Dagur - 24.03.1999, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 24. mars 1999
VÍKUR BÍAÐIÐ
21. árgangur- 12. Tólublað
Þmgmenn kallað
ir til Kópaskers
Passíusálmarnir verða lesnir í
Húsavíkurkirkju á föstudaginn
langa.
Þingmeim Norður-
landskj ördæmis
eystra hafa verið kall-
aðir til fundar á Kópa-
skeri n.k. mánudag til
að ræða atvinnu-
ástandið.
S.l. mánudag var haldinn fundur
á Kópaskeri um ástandið sem
skapast við lokun rækjuvinnsl-
unnar þar í 5 mánuði. Fundinn
sátu sveitarstjórn Oxarfjarðar-
hrepps, stjórn Verkalýðsfélags
Presthólahrepps og forsvars-
menn Fiskiðjusamlags Húsavík-
ur. Að sögn Aðalsteins Baldurs-
sonar, starfsmanns verkalýðsfé-
Iagsins, var farið yfir stöðuna og
horfurnar sem ekki eru glæsileg-
ar. „Starfsmenn fá uppsagnarbréf
í þessari viku sem þýðir að þeir
missa vinnuna í maí og verða at-
vinnulausir í 5 mánuði ef ekkert
verður að gert. Þarna er um 30-
40 manns að ræða eða um 30%
félaga í verkalýðsfélaginu. Og
þetta hefur víðtækari áhrif.
Þannig hefur skólafólk af svæð-
inu komið heim á sumrin og
fengið vinnu en nú er óvíst að
Höfniner
veiðisvæði
fálka
Ungur fálki hefur haldið sig á
hafnarsvæðinu á Húsavfk að
undanförnu og stundað þar
veiðiskap. Og hefur jafnvel
brugðið sér upp í bæinn til að ná
sér í bráð.
Sigurður Gunnarsson, fugla-
sérfræðingur Víkurblaðsins,
segir að þetta sé ugglaust sami
fuglinn og sást við Ærvíkurbjarg
í jólafuglatalningu. Það sé ekki
óalgengt að fálkar haldi sig við
höfnina þar sem mikið er um
fugla. „Hann situr gjarnan uppi
í klettunum fyrir neðan Höfða-
veginn og fylgist grannt með
fuglum í höfninni og hugar sé-
staklega að fuglum sem eru
veikburða eða vesalingar af ein-
hveijum ástæðum. Þegar hann
kemur auga á fugla sem svo er
ástatt um, þá gerir hann árás.“jS
Passíu-
sátmar
Félagar í Leikfélagi Húsavíkur
munu annast upplestur á Passíu-
sálmunum sem eru fimmtíu
talsins. Lesturinn hefst kl. 13 og
er áætlað að hann standi yfir í
fjórar klukkustundir. Umsjón
með tónlistarflutningi hefur
Pálína Skúladóttir organisti.
Undanfarin ár heftur verið
lesið úr völdum passíusálmum á
föstudaginn langa í Húsavíkur-
kirkju, en þetta mun í fyrsta
skipti sem þeir verða lesnir í
heild sinni í kirkjunni, að sögn
séra Sighvats Karlssonar.
Milljón í salemi
Húsavíkurbær hefur skipað þau
Erlu Sigurðardóttur fræðslufull-
trúa og Gauk Hjartarson bygg-
ingafulltrúa í starfshóp sem hef-
ur umsjón með endurbyggingu
gömlu kaupfélagshúsanna og
mótar framtíðaráform um notk-
un þeirra. Þar með er komið á
formlegu samstarfi milli Kaup-
félags Þingeyinga og Húsavíkur-
bæjar í þessu máli.
Þá hefur bæjarráð samþykkt
að leggja fram eina milljón
króna til uppbyggingar almenn-
ingssalerna í einu af gömlu hús-
unum (Hagræði), en eins og
kunnugt er hefur skortur á al-
menningssalernum verið blettur
á annars góðri ferðamannaþjón-
ustu í bænum.
Fálkinn situr uppi í klettunum og horfíryfir veiðilendur sínar. mynd: þorgeir baldurs.
Húsavík finim
tug árið 2000
Húsavík fagnar 50 ára kaupstað-
arafmæli árið 2000 og þá verður
að sjálfsögðu mikið um dýrðir í
bænum. Bæjarstjórn hefur sam-
þykkt að skipa fimm manna af-
mælisnefnd til að undirbúa há-
tíðarhöld vegna þessara tíma-
móta og verður nefndin skipuð
fulltrúum frá Leikfélagi Húsa-
víkur, Ferðamálafélagi Húsavík-
ur, Völsungi, Atvinnuþróunarfé-
lagi Þingeyinga og formaður
verður skipaður af bæjarstjórn.
Bæjarráð hefur þegar valið for-
mann nefndarinnar, Friðfinn
Hermannsson, framkvæmda-
stjóra Sjúkrahúss Þingeyinga.
Aðrir nefndarmenn voru kynntir
á fundi bæjarsjómar í gær. JS
Húsvíkingur ÞH-1 er til sölu. mynd: þorgeir baldurs.
það skili sér heim. Ennnfremur
hafa ýmis fyrirtæki á Kópaskeri
byggt á þjónustu við rækjuvinnsl-
una og missa því spón úr aski.
Þannig að þetta hefur víðtæk
áhrif á samfélagið.“
Niðurstaða fundarins var sú að
boða þingmenn kjördæmisins til
fundar á Kópaskeri n.k. mánu-
dag til viðræðna \áð heimamenn
um stöðuna og hugsanlegar leið-
ir til úrbóta.
Aðalsteinn segir að samdráttur
í rækjuvinslunni á Húsavík hafi
mun minni áhrif á atvinnulífið
þar en raunin er á Kópaskeri.
Búið er að leggja af þriðju vakt-
ina á Húsavík en á henni unnu
einkum starfsmenn af hinum
vöktunum. „Þannig að flestir
halda sinni vinnu en augljóslega
er um skerðingu á vinnu og tekj-
um að ræða.“
Aðalsteinn telur nauðsynlegt
að forsvarsmemn FH upplýsi
fljótlega hvað tekur við þegar og
ef togarinn Húsvíkingur verður
seldur. „Sjómenn búa við milda
óvissu og ekki hægt að halda
þeim í snörunni í margar vikur.
Þessir menn þurftu margir að
búa við sömu óvissu þegar Kol-
beinsey og Júlíus Havsteen voru
seld á sínum tíma. Það voru
vinnubrögð sem ég vil ekki sjá
aftur og stjórn FH þarf að eyða
þessari óvissu sem allra fyrst og
svara því hvað tekur við ef Hús-
víkingur verður seldur."
Reinhard Reynisson, bæjar-
stjóri og stjórnarmaður í Fisk-
iðjusamlaginu, segir að menn
bíði eftir tilboðum í Húsvíking.
En það sé alveg Ijóst að ef ásætt-
anlegt verð fáist fyrir skipið þá
komi eitthvað í staðinn. „Við
erum að sjálfsögðu farnir að
skoða þau mál og önnur skipa-
kaup eru auðvitað inni í mynd-
inni en á þessu stigi er ekki tíma-
bært að útlista það frekar. Sumir
hafa viljað misskilja það svo að
það ætti að selja Húsvíking og
þar með væri útgerðarsögu FH
lokið, en það er af og frá.“ JS