Dagur - 11.03.1999, Síða 4
4 - FIMMTUDAGUR 11. MARS 1999
. SUÐURLAND
Vöruhöfn í Þor
lákshöfn 1 athugim
Undirbúningsrannsóknir á stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn hefjast
væntalega fljótlega.
Alþingi vill aö hafnar
verði undirhimings-
rauusóknir á stækkun
haíiiariiinar í Þorláks-
höfn.
Alþingi hefur samþykkt að fela
samgönguráðherra að hlutast til
um að Siglingamálastofnun hefji
sem íyrst „undirbúningsrann-
sóknir og hagrænar athuganir á
stækkun hafnarinnar í Þorláks-
höfn,“ eins og segir orðrétt í
þingsályktuninni.
Arni Johnsen flutti tillöguna
og samgöngunefnd þingsins
mælti með samþykkt á henni
með ákveðnum orðalagsbreyt-
ingum. Fram kom í umsögn
Siglingamálastofnunarinnar að
unnin hefðu verið frumdrög að
stækkun hafnarinnar miðað við
annars vegar 10 þúsund tonna
vöruflutningaskip og hinsvegar
20 þúsund tonna en hins vegar
hefðu engar hagraenar rann-
sóknir verið gerðar. I nefndará-
liti samgöngunefndar segir að
eðlilegt sé að undirbúningsrann-
sóknir og hagrænar athuganir á
gerð vöruhafnar í Þorlákshöfn
fari fram. Að þeim loknum verði
unnt að taka ákvörðun um hvort
ráðist verði í gerð slíkrar hafnar.
Bæjarráð Arborgar lýsti yfir
heilshugar stuðningi við tillöguna
í sinni umsögn og sagðist vænta
þess að „rannsóknum þessum
verði hraðað eins og kostur er
enda miklar líkur á að með þeim
megi sýna fram á mikiivægi
stækkunar hafnarinnar svo hún
geti þjónað Suðurlandi enn betur
en hún gerir nú þegar. Afar mikil-
vægt er að Sunnlendingar hafi
aðgang að öruggri vöruflutninga-
höfii sem þjónustað getur stór
flutningaskip til að skapa aðstæð-
ur til að gera Iandshlutann eftir-
sóknarverðari til atvinnuuppbygg-
ingar en nú er.“
Nefnd í stafkirkju
Forsætisráðuneytið hefur til-
nefnt fulltrúa í nefnd fyrir hönd
rfkisins, sem á að sjá um undir-
búning og framkvæmdir vegna
stafkirkjunnar sem Norðmenn
gáfu íslensku þjóðinni af höfð-
ingsskap sínum í tilefni kristni-
tökuhátíðarinnar árið 2000.
Stafkirkja verður sem kunnugt
er reist í Vestmannaeyjum.
Ekki hefur verið gefið út er-
indisbréf vegna nefndarinnar, en
það mun;verða gefið út á næstu
dögum. Þeir sem tilnefndir hafa
verið í nefndina eru: Árni John-
sen formaður, Guðni Agústsson
Árni Johnsen: Formaður nefndar
sem undirbýr komu stafkirkjunnar
frá Noregi.
alþingismaður, séra Kristján
Björnsson, Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri Vestmannaeyja og
Skarphéðinn Steinarsson fyrir
hönd forsætisráðuneytisins.
Alþingi samþykkti f desember
síðastliðnum að veita tæplega 40
milljóna króna styrk á þessu ári
og því næsta í byggingu stafkirkj-
unnar. Styrkurinn er háður því
að gerður verði samningur milli
forsætisráðuneytisins og fram-
kvæmdaraðila annars vegar og-
Vestmannaeyjabæjar hins vegar.
Aætlað er að verkinu ljúki á
næsta ári. -BEG.
Finun millur í Leíkhússaliim
Samkvæmt tillögu að Ijárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar 1999
mun fimm milljónum króna verða varið til endurnýjunar á leikhús-
sal Félagsheimilisins. Ólafur Ólafsson bæjartæknifræðingur segir
erfitt að tímasetja hvenær farið verði í þessar framkvæmdir. „Svona
framkvæmdir takmarkast af því fé sem sett er í þetta dæmi.“
Ólafur segir að nákvæm áætlun hafi ekki verið gerð ennþá. „En
það þarf að skipta um áklæði á sætum og breikka bil á milli bekkja.
Gólf og loft uppfylla ekki kröfur um brunavarnir. Þá þarf einnig að
setja upp nýtt loftræstikerfi og gera húsið aðgengilegt fyrir fatlaða
innan dyra. Það er verið að vinna áætlun um þessar framkvæmdir,
en það er ljóst að það fé sem er til ráðstöfunar nú mun ekki duga til
að Ijúka framkvæmdum,“segir Ólafur
Kaffihúsastenmmmg
á degi tónlistarskólanna
Dagur tónlistarskól-
anna í landinu var
haldinn hátíðlegur í
Listaskólanum síðast-
liðinn laugardag. Dag-
urinn í Eyjum hefur
hingað til verið til-
einkaður Litlu lúðra-
sveitinni og var engin
undantekning þar á
að þessu sinni. Væri
þó rangnefnin að
kalla lúðrasveitina
„litla“ því í henni eru tuttugu og einn nemandi Tónlistarskólans.
Lék hún nokkur lög við góðar undirtektir gesta, sem hefðu að
ósekju mátt vera fleiri. Foreldrafélag skólans sá um kaffi og vöfflu-
sölu í tilefni dagsins en ágóði af þeim veitingum er varið til styrktar
Litlu lúðrasveitinni. Margir fleiri tróðu upp í tilefni af deginum,
bæði kennarar og nemendur, og skapaðist skemmtileg og notaleg
kaffihúsastemmning í tónleikasalnum, eins og eitt foreldrið orðaði
það. Ljóst er að margt efnilegt tónlistarfólk er við nám í skólanum
og verður seint metið til fulls sá tími sem ungt fólk í Eyjum ver til
tónlistarnáms til eflingar tóneyra Eyjamanna.
Flensan í hámaxki
Flensufaraldur hefur gengið yfir Vestmannaeyjar eins og aðra staði
landsins undanfarnar vikur. Karl Björnsson sem gegnir nú stöðu yf-
irlæknis Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum í námsleyfi
Viðis Óskarssonar segir að flensan hafi líklega náð hámarki sfnu
núna. „Það eru margar pestar í gangi þessa dagana og hefur verið
nóg að gera hjá okkur. Flensan leggst helst á fólk á miðjum aldri, en
margir hinna eldri hafa hins vegar látið bólusetja sig, svo þetta bitn-
ar ekki mjög hart á þeim þessa dagana.“
Karl vill þó koma því á framfæri að fólk fái sig gott áður en það
fer aftur á ról. „Fólk hefur farið of snemma á kreik og þess vegna
slegið niður, þetta veldur því að flensan hefur lagst enn þyngra á
fólk.“
Litla lúðrasveitin.
k SUÐURLANDSVIÐTALIÐ
Menningarhús á Selfossi
lyftistöng fyrir menningarlif
Þorlákur
Helgason
fræðslustjóri Árborgar.
SveitaifélagiðÁrborg
stendurþann 16. mars
jyrir ráðstejnu þar sem
menningarmál verðaí
brennidepli, meðal ann-
ars bygging menningar-
hús eins og ríkisstjómin
hyggst nú láta reisa.
- Hvers vegna er efnt til þess-
arar ráðstefnu um menningar-
mál og hús?
„I fyrsta lagi er þetta fundur
með menningarmálanefnd Ár-
borgar, sem er ný nefnd hér í
Árborg og var stofnuð síðastliðið
haust,“ segir Þorlákur Helgason,
fræðslustjóri og forstöðumaður
menningarmála í Árborg. „Við
væntum þátttöku ýmissa félaga í
Árborg, þar sem við ætlum að
leita svara við því hvers þau
vænti af starfi nefndarinnar.
Einnig verður komið inn á það
samstarf við Reykjavíkurborg -
menningarborg Evrópu árið
2000, sem við ætlum að eiga.
Borgin auglýsti eftir þátttöku
sveitarfélaga úti á landi ef þau
gætu boðið fram menningarlegt
efni og þar töldum við okkur
hafa skáldverk Guðmundar
Daníelssonar, en 90. ártíðar
hans stendur til að minnast á
næsta ári. Sögusvið margra
verka Guðmundar er einmitt hér
um slóðir.“
- Þið ætlið að varpa fram
þeirri spumingu hvað sé
menningarhús, getur þú
hannshi gefið mér forskot á
sæluna með því að svara mér
þessari spurningu?
„f mínum huga er það hús í
hjarta hvers sveitarfélags með
blómstrandi menningu hvers-
konar, þar sem listamönnum
gefst tækifæri til þess að æfa og
tjá list sína. En menningin
blómstrar víðar en í einu húsi.
Það sýnir metnað hvers sveitar-
félags hvernig búið er að menn-
ingarstarfi. Við getum státað af
góðum „húsum", og við erum
eina sveitarfélagið á landinu
sem á hús með stórum staf;
nefnilega Húsið á Eyrarbakka.
Líklegast eigum við þar með
einkarétt á menningar-Húsi. „
- Hveijum verður boðið að
taka þátt í þessari ráðstefnu?
„Það er er afskaplega opið. Eg
er að senda boðsbréf meðal ann-
ars til verkalýðs- og hesta-
mannafélaga, Ieikfélaga og kóra.
Stefnan er sú að umræðurnar
verði sem líflegastar. „
- Er það rétt að setja umræðu
um menningarmál á lands-
byggðinni endilega í það sam-
hengi að kenna hana sérstaklega
við hús. Er þetta ekki allt eins
spurning um að ríkisvaldið geri
til dæmis Sinfónínuhljómsveit-
inni og Þjóðleikhúsinu fjárhags-
lega kleift að fara í ferðir út á
land?
„Ég held að hægt sé að nálgast
þetta mál frá ýmsum sjónar-
hornum, því að þarfir eru mjög
breytilegar milli staðar. Víða er
blómstrandi menning og nóg
húsrými, en hér í Árborg eigum
við hálfbyggt samkomuhús með
leikhússal, sem er eins fullkom-
inn og Borgarleikhúsið. Húsið
býður upp á ótal möguleika til
hverskonar listiðkunar og starf-
semi fyrir þau 70 til 80 félög
sem starfandi eru í Árborg og
hafa mikið fram að færa. Ríkis-
stjórnin vakti máls á hugmynd-
um um menningarhús út um
landsbyggðina og það er sjálf-
sagt að við í Árborg vekjum at-
hygli á því hálfbyggða húsi.sem
við eigum. Verði það standsett
gæti tilkoma þess orðið mikil
lyftistöng fyrir menningarlíf hér
um slóðir.“ -SBS.