka að sér undirbúning eignarhaldsfélags, sinna Ijárfestingarmálum og öðrum stjórnunarverkefnum fyrir Opin kerfi. Gylfi Arnason aðstoðarframkvæmdstjóri tekur við starfi Frosta frá sama tíma. Að því er fram kom á Vísi.is mun fyrirhugað að eign- arhaldsfélag Opinna kerfa verði með svipuðu sniði og þekkt er frá Baugi hf. Ekið á konu Kona var flutt á sjúkrahús með höfuðáverka eftir að ekið var á hana á gangbraut áHörgárbraut á Akureyri um kl. Ijögur í gær. Þá varð harður árekstur á mótum Hörgárbrautar og Hlíðabrautar í gær, þeg- ar bíll sem var ekið suður Hörgárbraut beygði fyrir bíl sem var að koma norður. Ekki urðu slys á fólki en að sögn lögreglu var eignatjón- ið verulegt. - Mikið er um hraðakstur á Akureyri og voru 10 manns teknir fyrir of hraðann akstur og þá voru tveir teknir fyrir meinta ölv- un og var annar þeirra próflaus ofan í kaupið. - SBS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.