Dagur - 07.04.1999, Síða 2
18 - MIBVIKVDAGUR 7. APRÍL 1999
ro^tr
LÍFIÐ t LANDINU
*-
■ SMÁTT OG STÓRT ■E—LkÁ UMSJÓN: BIRGIR
GUÐMUNDSSON
„Klukkan átta á
laugardagskvöldið
var ég glaður ung-
ur maður. Tíu
mínútum síðar
var líf mitt í rúst.“
Sigurður Norð-
dal um frétt Rik-
issjónvarpsins á
laugardag um
meint milljarða-
svik hans. DV í
gær.
Heimfrægir árekstrar
Frétt Dags um konu sem lenti í tveimur
árekstrum sömu helgina við sama manninn
hefur vakið verðskuldaða athygli. En athyglin
er þó ekki bundin við Island, því erlendir íjöl-
miðlar hafa sýnt málinu áhuga og m.a. reynt
að komast í samband við konuna. I dagblaðinu
„The Star-Ledger“, sem gefið er út í New Jers-
ey í Bandaríkjunum, er fastur dálkahöfundur
sem heitir Lawrence Hall. I dálki sínum
mánudaginn 22. mars síðast liðinn gerir hann
m.a. þessa merku árekstrarsögu að umtalsefni
í pistli sínum í tilefni af því að hann er að
fjalla um þá gamalkunnu staðreynd að enginn
fái örlög sín umflúið. Hall þessi segir m.a.:
„Orlaganornirnar eru duttlungafullar og geta
ýmist gert okkur að konungum eða skapað
okkur ömurlegt hlutskipti. Oftar en ekki virð-
ast þær þó spinna vefi sem eru okkur óhag-
stæðir. Okumaður á norðurhluta Islands
myndi í það minnsta nánast örugglega vera
sammála því. A þennan ökumann var ekið i
tvígang af sama bílstjóranum á einum og sama
sólarhringnum. Líkurnar á slíku eru stjarn-
fræðilegar. Konan, sem hefur ekið bifreið í 20
ár án óhappa, var á ferð í bænum Akureyri
þegar bíl var ekið út af bifreiðastæði og beint á
bílinn hennar. Þetta er eitt og sér ótrúlegt á
þessari eyju í Atlantshafinu, þar sem aðeins
270 þúsund manns búa. Þar má auðveldlega
aka um klukkutímum saman án þess svo mikið
sem sjá annan bíl.
En konan meiddist ekki og leigði sér annan
bíl. Daginn eftir, þegar hún er að aka yfir
gatnamót á grænu Ijósi, er keyrt á bíl hennar
öðru sinni af sama manni í sama bíl. Sá hafði
farið yfir á rauðu. Ökumaðurinn sagði yfir-
völdum að sólin hafi blindað sig.“ Þannig
hljóðar lýsing Lawrence Hall á þessu atviki og
það vekur athygli hversu nákvæm og rétt lýs-
ingin er - ef frá er skilinn parturinn um hversu
langt er á milli bíla hérH
Kosningabaráttunni startað í
afmæli
Guðni Agústsson, þingmaður framsóknar-
manna á Suðurlandi, fagnar fimmtugsafmæli
sínu á föstudaginn og mun halda mikla veislu
á Hótel Selfossi af því tilefni. I kjördæminu
tala menn um að þetta verði einhver lengsta
afmælisveisla íslandssögunnar þ\i' henni muni
í raun ekki ljúka fyrr en eftir kosningar. Segja
menn afmælishátíðina á föstudag marka upp-
haf kosningabaráttunnar hjá Guðna og fram-
sóknarmönnum - þá verði slegið í klárinn og
ekkert gefið eftir fyrr en búið er að loka kjör-
stöðum 8. maí.
„Þaö er brýnt fyrir
bæjaryfirvöld hér
að efla atvinnu, “
segir Ásgeir Logi
Ásgeirsson, meðal
annars hér í viðtal-
inu. -mynd: brink.
Ætlaði að verða
skipstj óii
„Það var aldrei draumur hjá mér
að verða bæjarstjóri, ég ætlaði
að verða skipstjóri og sá það í
hetjuljóma. En faðir minn var
lengi bæjarritari hér og það fór
því ekki hjá því að þannig kynnt-
ist ég bæjarmálunum nokkuð og
þegar ég fluttist hingað til Ólafs-
fjarðar aftur eftir nokkurra ára
Ijarveru lenti ég strax í hringiðu
þeirra. Hef samhliða tímafrek-
um störfum á þeim vettvangi
rekið hér stórt fyrirtæki, en með
því að gefa kost á mér í bæjar-
stjórastarfið hafði ég í huga að
taka til í eigin ranni og einbeita
mér að ákveðnum verkefnum í
stað þess að koma og vera á
kannski of mörgum vígstöðvum.
Gagnvart bæjarmálunum hef ég
metnað og víða þarf að taka til
hendi,“ segir Asgeir Logi Asgeirsson, nýráðinn
bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Meö 100 manns í vinnu
Skömmu fyrir páska gekk bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar frá ráðningu Asgeirs Loga í starf bæjar-
stjóra og tekur hann við því á næstunni. Hann
hefur að undanförnu verið bæði formaður bæj-
arráðs jafnhliða því sem hann hefur stýrt sjávar-
útvegsfyrirtækinu Sæunni Axels, sem er eitt
stærsta fyrirtækið á staðnum. Veitir nær 100
manns vinnu og er burðarás í bæjarlífinu. „Það
er brýnt fyrir bæjaryfirvöld hér að efla at\innu,
til dæmis fyrir konur. Að fyrir bæði kynin sé hér
næg vinna er grundvöllurinn fyrir trausta byggð
hér,“ segir Ásgeir Logi.
Hann er fæddur í Ólafsfirði
árið 1963 og er sonur hjónanna
Sæunnar Axelsdóttur útgerðar-
manns og Ásgeirs Ásgeirssonar.
Stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri Iauk Ásgeir Logi
1984 og svonefndu fiskimanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík 1986. Eftir það fór
hann til náms við Sjávarútvegs-
háskólann í Tromsö f Noregi.
Eftir að fimm og hálfs árs námi
þar Iauk starfaði Ásgeir um hríð
við sjávarútveg í Andenesi í
Norður-Noregi, en heim flutti
hann með Ijölskyldu sinni 1994.
Starfaði eftir það um hríð hjá út-
flutningsfyrirtækinu Valeik hf.
„Meiningin var að flytja norður
strax þegar við komum að utan,
en þannig var tíðarfarið að konan
mín gat ekki hugsað sér að fara hingað að svo
komnu - og það var ekki fyrr en vorið 1997 sem
við komum hingað.“
Að fara á skak
Ásgeir Logi kveðst eiga mörg áhugamál. „Ekki
síst að vera með fjölskyldunni, konu minni
Kristínu Davfðsdóttur og dætrum okkar þremur
sem eru 8 og 3ja ára og sautján mánaða. Saman
gefum við okkur tíma m.a. til þess að sinna
skíðaíþróttinni og stundum förum við með eldri
stelpurnar t\'ær í fjallið. - Sjálfur hef ég mikinn
áhuga á sjávarútvegi almennt og eitt skemmti-
legasta sem ég geri er að bregða mér út á fjörð á
skak, það er sú besta hvíld sem ég fæ,“ segir Ás-
geir Logi Ásgeirsson.
Aðfara á handfæra-
skak er eftirlæti Ás-
geirs Loga Ásgeirs-
son, nýbakaðs bæjar-
stjóra í Ólafsfirði.
Hann segir mörg verk-
efni bíða sín í nýju
starfi
SPJALL
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
Rökfesta er hvorki Iist né fræðigrein,
heldur undanbrögð. Henjamin jovctt
Þetta gerðist 7. apríl
• 1827 fann breski efnafræðingurinn
John Walker upp eldspýtuna.
• 1939 réðst ítalski herinn inn í Albaníu, og
viku síðar var Albanía innlimuð í Ítalíu.
• 1943 brann Laugarnesspítali í Reykjavík.
• 1948 var Alþjóðlega heilbrigðisstofn-
unin (WHO) stofnuð.
• 1953 var Dag Hammerskjold einróma
kosinn aðalritari Sameinuðu þjóðanna.
• 1966 fundu Bandaríkjamenn vetnis-
sprengju sem þeir höfðu týnt- út af
ströndum Spánar!
• 1988 hittust Mikhaíl Gorbatsjov leið-
togi Sovétríkjanna og NadjibuIIah, leið-
togi afgangskra skæruliða og sömdu um
að Ijúka stríðinu í Afganistan.
• 1994 hófust fjöldamorðin miklu í Rú-
anda, degi eftir að forsetar Rúanda og
Búrúndís fórust í flugslysi.
Þau fæddust 7. apríl
• 1770 fæddist enska skáldið William
Wordsworth.
• 1771 fæddist ítalski skæruliðinn Fra
Diavolo, sem sagður er hafa barist
gegn hernámsliði Frakka í Napólí.
• 1860 fæddist bandaríski iðnjöfurinn
W.K. Kellogg, sem fyrstur hóf fram-
leiðslu á maísflögum (kornfleksi).
• 1860 fæddist Kristján Níels Júlíus
Jónsson skáld, sem kallaði sig Káinn.
• 1882 fæddist Kurt von Schleicher, síð-
asti kanslari þýska Weimar-lýðveldisins.
• 1884 fæddist pólski mannfræðingur-
inn Bronislav Kasper Malinovskí.
• 1915 fæddist bandaríska söngkonan
Billie Holliday.
• 1920 fæddist indverski tónlistarmað-
urinn Ravi Shankar.
• 1939 fæddist bandaríski kvikmynda-
Ieikstjórinn Francis Ford Coppola, og
er því sextugur í dag.
Afmælisbam dagsins
Magnús Þór Jónsson (Megas) er
fæddur 7. apríl 1945. Hann ólst
upp í Norðurmýrinni í Reykjavík og
gekk í Menntaskóla Reykjavíkur.
Árið 1972 kom fyrsta plata hans
út. Hún hét einfaldlega ,jMegas“ og
var gefin út með aðstoð Islendinga-
félagsins í Osló. Hún vakti
hneykslan í stofum góðhorgaranna
og ekki síst vegna þeirrar hug-
myndar Megasar um að láta Jónas
Hallgrímsson liggja sauðdrukkinn
útí hrauni. Megas er fyrst og síðast
þekktur fyrir orðsnilld í textagerð
sinni.
Vísa dagsins
Vísa dagsins er eftir Örn Arnarson:
Lýðurinn virðir lögin skráð,
Ijóst þó dæmin gjöri,
að þangað sækir refur ráð,
sem rænir lambið fjöri.
Brandarinn
Maður nokkur þurfti að leita til lögfræð-
ings en hafði nokkrar áhyggjur af hugsan-
legum kostnaði. Hann byrjaði því á að
spyrja lögfræðinginn hvað hann tæki fyrir
ráðleggingar.
„Fimm þúsund krónur fyrir þrjár spurn-
ingar,“ svaraði lögfræðingurinn.
„Er það nú ekki dálítið dýrt?“ spurði
maðurinn.
„Jú,“ svaraði lögfræðingurinn, „og hvern-
ig hljóðar svo þriðja spurningin?“