Dagur - 29.04.1999, Side 2
2- FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1999
ro^w
SUÐURLAND
L
Vel heppnaö
mennuigarátah
Samvinnuverkefni Bæjar- og
héraðsbókasafnsins í Arborg og
Sundhallar Selfoss um páskana
sem kallað var Ljóð í lauginni
tókst einstaklega vel og jókst að-
sóknin að sundlauginni og söfn-
unum gríðarlega meðan á því
stóð. Sundlaugargestum var sem
kunnugt er boðið upp á að Iesa
ljóð í lauginni og í tengslum við
það voru kynnt söfn í Arborg.
Þorlákur Helgason, fræðslu-
stjóri Árborgar, segir að um 3000
manns hafi komið í sundlaugina
um páskana. Um 300 manns
hafi heimsótt Byggðasafn Arnes-
inga í Húsinu á Eyrarbakka á
einum degi en áður hafi mest
komið 120 manns á einum degi.
Fjölmargir hafi einnig lagt leið
sína í Sjóminjasafnið á Bakkan-
um.
„Ég bjóst ekki við að fá upp í
kostnað á fyrsta ári en við höfð-
um það og fengum beint tekjur
upp í þetta,“ segir Þorlákur.
Hann segir að ekki aðeins hafi
söfnin og sundlaugin notið góðs
að þessu menningarátaki heldur
hafi til dæmis verið straumur af
fólki í Kaffi Lefólí á Eyrarbakka
um páskana. Þangað komu
hvorki fleiri né færri en eitt þús-
und manns um páskahelgina.
Menningarnefnd Arborgar
hefur Iýsti ánægju sinni með
þetta framtak því í raun er það
kynning fyrir allt sveitarfélagið.
Þorlákur segir þessi góðu við-
brögð mjög ánægjuleg og hvatn-
ing til þess að halda áfram á
sömu braut. Hann segir margt í
bígerð í menningarmálunum á
næstunni. Stefnan sé að skapa
Árborg menningarlega og
skemmtilega ímynd. — VJ
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1983-2.fi. 01.05.99 -01.11.99 kr. 84.328,30
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Sýningu nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Hárinu hefur verið vei
tekið en síðustu sýningar verða á laugardaginn.
Háríð emi
á fjöluniun
Sýningu Ieikhóps nemendafélags
Fjölbrautaskóla Suðurlands á
söngleiknum Hárinu var afar vel
tekið og verður hún því einnig á
fjölunum í ófullgerðum leikhús-
og bíósal í húsi Hótel Selfoss um
helgina.
Það eru 60 krakkar sem vinna
að sýningunni. Bæði er það stór
hópur sem kemur fram í henni og
svo vinna þau við gerð Ieikmynd-
ar, ljósa- og tæknivinnu, hár-
greiðslu og förðun.
Hárið var frumsýnt að kvöldi
sumardagsins fyrsta og einnig
voru sýningar um síðustu helgi.
Aðsóknin var það góð að ekki var
hægt að láta við svo búið standa
og verður söngleikurinn því sýnd-
ur kl. 20:00 á laugardaginn kem-
ur og einnig verður miðnætursýn-
ing. Það verður allra síðasta sýn-
ing því prófannir heQast hjá nem-
endum í maí.
Með aðalhlutverk fara Leifur
Viðarsson, Asgerður E. Jónasdótt-
ir, Sjöfn Gunnarsdóttir, Margrét
Gunnarsdóttir, Marínó Fannar
Garðarsson, Eyjólfur Þorkelsson
og Helgi Valur Ásgeirsson. Fleiri
fóru með einsöngshlutverk og
töluverða rullu í sýningunni.
Krakkarnir þóttu standa sig vel á
forsýningu sem fréttaritari Dags
smellti sér á. Aðalleikararnir léku
prýðilega og söngurinn var eftir-
takanlega góður. Fyrir mistök
ljósameistara fengu forsýningar-
gestir aðeins lengri lýsingu á nekt-
arsenuna en sýningargestir fengu.
(Sá fékk að heyra’ða niðri í hléi!).
Leikstjórinn Benedikt Axelsson,
BAX, er uppalinn í Leikfélagi Sel-
foss. Hann hefur leikið í mörgum
sýningum þar, en Ieikstjóraferill-
inn er öllu styttri. Þá er Benni raf-
virki, en hann fór snemma að
sinna tæknimálum hjá leikfélag-
inu og sjá um ljós, hljóð og leik-
mynd. Hefur hann starfað á því
sviði bæði hjá smáum Ieikhópum
og atvinnuleikhúsunum. Hann er
Iíka hönnuður bæði sviðs og Iýs-
ingar í þessari sýningu. — FIA.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. apríl 1999
SEÐLABANKIÍSLANDS
Lóa á Myiidlistarvori
Lóa Sigurðardóttir mun opna sýn-
ingu næstkomandi laugardag kl.
14.00 á Myndlistarvori íslands-
banka í Eyjum 1999. Þettaersíð-
asta sýningin í röð fimm sýninga
sem staðið hafa frá því í byrjun
mars. Lóa er yngst þeirra sem þar
hafa sýnt og er þetta jafnframt
hennar fyrsta einkasýning á ís-
landi, en hún hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum erlendis.
Lóa mun sýna 20 ný málverk og
nokkur eldri verk frá 1997 og
1998, en auk þess mun hún verða
með gjöming á sýningunni, þar
sem hún mun mála eina mynd.
Utsflla - PELSINN - Utsalo
Verðdæmi:
Minkapels
Þvottabjarnarpels
Pelsfóðurskápur
verð áður kr. 695
verð áður kr. 385
verð áður kr. 95
DUS.
DÚS.
DÚS.
verð nú kr. 399 þús.
verð nú kr. 199 þús.
verð nú kr. 59 þús.
50% afsláttur af öllum fatnaði
vIsa^ C E y Raðgreiðslur í 36 mánuði
PEISINN
Kirkjuhvoli,
Kirkjutorgi 4,
símí 552 0160.