Dagur - 15.04.1999, Side 1
FIMMTUDAGUR 15. apríl 1999
2. árgangur- 14. Tdlublað
Suðurlandi helst
vel á sínu fólM
íbúar landsbyggðar-
iimar halda áfram að
streyma til höfuðborg-
arinnar samkvæmt
tölum frá Hagstof-
unni en Suðurlands-
kjördæmi tekst þó
ágætlega að halda í
sitt fólk.
Það virðist ekkert lát vera á
streymi fólks frá Iandsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðið en Suður-
land getur hins vegar unað mun
betur við sinn hlut en aðrir
landshlutar því þar fjölgaði fólki
Iítillega á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs.
Islendingar voru á faraldsfæti
fyrsta fjórðung ársins eins og oft-
ast áður og voru skráðar 12.414
breytingar á lögheimili einstakl-
inga, samkvæmt upplýsingum
Hagstofunnar. Þar af fluttu lið-
lega 7 þúsund innan sama sveit-
arfélags, 3.641 fluttu milli sveit-
arfélaga, rösklega eitt þúsund
manns fluttu til landsins og um
700 frá því.
Sunnlensk og
austuíirsk
sameining
Félag opinberra starfsmanna á
Suðurlandi (FOSS) og Starfs-
mannafélag Hafnar í Hornafirði
munu taka afstöðu til samein-
ingar á næstunni. Formenn fé-
Iaganna hafa lagt þetta til. Kos-
ið verður um sameininguna á
aðalfundi FOSS 19. maí, en
skömmu áður á Höfn.
Starfsmannafélag Selfossbæj-
ar breytti nýlega nafni sínu í
starfsmannafélag Á'rborgar. Að-
alfundur félagsins hefur sam-
þykkt að fara ekki út í viðræður
um sameiningu við FOSS.
Starfsmenn sveitarfélaganna á
ströndinni voru hins vegar inn-
an FOSS og vilja margir vera þar
áfram. Nýir starfsmenn geta
ráðið því hvort þeir séu innan
FOSS eða STÁ, en hafa hins
vegar verið settir inn í STÁ ef
þeir fara ekki fram á annáð. Því
fara nú tvö félög með samnings-
rétt fyrir starfsmenn Árborgar.
Búið er að segja upp starfs-
mönnum Stokkseyrar og Eyrar-
bakka og endurskoða starfssvið
þeirra fyrir endurráðningu. Þyk-
ir sumum sem störf þeirra og
laun muni rýrna nokkuð við þá
breytingu. - FÍA
Fjölmargir samglöddust með Guðna Agústssyni, þingmanni Sunnlendinga, þegar hann hélt upp á fimmtusafmæii
sitt á föstudaginn í síðustu viku. Ræðumenn skjölluðu hann í bak og fyrir og árnuðu honum allra heiiia. Sjá
nánar i opnu blaðsins.
Séra Þórir Jökull
væntanleg-
ur í snmar
53 en 33 fluttu lögheimili sitt til
bæjarins og fækkaði því um 20
manns. Annars staðar í fjórð-
ungnum voru breytingarnar
óverulegar. Það fækkaði um 4 í
Þorlákshöfn en fjölgaði um 5 í
Hveragerði. Á Hvolsvelli fækkaði
um 4 en á Kirkjubæjarklaustri
um 3 og einnig í Reykholti og á
Laugarvatni.
Á Eyrarbakka fjölgaði um 2 og
einnig á Selfossi og einn flutti
lögheimili sitt til Víkur í Mýrdal
fyrsta fjórðung ársins samkvæmt
tölum Hagstofunnar.
Fjölgað um 2,4% á áratug
Sem fyrr sagði fluttu 70 manns
til Suðurlands í fyrra umfram þá
sem fóru á burt, sem samsvarar
0,3% fjölgun. Það fjölgaði hins
vegar meira á nokkrum fámenn-
um þéttbýlisstöðum, t.d. um
5,6% í Þorlákshöfn, 3,2% í
Hveragerði og tæp 3% á Stokks-
eyri. Mest fækkaði hins vegar á
Hellu í fyrra eða um 3,8%.
Á Suðurlandi hefur íbúum
Qölgað um 478 frá árinu 1988
eða 2,4% að því er fram kemur í
tölum frá Hagstofunni. -VJ
Séra Gunnar Björns-
son prestur sem Ieyst
hefur séra Þóri Jökul
Þorsteinsson af á
Selfossi undanfarið,
__ -1 2 f"______ 1
V-*- IJU U lW1 Ulil X • — ,
júní. Þórir Jökull *era Þ°rir
sem verið hefur í . Jökul1
leyfi og starfað í orsteins-
Englandi er vænt- son-
anlegur heim aftur í sum-
ar. I millitíðinni er gert ráð fyrir
að sr. Úlfar Guðmundsson pró-
fastur á Eyrarbakka leysi af á
Selfossi.
Molahaffi
á Þinghorg
Sveitastjórnir Villingaholts-,
Hraungerðis-, Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps hafa skipað við-
ræðunefnd um sameiningu
sveitarfélaga og samstarf. Nú
hafa Hrunamenn bæst í hópinn
og munu aðilar hittast yfir kaffi-
sopa á Þingborg n.k. mánudags-
kvöld. „Þetta eru ekki eiginlegar
sameiningarviðræður, en menn
vilja hittast og ræða málin og
viðra sjónarmið," segir Guð-
mundur Stefánsson,oddviti
Hraungerðihrepps. -FIA.
Afgreiðslu
frestað
Skipulags- og byggingarnefnd
Árborgar frestaði á síðasta fundi
sfnum að taka afstöðu til beiðni
eigenda Menams um stækkun
veitingastaðarins. Á fundinum
voru kynntar undirskriftir um
80 íbúa í hverfinu sem leggjast
gegn stækkuninni. Þeir óttast
m.a að staðurinn verði notaður
sem skemmtistaður með tilheyr-
andi ónæði frameftir nóttu og
bílaumferð.
Bárði Guðmundssyni bygging-
arfulltrúa var falið að afla frek-
ari gagna og í framhaldi af því er
. ætlunin að koma á fundi með
íbúum hverfisins og eigendum
Menam „og athuga hvort það er
einhver grundvöllur til sátta.
Það verður væntanlega einhvern
tíma í næstu viku og á meðan er
afgreiðslunni frestað," segir
Bárður.
Koriim styrktur
Bæjarráð Árborgar samþykkti á
dögunum að styrkja kór Fjöl-
brautaskóla Suðurlands til utan-
farar. Kórinn er að fara í söng-
ferð til Þýskalands í sumar, en
honum hefur verið boðið að
syngja á kirkjulistarhátíð í Stutt-
gart.
Fjölgar í strjálbýlinu
Það fluttust nærri 600 manns til
Reykjavíkur og nágrennis en í
öðrum landshlutum fækkaði
nema á Suðurlandi og Suður-
nesjum. Það fjölgaði um samtals
18 manns á Suðurlandi íyrstu
þrjá mánuði ársins en allt árið í
fyrra fjölgaði um 70.
Það er þó að sjálfsögðu mis-
jafnt eftir stöðum hvort fækkar
eða fjölgar. Athygli vekur að
samkvæmt skrám hagstofunnar
fjölgar um hvorki fleiri né færri
en 30 manns í strjálbýlinu á
Suðurlandi en undanfarin ár
hefur stöðugt fækkað í sunn-
lenskum sveitum. Fyrsta árs-
fjórðunginn í ár fluttust 95
manns í sveitina en 65 fóru í
burtu. Einnig vekur athygli
hversu fjölgar á Hellu. Þangað
flutust fjórtán manns fyrsta árs-
fjórðunginn en enginn fór í
burtu. Verður það að teljast góð
búbót í ekki fjölmennari bæ, en
í Rangárvallahreppi öllum búa
um 800 manns.
Fækkar mest í Eyjum
Fækkun á Suðurlandi var mest í
Vestmannaeyjum. Þaðan fluttust
Frá Eyrarbakka.