Dagur - 07.04.1999, Page 1

Dagur - 07.04.1999, Page 1
t JónAmþórsson áAkureyri, sem ermeðal annars þekktur Jyrirað koma áfót glæsilegu iðnaðarsafni í bænum, geng- ur meðfleiri stórar hug- myndirog eina þeirra kallar hann „Litla ísland“. Grunnurinn í hugmynd Jóns er sá að á svæði sem að stærð gæti samsvarað um tveimur knattspyrnuvöllum yrði búin til smækkuð mynd af landinu. Hann hefur meðal annars horft vonaraugum til svæð- isins við ósa Eyjafjarðarár, sunnan svo- kallaðrar Hjartabrautar, göngubrautarinn- ar yfir E)jafjarðarána, en tekur þó fram að hugmyndin sé ekkert endilega bundin við þann stað eða Akureyri. Þtjátíu metrar til Husavikur „Hugmyndin er að ýta upp helstu útlínum landsins með jarðýtu," segir Jón, „leggja síðan hringveginn nákvæmlega eins og hann er, sem yrði þá notalegur göngustíg- ur. Hlutföllin í þessu væru nokkurn veg- inn þau að leiðin frá Akureyri til Húsavfk- ur yrði um þrjátíu metrar. Á hringvegin- um yrðu merktir helstu staðir, til dæmis yrðu bæirnir merktir og jafnvel gefinn kostur á að vera þar með skilti sem sýndi hvað hver bær býður upp á.“ Hugmyndin varð til meðal annars í tengslum við starf Jóns hjá Samskipum á Akureyri. „Við vorum með móttöku á er- lendum skemmtiferðaskipum og oft voru fylltar sex til átta rútur sem fóru austur í Mývatnssveit í dagsferðir. Þegar ég kom í stóru skipin var alltaf svo og svo mikið eft- ir af eldra fólki sem nennti ekki að fara þetta Iangar ferðir. Það var kannski ein kveikjan að þessu, að geta sýnt þeim Is- Iand í smækkaðri mynd,“ segir Jón. „Eg var með hugann við hvað hægt væri að gera á svæðinu til að auka framboðið af Jón Arnþórsson á staðnum sem hann horfir vonaraugum til sem vettvangs til að framkvæma hugmyndina um „Litla ísland". Vtö ósa Eyjafjarðarár, sunnan Hjartabrautarinnar svokölluðu. -mynd: brink því sem við bjóðum gestum og gerir Akur- eyri að áhugaverðum bæ.“ Hann bendir jafnframt á marga mögu- leika í nýtingu á „Litla Islandi", meðal annars fyrir skólana. „Þetta hugsaði ég mér að gæti bæði verið þannig að kennar- ar færu með nemendur að hausti eða vori tii, löbbuðu hringinn og gerðu svolitla landafræðikynningu auk þess sem þetta yrði nýtt sem túristagarður. Svo eru marg- ir möguleikar á útfærslunni sem kalla bara á hugkvæmni fólks og hvort menn yf- irleitt vilja leggja í þetta meira eða minna. Framhaldið gæti orðið mjög verðugt vinnuskólaverkefni fyrir sumarvinnuna hérna næstu árin.“ Varðandi hugsanlegan kostnað segir Jón að enn sé „Litla ísland“ bara hugmynd sem raunverulega kalli á að að henni komi menn sem hafa nægan áhuga til að reikna út kostnaðinn. „Mér datt líka í hug að ef enginn sýndi Iit,“ segir Jón, „hvort það væri ekki hægt að búa til almennings- hlutafélag um hugmyndina. Þetta væri al- gjört einsdæmi á Islandi og - af hverju ekki? Jöklaferðir þóttu fáránlegar fyrir nokkrum árum, hvalaskoðunarferðir enn fáránlegri. Nú er þetta uppistaða í ferða- þjónustu á sumum stöðum." „ÓgeðfeUd frétt“ Jón skrifaði Bæjarstjóm Akureyrar bréf með greinargerð um hugmyndina 23. júní 1994. Um miðjan júlímánuð sama ár birtist ffétt um hugmyndina í Morgunblaðinu og í fram- haldinu skondin umfjöllun í Helgarpóstin- um - umíjöllun sem verður eiginlega að líta á sem grín. Þar var dálkur sem kallaðist „Ogeðfelldasta frétt vikunnar" og vísaði í ffétt Morgunblaðsins. Grípum niður í um- Qöllun Helgarpóstsins: „I fyrsta lagi er það ógeðfellt að minnimátt- arkennd Akureyringa skuli vera slík að þeir verði að toppa Islandskortið í Ráðhúsi Reykjavíkur. í öðm Iagi er einkar ógeðfellt að þeir vilji stela ferðamönnum frá öllum Iands- hlutum öðmm, gera sjálft Iandið óþarft en teyma menn þess í stað um Gullfoss, Geysi og Jökulsárlón í einni gönguferð á Akureyri." Fleiri atriði em reyndar tínd til í klausu Heig- arpóstsins en þó „Litla ísland" sé enn sem komið er aðeins hugmynd - þá em orð til alls fyrst og margar ógeðfelldari hugmyndir en þessi hafa orðið að vemleika. - Hl Umboðsmenn um land allt Nýjustu hljómtækjastæðurnar CDC-421 • 2X20W • RMS-Surround • 3ja diska geíslaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Surround hátalarar fylgja. CDC-471 Heimabíóhljómtæki • 2X40W eða 4X40W • RMS-Dolby pro logic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátalarar fylgja. CDC5H Heimabíóhljómtæki • 2X100W eða 4X50W *RMS • Dolby prologic magnari • Stafrænt tengi fyrir minidisk • 3ja diska geislaspilari • Útvarp með 20 stöðva minni • RDS-tvöfalt segulband • Fimm hátaiarar fylgja. Hlustaðu á alvöru hljómgæði ) Ifr.iKíe? prtA t rMfio rvi'>'röÍJixu/ íti i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.