Dagur - 07.04.1999, Side 5
MIDVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Systrabrúðkup í Skagafirði
„...og á eftir var síðan brúðkaupsveisla í Miðgarði þar sem mættu um 230
gestir, “ segir Guðleif Birna Leifsdóttir. Hún er fyrir miðju ásamt Eysteini Leifs-
syni manni sínum. Til vinstri er Kristbjörg Leifsdóttir ásamt manni sínum,
Magna Samsonarsyni, og Stefanía Hjördís Leifsdóttir og hennar maður, Jó-
hannes Helgi Ríkharðsson eru til hægri, ásamt dótturinni Ríkeyju Þöll.
(Ljósmyndast. Grafarvogs.J
„Við ætluðum að láta gefa okkur
saman í sóknarkirkju okkar að
Ríp í Hegranesi, en hún rúmaði
ekki nema áttatíu manns. Því
var farið að Hólum, þar sem sr.
Bolli Gústavsson gaf okkur sam-
an og á eftir var síðan brúð-
kaupsveisla í Miðgarði, þar sem
mættu um 230 gestir í mat. A
eftir var dansleikur sem Hörður
G. Olafsson á Sauðárkróki sá
um,“ segir Guðleif Birna Leifs-
dóttir.
Þann 8. ágúst sl. sumar
gengu í hjónaband systur þrjár
frá Keldudal í Hegranesi í
Skagafirði. Guðleif Birna, sem
býr í Mosfellsbæ og nemur fé-
Iagsráðgjöf og uppeldisfræði við
HI, gekk að eiga Eystein Leifs-
son, tamningamann. Kristbjörg í
Hafnarfirði, félagsráðgjafi í
Reykjanesbæ, gekk að eiga
Magna Þór Samsonarson, iðn-
rekstrarfræðing. Stefanía Hjör-
dís á Brúnastöðum í Fljótum,
félagsfræðingur og kennari við
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, gekk að eiga Jóhannes
Helga Ríkharðsson, bónda og
ráðunaut hjá Búnaðarsambandi
Skagaljarðar. „Við töluðum oft
um það í gamni að gifta okkur
saman, enda var það ekki fjar-
lægt; við erum samrýmdar og
allar búnar að vera álíka lengi í
sambúð. En síðan gerðum við
alvöru úr þessu og sjáum ekki
eftir,“ segir Guðleif.
„Eftir brúðkaupsveisluna fór-
um við systurnar, ásamt Álfhildi
yngstu systur okkur og hennar
manni, Sölva Sigurðssyni, að
Ytri-Vík við Eyjaíjörð þar sem
við gistum. Það var skemmtilegt
og dekrað var við okkur. Lengra
brúðkaupsferðalag kom um
haustið. Kristbjörg og Magni og
ég og Eysteinn, fórum suður til
Barcelona, reyndar sitt í hvoru
lagi, en hittumst þar þó aðeins.
Stefanía og Jóhannes eiga enn
eftir að fara í sitt ferðalag, enda
gafst þeim ekki tími til slíks frá
önnum við búskapinn," segir
Guðleif, sem á von á barni í
þessum mánuði. Hún er önnur
systranna þriggja að eiga barn,
Stefanía á með sínum manni
dótturna Ríkeyju Þöll. -sbs.
Linda Björg og
Lúövík
Gefin voru saman í hjónaband í
Grafarvogskirkju þann 11. janú-
ar sl., af séra Sigurði Arnarsyni,
þau Linda Björg Reynisdóttir og
Lúðvík Alfreð Halldórsson.
Heimili þeirra að Salthömrum
17 í Grafarvogi. (Ljósmyndast.
Mynd, Hafnarfirði.)
Brynhildur og
Sigiirður
Gefin voru saman í hjónaband í
Möðruvallaklausturskirkju í
Hörgárdal þann 22. ágúst á sl.
ári, af séra Svavari Alfreð Jóns-
syni, þau Brynhildur Bjarnadótt-
ir og Sigurður Friðleifsson.
Heimili þeirra er á Möðruvöll-
um 3 í Hörgárdal. (Ljósm.:
Norðurmynd - Ásgrímur.)
Inguun og
Jóhannes
Gefin voru saman í hjónaband í
Krossinum í Kópavogi þann 19.
september á sl. ári, af Gunnari
Þorsteinssyni, þau Ingunn
Smáradóttir og Jóhannes Osk-
arsson. Heimili þeirra er í
Lautasmára 5 í Kópavogi.
(Ljósm.: Ljómyndast. Sigríðar
Bachman.)
Um sóðaskap
Sl/OJMA
ER LIFID
Pjetup St.
Arason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Nú þegar vorar, kemur ýmislegt í ljós á gangstéttunum og í
görðum fólks. Það eru umbúðir utan af drykkjarföngum sem
fleygt hefur verið í vetur og horfið undir snjó. Þá eru sand-
haugar á gangstéttunum sem bárust þangað í snjónum og
hálkunni í vetur.
Reykjavík er sóðaleg borg. Það þarf ekki að ganga lengi
um götur bæjarins til þess að komast að því. Það eru um-
búðabréf utan af sælgæti og rusl á hverju götuhorni. Eftir
hverja helgi eru gangstéttirnar þaktar baukum utan af bjór-
dósum og glerbrotum eftir svallsemi borgaranna. Það kveður
svo rammt að þessari umgengni að jafnvel virðulegustu
hverfi borgarinnar minna á fátækrahverfi stórborgar.
Víða í iðnaðar-
hverfum má sjá
iðnaðarrusl skilið
eftir í hirðuleysi.
Bílhræ sem
grotna niður við
vegakanta, eru
eldd óalgeng sjón.
I kvikmynda-
húsum eru um-
búðir utan af
drykkjarföngum
og poppkorn og
popppokar eins
og hráviður útum
allt, þó það séu
til rusladallar eða
tunnur eru þær
ekkert notaðar.
Fyrir nokkrum
árum fóru kvik-
myndahúsin f
auglýsingaher-
ferð, undir slag-
orði sem var eftir-
farandi „gengurðu svona um heima hjá þér“.
„Umgengni lýsir innri manni," segir gamall málsháttur.
Það má ímynda sér hvernig ástandið væri ef fólk hætti al-
mennt að þrífa sig og gengi jafn hirðuleysislega um sjálft sig
eins og það gengur um umhverfið. Nú er það ekki svo að
þetta séu brjálaðir unglingar sem svona haga sér. Nei, meira
að segja virðulegar frúr gera sig uppvísar af því að kasta frá
sér sælgætisbréfum á götu.
Það er lítið mál að beygja sig í bakinu eftir sælgætisbréf-
um sem Iiggja á götunni eða gangstéttum og henda þeim í
næstu ruslatunnu. Tökum til eftir veturinn, tökum til eftir
sjálfa okkur. Tökum upp ruslið og hendum því í ruslið.
I HVAfl ER Á SEYÐI?
ÁVEXTIRNIR TIL AKUREYRAR
Fjölskylduleikritið Ávaxtakarfan verður
sýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri helg-
ina 17.-19. apríl næskomandi og hefst
miðasala í dag. Yfir tíu þúsund manns
hafa séð leikritið en búið að sýna það 38
sinnum á fjölunum í Reykjavík.
Það eru viðkvæm vandamál á borð við
einelti og fordóma sem er megininntak
leikritsins, en þeim er komið til skila á
skemmtilegan hátt með söngvum, dans
og leik ávaxtanna í ávaxtakörfunni.
Allir í ávaxtakörfunni eru kúgaðir af
Imma ananas, Maja jarðarber er minnst
og verður því fórnarlamb eineltis, þar til
gulrót lendir í körfunni og verður bitbein fordóma þar sem hún er grænmeti og því
annarrar ættar en ávextirnir. Smám saman opnast augu ávaxtanna fyrir því að það er
ekki útlitið sem skiptir máli heldur innrætið.
Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Gunnsteinsson, leikstjóri í símum 899-8221
og 552-5514.
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Jaftirétti til lífs
Fundir verða í kosningamiðstöð Vinstri
hreyfingarinnar - græns framboðs að
Suðurgötu 7, Rvk., miðvikudaginn 7.,
fimmtudaginn 8. og laugardaginn 10.
apríl. Verkalýðsbarátta á villigötum? er yf-
irskrift fundarins 7. apríl og hefst hann
kl. 20.30. Græn hagfræði verður á dag-
skrá 8. apríl kl. 20.30 og 10. apríl verður
rætt um miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði. Fundirnir eru öllum opnir.
Óperukvöld í Salnum
I kvöld kl. 20.30 verður Óperukvöld £
Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs. Þar
verða samsöngsatriði á dagskránni, dúett-
ar og kvintettar. Flytjendur eru Hulda
Garðarsdóttir sópran, Tanje Haugland,
sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzo-
sópran, Tomislav Muzek tenór, Davíð
Ólafsson bass baritón, Sigurður Skagfjörð
Steingrímsson bass baritón. Undirleikari
er Kurt Kopecy sem spilar á píanó.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Borgarafundur á vegum ITC um málefni
eldri borgara veðrur haldinn í Ásgarði í
dag kl. 17.00. Ræðumenn eru alþingis-
mennirnir Sólveig Pétursdóttir, Ögmund-
ur Jónasson, Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis-
ráðherra, en auk þeirra heldur Ólafur
Ólafsson, formaður félags eldri borgara,
erindi á fundinum.
I dag kl. 9.00 verður handavinna, perlu-
saumur og fleira í umsjón Kristínar
Hjaltadóttur. Línudanskennsla, kennari
er Sigvaldi Þorgilsson kl. 18.30.
Félag eldri borgara í Þorraseli, Rvk.
Opið í Þorraseli í dag kl. 13.00 til 17.00.
Handavinna, perlusaumur kl. 13.30.
Kaffi og meðlæti ld. 15.00 til 16.00. Allir
velkomnir.
Fræðslufundur um einhverfu
„Úrræði í grunnskóla fyrir einhverfa nem-
endur. Hver er stefnan í dag?“ er yfirskrift
fundar sem Umsjónarfélag einhverfra
heldur fimmtudaginn 8. apríl kl. 20.00 í
fundarsal Þroskahjálpar, Suðurlandsbraut
22. Gestir fundarins verða Arthúr
Morthens, Eyrún Gísladóttir og Gabriella
Sigurðardóttir frá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur.