Dagur - 19.03.1999, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 19. MARS 1999 - 7
ÞJÓÐMÁL
Sj álfstædisflokkuriim
gegn SamfylMngnniii
Sjálfstæðisflokkurinn fann á
landsfundi sínum höfuðandstæð-
inginn í kosningunum í vor,
Samfylkinguna. Kosningarnar
munu fyrst og fremst snúast um
baráttu milli þessara fylkinga.
Samfylkingin hefur komið vel
undan vetri. Hún náði saman um
framboðsmál og búið er að vinna
athyglisverða verkefnaskrá sem
verður kynnt innan skamms.
Skoðanakannanir sýna að al-
menningur hefur beðið eftir slík-
um kosti.
Skrautsýning á landsfuudi
Kosningabaráttan hófst í reynd
með Iandsfundi Sjálfstæðis-
flokksins með stemmningu og
skrautsýningu. Ymsir segja að
meginstarf Sjálfstæðisflokksins
sé fyrst og fremst að halda lands-
fund. Það er nokkuð til í því en
ekki má gleyma öflugu starfi
Sjálfstæðisflokksins í sveitar-
stjórnum. Um land allt er víglín-
an milli Sjálfstæðisflokksins og
Samfylkingarinnar. Sameigin-
legu framboðin í sveitarstjórnar-
kosningunum fyrir einu ári voru
forsenda fyrir sameiginlegu
framboði til Alþingis.
Samfylkingin fylgir eftir góðum
sigrum jafnaðarmanna á megin-
landi Evrópu með því að sameina
í reynd Alþýðuflokk og Alþýðu-
bandalag, flokka sem eru báðir
sósíaldemókratískir í eðli sínu.
Óbreytt sjávarútvegsstefna
Sjávarútvegsmálin á Iandsfundi
Sjálfstæðisflokksins voru með
eindæmum.
Davíð Oddsson sagði að ekki
ríkti sátt um kerfið og Morgun-
blaðið tók andköf yfir þessari
visku. Atti Davíð að segja að um
sjávarútvegsmálin ríki sátt? Síð-
an ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að
skoða hugmyndir með opnum
huga. Hvað annað geta menn
sagt? Á ekki að skoða hugmyndir
opnum huga? Það eru hins vegar
engar breytingar á stefnu Sjálf-
stæðisflokksins í sjávarútvegs-
málum.
Viðhalda skal
gj afakvótakerfiuu
Eini aðilinn sem Ies annað út úr
fundinum er Morgunblaðið en
það er ekki í fyrsta skipti. I leið-
ara Morgunblaðsins sagði meðal
annars: „Með ummælum sínum í
setningaræðunni á landsfundi
hefur formaður Sjálfstæðis-
flokksins fylgt eftir þeirri yfirlýs-
ingu sinni að hann vildi ýta und-
ir umræður um þetta mál á vett-
vangi Sjálfstæðisflokksins. Það er
sérstakt fagnaðarefni og væntan-
lega grípa landsfundarfulltrúar
tækifærið til þess að efna til víð-
tækra umræðna og skoðana-
skipta um málið.“
„Kosningabaráttan hófst í reynd með landsfundi Sjálfstæðisflokksins með stemmningu og skrautsýningu. Ýmsir segja að meginstarf Sjálfstæðisflokksins
sé fyrst og fremst að halda landsfund,“ segir Ágúst Einarsson m.a. í grein sinni.
Blekkingar Morgunblaðsins
Þetta er skýrt, en hvenær var
þessi leiðari skrifaður? Hann var
skrifaður 11. október 1996, fyrir
tveimur og hálfu ári á næstsíð-
asta Iandsfundi Sjálfstæðis-
flokksins. Hvað hefur breyst í
sjávarútvegsstefnu Sjálfstæðis-
flokksins frá hausti 1996 þegar
Morgunblaðið fagnaði? Ekkert.
I ályktun landsfundarins núna
er talað um að „skoðað verði
hvort gera þurfi sérstakar ráð-
stafanir til að tryggja hagsmuni
viðkvæmra byggða og hlut þjóð-
arinnar í afrakstri fiskistofn-
anna“. Ekki er kveðið fast að
orði, en hvaðan er þetta orðalag
ættað? Jú, úr lögum um stjóm
fiskveiða en þar segir: „Nytja-
stofnar á Islandsmiðum eru sam-
eign íslensku þjóðarinnar. Mark-
mið laga þessara er að stuðla að
verndun og hagkvæmri nýtingu
þeirra og tryggja með því trausta
atvinnu og byggð í landinu". Þor-
steinn Pálsson hitti naglann á
höfuðið þegar hann sagði að í
ályktuninni væri um áréttingu að
ræða á þeim markmiðum sem
þegar væru í lögum.
Það er ekkert nýtt í sjávarút-
vegsstefnu Sjálfstæðisflokksins
eftir landsfundinn og engar til-
lögur um breytingar. Morgun-
blaðið ætlar hins vegar að reyna
að telja þjóðinni trú um annað
alveg eins og það reyndi eftir
landsfund þeirra árið 1996.
Kvenuafj andsamlegur
Sj álfstæðisfloMoxr
Sjálfstæðismenn reyna núna að
gera sig gildandi í jafnréttismál-
um og skirrast ekki við að beita
blekkingum. Þeir hafa haldið þvf
fram að þingkonum Samíylking-
arinnar muni fækka í næstu
kosningum. Þetta er rangt. í síð-
ustu kosningum voru kosnir fyrir
þær hreyfingar sem nú mynda
Samfylkinguna samtals 23 þing-
menn, 14 karlar og 9 konur.
Miðað við framboðslista Sam-
fylkingarinnar og sömu úrslit
verða 9 konur í næsta þingflokki.
Núna eru í þingflokki Samfylk-
ingarinnar 8 konur og 8 karlar,
sem er einsdæmi í blönduðum
þingflokki hérlendis.
Afhroð Sólveigar Pétursdóttur
í varaformannskjörinu sýnir að
kvennapólitík á ekki upp á pall-
borðið hjá Sjálfstæðismönnum.
Þótt Davíð Oddsson tali um
stærsta kvenfélag landsins eru
áhrif kvenna þar sáralítil. Ein-
ungis 20% þingmanna flokksins
eru konur og engin kona er ráð-
herra. Sjálfstæðisflokkurinn er
kvennafjandsamlegastur allra
flokka hérlendis og það breyttist
ekki á landsfundinum.
öryrkjum og
öldruðiun úthýst
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
misst tiltrú hjá öldruðum og ör-
yrkjum og þeim tókst ekki á
landsfundinum að ná trausti
þeirra aftur. Það þurfti ekki and-
stæðinga flokksins til að benda á
það. Öryrkjar sýndu fram á það
með mótmælastöðu sinni, m.a.
dóttir Ólafs Thors. Það var grát-
broslegt að einmitt ræða Ólafs
Thors var notuð til að hylla nú-
verandi formann flokksins.
Páll Gíslason, fyrrum borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
fyrrum formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrennis,
gagnrýndi flokkinn harðlega á
landsfundinum í málefnum aldr-
aðra. í nýrri skýrslu á Alþingi um
málefni öryrkja er beitt blekking-
um en staða öryrkja hefur versn-
að miðað við aðra þegna enda
ættu þeir að vita það manna best.
Tillaga u iii aukiii áhrif
aldraðra og öryrkja felld
Meðal aldraðra hafa þeir best
stöddu það enn betra en áður en
þeir sem Iakast stóðu hafa dreg-
ist enn meira aftur úr. Meðal
aldraða og öryrkja eykst munur-
inn og þeir sem verst eru staddir
verða að leita til hjálparstofnana,
Mæðrastyrksnefndar, Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og Rauða
krossins. Hvers konar samfélag
er þetta að verða?
Eg lagði í haust fram tillögu á
Alþingi að aldraðir og öryrkjar
fengju fulltrúa í Tryggingaráði,
stjórn Tryggingastofnunar ríkis-
ins. Tilviljun réð því að þessi til-
laga var felld í atkvæðagreiðslu á
Alþingi sama dag og landsfundur
Sjálfstæðisflokksins hófst. At-
kvæði gegn tillögunni greiddu
þingmenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar, sömu þingmenn
Sjálfstæðisflokks og héldu til
Laugardalshallar til að hylla
óbreytta stefnu í málefnum ör-
yrkja og aldraða.
Sterk fjölmiðlastaða
Sj álfstæðisnianna
Það er hins vegar full ástæða til
að taka Sjálfstæðisflokkinn alvar-
lega. Staða hans í fjölmiðlaheim-
inum er mjög sterk og hefur
aldrei verið öflugri. Því valdi
verður beitt miskunnarlaust í
kosningabaráttunni.
Sjálfstæðisflokkurinn gefur
ekki forustuhlutverkið i íslensk-
um stjórnmálum eftir án baráttu.
Þótt efnisleg niðurstaða lands-
fundarins væri rýr þá er reynt að
búa til aðra mynd af því í fjöl-
miðlum og samkenndin er efld
meðal óbreyttra flokksmanna.
Landsfundur Sjálfstæðismanna
þjappar fótgönguliðum þeirra
saman og þar eru mótuð vinnu-
brögð í kosningabaráttu.
Skýr viglína
Það voru íjórir málaflokkar sem
Sjálfstæðismenn gerðu aðallega
að umtalsefni, þ.e. sjávarútvegs-
mál þar sem ekkert n)4t kom
fram, kvennastefna þar sem þeir
afhjúpuðu sig rækilega og mál-
efni öryrkrja og aldraðra þar sem
þeirra eigin fólk var með sárustu
gagnrýnina.
Fjórði efnisþátturinn er ásök-
un um sundrungu í okkar röðum
og óráðsíu í ríkisfjárrnálum. Það
er engin óeining í okkar röðum.
Þvert á móti hefur okkur tekist
mjög vel að stilla saman strengi
og stefna okkar í ríkisfjármálum
mun koma á óvart þegar hún
verður kynnt.
Það er athyglisvert að Sjálf-
stæðismenn reyndu að sækja
fram þar sem Samfylkingin hefur
sterka stöðu, þ.e. í auðlindamál-
um, kvennapólitík og málefnum
öryrkja og aldraðra. Þeir reyndu
að \ánna þar land til baka. Eg tel
að þeim hafi ekki tekist það ætl-
unarverk sitt.
Samfylkingin er ekki aðeins að
berjast við stefnu Sjálfstæðis-
flokksins. Hún er fyrst og fremst
að tala fyrir sínum hugmyndum,
stefnu sem 30 til 40% þjóðarinn-
ar aðhyllist nú. Samfylkingin
þarf samt að eiga svör við stefnu
andstæðinganna og svara niður-
stöðum landsfundarins.
ÁGÚST
EINARSSON
ALÞINGISMAÐUR SAM-
FYLKINGAR SKRIFAR