Dagur - 19.03.1999, Side 6

Dagur - 19.03.1999, Side 6
6 -FÖSTUDAGUR 19. MARS 1999 ÞJÓÐMÁL t- k-« .. m Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjóri: ELI'AS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo OG 800 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: i.soo KR. Á MÁNUÐl Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍkj563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRD460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyrí) 551 6270 (REYKJAVíK) 12 milljarða loforð f fyrsta lagi Sjálfstæðismenn réðust með offorsi á Samfylkinguna seint á nýliðnu ári þegar málefnaskrá var lögð fram án þess að henni fylgdu útreikningar um hvað hin ýmsu umbótamál, sem Sam- fylkingin vill beijast fyrir, myndu kosta og hvernig ætti að fjár- magna þau. Þetta þótti sjálfstæðismönnum merki um óábyrga Ijármálastjórn og hafa allar götur síðan velt sér upp úr þeirri ásökun með mörgum ófögrum orðum um ábyrgðarleysi - nú síðast í eldhúsdagsumræðum á Alþingi og á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins. En á landsfundinum féllu þeir sjálfir í þessa sömu gryfju. 1 öðru lagi Meðal margra loforða í löngum og ítarlegum samþykktum landfundar Sjálfstæðisflokksins var afdráttarlaus yfirlýsing um að afnema eigi tekjutengingu lífeyrisgreiðslna almannatrygg- inga til allra þeirra sem náð hafa 67 ára aldri. Þetta er ekkert smávegis loforð. Samkvæmt útreikningum sem Dagur birti í vikunni mun það líklega kosta um tólf milljarða króna. Sjálf- stæðismenn hafa ekki látið neina útreikninga fylgja þessu lof- orði, frekar en öðru því sem landsfundur þeirra samþykkti og hlýtur að kosta aukin útgjöld, þótt þeir geri kröfur til annarra um slík vinnubrögð. í þriðja lagi Það er svo dæmigert að Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur leitt ríkisstjórn landsins samfellt í átta ár, skuli setja fram loforð af þessu tagi rétt fyrir kosningar. Forystumenn flokksins virðast loksins vera að átta sig á því að ellilífeyrisþegar og öryrkjar sætta sig ekki Iengur við að sjá marga betur setta hópa í þjóð- félaginu hrifsa til sín ávinning góðærisins. En yfirboð af því tagi, sem felst í þessu kosningaloforði, er marklaust gaspur nema flokkurinn geri landsmönnum ljósa grein fyrir því hvar hann ætlar að taka það fjármagn sem þarf til að afnema tekju- trygginguna. A að hækka skattana eða skera niður önnur rík- isútgjöld? Og þá hvaða útgjöld? Kjósendur eiga heimtingu á að fá svar við því. Elías Snæland Jónsson Skeiðklukku- fréttir Garra sýnist sem skammir á fréttastofu sjónvarpsins séu farnar að vera jafn öruggur fyr- irboði um að kosningar séu í nánd og fjáraustur úr ríkis- sjóði. Sjálfstæðismenn fóru mikinn í borgarstjórnarkosn- ingum í fyrravor og hund- skömmuðu fréttastofuna fyrir að tala oftar og Iengur við R-Iista gengið en sjálfstæð- ismenn. Það skipti engu þótt frambjóð- endur Reykjavíkur- listans hefðu verið í sjónvarpsviðtölum af því þeir voru í djúpum skít út af fjármálum eða öðr- um leiðindum. Nei í þessum bransa er það magnið sem máli skiptir. Það er þekkt saga úr banda- rískum fjölmiðlaheimi þegar blaðafulltrúi Nixon hringdi í sjónvarpsfréttakonu og þakk- aði henni fyrir umfjöllun um forsetann alræmda. Hún var alveg gapandi hissa enda taldi hún sig hafa tekið Nixon í bak- aríið. Þið fattið þetta aldrei sagði blaðfulltrúinn og hlakk- aði í honum. Það breytir engu hvað er sagt. Það eru myndirn- ar sem skipta máli. Þetta hafa íslenskir stjórn- málamenn fattað. Skeiðklukk- urnar eru komnar á loft og hyijað er að mæla hversu oft og lengi er talað við hvern. Og framsóknarmenn eru enn for- sjálli en íhaldið. Þeir ætla ekki að væla eftir kosningarnar sem allt útlit er fyrir að þeir fari heldur illa út úr en eru þegar byrjaðir að fetta fingur út í fréttaflutning hjá Sjónvarpinu. V Þeirra maður í útvarpsráði vill fá að vita hvers vegna í ósköp- unum fréttin af Smugusamn- ingnum, sem Halldór Ásgríms- son gerði um daginn, var ekki fyrsta frétt í Sjónvarpinu það kvöld. Að vísu var fréttin búin að glymja í öðrum fjölmiðlum allan daginn og vera kann að einhverjum stutt- buxnastráknum á fréttastofunni hafi dottið í hug að það væri frumlegra að byrja á einhverju öðru en frumleg- heit eiga ekki að bitna á Framsókn- arflokknum. Og til að bíta höfuðið af skömminni var ekki talað við Hall- dór heldur Davíð og Þorstein. Kannski hefur stuttbuxna- strákunum dottið í hug að það væri myndrænna að taka viðtal við sjálfstæðisráðherrana af því þeir voru á landinu fremur en símaviðtal Halldór í Bodö en það eru auðvitað engin rök. Og af hvetju var ekki sendur maður til Noregs? Það getur varla hafa verið mikið dýrara en að hafa mann í næturvinnu á þessum leiðindalandsfundi Sjálfstæðisflokksins um síð- ustu helgi. Vita þessir frétta- snápar ekki að það er fram- sóknarflokkurinn sem helst hefur staðið vörð um Ríkisút- varpið gegn árásum íhaldsins. Það veit Garri og mælir með því að fréttamenn sjónvarpsins stífli fréttanefin sín fram yfir kosningar og Iæri á skeið- klukkur í staðinn. - GARRI Engar fréttir hafa borist um að verið sé að vinna að útfærslu á samþykkt ríkisstjórnarinnar um byggingu menningarhúsa á landsbyggðinni. Trúlega stafar þetta tíðindaleysi af því að ekkert er að frétta af þessu máli. Undir- ritaður var einn þeirra sem freistaðist til að fagna þessari til- lögu og ól þá von í brjósti að þarna væri verið að marka upp- haf nýrra áherslna í byggðamál- um - áherlsna sem væru meira í anda þeirrar þingsályktunar um hyggðamál sem samþykkt var á Alþingi á dögunum. Rökin sem færð voru fyrir þessari ákvörðun voru vissulega á þessum nýstár- legu nótum þótt alla úrfærslu hafi vissulega vantað og vanti enn. Misjaínar undirtektir Forystumenn sveitarfélaga hafa tekið þessari samþykkt með mis- .gnh.'ibnulabníd rnuóö. Snlðglíma á loftl - Þorsteinn vann jöfnum hætti - svo ekki sé meira sagt. Sumir hafa fagnað ógurlega og viðstöðulaust hafið áróður fyrir því að tónlistarhús eigi ein- mitt að rísa í túnfætinum hjá þeim. Aðrir hafa verið ólundar- legri, eins og Sigl- firðingar sem gerðu sérstaka samþykkt um að ekki ætti að eyða peningunum í svona vitleysu. Efinn er þó sá samnefnari sem tengir viðbrögð allra. Enginn - eða afar fáir í það minnsta - virðast trúa því í raun að ríkisstjórnin meini eitthvað með þessu. Flest- ir virðast afgreiða þetta sem eitt- hvert upphlaup - eins konar yfir- bót fyrir að hafa samþykkt bygg- ingu tónlistarhúss í Reykjavík! Eftir því sem lengra líður án þess að nokkuð fréttist af útfærslu, eða hugmyndum að útfærslu, eða bara einhverri umræðu um útfærslu, af hálfu stjórn- valda því magn- aðari verður ef- inn. Samstarfs- verkefni Það eina skyn- samlega í stöð- unni er þó að grípa þennan bolta, því hug- myndin er þrátt fyrir allt hreint ekki svo galin, og leggja fram einhv'ers konar drög eða tillögu að útfærslu. Skella yfirlýsingun- um inn í veruleikann með snið- glímu á Iofti. Það gerði einmitt Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, í vikunni, og sýndi að þar fer góður glímu- maður. Þorsteinn kom með þá bráðsnjöllu hugmynd að nýtt menningarhús yrði tengt há- skólasvæðinu á Sólborg. Bygg- ing menningarhúss yrði þannig að samstarfsverkefni Háskólans, ríkisstjórnar og bæjarstjórnar og gæti smellpassað inn í þá gríðar- lega þýðingarmiklu uppbyggingu sem er að eiga sér stað við Há- skólann á Sólborgarsvæðinu og komið til viðbótar þeim bygging- aráformum sem innsigluð voru í vikunni. Utfærsla af þessu tagi gefur menningarhúsaumræð- unni nýja vídd, og sviptir bæði ríkisstjórn og bæjaryfirvöld af- sökunum fyrir að láta ekki til skarar skríða. Eða svo heiti á gömlu Þursaflokkslagi sé umorð- að: „Þorsteinn vann!“ SJtaða deilumar innan Samfylkingarínnar á Norikirlandi eystra Sam- fylkinguna á landsvísu? Sólveig Pétursdóttir alþingismaðw, Reykjavík: „Ég held að það sé ein- sýnt að þess- ar deilur um framboðs- listann á Norðurlandi eystra muni skaða Sam- fylkinguna í heild sinni á landsvísu. Þetta mál undirstrikar auðvitað þann glundroða sem hefur skapast þar sem fólk sem kemur úr mörgum stjórnmálaflokkum ætlar í sam- eiginlegt framboð þar sem kjós- endum hefur ekki einu sinni ver- ið gerð grein fyrir pólitskum markmiðum þess.“ Daníel Árnason framkvæmdastjóri Ako-plastos á Akureyri: „Allar svona deilur spilla samstöðu innan svona samtaka og draga úr fylgi þeirra. Ég er svolítið hissa á því að Mar- grét Frí- mannsdóttir telur svo ekki vera. Þessar deilur eru auk þess komnar á svo erfitt stig að það verður erfitt að komast út úr þeim með góðu yfirbragði. Þetta er ekkert skemmtiefni fyrir Sam- fylkinguna.“ Gunnlaugur A. Júllusson sveitarstjóri á Raufarhöfn: „Það er mjög einkennilegt þegar menn virða ekki niðurstöður lýðræðislegs prófkjörs og þetta upp- hlaup verður Samfylking- unni ekki til framdráttar í kjör- dæminu. Það er erfiðara að segja til um það hvort þetta hefur áhrif á landsvísu, en eitthvað mun þetta skaða í augum kjósenda í öðrum kjördæmum." Oddur Helgi HaHdórsson hlikksmióur og hæjarfulltníi á Akureyri: „Ég hugsa að það komi niður á fylg- inu á Norð- urlandi eystra en ekki á lands- vísu. I Norð- urlandi eystra mun einhver hópur Samfylkingar- manna fara yfir til Vinstra fram- boðs Steingríms J. Sigfússonar en ég á erfitt með að gera mér grein fyrir hvort þessi hasar komi niður á fylgi Samfylkingarinnar í öðrum kjördæmum. Þessar deil- ur munu ekki auka fylgið." ■'.óilkm itiu Gtqbi:

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.