Dagur - 24.03.1999, Síða 4
4 — MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 1999
VÍKURBLAÐIÐ
Samtök hvalaskoð-
unarfyrirtækja?
Ásbjörn Björgvinsson með hvölum.
Á morgim hefst á
Húsavík sameiginleg-
ux viimufimdur allra
hvalaskoðimarfyrir-
tækja á íslandi.
Það er Hvalamiðstöðin á Húsa-
vík sem stendur fyrir þessari
tveggja daga ráðstefnu og að
sögn Asbjörns Björgvinssonar
forstöðumanns munu um 20-25
manns sitja ráðstefnuna frá 12
hvalaskoðunarfyrirtækjum og að
auki sérfróðir fyrirlesarar, inn-
lendir og erlendir.
„Það má segja að þetta sé
\innu- og kennslufundur þar
sem farið verður yfir flest það
sem tengist hvalaskoðun. Flutt
verður skýrsla um hvalaskoðun á
íslandi 1995-1998 og sérstak-
lega fjallað um hve oft hvalir
sáust í ferðum í fyrra. Erlendir
fyrirlesarar munu upplýsa okkur
um hvalaskoðun almennt í
heiminum. Þá verður fjallað um
öryggiskröfur farþega um borð í
hvalaskoðunarbátum og trygg-
ingamál bátanna.
Samstarf hvalaskoðunarfyrir-
tækja á sömu slóðum verður
rætt og ennfremur samvinna
Hafrannsóknastofnunar og
hvalaskoðunarfyrirtækja. Ævar
Petersen mun fjalla um fugla
sem lfklegt er að menn sjái í
skoðunarferðum við strendurn-
ar, en þeir vekja oft athygli nátt-
úruskoðara ekki síður en hval-
irnir. Markaðs- og kynningarmál
verða að sjálfsögðu til umræðu
og ennfremur verður fulltrúi frá
Free Willy samtökunum sem
upplýsir okkur um málefni
Keikós. Og síðast en ekki síst
munum við ræða það hvort
ástæða sé til að stofna samtök
hvalaskoðunarfyrirtækja á Is-
Iandi,“ sagði Asbjörn Björgvins-
son.
Ráðstefnunni lýkur um kl. 17
á Iaugardag og gestir munu sitja
kvöldverðarboð í boði Húsavík-
urkaupstaðar og samgönguráð-
herra. Ef veður leyfir verður að
sjálfsögðu boðið upp á hvala-
skoðun á Skjálfanda. JS
Hattur og Fattur eru afar vinsælir fyrir sunnan þessa dagana en fyrir norðan ganga félagar í Hattafélagi Húsavíkur
jafnan fattir með hatta sina á föstudögum. Hér er einn þeirra, séra Sighvatur Karlsson, á mikilli uppieið og ugglaust
raulandi„Hærra minn guð tilþín.“
Lyfja eignast þriðjung
Óskastjam-
anfmmsýnd
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir
leikritið Óskastjörnuna eftir
Brigi Sigurðsson n.k. föstudags-
kvöld kl. 20.00 í Samkomuhús-
inu. Leikstjóri er Asdís Þórhalls-
dóttir. Þetta verk var sett upp í
Þjóðleikhúsinu s.l. vetur og fékk
mjög góða dóma.
Anna Ragnarsdóttir og María
Axfjörð fara með helstu hlutverk
í Oskastjörnunni en aðrir leikar-
ar eru Þorkell Björnsson, Sig-
urður Illugason, Vigfús Sigurðs-
son, Hrefna Jónsdóttir og
Hrönn Káradóttir.
Botnsvatns-
gangaá
laugardag
Skíðagöngufólk á Húsavík er
hvatt til þess að mæta upp við
Botnsvatn á laugardag kl. 14.00
og taka þátt í skíðagöngu í
kringum vatnið, en þessi vega-
lengd er um 5 kílómetrar. Fjöl-
margir stunda skíðagöngu í
bænum óg er vonast til að sem
flestir mæti og njóti útiverunnar
í fögru umhverfi og skýrt tekið
fram að hér er alls ekki um
keppni að ræða. Boðið verður
upp á orkudrykk inni í Krubb.
Þess má og geta að í sumar er
fyrirhugað að standa fyrir mynd-
arlegu Botnsvatnshlaupi þar
sem hlaupnir verða 5-10 kíló-
metrar og verðlaun veitt fyrir ár-
angur. JS
Lylja kaupir þriðjung hlutafjár í
Húsavíkur Apóteki. Tilgangur-
inn með sölunni er að njóta
bestu kjara í innkaupum, segir
lyfsalinn.
Lyfja hf. í Reykjavík hefur
keypt þriðjung hlutabréfa í
Húsavíkur Apóteki. Tilgangur-
inn með þessu kaupum er að
sögn Guðna Kristinssonar Iyf-
sala að komast í samstarf við
sterkan aðila er nýtur góðra
kjara hjá heildsölum og öðrum
þeim sem apótekin versla við.
Jafnframt þessu munu Húsavík-
urapótek og Lyfja hefja samstarf
á öðrum sviðum, svo sem með
útgáfu á fræðsluefni ýmis konar.
„Ég hef miklar væntingar í
sambandi við þetta samstarf og
vona að viðskiptavinir Húsavík-
ur Apóteks fái notið lægra lyfja-
verðs. Einnig von ég að þær nýj-
ungar sem bryddað verði upp á
með tímanum falli í góðan jarð-
veg,“ segir Guðni Kristinsson
lyfsali. -SBS.
Póló í Nató
Forseti vor gerði góða för til
PóIIands á dögunum, að
sögn þarlenda fréttamanns-
ins. Auk þess að blessa inn-
göngu landsins í NATO
fjallaði hann um Prins Póló.
I þakkarskyni færðu inn-
fæddir honum fulla körfu af
því góðgæti, ásamt því að
nefna hann „Prins Óló“.
Sem sagt harla gott og
ályktun hirðskálds Víkur-
blaðsins, hk, er þessi:
Forsetinn okkar Óló,
álitinn vitur sem Plató.
Skammtaði Pólverjum Póló
og potaði þeim inn i NATÓ.
Fréttirííríi
Ritstjóri Víkurblaðsins hefur
s.l. 20 ár stundum fengið að
heyra að það væru aldrei
neinar stórfréttir í blaðinu og
algjör hending ef blaðið væri
fyrst með fréttimar. Ymislegt
er til í þessum áburði og á
sér eðlilegar skýringar.
Þannig er mjög erfitt fyrir
vikublað að vera fyrst með
fréttir, nema atburðir gerist
svona klukkutíma áður en
blaðið fer i prentun, því að
öðrum kosti eru aðrir miðlar
komnir fyrr í málið.
Annað sem sífellt hefur
komið í veg fyrir stórfréttir í
Víkurblaðinu er sú staðreynd
að síðustu tvo áratugina hafa
stórviðburðir eingöngu átt
sér stað þegar Víkurblaðið
hefur verið í sumarfríi eða
ritstjóri þess forfallaður af
einhveijum ástæðum.
Þannig hafa eldgos og miklir
jarðskjálftar undantekninga-
lítið átt sér stað þegar blaðið
er í fríi og helstu stórafrek
unnin í íþróttum og mestar
sviptingar orðið í atvinnulífi
þegar ritstjórinn er í veik-
indaleyfi.
Ritstjóri Víkurblaðsins
hefur verið frá vinnu það
sem af er þessum mánuði
og var þess auðvitað fullviss
fyrirfram að nú myndi eitt-
hvað verulega fréttnæmt
gerast í Þingeyjarþingi, jarð-
hræringar eða annað í þeim
dúr. Og að sjálfsögðu gekk
þetta eftir og ritstjórinn var
fjarri góðu „gamni“ þegar
þær fréttir bárust úr at-
vinnulífinu að til stæði að
selja þann mikla togara
Húsvíking og loka rækju-
verksmiðjunni á Kópaskeri.
Þarna sannaðist sem sé
reglan um „fréttir í fríinu"
enn einu sinni.
Kúkálliim
Starfsmannaráð Heilbrigð-
isstofnunarinnar á Húsavík
heldur úti fréttabréfi sem
nefnist „Sjúkállinn." í sam-
ræmi við það er forsíðu-
grein framkvæmdastjóra
birt undir fyrirsögninni
„Magállinn". Og allt er þá
þrennt er í ritinu í grein um
rannsóknir á meltingarsjúk-
dómum, sem að sjálfsögðu
ber heitið „Kúkállinn!"