Dagur - 14.04.1999, Qupperneq 5
T
Tfc^ur.
LÍFIÐ í LANDINU
Briiðakaiipsnðtt á Þingvöllmii
„Hingað norður fluttum við skömmu eftir brúðkaupið," segir Karen Ingimars-
dóttir, sem hér er ásamt Hlyni Jóhannssyni, eiginmanni sínum.
CLjósmyndarinn: Lára Long.J
„Við kynntumst á Pollinum hér
á Akureyri fyrir tæpum fimm
árum,“ segir Karen Ingimars-
dóttir. Þann 13. júní í fyrrasum-
ar gaf séra Kjartan Orn Sigur-
björnsson Karenu og Hlyn Jó-
hannsson saman í hjónaband í
Dómkirkjunni i Reykjavík, en
þau búa í dag á Akureyri. „Hing-
að norður fluttum \ið skömmu
eftir brúðkaupið, en það kom til
vegna þess að KA vildi endilega
fá manninn minn til að þjálfa í
handbolta. Við ákváðum að slá
til og síðan spilaði líka inní
dæmið að ég er héðan að norð-
an,“ segir Karen.
„Það er gott að vera komin aft-
ur norður, en eftir tæplega ijög-
urra ára búsetu fyrir sunnan eru
þetta hinsvegar nokkur viðbrigði.
Sérstaklega hvað varðar veðrátt-
una, enda var endalaus rigning
hér í fyrra og í sjónvarpinu fylgd-
umst við af mestum spenningi
með veðurfréttunum,11 segir
Karen, sem í dag starfar hjá
Tæknivali hf. á Akureyri. Þau
hjónin eiga soninn Aron Inga,
sem er tveggja ára gamall.
„Eftir brúðkaupið í Dómkirkj-
unni fórum \að í myndatöku og
síðan í brúðkaupsveisluna, sem
haldin var f félagsheimilnu
Garðalundi í Garðabæ. Stóð
veislan fram undir morgun og
síðan var það svítan á Hótel Val-
höll á Þingvöllum, þar sem við
eyddum brúðkaupsnóttinni,"
segir Karen. -SBS.
MIDVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 - 21
Sólveig
og Óli Ágúst
Gefin voru saman í Garðakirkju
á Alftanesi þann 8. ágúst á sl.
ári, af séra Hans Markúsi Haf-
steinssyni, þau Sólveig Níels-
dóttir og Oli Agúst Þorsteinsson.
Heimili þeirra er að Hjarðarhaga
46 í Reykjavík. (Ljósmyndast.
Mynd, Hafnarfirði.)
Andrea
og Bjöm
Gefin voru saman f Dalvíkur-
kirkju þann 11. júlí á si. ári, af
séra Sigríði Guðmarsdóttur, þau
Andrea Waage og Björn Júlíus-
son. Heimili þeirra er að Ein-
holti 3 á Akureyri. (Norðurmy'nd
- Ásgrímur.)
Ásta
og Jörgen
Gefin voru saman í Akureyrar-
kirkju þann 27. júní á sl. ári, af
séra Birgi Snæbjörnssyni, þau
Asta Knútsdóttir og Jörgen Ny-
strand. Heimili þeirra er í
Hágrsten í Svíþjóð. (Norður-
mynd - Asgrímur.)
Um vináttu
SV0J\IA
ER LIFIÐ
Pjetup St.
flrason
skrifar
Pjetur
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Pjetur svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
„Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir,“ segir í lögunum
sem dýrin í Hálsaskógi komu sér saman um á frægri ráð-
stefnu í lok leikritsins, „ekkert dýr má éta annað dýr.“ Þessi
orð hafa hljómað í eyrum þjóðarinnar síðan þjóðleikhúsið gaf
út plötu með þessu frábæra verki Thorbjörns Egners.
Það er mikil dyggð að vera vinur vina sinna, þó enn meiri
dyggð að geta verið vinur óvina sinna. Það er ekkert mál að
fara með innihaldslausar tuggur um vináttu en vinátta er
aldrei traustari fyrr en á hana reynir. Það eru til óteljandi
spakmæli um vináttuna.
„Öll dýrín í skóginum eiga að vera vinir."
Meðan á könnunni ölið er þá vinur er en þegar ölið þrýtur
þá vinurinn fer, svo vísað sé í gamlan þvældan dægurlaga-
texta, sem að einhveijir skallapopparar sungu fyrir all-
nokkrum árum. I Hávamálum er talað um vináttu, „vin sín-
um skal maður vinur vera, þeir og þess vin,“ stendur þar.
Núna þegar stríð geysar í Evrópu og stríðshijáðir íbúar eru
á flótta frá heimilum sínum er ekki úr vegi að rifja upp göm-
ul gildi manngæsku í nafni vináttu, bjóða fram faðminn og
rifja upp hinn Egneríska boðskap um dýr skógarins.
Myndir eftir Sölva Helgason
Fyrirhuguð er útgáfa á bók um myndlist Sölva Helgasonar.
Ólafur Jónsson er væntanlegur útgefandi bókarinnar. Til eru
myndir eftir Sölva Helgason hjá mörgum einstaklingum víða
um Iand. Það væri vinsamlegt ef þeir sem eiga mynd eftir
Sölva settu sig í samband við Ólaf. Hann segist vilja fá nafn,
heimilsfang og síma viðkomandi eiganda og lýsingu á mynd-
verki Sölva (ljósrit ef hægt er). Hægt er að hafa samband við
Ólaf í síma 453 7432 eða með því að senda bréf í pósthólf
7077, 127 Reykjavík.
HVAfl ER Á SEYfll?
UPPSKERUHÁTÍÐ AÐ VORI
Söfnuðir í Kjalarnesprófastsdæmi munu
halda uppskeruhátíð að vori komandi laug-
ardag 17. apríl, í tilefni af því að vetrarstarf
kirkjunnar er senn á enda þetta árið. Geng-
ið verður til guðsþjónustu f Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 13.30 þar sem sérstakt íhugunar-
efni er „Guðs góða sköpun og ábyrgð okk-
ar“. Tónlistarflutningur er í höndum
kirkjukórs Keflavíkurkirkju undir stjórn
Einars Arnar Einarssonar og hafnfirskra
tónlistarmanna. Sr. Ólafur Hallgrímsson,
sóknarprestur á Mælifelli, prédikar út frá
sköpunarsýn ritningarinnar og prestar úr
Kjalarnesprófastsdæmi þjóna.Að helgihaldi
loknu verður boðið upp á hressingu og um-
ræður í Strandbergi, safnaðarheimili Hafn-
arfjarðarkirkju.
Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ
Pálmi Jónsson, yfirlæknir, kynnir rann-
sóknir á vegum Öldrunarráðs íslands um
mjaðmabrot, byltur og orsakir þeirra í Ás-
garði ld. 16.00 í dag. Almenn handavinna
kl. 9.00 í umsjón Kristínar Hjaltadóttur.
Línudans ld. 18.30 kennari er Sigvaldi
Þorgilsson. Kaffistofan er opin frá 10.00-
13.00, það er tilvalið að koma þar við og
lesa blöðin, spjalla við fólk og njóta veit-
inga. Sumarhátið eldri borgara verður
sumardaginn fyrsta, fjölbreytt dagskrá
sem verður nánar auglýst síðar.
Félag eldri borgara Þorraseli
Opið í dag kl. 13.00 til 17.00. Handa-
vinna kl. 13.30. Kaffi og meðlæti frá kl.
15.00 til 16.00.
Myndakvöld Ferðafélagsins
í kvöld ld. 20.30 verður myndakvöld í F.í.
salnum að Mörkinni 6. Fyrir hlé sýnir
Oddur Sigurðsson jarðfræðingur myndir
m.a. af Snæfellsnesi og Vesturlandi, en
nefna má að nýjar ferðir eru á dagskrá
Ferðafélagsins um þær slóðir í sumar.
Eftir hlé sýnir Gerður Steinþórsdóttir
myndir frá Ferðafélagsferðum á Öræfa-
jökul og í Esjufjöll. Kaffiveitingar í hléi.
Löggild próf hjá Alliance Francaise
I apríl og maí verða DELF- og DALF-próf
haldin hjá Alliance Francaise í Reykjavík,
fimmta árið í röð. Þetta eru alþjóðleg próf
í frönsku sem franska menntamálaráðu-
neytið hefur yfirumsjón með. Þeir nem-
endur sem ljúka DELF-prófi öðlast rétt
til inngöngu í franska háskóla. Upplýsing-
ar og innritun í prófin fer fram á skrif-
stofum Alliance Francaise alla virka daga
milli klukkan 15.00 og 18.00
Grafík „Nema hvað!“
Fimmtudaginn 15. apríl opnar Stella Sig-
urgeirsdóttir sýningu í Gellerí „Nema
hvað!“ að Skólavörðustíg 22c. Sýningin
ber yfirskriftina „Líkvaka". Verkin á sýn-
ingunni eru unnin í stálætingu og með
blandaðri tækni. Sýningin er opin föstu-
dag til stunndags frá kl. 14.00 til 18.00.
Akureyrarskáld í Gerðarsafni
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 17.00 verður
upplestur í kaffistofu Gerðarsafns, Lista-
safni Kópavogs á vegum Ritlistarhóps
Kópavogs. Að þessu sinni koma í heim-
sókn og lesa úr verkum sínum þrjú Akur-
eyrarskáld, en það eru þeir Aðalsteinn
Svanur Sigfússon, Jón Erlendsson og Er-
lingur Sigurðarson. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.