Dagur - 11.05.1999, Blaðsíða 8
8 - I’RIDJUDAGU II 11. MAÍ 199 9
FRÉTTASKÝRING
Talsmeim stjómmála-
ílokkaima bera sig all-
ir vel eftir kosningar
og segjast iina við sitt
en eru auðvitað misá-
nægðir með úrslitin.
Kosningarnar á Iaugardaginn
voru um margt sögulegar. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 40,7% at-
kvæða og var það í fyrsta sinn í
aldarfjórðung sem flokkurinn fær
yfir 40% fylgi. Það verður að telj-
ast nokkurt afrek að bæta við sig
fylgi eftir stjórnarsetu en það hef-
ur Sjálfstæðisflokkurinn reyndar
gert áður bæði 1956 og 1963.
Flokkurinn bætti allstaðar við sig
fylgi nema á Vestfjörðum og ljóst
að þar hjó fyrrverandi varaþing-
maður flokksins og Ieiðtogi
Frjálslyndra nokkurt skarð. Mest
varð fylgisaukningin á Reykjanesi
eða 5,5%. Alls hefur flokkurinn
26 þingmenn, bætti við sig ein-
um.
Mest tap hjá Halldóri
Framsóknarflokkurinn græddi
ekki á samstarfinu við sjálfstæðis-
menn frekar en fyrri daginn, tap-
aði 4,9% og fékk 18,4%. Flokkur-
inn tapaði allstaðar fylgi nema á
Vestíjörðum þar sem Kristni H.
Gunnarssyni og félögum tókst að
bæta við 3,3% og á Suðurlandi
hélt flokkurinn sínu. Fylgistapið
var mest á Austurlandi, kjördæmi
formanns flokksins, eða 8,5% og
á Norðurlandi vestra, kjördæmi
félagsmálaráðherra, eða 8,4%.
Framsóknarþingmennirnir eru
nú 15 og þar af eru 2 jöfnunar-
menn en það hefur ekki gerst
áður.
Stór sigur Steingríms
Vinstri hreyfingin grænt framboð
vann stóran sigur í þessum kosn-
ingum og hlaut 9,1%. Það er með
því mesta sem nýtt framboð hef-
ur fengið á lýðveldistímanum en
þó ekki met því Borgaraflokkur-
inn fékk 10,9% 1987. Sætastur
varð sigurinn í kjördæmi for-
manns flokksins, en Steingrímur
J. Sigfússon og félagar höluðu
inn hvorki meira né minna en
22% atkvæðanna og 2 þingmenn.
Vinstri grænir eiga alls 6 þing-
menn en í þingflokki óháðra sem
myndaður var síðasta haust voru
5 þingmenn og reyndar 6 í Iokin
eftir að Guðrún Helgadóttir hafði
tekið sæti Svavars Gestssonar á
þingi.
Sigur Frjálslynda flokksins
virðist fyrst og fremst sigur Guð-
Blokkamyndunin mistókst
„Eg tel að stóru tíðindin í úrslit-
um kosninganna séu þau að það
tókst ekki að búa,til tvær blokkir
fslenskum stjórnmálum, eins og
að var stefnt. Upp úr þessum
sameiningum og klofningi er á ný
komið fjögurra flokka kerfi auk
lítils flokksbrots sem ég tel að lifi
ekki lengí. Þetta þykja mér aðal
tíðindin," segir Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins. Hann segir að þótt Fram-
sóknarflokkurinn hafi tapað
þremur þingmönnum í þessum
stóra slag hafi flokkurinn sannað
að hann sé áfram framtíðarafl í
íslenskum stjórnmálum.
Þingmennirnir þrír sem féllu
voru allir í kjördæmum ráðherra
flokksins en Halldór telur ekki að
það beri að túlka svo að kjósend-
ur hafi verið að hegna þeim.
„Flokkurinn missir fylgi á
landsvísu og er með svipað fylgi f
kjördæmunum á Norðurlandi,
Vesturlandi og Suðurlandi. Ég lít
ekki svo á að það sé verið að
gagnrýna ráðherrana með þessu.
Því er hins vegar ekki að neita að
það hefur verið hamast mikið á
Framsóknarflokknum vegna
starfa ríkisstjórnarinnar. Þar hef-
ur flokkurinn dregið mjög þunga
vagna, sem hafa skipt mikJu máli
í uppbyggingu efnahags- og at-
vinnulífs í landinu. Þeir sem hafa
gagnrýnt okkur hafa ekki viljað
horfa á hina hliðina sem er aukn-
ing kaupmáttar, verðmætasköpun
og styrking velferðarkerfisins,"
segir Halldór.
Ánægd
„Auðvitað hefði ég viljað sjá betri
úrslit en ég er samt mjög ánægð
með kosningarnar. Ef til vill er
þetta meiri áfangi fyrir mig en
ýmsa aðra, að koma Samfýlking-
unni á og verða að næst stærsta
stjórnmálaafli þjóðarinnar. Svo er
ég að sjálfsögðu afar ánægð með
útkomuna í mínu kjördæmi, Suð-
urlandi, því það er eina kjördæm-
ið sem við höldum öllu fylginu og
bætum raunar aðeins í,“ segir
Margrét Frímannsdóttir, talsmað-
ur Samfylkingarinnar.
Kjörsókn á landinu var sú minnsta frá stofnun lýðveldisins. Kosningarnar voru að mörgu leyti sögulegar.
Hún segist hefði viljað sjá Sam-
fylkinguna fara yfir 30% fylgi en
ástæðurnar fyrir því að það tókst
ekki geti verið nokkrar. Það sé
ekki búið að stofna flokkinn
formlega og áróðurinn um að um
sundurleitan hóp sé að ræða hafi
náð í gegn.
„Þrátt fyrir vönduð og yfirveguð
vinnubrögð tókst okkur ekki að
koma því nógu vel til skila að við
erum ein heild,“ segir Margrét.
Árangur mikillar vimiu
„Ef við lítum á útkomu Sjálfstæð-
isflokksins á landsvísu er það
fyrst og fremst traust málefna-
staða, sem skapar þennan sigur.
Fólk metur þann árangur sem
ríkisstjórnin hefur náð á kjör-
tímabilinu og það trausta yfir-
bragð sem flokkurinn hefur," seg-
ir Sturla Böðvarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vestur-
Iandi. „Ef við lítum á útkomuna
hjá okkur í mínu kjördæmi þá vil
ég þakka hana vinnu okkar Guð-
jóns Guðmundssonar allt kjör-
tímabilið. Sömuleiðis var afar
samhentur hópur á listanum okk-
ar, fólk á öllum aldri sem náði vel
saman og okkur tókst að mynda
prýðiiega stemmningu í kringum
listann. Þess vegna var það ann-
ars vegar málefnastaðan og hins
vegar öflug vinna sem skóp þessa
góðu útkomu."
Sturla sagði að það eina sem
hefði komið sér verulega á óvart í
kosningunum væri að Frjálslyndi
flokkurinn skyldi koma inn
manni. Hann sagðist ekki hafa
gert sér grein fyrir því að Guðjón
A. Kristjánsson ætti svona mikið
fylgi fyrir vestan.
Sturla var spurður hverjar skýr-
ingar hann teldi vera á tapi Fram-
sóknarflokksins?
„Þessi niðurstaða hjá Fram-
sóknarflokknum í kosningunum
kemur mér ekki á óvart. I kosn-
ingunum 1995 fékk flokkurinn
óvenjulega mikið fylgi. Ég tel því
að flokkurinn sé bara að halda
sínu fasta fylgi að þessu sinni og
því ekki ástæða hjá framsóknar-
mönnum að hrellast mikið vegna
þessa,“ sagði Sturla.
Jukum fylgiö jafnt og þétt
„Það sem í raun gerðist hjá okki
var að við jukum fylgið jafnt
þétt alla kosningabaráttuna, .
jóns Arnars Kristjánssonar og fé-
laga á Vestfjörðum. Þar fékk
flokkurinn hvorki meira né
minna en 17,7% en í öðrum kjör-
dæmum á bilinu 1,9% - 4,6% og
þingmennirnir eru 2.
Minna en síðast
Samfylkingin reið ekki feitum
hesti frá sínum fyrstu kosning-
um. Á landsvísu fékk hún 26,8%
en í kosningunum 1995 fengu
flokkarnir sem að henni standa
samtals 37,7%. Fáir áttu von að
Samfylkingunni tækist að halda
því í ljósi klofningsins í Alþýðu-
bandalagi og Kvennalista og til-
komu Vinstrihreyfingarinnar.
Verst varð útreiðin enda í kjör-
dæmi Steingríms eða 16,8%. Á
Austurlandi fékk S-listinn aðeins
rúmt 21% en mest var fylgið í
Reykjavík eða 29%. Þingmenn
Samfylkingarinnar eru nú 17 en
voru 16 eftir síðustu sviptingar á
Alþingi í lok kjörtímabilsins.
U og S Iistar hafa samanlagt
35,9% eða um 2% minna en
flokkarnir 4 1995.
SIGURDÓR
IJRDÍ
SIGURDORSSON
VALGERÐUR
JÓHANN SDÓTTIR
SKR/FA