Dagur - 07.04.1999, Side 3

Dagur - 07.04.1999, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1 999 - 19 Thypr. LIFIÐ I LANDINU Böm og unglingar beita ofbeldi. Reiði, réttlætiskennd, löng- un til að stækka í aug- um skólafélaga og fleira verður til þess að þau níðastá öðmm. Davíð Bergmann vill breyta þessu. I skólastofu einni hér í borg fyrir nokkrum dögum var Davíð Bergmann einu sinni sem oftar að halda fyrirlestur. Unglingar í 9. bekk sátu í hring í miðri stof- unni og það var talsverður völlur á þeim til að byrja með. Þeir svöruðu spurningum Davíðs með ögrandi hætti, jú, það væri allt í lagi með ofbeldið í skólan- um, þau gætu ekkert að því gert o.s.frv. Eftir um fimm mínútur hafði hann náð þeim niður, það sljákkaði í þeim og þau tóku að hlusta. Það þarf talsvert til að halda athygli heils 9. bekkjar vakandi í 80 mínútur um margþvælt efni: ofbeldi og fíkniefni. Til þess að boðskapurinn komist til skila neytir Davíð, sem starfar hjá Fé- lagsþjónustu Reykjavíkur, marg- víslegra bragða sem sum náðu til unglinganna, önnur ekki. Notar pumpu, vatn og kókbrúsa til að sýna hvað eitt höfuðhögg á réttan stað getur komið af stað mikilli blæðingu inn á heilann. Fær ungiinga út á gólf til að sviðsetja „bellisbúasamskiptin“ eins og hann kallar samskipti fólks sem ekki þorir að nefna til- finningar sínum réttu nöfnum. Sennilega er veruleiki ofbeldis og fíkniefna fjarlægur flestum unglingum, rétt eins og full- orðnum, en Davíð segir að hægt sé að finna dæmi um gróft of- beldi, Iíkamlegt eða andlegt, í öllum skólum. Til að færa um- ræðuefnið nær þeim hópum sem hann talar við í skólum um allt land notar hann því dæmi úr þeirra nánasta umhverfi, ofbeldi og afbrot framin af nemendum viðkomandi skóla. Snemma í fyrirlestrinum gerir hann hreint fyrir eigin dyrum, segist sjálfur vera fyrrum fíkill og fléttar eigin reynslu af neyslu og afbrotum saman við fræðsluna. Hann seg- Auga fyrir auga „Það er ekkert eðlilegt að 14-15 ára börn séu komln með blæðandi magasár vegna eineltis en það eru dæmi þess, “segir Davíð. Hann telur að efla þurfi eftirlit með krökkum I áhættuhópum, greina þurfi þá snemma og fylgjast með þeim. Ella geti illa farið. Einn af fyrrum skjólstæðingum Félagsþjónustunnar er nú orð- inn 18 ára gamall. Hann er ofvirkur, mikill fíkill og af annarri kynslóð afbrotamanna. Hann lenti milli stafs og hurðar þegar sjálfræðisaldurinn var hækkaður og kerfið missti af honum - átján ára hefur hann nú 69 afbrotamál að baki. - mynd: hilmar ir að sinn afbrotaferill hafi byrj- að þegar hann var 9 mánaða gamall. Þá fékk hann höfuðhögg og það blæddi inn á heilann. Síðar kom í ljós að hann var les- blindur og til að fela námserfíð- leika sína og minnimáttarkennd tók hann smám saman að sér hlutverk töffarans. Davíð leggur ríka áherslu á að unglingar geri sér grein fyrir því að annaðhvort séu menn á móti ofbeldi eða ekki. Og séu menn/unglingar á móti ofbeldi þá þurfi sú andstaða að vera virk andstaða. Töffarinn í skólasam- félaginu haldist ekki í töffara- hlutverkinu nema í kringum hann sé hópur sem styðji hann og dái. „Það gerist ekkert ef töffarinn ætlar að berja ein- hvern úti á skólalóð og enginn er að horfa á. Þá er viðkomandi ekki laminn." „Krakkarnir eru mataðir á öllu mögulegu og ómögulegu en það er mjög tak- mörkuð kennsla í samskiptum. Það hefur ekkert upp á sig að læra stærð- fræði efþú kannt ekki samskipti." -mynd e.ól Krakkarnir taki afstöðu I lok fyrirlestrarins eru ungling- arnir beðnir um að taka beina afstöðu til ofbeldis með at- kvæðagreiðslu um málið. Þannig er reynt að virkja unglingana til afstöðu og að- gerða. Unglingar mega ekki skýla sér á bak við hlutleysi og að- gerðaleysi enda trúir Davíð því að þeir sem beiti ofbeldi geri það ekki nema að öðrum sjáandi, ofbeldið sé fyrst og fremst leið þeirra sem eiga við erfiðleika að stríða til að vekja á sér athygli. „Þeir krakkar sem eru að beita einelti og ofbeldi eru með lágt sjálfsmat. Þeim líður ekki vel, þau eru með sértæka námserfið- leika, athyglibrest, ofvirkni, mis- þroska. Þetta eru þau börn sem eru í áhættu. Þess vegna er svo mikilvægt að þegar börn eru greind, t.d. ofvirk börn, þá eig- um við að setja rautt flagg aftan í þau og fylgja þeim eftir. Við eigum ekki að greina þau og skilja þau eftir. Þau þurfa að- stoð.“ En hvers konar ofbeldi er Davíð að tala um? A fundinum sem blaðamaður var viðstaddur tiltók Davíð íjölmargar ljótar sögur af ofbeldisverkum sem framin höfðu verið af nemend- um viðkomandi skóla og hann segir að í flestum skólum megi finna slík dæmi af heimavelli. Hann rifjar upp nokkur ofbeld- isverk sem komið hafa til kasta lögreglu á undanförnum mán- uðum. Setið var fyrir unglingspilti, sem var að koma Þetta úrrædi kostar kannski 2-300þús. kr. á önn meðan einn góðurkrimmi kostar 250.000 kr. á viku. af skemmtun og hann laminn með hömrum. Fyrir rúmu ári síðan var t.d. gerð hópárás á strák sem var sakaður um að vera að kvelja yngri krakka. Honum var stillt upp við vegg með hníf til að gera hann hræddan, hann var látinn fara niður á hné til að kyssa fæt- urnar á viðkom- andi, svo var sparkað í andlit- ið á honum og þegar hann lá í jörðinni fóru þeir að hoppa yfir hann og ofan á honum á hjólabretti." Afar algengt er að ofbeldisverk í gagnfræðaskólum séu framin á þeim forsendum að verið sé að hefna fyrir eitthvað sem viðkom- andi á að hafa sagt eða gert. Oft hefur sá sem hefnir söguna ekki frá fyrstu hendi og því verða saklausir ósjaldan fyrir barðinu á ofbeldisseggjunum. „Ofbeldið snýst oft á tfðum ekki um neitt - nema einhver sagði eitthvað og þess vegna beri okkur að lemja hann. Þetta er siðferðið um auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.“ Fjölbreyttari úrræði Komist unglingarnir óáreittir og án afskipta foreldra, starfsliðs skóla eða félagsmálayfírvalda yfir í fíkniefnaneyslu færist meiri harka í veruleika þeirra. Harka sem iðulega nær ekki út í umræðuna. Fyrir jól birtist í fjöl- miðlum frétt sem hljómaði á þessa leið: Tveir eiturlyfjaneyt- endur réðust d pítsusala og rændu hann. „Það kom aldrei fram í fréttinni að kvöldið áður hafði heildsali þessara dópista hringt og sagt: 100.000 kall á borðið á morgun eða ég klippi af ykkur putta." Þessir drengir voru 16 og 17 ára. Fyrir nokkrum mánuðum var sautján ára gamall fíkill færður nauðugur af heimili sínu, lokaður ofan í bílskotti, keyrður upp í Rauðhóla þar sem hann var laminn. „Það hefur heldur aldrei komið fram í fjöl- miðlum. Drengnum var hent aftur í skottið og farið með hann í hús. Þegar lögreglan kom á staðinn [drengurinn var með síma á sér og gat því hringt eftir hjálp] var búið að binda hann og hafnarboltakylfu var haldið upp að hálsinum á honum.“ Alltaf öðru hveiju koma ungl- ingar og viðurkenna að þeir eru að missa tökin á lífi sínu en að sögn Davíðs er um 8-12 mánaða bið eftir meðférð og rúmlega fjörutíu unglingar eru nú á biðlista eftir hjálp á meðferðarheimilinu Stuðl- ar. Þá séu heldur ekki nægilega fjölbreytt úrræði í boði. „Við erum með margar góðar meðferðar- stöðvar á Islandi en við þurfum fleiri úrræði og fleiri valkosti. Það er hægt að fara margar leiðir. Ég er t.d. með hópastarf héma fyrir stráka undir 16 ára sem em á af- brotabraut. Við heimsækjum Iögg- una, slökkviliðið, sjúkraflutninga- menn, tryggingafélög, lækna á Grensásdeildinni. Við kynnum fyr- ir þeim hvað það kostar og hvað það þýðir að vera í afbrotum. Þetta er ekki dýrt verkefni og við höfum náð um 80-85% árangri. Þetta úr- ræði kostar kannski 2-300 þús. kr. á önn meðan einn góður krimmi kostar 250.000 kr. á viku. Og meðferðarúrræði kostar 3 milljónir á ári. Við þurfum að fara að end- urskoða leiðir." LÓA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.