Dagur - 08.05.1999, Page 8

Dagur - 08.05.1999, Page 8
VIII -LAVGARDAGUR 8. MAÍ 1999 Ð^tir MINNINGARGREINAR Fermiitgar sunnu- daginn 9. maí Þorlákskirkja Ferming kl. 14.00 Fermd verða: Egill Jónasson, Eyjahrauni 2 Kristbjörg Helga Ingvarsdóttir, Oddabraut 24 Sigurbergur Vigfússon, Lýsubergi 12 Ævar Örn Úlfarsson, Heinaberg 17 Álft ártungukirkj a Ferming kl. 14:00 Fermd verður: Helga Björk Pedersen, Alftártungukoti Kirkjustarf Sunnudagur 9. maí Akureyrarkirkja. KA-guðsþjónusta kl. 14. KA-kórinn syngur og KA-félagar aðstoða við messugjörð. Jó- hannes Bjarnason, kennari, predikar. KA- kaffisala í Safnaðarheimilinu eftir guðsþjón- ustu. Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyrar- kirkju kl. 17. Glerárkirkja. Bænadagur kirkjunnar. Messa verður kl. 14. Bænarefni: Friður og sátt á milli manna og þjóða, kynþátta og trúarbragða. Æðruleysisguðsþjónusta kl. 20:30. Prest- þjónustu annast sr. Jónína Elísabet Þor- steinsdóttir og sr. Gun'nlaugur Garðarsson. Tónlist annast þau Inga Eydal, Snorri Guð- varðarson, Viðar Garðarsson og Hjörtur Steinbergsson. Almennur söngur og fyrir- bænir. Allir hjartanlega velkomnir. Sr. Gunn- laugur Garðarsson. Kaþólska kirkjan, Eyrarlandsvegi 26, Ak- ureyri. Messa laugardaginn 8. maí kl. 18. Messa sunnudaginn 9. mal kl. 11. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10, Ak- ureyri. Farið í Kjarnaskóg með sunnudagaskólann kl. 16. Almenn samkoma fellur niður. Heim- ilasamband mánudag kl. 15. Síðasti fundur vetrarins. Árbæjarkirkja. Guðsþjónusta á bænadegi þjóðkirkjunnar kl. 11 árdegis. Organleikari: Pavel Smid. Sérstaklega beðið fyrir friði á Balkanskaga. Prestarnir. Breiðholtskirkja. Mæðra- og bænadagurinn. Messa með alt- arisöngu kl. 14 í umsjá Kvenfélags Breið- holts. Guðrún K. Þórsdóttir, djákni, prédikar og kvenfélagskonur lesa ritningarlestra. Kaffisala kvenfélagsins að lokinni messu í safnaðarheimili kirkjunnar. Organisti Ðaniel Jónasson. Gísli Jónasson. Digraneskirkja. Kl. 11 messa. Prestur sr, Magnús Björns- son. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Léttar veitingar eftir messu. Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Fljartarson. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tima. Umsjón: Hanna Þórey Guð- mundsdóttir og Ragnar Schram. Prestarnir. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17.30. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á mánudögum kl. 20.30. Bænastund og fyrir- bænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti bæna- efnum í kirkjunni. Grafarvogskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Anna Sigríður Páls- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur, stjórnandi: Hörður Bragason. Prestarnir. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 567-9070. Æskulýðsstarf fyrir 16-18 ára kl. 20-22. Æskulýðsstarf í Engjaskóla fyrir 9.-10. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Messa kl. 11. Sr. Iris Kristjánsdóttir þjónar. Sr. Hjörtur Hjartarson prédikar. Jógvan Purkhus kynnir starfsemi Gídeonfélagsins og Gídeonfélagar lesa ritningarlestra. Eva Dögg og Hulda Björk Sveinsdætur syngja tvísöng. Félagar úr kór kirkjunnar leiða safn- aðarsöng. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Aðalsafnaðarfundur Hjallasóknar að messu lokinni. Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30. á mánudögum. Kópavogskirkja. Vegna messuheimsóknar kór Kópavogs- kirkju, organista og sóknarprests til Blöndu- óss og þátttöku í guðsþjónustu þar kl. 14, fellur guðsþjónusta niður í Kópavogskirkju en kirkjan verður opin á guðsþjónustutíma. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Seijakirkja. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Irma Sjöfn Óskars- dóttir prédikar. Áskirkja Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigur- þjörnsson. Bústaðakirkja Barnamessa kl. 11. Foreldrar hvattir til þátt- töku með börnunum.Guðsþjónusta kl. 14. Lögreglumessa. Lögreglukórinn syngur. Prestur sr. Kjartan ðrn Sigurbjörnsson. Tón- leikar Kirkjukórs Bústaðakirkju kl. 17:00. Fjölbreytt tónlist. Einsöngvarar Anna Sigríðir Helgadóttir og Hanna Björk Guðjónsdóttir. Bjöllukór Bústaðakirkju leikur, ásamt hljóð- færaleikurum. Stjórnandi Guðni Þ. Guð- mundsson. Dómkirkjan Vorhátíð Dómkirkjunnar verður í Frikirkjunni í Reykjavík kl. 14. Hátíðin hefst með fjöl- skylduguðsþjónustu, þar sem börn i TTT- starfi sýna leikþátt. Það kemur skemmtileg- ur gestur úr Brúðubílnum til guðsþjónust- unnar. Einnig kemur Heiðar Guðnason, lög- regluþjónn í heimsókn. Að lokinni guðsþjón- ustu verður farið í rútu að Reynisvatni og þar heldur hátíðin áfram. Prestur sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Elliheimilið Grund Guðsþjónusta kl. 10:15. Prestur sr. Lárus Halldórsson. Organisti Kjartan Ólafsson. Grensáskirkja Vorferð sunnudagaskólans kl. 10:30. Guðs- þjónusta kl. 14. Athugið breyttan messu- tíma. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Barna- kór Grensáskirkju syngur undir stjórn Mar- grétar Pálmadóttur. Organisti Árni Arinbjarn- arson. Kaffisala Kvenfélags Grensássóknar að guðsþjónustu lokinni. Sr. Ólafur Jó- hannsson. Hallgrímskirkja Messa og barnastarf kl. 11. Hópur úr Mótettukór syngur. Organisti Hörður Áskels- son. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Landspítalinn Messa kl. 10. Sr. Ingileif Malmberg. Háteigskirkja Messa kl. 11. Ath. breyttan messutíma. Organisti Jakob Hallgrímsson. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Langholtskirkja Kirkja Guðbrands biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef- ánsson. Eftir guðsþjónustuna verður farið í leiki og grillað. Laugarneskirkja Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laug- arneskirkju syngur. Organisti Gunnar Gunn- arsson. Prestur sr. Bjarni Karlsson.Kyrrðar- stund kl. 13 í Dagvistarsalnum Hátúni 12. Samveran er ætluð íbúum Hátúns 10 og 12. Kvöldmessa kl. 20:30. Kór Laugarneskirkju syngur. Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leikur frá kl. 20. Prestar sr. Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Neskirkja Guðsþjónusta kl. 11 í safnaðarheimilinu. Ath. tDreyttan messutíma. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Organisti Reynir Jónasson. Seltjarnarneskirkja Messa kl. 11. Mæðradagurinn. Kór Seltjarn- arneskirkju syngur. Organisti Sigrún Stein- grímsdóttir. Prestur sr. Guðný Hallgrims- dóttir. Óháði söfnuðurinn Guðsþjónusta kl. 14. Skólakór Landakots- skóla og Barnakór Háteigskirkju syngja saman. Veislukaffi fyrir ný safnaðarsystkini. Stokkseyrarkirkja. Messa kl. 11. Ferming. Sóknarprestur. Kjartan Magnússon og Helga Sigmarsdóttir Kjartan Magnússon f. 12.02.11, d. 15.04.99. Bóndi, Mógili, Svalbarðsströnd. For- eldrar Magnús Sölvason og Halldóra Þorsteinsdóttir. Helga Sigmarsdóttir f. 03.11.12, d. 04.04.99. Hús- freyja, Mógili, Svalbarðs- strönd. Foreldrar Sigmar Jó- hannesson og Sigurlaug Krist- jánsdóttir. Böm: Kristján, smiður. Kvænt- ur Ellen Hákanson. Unnur Gigja, tónlistarkennari. Gift Roar Kvam. Halldóra Mary, bóndi. Gift Páli Heiðari Hart- mannssyni. Barnabörnin eru sex og barna- barnabarn eitt. Kjartan og Margrét voru jarð- sett þriðjudaginn 28. apríl s.l. í Svalbarðskirkju á Svalbarðs- strönd. Kæra frænka Helga Sigmars- dóttir frá Mógili á Svalbarðs- strönd er látin. Hún kvaddi þetta jarðlíf á sólfögrum páskadegi, jafn kyrrlátt og hljótt eins og hún lifði. Eg var smástelpa þegar ég kom að sunnan í heimsókn í Mó- gil að beiðni föður Helgu, hann var ekkjumaður eftir Iangömmu- systur mína og var ég látin heita í höfuðið á konu hans. Mér var vel tekið í Mógili og þau heiðurs- hjón Helga og Kjartan eru í mín- um huga amma og afi. Amma í Mógili var mikill dýravinur og henni var blómarækt afar hug- leikin, manni virtist alltaf sem það væri sumar í stofunni hjá þeim og blómalykt angaði um allt bæði úti og inni. Mér er efst í huga á þessari kveðjustund innilegt þakklæti til ömmu í Mógili fyrir alla hlýjuna og notalegheitin sem hún sýndi mér og mínum. Þakklæti til þeirra beggja fyrir að leyfa mér að eiga stað hjá þeim og fyrir að vera jafnmikilvæg fyrir mig og börnin mín, eins og raunveruleg amma og afi. Guð blessi minningu Helgu og gæti fólksins hennar alls. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. * * * Kjartan afi í Mógili, lést að Hjúkrunarheimilinu Seli hér á Akureyri að kvöldi fimmtudags- ins 15. apríl. Hann var stór hluti af Iífi mínu, rétt eins og ekkert væri sjálfsagðara en að hafa litlar frænkur konu sinnar í fóstri, ekki bara á sumrin heldur seinna árið um kring. Það var fátt sem togaði mig meira burt frá ástríku heim- ili foreldra minna, en hugsunin um Mógil, sólina sem ávallt skein í Eyjafirði, trésmiðalyktin og fjósalyktin af Kjartani, ekkert síður en blómaangan og köku- lykt, sem aldrei vantaði í bæinn. Kjartan leyfði mér að dinglast á eftir sér og fræddi mig um lands- ins gagn og nauðsynjar. Hann var upptekinn maður hreppstjóri, meðhjálpari, bóndi og smiður en átti þó ávallt stund fyrir fólkið sitt. Það er varla hægt að minn- ast Kjartans án þess að nefna Helgu í sama mund svo samrýmd voru þau hjónin, og er það Ijúf- sárt að horfa á eftir þeim svo til samtímis yfir móðuna miklu. Maður ímyndar sér þau leiðast hönd í hönd, afi sjáandi og amma léttfætt, laus við kuldann og veturinn inn í hið eilífa sum- ar. Og tónlistin hljómar, öll sú tónlist sem þeim þótti svo gott að hlusta á. Ekki síst hljómar heim- ilisfólksins, sem æfði sig á píanó og fiðlu, kynslóð eftir kynslóð. Góðri ævi góðs manns er lokið og kveð ég Kjartan afa í Mógili með innilegri hlýju, þökk og virð- ingu. Égfel iforsjá þtna, Guð faðir sálu mtna, því nú er komin nótt. Um Ijósið lát mig dreyma ag Ijúfa engla geyma, öll bömin þín, svo blundi rótt. Sigurlaug Margrét K. Jónsdóttir Sviplegt andlát Margrétar hálf- systur okkar þ. 25. apríl kom eins og reiðarslag yfir okkur systkinin frá Bökkum. Við hittumst síðast íyrir rétt rúmum mánuði er við fylgdum föður okkar til grafar og þrátt fyrir raunalegt tilefni áttum við góða stund saman systkinin að lokinni athöfn. Síst grunaði okkur að þar ættum við okkar hinstu stund með Möggu, svo full af lífi og krafti sem hún var þá. Hún var elsta barn móður okkar en ólst ekki upp með okk- ur hinum, þar að baki lá rauna- saga sem aldrei var rædd á okkar heimili. Sem börn höfðum við lítil kynni en eftir því sem árin liðu varð sambandið sífellt meira og nánara og okkur öllum til mikillar ánægju. Þegar við bugsum um Möggu systur detta okkur fyrst í hug orðin „glöð og góð“, þau lýsa henni betur en flest annað. Það var hreinlega mannbætandi að vera í návist hennar. Við gátum rætt um alla skapaða hluti við hana og víðsýni hennar og ótrú- leg kímnigáfa gerðu hvert samtal sérstakt. Við munum seint gleyma dillandi hlátri hennar á góðum stundum og rfkri samúð ef einhver átti bágt. Hún var Ijóðelsk og tónelsk og oft var sungið saman. Hún hringdi stundum ef hún var að rifja upp eitthvert lag og þá var sungið frá báðum endum línunnar og hleg- ið og skrafað á milli. Magga var mannvinur og við vitum að margir áttu henni gott að gjalda. Hún uppskar líka á þann hátt sem best bæfði henni, með vináttu og virðingu fjöl- margra. Hún var mikill dýravin- ur og fádæma góð við allar skepnur. Hún gaf smáfuglunum og hröfnunum, dekraði bestana sína svo að líklega hefur verið ill- mögulegt að temja þá og allir sem til þekkja vissu hvílíka of- urást hún hafði á kettinum sín- um honum Nikulási og síðar hundinum Káti Kela sem nú saknar fóstru sinnar sárt. Við minnumst ljúfra stunda er við sátum með henni í litlu íbúð- inni hennar heima á Löngumýri með eitthvað gott í glasi eða súkkulaði á borði og hlustuðum á góða tónlist langt fram eftir nóttu. Hún lagði sig fram um að kynnast börnum okkar og barna- börnum og nú minnast þau góðr- ar frænku sem alltaf var gaman að hitta. Við eigum erfitt með að sætta okkur við andlát hennar en vit- um að vegna sterkrar trúar henn- ar og manngæsku hefur hennar verið þörf í landi eilífðarinnar, þar mun hún eiga góða heim- komu. Við minnumst hennar með virðingu og kærleika. Systkinin frá Bökkum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.