Dagur - 06.03.1999, Page 5
X^u-
LAUGARDAGUR 6. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
Sverrir Hermannson ætlar í fram-
boð á Vestfjörðum.
Ferfram
á Vest-
fjörðum
Sverrir Hermannsson formaður
Frjálslynda flokksins verður í
fyrsta sæti á lista flokksins á
Vestfjörðum. Framboðsmál
flokksins að öðru Ieyti eru ófrá-
gengin en stefnt að því að listar
verði klárir í öllum kjördæmum í
fyrir páska.
Forystumenn Frjálslynda
flokksins kynntu í gær útfærða
stefnu sína í sjávarútvegsmálum.
Þeir vilja að núverandi kvótaút-
hlutun verði afnumin og bann
lagt við framsali aflaheimilda.
Stundaðar verði frjálsar veiðar
með sóknarstýringu í a.m.k 2 ár
og hafi bátaflotinn forgang á
grunnslóð. Ef sóknarstýringin
þyki hafa reynst vel verði henni
haldið áfram. A þessum 2 ára
reynslutíma á að undirbúa nýja
fiskveiðilöggjöf sem byggist á út-
boði til leigu á öllum afla- eða
sóknarheimildum. Þá vill Frjáls-
lyndi flokkurinn að 3 mönnum
skipuðum af Hæstarétti verði
falin yfirstjórn umskiptanna frá
gildandi lögum til nýrra. - VJ
Bændasamtökm og
ríMsjóöur semja iliii
424-472 milljónir á
ári til nútímavæðing-
ar í búrekstri.
„Ég held að við höfum hér orðið
vitni að merkum atburði í þróun-
arsögu íslensks landbúnaðar",
sagði Ari Teitsson eftir undir-
skrift fulltrúa Bændasamtak-
anna og ríkissjóðs á nýjum 5 ára
samningi um 424-472 milljóna
framlög á ári, til verkefna sam-
kvæmt nýjum búnaðarlögum.
„Ég tel að þessi samningur hafi í
raun og veru sýnt að innan rfkis-
stjórnarinnar er skilningur á þörf
fyrir framþróun í íslenskum land-
búnaði - skilningur á því að það
eigi að stuðla að breyttum áhersl-
um: Það eigi að stuðla að nú-
tímavæðingu í rekstrargreiningu
og rekstraraðstoð, stuðla að
bættu umhverfi og að það eigi al-
mennt að framþróa þessa at-
vinnugrein eins og aðrar“, sagði
Ari sem þakkaði ráðherrum og
öðrum kærlega fyrir.
Trygging
„Samningur samkvæmt þessum
lögum er í raun trygging fyrir því
að þessar fjárhæðir og þessi
stuðningur standi með öruggari
hætti heldur en verið hefur, sam-
kvæmt lagaákvæðum sem gilt
hafa hingað til, og vandi sem
skapast hefur af því tilefni er nú
Ieystur", sagði landbúnaðarráð-
herra, Guðmundur Bjarnason.
Samninginn sagði hann fyrst og
Frá undirritun nýja búvörusamningsins á Hótei Sögu í gær. Tveir ráðherrar og fulltrúar Bændasamtakanna
skrifuðu undir samninginn sem er til fimm ára.
fremst taka til framlaga vegna
jarðræktar, búfjárræktar, leið-
beiningaþjónustu og nýsköpunar
og þróunar í Iandbúnaði.
Nýjar áherslur sagði landbún-
aðarráðherrra einkum þær að
með greiðslum til Ieiðbeininga-
þjónustunnar sé verið að undir-
strika stefnu að aukinni hag-
kvæmni í landbúnaðinum, efla
ræktunarmenningu, hagkvæma
fóðuröflun og lágmarksröskun
umhverfis. I garðyrkju er áhersl-
an á gæðastýringu og lágmarks-
notkun hjálparefna. I búfjárrækt-
inni á aukna afurðasemi, fjöl-
breyttari og betri afurðir og hag-
kvæmari framleiðslu og síðan á
lífræna og vistvæna framleiðslu.
Mest til leiðbeininga
Fjárhæðirnar í samningnum
segja menn svipaðar og veitt hafi
verið til þessara verkefnaflokka á
fjárlögum síðustu ára. Munurinn
sé sá að nú sé skilgreint til hvaða
verkefna þau skuli renna og þar
sé haft að leiðarljósi að styðja
framsækin verkefni. Um 160-
170 milljónir á ári eiga að fara til
leiðbeiningarstarfsemi. Um 40-
85 milljónir til þróunarverkefna
og jarðabóta á lögbýlum. Rösk-
lega 50 milljónir til búfjarræktar,
m.a. skýrsluhalds og sæðinga- og
ræktunarstöðva, og síðan u.þ.b.
170 milljónir til Framleiðnisjóðs.
Meðal verkefna sem styrkja má
á einstökum jörðum eru: Endur-
ræktun vegna aðlögunar að líf-
rænni ræktun, gæðaverkefni í
garðyrkju og ylrækt, þróunar-
verkefni í kornrækt, skýli fyrir
útigangshross og að auðvelda
umferð gangandi fólks um land-
ið. - HEI
Tryggingfyrir
öruggari stuoningi
Engar tUlögur
fyrír kosningar
Auölmdanefndin hef-
ur skilað áfanga-
skýrslu til forsætis-
ráðherra. Þar er engar
ákveðnar tillögur að
finna eins og búist var
við.
Auðlindanefndin, sem starfað
hefur síðan í fyrra og búist var
við að myndi skila einhverjum
ákveðnum tillögum fyrir þing-
kosningarnar í vor mun ekki gera
það. Einkanlega var beðið með
óþreyju eftir tillögum hennar
varðandi stjórn fiskveiða eða
kvótamálinu eins og flestir kalla
það. Nefndin hefur skilað
áfangaskýrslu til Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra og er fyr-
irhugað að dreifa henni næst-
komandi miðvikudag. En þar er,
sem fyrr segir, engar ákveðnar til-
lögur í auðlindamálunum að
finna.
Samkvæmt heimildum Dags er
þessi áfangaskýrsla aðeins um
störf nefndarinnar til þessa,
Jóhannes Nordal formaður Auð-
lindanefndar.
ásamt þeim gögnum sem hún
hefur látið vinna fyrir sig. Það
kom á daginn þegar nefndin hóf
störf fyrir alvöru að hér var á
ferðinni miklu víðfeðmara verk-
efni en nokkurn óraði fyrir. I
áfangaskýrslunni skýrir nefndin
frá því hvernig hún hyggst vinna
málið áfram.
Ekkert innleg í kosningabar-
áttuna
Jóhannes Nordal, formaður
nefndarinnar, sagði í samtali við
Dag fyrir áramót að menn gerðu
sér vonir um að geta lagt ein-
hverjar tillögur fram fyrir kosn-
ingar f vor. I skýrslunni eru hins
vegar talin upp í nokkrum tölu-
liðum þau atriði sem nefndin
mun vinna áfram að og hefur
vinsað að sér gögnum um.
Nefndarmenn telja sig vera
búna að skilgreina vel hin miklu
verkefni nefndarinnar og að
hveiju hún muni vinna. Ef allt
gengur vel telja nefndarmenn
vera möguleika á að skila af sér í
lok þessa árs. Og til að fyrir-
byggja misskilning þá fjallar
nefndin um allar auðlindir þjóð-
arinnar en ekki bara sjávarútveg-
inn.
Margir telja að stjórn fiskveiða,
kvótamálið, verði aðalmál kosn-
ingabaráttunnar í vor. Þeir hinir
sömu vonuðust til að fram kæmu
tillögur í kvótamálinu, sem yrðu
innlegg í kosningabaráttuna, en
nú er ljóst að svo verður ekki.
Sumir fagna því en aðrir harma
það. - S.DÓR
Styrkja Reykjalimd vegna 80 ára
afmælis
Verkstjórafélag Reykjavíkur er 80 ára um þessar mundir. A hátíðar-
fundi á Radison SAS Hótel Sögu í Reykjavík í dag mun Kristján Örn
Jónsson, formaður Verkstjórafélagsins, færa Reykjalundi að gjöf 300
þúsund krónur, sem fara eiga til tækjakaupa fyrir Reykjalund. - GG
Frosti hættir hjá Opnum kerfum
Frosti Bergsson muna hætta sem framkvæmdastjóri Opinna kerfa á
mánudaginn kemur, 8. mars. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtæks-
ins fyrr í dag. Frosti mun taka að sér undirbúning eignarhaldsfélags,
sinna Ijárfestingarmálum og öðrum stjórnunarverkefnum fyrir Opin
kerfi. Gylfi Arnason aðstoðarframkvæmdstjóri tekur við starfi Frosta
frá sama tíma. Að því er fram kom á Vísi.is mun fyrirhugað að eign-
arhaldsfélag Opinna kerfa verði með svipuðu sniði og þekkt er frá
Baugi hf.
Ekið á konu
Kona var flutt á sjúkrahús með höfuðáverka eftir að ekið var á hana
á gangbraut áHörgárbraut á Akureyri um kl. Ijögur í gær. Þá varð
harður árekstur á mótum Hörgárbrautar og Hlíðabrautar í gær, þeg-
ar bíll sem var ekið suður Hörgárbraut beygði fyrir bíl sem var að
koma norður. Ekki urðu slys á fólki en að sögn lögreglu var eignatjón-
ið verulegt. - Mikið er um hraðakstur á Akureyri og voru 10 manns
teknir fyrir of hraðann akstur og þá voru tveir teknir fyrir meinta ölv-
un og var annar þeirra próflaus ofan í kaupið. - SBS