Dagur - 19.03.1999, Side 2
2 - FÖSTUDAGUR 19. MARS 1999
Dagur~
FRÉTTIR
SpHafíknin er vaxandi vandamál og spilakassarnir eru sérstaklega varasamir.
Spilakassamir
langhættulegastir
Upp miílir himdrað
maims hafa síðustu ár
leitað sér aðstoðar hjá
SÁÁ vegna spilafíknar -
sem er vaxandi vandamál.
„Já, þetta er vaxandi vandamál. Það er
greinilegt að framboðið á möguleikum
til að spila upp á peninga hefur vaxið
mikið og þá myndast vandinn", segir
Sigmar Björnsson fulltrúi hjá SAA,
sem reynir að hjálpa þeim sem þang-
að leita vegna spilafíknar sinnar.
Hann segir kassana langhættulegasta
- bæði sjoppukassana og Háskólakass-
ana. „Það er oft að fólk byrjar í
sjoppukössunum og færir sig svo
„upp“. I Háskólakössunum er verið að
spila upp á hærri Qárhæðir - leggja
meira undir“.
Sumir tapað milljómiin
Hefur spilafíknin jafnvel kostað marga
aleiguna? „Sem betur fer er það ekki
algilt. En þeir sem koma eru flestir
komnir í vandræði, sumir verulega
mikil. Það eru einstaklingar sem tapað
hafa milljónum króna í kössunum, en
aðrir kannski tugum þúsunda. Það er
svo misjafnt hvenær fólk leitar sér að-
stoðar, hvað stjórnleysið er komið á
hátt stig og svo auðvitað hvað fólk hef-
ur haft umleikis", segir Sigmar.
SAA auglýsir mótttöku, skráningu
og fundi fyrir spilafíkla alla þriðjudaga.
Eftir viðtal við ráðgjafa býðst spilafíkl-
um ótímabundinn stuðningur. Jafn-
framt standa þeim og aðstandendum
þeirra til boða fræðsluerindi, frekari
viðtöl og hópstarf. „Já, það kemur
alltaf nýtt fólk hér í hverri viku og
margir eru að spyrjast fyrir. Síðan er
misjafnt hvað fólk fylgir því eftir. Sum-
ir koma í göngudeildarmeðferð. Aðrir
koma og hverfa aftur“.
Skanunast sín fyrir stjómleysið
Fjöldann segir Sigmar rétt undir
hundrað einstaklinga á ári, fólk á öll-
um aldri, alveg frá unglingum og upp í
eldri borgara. „Eg held þó að eldra
fólkið komi síður, því mér finnst bera
á meiri skömm þeirra á meðal. Það er
töluverð skömm í þeim sem lent hafa í
stjórnleysi í spilakössunum". Meðferð-
arúrræðin gagnvart spilaffkn segir Sig-
mar enn ekki eins þróuð og fyrir alkó-
hólisma og vímuefnaneyslu. Þetta sé
miklu nýrra vandamál og úrræðin því
enn ekki eins öflug.
SAA býður meðferð um helgar ef
nauðsyn kerfur. „Já, þegar kominn er
nægilegur hópur höldum \dð nám-
skeið; einskonar meðferð hérna á
göngudeildinni. Það bjrjar í eftirmið-
dag á föstudegi og stendur fram á
kvöld, síðan allan laugardaginn og
sunnudaginn klukkan 9-5. Það bygg-
ist á fyrirlestrum og hópvinnu og er
síðan fylgt eftir með viðtölum og fleiru
ef menn vilja“, segir Sigmar.
Siimir falla aftur
Nægir eitt slíkt námskeið? „Nei, þá
fara menn að spila aftur. Þú fylgir
þessu eftir með prógrammi og funda-
mætingu á GA-fundi (G=gambler).
Það er nokkuð öruggt að þeir sem
fylgja því ekki eftir að koma og fá að-
stoð fara aftur að spila. Fólkið sem náð
hefur árangri hjá okkur eru þeir sem
sækja svona meðferð og mæta síðan
áfram. Við erum hér alltaf með hóp-
starf fyrir spilafíkla á þriðjudögum þar
sem fólk ræðir vandamálin. Síðan sjá
þau sjálf um að halda GA-fundi, sem
eru hér tvisvar í viku“, sagði Sigmar.
-HEI
Bíræfnl sumra fyrirtækjarckenda við að storka örlög-
imuiti cr með endemum. Pottvcrjar furða sig þamtig á
hugrckki Agnars Péturssonar, trésmiðs á Selfossi,
sem á dögunum stofnaði hlutafélag um trésmiðju
sína. Hlutafélagið ber það ógnvænlcga nafn TAP. Scm
auðvitað er stytting á Trésmiðja Agnars Péturssonar,
en samt...
Samfylkingin á Suðurlandi er
búin að ákveða hver verður
kosniugastjóri hjá sér, en það
er Gróskugæðingurinn og
Allaballinn Björgvin G. Sig-
urðsson, fyrrverandi blaöa-
maður Vikublaðsins, fyrrver-
andi ritstjóri Stúdentablaðs-
ins og fjórði maður á lista
Samfylkingarinnar í kjör-
dæminu. Björgvini til halds
og trausts er auðvitaö Krati, Karl Hjálmarsson, fyrr-
verandi framkvæindastjóri Alþýðuflokksins.
Sá óháði var glaðhlakkalcgur í
heita pottinum i gærmorgun.
Hann sagðist hafa fyrir því
vissu aö nokkrir áhugamenn
um landsmálapólitík væru að
hugleiða óháð framboð í
Revkjavík og jafn vel Rcykja
nesi í þingkosningunum í vor.
Hatm sagði að þama færi fólk
úr öllum stjómmálaflokkum
ineðal aimars hefði hópurinn
það að aðal áhugamáli aö brcyta lögmium um stjóm
fiskvciöa mcð þeim hætti að þjóöiu fengi það sein
hún ætti út úr samcigninni. Hann sagðist liafa heyrt
nokkur nöfn sem rcynt yrði að fá á listaim og nefndi
þar til nokkra úr áhugahópnum um auðlindir í al-
mannaþágu. Þar er fólk cins og Guðmundur G. Þórar-
insson og Ellert B. Scliram, fyrrverandi alþingismenn,
Jón Magnússon löginaöur og Margrét Bjömsdóttir,
fyrrverandi aðstoðamaöur iðnaðar og viðskiptaráð-
herra í tið Sighvats Björgvinssonar.
Ellert B. Schram.
Björgvin G.
Sigurðsson.
Valdimar
Guðmannsson
formaður Samstöðu
Lágmarkslaun verði 120
þúsund krónurá mánuði.
Skattleysismörk í 80-90
þúsund krónur. Baráttuhug-
urí verkfólki. Samninga til
eins árs. Endurskoðunar-
ákvæðiforsenda lengri samn-
inga.
Ekki samið aftur eins og síðast
- Er raunhæfl að krefjast þess að lág-
markslaun í dagvinnu hækki í 120 þús-
und krónur á tnánuði?
„Eg held að það sé raunhæft ef fólk á að
geta lifað af launum sínum. Við erum með
fullt af fólki sem getur ekki lifað á þessum
tekjum sem það hefur. I síðustu samning-
um var ákveðinn hópur í okkar röðum sem
fór fram á að lágmarkslaunin yrðu i 00 þús-
und krónur á mánuði. Mér þótti það aldrei
óraunhæft. Mér sýnist líka að skuldastaða
heimilanna í Iandinu hafi einhvern veginn
ekki farið á réttan veg, þrátt fyrir góðærið.
Þá heyrði maður það í fréttum að 10 þús-
und korthafar deildu jólainnkaupunum sfn-
um niður á alit þetta ár og svo framvegis. Þá
hefur verkafólk alltaf Iátið plata sig þegar
það hefur verið með þeim fyrstu að semja.
Þegar \ið gerum einhverja kröfu um launa-
hækkun, þá verður allt vitlaust og rætt um
að efnahagslífið sé komið fram á hengiflug-
ið. Þegar aðrir hópar koma á eftir okkur og
fá miklu meira en við, þá er enginn staddur
á brún hengiflugsins, eins og forsætisráð-
herra talaði um þegar við sömdum. Ef ein-
hver fótur hefði verið fyrir því þá ættum við
fyrir löngu að. vera farin fram af þessu
hengiflugi.'1
- Er herskár tónn í verkafólki?
„Það er baráttuhugur í fólkinu eins og er.
Eg ætla líka rétt að vona að fólk sé tilbúið
að Ieggja eitthvað af mörkum til að ná þessu
fram. Það þýðir ekkert að koma með svona
kröfu ef fólk er ekki tilbúið til að munda
verkfallsvopnið. Eg hef heldur enga trú á
því að þessi krafa nái fram að ganga án
átaka.“
- Hvað viljið þið setnja til langs tíma?
„Við viljum ekki semja lengur en til eins
árs. Ef það á að vera til Iengri tíma, þá verð-
ur að vera í samningum ákvæði sem kveður
á um að samningurinn verði endurskoðað-
ur einu sinni til tvisvar á árí. Við semjum
ekki aftur eins og við gerðum síðast. Eg hef
enga trú að það geri nokkur í verkalýðs-
hreyfingunni. Eftir á að hyggja held ég að
það hafi verið ein mesta \atleysa sem ég
gerði sem formaður félagsins að skrifa und-
ir þennan samning í Karphúsinu. Eg held
líka að við hefðum getað náð betri samning-
um ef við hefðum hleypt í brýrnar."
- Hvað viljið þið hækka skattaleysis-
mörkin mikið?
„Ef ég tek eitlhvað meðaltal af þeim
.fundum sem við höfum haldið með. okkar
félagsfólki, þá tel ég að þau þurfi að vera
minnst 80-90 þúsund krónur á mánuði. Við
sjáum ekki að það sé neinn möguleiki fyrir
ljölskyldu að framfleyta sér á tvisvar sinn-
um 70 þúsund króna launum á mánuði.
Hinsvegar er ég alveg á því að það verður áy
brattann að sækja til að ná þessu fram. Það
er aftur á móti kominn tími til að menn
horfi á þessi mál raunsæjum augum í stað
þess að vera alltaf að plata sjálfa sig. Við sjá-
um það út frá þeim tölum sem hinar og
þessar stofanir hafa sent frá sér um fram-
færslukostnað heimila að fólk á ekki að geta
lifað á þeim Iaunum sem við höfum verið að
semja um. Nema því aðeins að safna skuld-
«
um.
- Á sama títna heyrist að eitthvað lítið
verði til skiptanna þegar satnningar losna
vegna þess að forsendur séu að breytast í
hagkerftnu eftir tnikið hagvaxtartímabil.
Kemur það á óvart?
„Nei alls ekki og mér sýnist að það sé
byrjað. Þegar maður kemur á suðvestur-
hornið er ekki að sjá að þar séu einhver
samdráttareinkenni á lofti. Maður þarf ekki
annað en að fara í Kópavog, þar sem bygg-
ingarkranar standa uppí loftið eins og
vaxta&úlur og eru.nánast óteljandi." . -(.jíii