Dagur - 19.03.1999, Page 5
FÖSTUDAGUR 19. MARS 1999 - S
FRÉTTIR
L
«í<*
Arriþmður í fram-
boð í Reykjavík
Ellert B. Schram stað-
festir að við sig hafi
verið rætt um að leiða
lista Frjálslynda
íloldisins í Reykjavík
í vor en hann segist
ekki vera í framhoðs-
hugleiðingum.
Talið er nú víst að Arnþrúður
Karlsdóttir, varaþingmaður
Framsóknarflokksins, verði í 1.
eða 2. sæti á lista Frjálslynda
flokksins í Reykjavík við alþingis-
kosningarnar í vor. Hún var orð-
uð við oddvitasætið á lista
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra en hafnaði því. Þegar hún
var spurð að því í gær hvort það
væri rétt að hún ætlaði að taka
toppsæti í Reykjavík svaraði hún:
„Þegar maður hefur verið inn-
viklaður í stjórnmál í tæp þrjátíu
ár og myndað sér skoðanir og
barist fyrir þeim, eins og ég hef
gert, og hefur fengið smjörþef-
inn af þ\ í á Alþingi að hægt er að
þoka málum sínum fram, þá er
Arnþrúður Karlsdóttir.
þessi áhugi til staðar hjá mér.
Það er nú hins vegar orðið Ijóst
að ég get ekki komið mínum
málum á framfæri í gegnum
Framsóknarflokkinn í Reykjavík.
Þá stendur maður á vegamótum
og spyr sig hvort sé meira virði
að vera áfram í sínum flokki eða
að koma sínum málum á fram-
færi með öðrum hætti,“ sagði
Arnþrúður Karlsdóttir.
Rætt við Ellert
Astæðan fyrir því að talað er um
Ellert B. Schram.
að Arnþrúður muni ef til vill
skipa 2. sæti er, samkvæmt
heimildum sú, að verið er að
reyna að fá Ellert B. Schram til
að taka 1. sætið. Hann sagði í
gær að það væri rétt að við sig
hefði verið rætt um þetta en
sagði jafnframt að hann væri
ekld í framboðshugleiðingum.
Það hefur aftur á móti vakið
mikla athygli að Ellert, sem er
fyrrverandi alþingismaður íyHr
Sjálfstæðisflokkinn, er greinilega
kominn út í landsmálapólitík
með þátttöku sinni í hópnum
sem nú berst fyrir breytingum á
lögunum um stjórn fiskveiða. I
þeim hópi er annar fyrrverandi
þingmaður, Guðmundur G. Þór-
arinsson og áhugafólk um stjórn-
mál, sem ekki hefur verið áber-
andi í þjóðmálabaráttunni að
undanförnu eins og Jón Magn-
ússon lögmaður og Margrét
Björnsdóttir.
Fari svo að Ellert taki ekki
efsta sætið á lista Frjálslynda
flokksins mun Arnþrúður taka
það sæti og leiða lista flokksins í
Reykjavfk.
Arnþrúður Karlsdóttir skipaði
3. sætið á lista Framsóknar-
flokksins fyTÍr fjórum árum og er
því varaþingmaður flokksins í
Reykjavík. Hún hafnaði hins
vegar í 6. sæti í prófkjöri fram-
sóknarmanna í borginni í vetur.
Skömmu síðar hafnaði hún boði
um að taka sæti á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík við
þingkosningarnar í vor, en nú er
unnið að því að koma þeim lista
saman og búist við að því verki
ljúki í næstu viku. — S.DÓR
Sáttaboð Haralds
Framsóknarþingmennirnir Hjálmar Árnason og Guðni Ágústsson “yfir
kjötkötlunum" íÁburðarverksmiðjunni ígær ásamt gestgjafanum Haraldi
Haraldssyni sem nýlega keypti verksmiðjuna - þrátt fyrir andstöðu þeirra
Guðna og Hjálmars. - mynd: teitur
Brutu toUa-
og hegn-
mgarlög
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
og fyrrverandi markaðsstjóri
Fiskiðju Sauðárkróks voru sak-
felldir í Héraðsdómi Norður-
lands vestra í gær en refsing er
felld niður vegna þess hve málið
hefur dregist sem og vegna þess
að þeir högnuðust ekki persónu-
lega á málinu og viðurlög höfðu
þegar verið greidd.
Mennirnir voru dæmdir sekir
um að hafa brotið tollalög og al-
menn hegningarlög og þótti
sannað að þeir hefðu í níu tilfell-
um flutt rússafisk til Bretlands
sem íslenskan fisk. Fram-
kvæmdastjóri neitaði sakargift-
um, gegn framburði hinna
tveggja, en fjármálastjórinn var
sýknaður.
Alvarlegt slys
Alvarlegt slys varð á Snæfells-
nesi í gær þegar ljósmóðir sem
erindi átti á sveitabæ féll af
tröppum. Fallið var um þrír
metrar. Konan hlaut alvarlega
höfuðáverka og liggur nú á
gjörgæsludeild.
Leiðrétting
Gísli Bragi Hjartarson vill taka
fram, vegna fullyrðingar sem fram
kom í opnugrein blaðsins í gær
um að Akureyrarbær hafi tapað
tugum milljóna í tengslum við
gjaldþrot fyrirtækis hans fyrir
tæpum áratug, að sú fullyrðing sé
röng. Bærinn hafi ekki tapað á
gjaldþroti byggingafyrirtækisins
Hýbýla hf. Blaðinu er ljúft og
skylt að leiðrétta þetta enda mun
verktrygging hafa bætt bænum
það tap sem hann varð tímabund-
ið fyrir vegna gjaldþrotsins. Beðist
er velvirðingar á þessu mishermi.
Haraldur Haraldsson í Andra
leitaði sátta við þingmennina
Guðna Agústsson og Hjálmar
Árnason sem voru mótfallnir því
að hann fengi að kaupa Áburðar-
verksmiðjuna.
„Þetta var mikil móttaka og
það fór afskaplega vel á með okk-
ur. Hann bauð okkur í mat í
Aburðarverksmiðjunni og síðan
að skoða hana alla í krók og
kring. Þetta var fróðleg ferð og
Haraldur tjáði okkur að hann
ætlaði að halda áfram að fram-
leiða áburð fyrir bændur og hefja
vetnisframleiðslu þegar þar að
kæmi,“ sagði Guðni Agústsson,
alþingismaður, í samtali við Dag
í gær.
Daginn eftir að verksmiðjan
var seld skaut Haraldur í Andra á
þá félaga, bæði í útvarpi og sjón-
varpi, og þá sérstaklega Guðna
fyrir afstöðu þeirra í málinu.
Bak við eldavélina
Meðal þess sem Haraldur sagði
var að Guðni hefði haldið því
fram opinberlega að staða kon-
unnar væri á bak við eldavélina
og fleira í þeim dúr. Auk þess
bæði ekki-fréttir og þjóðsögur af
Guðna.
„Þegar hann hafði keypt verk-
smiðjuna hringdi ég í hann og
óskaði honum til hamingju með
Hæstiréttur hefur dæmt Sólrúnu
Elídóttur í fimm ára fangelsi fyr-
ir að hafa stungið mann í brjóst-
ið af ásetningi að kvöldi 1. mars
1998.
Sólrún var sökuð um að hafa
stungið hnífi í brjósthol Viðars
Björnssonar, tveimur sentimetr-
um til hægri við hægri brún
bringubeins, milli 4. og 5. rifs,
*
fyrirtækið. Síðan benti ég hon-
um á að hann hefði bæði skaðað
mig og sjálfan sig með ummæl-
um sínum um mig því ég væri
besti talsmaður bænda á Alþingi.
Nú væru bændur honum reiðir
því hann hefði haft ómakleg orð
um mig, notað bæði þjóðsögur
og ekki-fréttir um mig. Eg spurði
hann hvernig ég, sem á þtjár
með þeim afleiðingum að hann
missti mikið blóð og að um það
bil einn lítra af blóði þurfti að
tæma úr brjóstholi hans þegar
hann Ieitaði læknis tveimur dög-
um síðar. Akærða viðurkenndi að
atburður þessi hafi átt sér stað
og vísaði á hnífinn. Hún hélt því
aftur á móti fram að þetta hefði
gerst fyrir slysni.
dætur og elskulega eiginkonu,
gæti hafa sagt að staða konunn-
ar væri á bak við eldavélina. Har-
aldur sagðist endilega vilja gera
bragarbót á þessu og sú bragar-
bót varð að bjóða okkur Hjálmari
f þessa heimsókn í Aburðarverk-
smiðjunni í gær og matast þar og
skoða verksmiðjuna," sagði
Guðni Ágústsson. — s.dór
Viðar vildi ekki kæra Sólrúnu
eða gera bótakröfur á hendur
henni. Hegðun þeirra eftir at-
burðinn þótti benda til þess að
þau hafi viljaö koma í veg fyrir að
lögreglan blandaðist í málið.
Konan hefur tvisvar áður verið
dæmd fyrir ámóta brot gegn Iífi
manna og heilsu. — FÞG
Fimm ár fyrir hnífstimgu
HÆSTIRÉTTUR
Þýfid fór í amfetamin
Maður var í Hæstarétti í gær
dæmdur í 8 mánaða fangelsi,
þar af 5 mánuði skilorðsbundna,
fyrir að hafa stolið tösku af konu
sem hann hafði verið að reyna
við í veitingahúsinu A. Hansen.
Haldið var í partí, en um
morguninn vaknaði húsráðandi
og varð þess var að tekin hafði
verið fistölva og prentari, sem
voru í tösku, sem hann geymdi
undir fiskabúri í stofunni og
einnig saknaði hann tveggja
GSM-síma, sem höfðu verið á
símaborði í forstofunni, en
hleðslutækið f)TÍr þá hafði verið
í eldhúsinu. Akærði seldi síðan
hið stolna „einhverjum ónafn-
greindum aðila á Hafnarkránni"
og fékk fyrir amfetamín fyrir
25.000 krónur. Ákærði rauf skil-
orð vegna annars brots í máli
þessu. — FÞG
VISA vann í Hæstaiétti
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi
úrskurð áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála 2. mars 1998 í
máli VISA ISLAND, en með úr-
skurðinum voru bannaðir skil-
málar í samstarfssamningum
VISA og greiðsluviðtakenda þess
efnis að þeim síðarnefndu væri
skylt að veita korthöfum VISA
sömu viðskiptakjör og þeim sem
greiddu með reiðufé. I undir-
rétti var áfrýjunarnefndin sýkn-
uð og bannið staðfest.
Þótt Samkeppnisstofnun væri
talin hafa brotið gegn andmæla-
rétti VISA undir rannsókn máls-
ins, var það ekki talið eiga að
leiða til ógildingar úrskurðarins,
enda hefði VISA gefist nægur
kostur á að koma fram sjónar-
miðum sínum áður en úrskurð-
urinn var kveðinn upp. Að virt-
um gögnum málsins þótti þó
ekki hafa verið sýnt fram á, að
skilmálar sambærilegir þeim,
sem hér um ræddi, væru al-
mennt óheimilir í heistu við-
skiptaríkjum Islendinga, þannig
að heimilt væri að banna þá.
Hæstarétti þótti að mjög skorti
rökstuðning um það, að VISA
njóti markaðsráðandi stöðu eða
hafi misbeitt henni. Málið hófst
með kæru Sigurðar Lárussonar,
kaupmanns í Dalnesti, til Sam-
keppnisstofnunar. — FÞG
Síbrotamaður enn í steininn
Tryggvi Rúnar Leifsson hefur í
Hæstarétti verið dæmdur í 15
mánaða fangelsi fyrir þjófnað,
skilorðsrof og fleira, en til refsi-
lækkunar kom skýlaus játning
og að hann hefði farið í meðferð
hjá SÁÁ.
Tryggvi Rúnar hefur hlotið 23
refsidóma frá árinu 1969, þar af
9 eingöngu fyrir umferðarlaga-
brot, en hina fyrir ýmis hegning-
arlagabrot, aðallega auðgunar-
og skjalafalsbrot. Brotaferill
hans er nær óslitinn að undan-
skildum árunum 1975 til 1985,
en hann afplánaði fangelsisrefs-
ingu fyrir manndráp o.fl. frá
1975 til 1981, en þá hlaut hann
reynslulausn. Frá árinu 1985
hefur hann hlotið refsingu 11
sinnum fyrir akstur án ökurétt-
ar, síðast 5 mánaða fangelsi með
dómi Hæstaréttar 18. septem-
ber 1997. Auk þessa hefur hann
frá þessum tíma hlotið fjóra
dóma fyrir hegningarlagabrot,
þar af þrjá fyrir skjalafals. - FÞG