Dagur - 29.04.1999, Qupperneq 4

Dagur - 29.04.1999, Qupperneq 4
é-FIMMTUDAGVR 29. APRÍL 1999 SUÐURLAND Fjölmargir heimsóttu Garðyrkjuskóiarm í Hveragerði á 60 ára afmæli skóians og þar á meðal Úlafur Ragnar Grímsson, forseti ísiands. Fmuntán þúsimd gestir 1 garðyrkjuua Það var miMð um dýrðir í Garðyrkju- skólauum íini helgina þegar haldið var upp á 60 ára afmæli skól- ans. Forseti íslands var meðal 15 þúsund gesta í afmælinu. Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykj- um í Olfusi hélt upp á 60 ára af- mæli sitt með 4 daga hátíð sem hófst á sumardaginn fyrsta og lauk á degi umhverfisins á sunnudag. Opið hús var í Garð- yrkjuskólanum og nemendur sýndu gestum skólann og kynntu nám sitt og verkefni. Þá sýndu nokkur fyrirtæki úr græna geiranum vörur sínar og þjón- ustu og myndlistarsýning var fíka á staðnum. Á föstudag heimsótti forseti fslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, staðinn ásamt þing- mönnum og þingmannsefnum Sunnlendinga. Var forsetinn mjög áhugasamur og tók sér góðan tíma á staðnum. Á sunnu- dag mætti umhverfisráðherra og var viðstaddur þegar samstarfs- samningur um umhverfisvernd og sjálfbæra þróun var undirrit- aður milli Garðyrkjuskólans, Hveragerðisbæjar, Ölfushrepps, grunnskóla beggja sveitarfélag- anna, Heilsustofnunar NLFI, Dvalarheimilisins Áss og Ölfus- borga. Skólanum voru færðar gjafir frá Hveragerðisbæ, Ölfusi og Bændasamtökunum, tölvur og ýmis verkfæri. Fimmtán þúsund manns heimsóttu skólann þessa 4 daga og er mikil ánægja meðal nem- enda og starfsfólks skólans með hvernig til tókst. Nú eru nem- endur hinsvegar önnum kafnir við að lesa undir og taka próf. -flA. Friðland fuglanna íbúar Árborgar voru hvattir til að hvíla bíla sína og þjálfa fæt- urna á degi umhverfisins sl. sunnudag. Jafnframt var skipu- lögð útivist svo sem silungsveiði, fræðslu- og örnefnagöngur á þremur stöðum, gönguferð um Hellisskóg, sem er upprennandi útivistarsvæði fyrir utan á, golf- kennsla og ’skokkhópar frá Styrk. Þátttaka í þessu var sæmileg, en lítil nýting á ókeypis rútuferðum milli þéttbýlisstaðanna í Árborg. Tilgangurinn var að vekja athygli fólks á mengun frá bílum. Þótt sú mengun fjúki fljótt burt frá vitum okkar, er hún innlegg í mengun umhverfisins og á henni bera allir ábyrgð. Ekki er gott að segja til um hvort bíla- umferð minnkaði, en mikil um- ferð ferðafólks er um helgar og svo voru Ifka margar fermingar á sunnudag. Ýmsir létu þó daginn verða sér til áminningar og brugðu undir sig tveimur jafn- fljótum þegar þeir þurftu að skjótast bæjarleið. Á mánudagskvöld var opinn kynningarfundur um friðland fugla og endurheimt votlendis. Það er samstarfsverkefni Fugla- verndurarfélagsins og Árborgar og þar áður Eyrarbakkahrepps. Fyrirlestur var á vegum Fugla- verndunarfélagsins. Um 40 manns sóttu fundinn og er það betri mæting en á mörgum pólit- ísku fundunum. -FIA. Glæsileg fraiiunistaða Tveir nemenaur Fjölbrautaskóla Suðurlands fengu á dögunum sérstaka viðurkenningu í Hugvísi hugmyndasamkeppni ungs fólks í vísindum og tækni. Það voru þeir Jens Hjörleifur Bárðarson og Stefán Jökull Sigurðsson sem unnu verkefnið „Minnismálmar.“ Auk þess fékk Fjölbrautaskól- inn sérstaka viðurkenningu fyrir námsáfangann Róbót 112 sem kenndur er við skólann. Nemend- ur þar eru Grétar Karl Guð- mundsson, Sigurður Þór Haralds- son, Einar Örn Ólafsson og Guð- mundur Ágúst Ólafsson og Reynir Hugason er leiðbeinandi þeirra. Sigurður Sigursveinsson skólameistari tók við viðurkenningunni við athöfn í Hinu Húsinu á mánudaginn var. Atviimuþróimar- sjóður útdeilir styrkjuiii Stjórn Atvinnuþróunarsjóðs sam- þykkti á síðasta fundi sínum að veita eignarhaldsfélaginu Tindfjöllum í Fljótshlíðarhreppi 250 þúsund króna styrk til þróunarverkefnis í ferðaþjón- ustu. Félagið sótti um hálfa milljón króna. Einnig var samþykkt að veita Berglind og Denis Pedersen í Rang- árvallahreppi 200 þúsund króna styrk til markaðsetninga á hunda- sleðaferðum á hálendinu. Þau höfðu sótt um 300 þúsund krónur. Ferðamálasamtök Suðurlands sóttu um styrk að upphæð krónur 400 þúsund og samþykkti stjórnin það. Stjórnin samþykkti einnig að lána Gunnari Árnasyni Hvoli II í Ölfusi eina og hálfa milljón gegn tryggu veði til að stækka minka- bú. Einnig var samþykkt að lána Birgi Oddsteinssyni í Hveragerði 350 þúsund krónur gegn tryggu veði til að setja á stofn reiðhjóla- leigu. Lelkskóliim í gnmnskólaim Leikskólinn á Eyrarbakka verður rekinn í skólahúsnæði grunnskól- ans á Eyrarbakka frá júní til miðs júlí. Verið er að byggja við leik- skólann og samkvæmt fjárhagsáætlun Árborgar á að verja 36 millj- ónum króna til þess á þessu ári. Golfklúbburiim sækir iim land Golfklúbburinn á Hellu hefur farið fram á það við Rangárvalla- hrepp að fá land til leigu á Strönd til langs tíma. Þar er um að ræða gömlu túnin á Strönd norðan þjóðvegar og austan Kirkjubæjarvegar. Hreppsnefnd tók vel í erindið að því er fram kemur í fundagerð en segir að vegna aðstæðna sé ekki hægt að ganga til samninga. Reiðhjólaleiga verður væntan- iega rekin í Hveragerði í sumar. k SUÐURLANDSVIÐTALIÐ Armann Höskuldsson forstöðumaðurNáttúrustofu Suðurhnds Untiiðaðþvíaðsameim Náttúnistofu Suðurlands og Kirkjubæjarstofu og mun Kirkjubæjarstofa þá heyra undirNáttúrustof- una. Hún ermeðhöfuð- stöðvar í Vestmannaeyj- um og hefurrekiðöfluga rannsóknarstarfsemi. Eflir starfsemiiia og tengslin við kjördæmið - Hvenær má vænta niðurstöðu í þessu satneiningarmáli? „Eg vonast til að niðurstaða yerði orðin klár í þessu máli í haust. .Eg vil samt benda á að á áðalíundi SASS 19. til 20. mars sl. var lýst yfir stuðningi við til- lögu starfshóps sem stjórn SASS skipaði varðandi málefni Nátt- úrustofu Suðurlands og Kirkju- bæjarstofu. Fundurinn vísaði málinu til stjórnar SASS með það að markmiði að leita eftir endanlegu samþykld aðildar- sveitarfélaga SASS. Þar inni er meðál annars að fá jákvæða um- sögn sveitarfélaga á Suðurlandi við þessum samruna. I fram- haldi af því getur SASS gengið að samningaborði við Vest- mannaeyjabæ og umhverfisráðu- neytið." - Hver er hugsunin á hak við þennan samruna? „Hann er sá að Náttúrustofan verði rekin á kjördæmagrunni en snúist ekki bara um Vest- mannaeyjar sérstaklega. Með það í huga er mikilvægt að allir taki þátt í rekstrinum, en ekki eingöngu Vestmannaeyingar. Reksturinn hefur verið mjög góður og það má alveg koma: fram að Vestmannaeyingar hafa staðið sig mjög vél í uppbygg- ingu stofunnar, éins og í öllu varðandi Háskólasetrið. Það sem felst í þessum samruna. er að Náttúrustofa mun yfirtaka rekst- ur Kirkjubæjarstofu. Við mynd- um einnig ráða þangað starfs- mann sem væri sérfræðingur á einhverju tilteknu sviði náttúnb fræða. Síðan mun Kirkjubæjar- stofa verða rekin í nafni Nátt- úrustofu Suðurlands, en þó má vænta þess að fleiri aðilar komi að starfseminni. Hér í Eyjum eru engin náttúruverndarsvæði og menn haft nokkurn andvara á sér varðandi staðsetningu Náttúrustofu í Vestmannaeyjum og þar af leiðandi að náttúru- verndin gæti komið að þessu .i i_____ með fjármagn. Það er vitað að ákveðin einangrun fylgir því að hafa Náttúrustofu Suðurlands í Eyjum. Þess vegna er lykilatriði að éfla tengslin við Súðurland, og um leið væri hægt að sækjast eftir fjárstuðningi frá öðrum stofnunum í Reykjavík eins og til dæmis Náttúruvernd ríksins og setja upp sameiginlegar verk- áætlanir með öðrum stofnunurrt þar. Nú þegar eru hér til staðar verkáætlanir sem snúa að Vest- mannaeyjum. Hins vegar er erf- iðara fyrir mig að setja upp sam- eiginlegar verkáætlanir um Suð- urland við Reykjavík vegna stærðar hennar og áhrifa. Hins vegar má benda á að Sunnlend- ingar eru jákvæðari gagnvart staðsetningu Náttúrustofunnar í Vestmannaeyjum heldur en Reykvíkingar. Með samrunanum erum við hins vegar komnir með útibú og þar með grundvöll fyrir því að efla starfsemina og tengslin við kjördæmið." Hvaða hlutverki mun Kirkjubæjarstofa gegna við þennan samruna? „I upphafi var þetta sem eins konar mótvægi við Náttúrustofu Suðurlands, en síðar kemur á daginn að í lögum er ekki hægt að hafa nema eina slíka rann- sóknarstofnun í hvéijú kjördæmi sem hefur ríkisstyrk. Þar af leið- andi dettur botninn úr Kirkju- bæjarstofu, en með því að gera hana að útibúi frá okkur setjum við botninn í hána aftur og get- um séð um reksturinn. Af því að ekki var hægt að fá ríkisstyrk vegna Kirkjubæjarstofu, var ekki heldur hægt að byggja hana upp sem rannsóknarstofu. Þess vegna var farin sú leið að byggja hana upp sem menningarsetur. I framtíðinni verður Kirkjubæjar- stofa framlenging á rannsóknar- armi Náttúrustofú'Suðurlands, en mun einnig áfram sinna sínu menningarhlutverki á Kirkju- bæjarklaustri." -BEG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.