Dagur - 11.05.1999, Blaðsíða 12
12'- ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1999
JSFF BRIDGES
TIM ROBBINS
Sýnd kl. 9 og 11 - B.i. 16
Sýndkl. 9 og 11.15 - B.i. 16
RÁÐHÚSTORGI I
d3[°^J
D I G I T A L
SÍMI 461 4666
Thx
Sýnd kl. 5
Sýnd kl. 5
Sýnd kl. 7
Sýnd kl. 6.40
Ólafur Stefánsson varö markahæstur með tíu mörk í tveimur leikjum,
þegar íslenska landsliðið náði öðru sætinu á opna Norðurlandamótinu í
Noregi um helgina.
Sigur og tap á
NM í handbolta
ÍÞRÓTTIR
Úrslit á Vor-
mótiFH
100 m hlaup kvenna
Silja Úlfarsdóttir, FH 12.33
Anna F. Árnadóttir, UFA 12.66
Sólveig H. Björnsdóttir, UBK 12.79
100 m hlaup karla
Bjami Þór Traustason, FH 10.98
Ólafur Guðmundsson, HSK 11.38
Armar Már Vilhjálmss., UFA 11.41
800 m hlaup kvenna
Birna Björnsdóttir, FH 2:11.73
Eva Rós Stefánsdóttir, FH 2:20.97
Laufey Stefánsdóttir, FH 2:26.97
Hástökk kvenna
Iris Svavarsdóttir, FH 1.64
Margrét Ragnarsdóttir, FH 1.50
Anna F. Jónsdóttir, ÍR 1.45
800 m hlaup karla
Stefán Már Agústsson, ÍR 1:58.73
Daði Rúnar Jónsson, FFI 1:58.84
Stefán Á Hafsteinsson, ÍR 2:02.91
Spjótkast kvenna
Sigrún Fjeldsted, FH 39.10
Hilda Guðný Svavarsd., FFl 25.82
Anna M Ólafsdóttir, UFA 25.15
Spjótkast karla
Jón Ásgrímsson, FH 67.93
Ólafur Guðmundsson, HSK 51.55
Arnfinnur Finnbjörnsson, IR 49.43
400 m hlaup kvenna
Ylfa Jónsdóttir, FH 60.32
Hafdís Ósk Pétursdóttir, ÍR 62.02
Björk Kjartansdóttir, ÍR 62.40
400 m hlaup karla
Björgvin Víkingsson, FH 51.04
Unnsteinn Grétarsson, IR 51.65
Ingi Sturla Þórisson, FH 51.99
200 m hlaup kvenna
Silja Úlfarsdóttir, FH 24.98
Hilda Guðný Svavarsd., FH 27.82
Sigrún Helga Hólm, FH 27.91
200 m hlaup karl
Bjarni Þór Traustason, FH 22.47
Aron Freyr Lúðvfksson, FH 23.13
Armar Már Vilhjálmss., UFA 23.43
Langstökk karla
Arnar Már Vilhjálmsson, UFA 7.03
Sigtryggur Aðalbjörnsson, IR 6.45
Jónas Hlynur Hallgrímss., FH 6.18
100 m grindahlaup kvenna
Sólveig H. Björnsdóttir, UBK 14.75
Sigurlaug Níelsdóttir, UMSE 15.21
Anna M. Ólafsdóttir, UFA 15.36
Sleggjukast karla
Guðmundur Karlsson, FH 56.76
Sleggjukast kvenna
Guðleif Harðardóttir, ÍR 45.27
Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK 36.75
Spjótkast sveina
Arnfinnur Finnbjörnsson, IR 53.02
Siguijón Guðjónsson, ÍR 42.01
Ásgeir Hallgrímsson, FH 41.40
Sleggjukast sveina
Eiríkur Jóhannsson, ÍR 42.19
Arnfinnur Finnbjörnsson, ÍR 32.72
Guðni Karl Rosenkjær, FH 31.19
Þorbjöm Jenson sátt-
ur vlö árangurinn á
Noröurlandamótinu í
handbolta. Svíagrýl-
an enn að þvælast fyr-
ir landsliðinu.
„Þessi leikur var elcki góður hjá
okkur. Við vorum að elta Svíana
allan leikinn," sagði Dagur Sig-
urðsson eftir 23-25 tap fyrir Sví-
um í úrslitaleik NM á sunnudag-
inn. „Við náðum að jafna í 20-20
þegar átta mínútur voru eftir en
misstum þá aftur framúr okkur á
lokasprettinum. Svíagrýlan er að
þvælast fyrir okkur og það er tími
til kominn að gera eitthvað í því.
Svíarnir voru ekkert að spila neitt
sérlega vel og því hefðum við átt
að vinna leikinn, hefðum við
leikið aðeins betur,“ sagði Dagur,
sem fyrir leikinn fékk blómvönd
fyrir hundrað Iandsleiki.
Ólafur Stefánsson var marka-
hæstur Islendinganna með fimm
mörk.
Sigur á Norðmöniuun
Opnunarleikur mótsins var leik-
ur Norðmanna og Islendinga.
Þrátt fyrir aðeins eins marks sig-
ur, 22-23, var aldrei nein hætta á
ferðum. Til þess voru heima-
menn einfaldlega allt of lélegir.
Þeir eru enn töluvert langt á eft-
ir íslendingum í karlahandbolt-
anum. Magnús Már Þórðarson
Iék sinn fyrsta Iandsleik, gegn
Noregi og lofar mjög góðu. Hann
hafði aðeins verið inn á í 22 sek-
úndur þegar hann fiskaði
vítakast sem varð að marki.
Hann skoraði síðan síðasta mark
Islands. Ólafur Stefánsson -og
Valdimar Grímsson voru marka-
hæstir Islendinga með fimm
mörk hvor.
Þorbjörn Jensson landsliðs-
þjálfari var sæmilega ánægéur
með leikinn. „Þetta var eins’ og
alltaf gegn Noregi. Maður faér
ekki að komast upp með mikið í
sóknarleiknum en við vorum þoi-
inmóðir. Við ákváðum að leilía
nokkuð langar sóknir og hálda
boltanum. Við vildum ekki fe$ra
þeim leikinn á silfurfati me'ði.
mörgum hraðaupphlaupum. nh
Það er vörnin sem við erum-að
leggja aðaláhersluna á og á því
vinnum við leikinn. Sóknin kem-
ur svo bara í framhaldi af góðum
varnarleik. Þettá gekk nokkuð vel
hjá okkur í dag.“
Christian Berge, fyrirliði Norð-
manna, var ekki glaður í leikslok.
„Það gengur ekkert hjá okkur
þegar við leikum gegn jafn
grimmum varnarleik og Island
lék í dag. Islenska landsliðið er
mjög gott Iið en við hefðum samt
átt að vinna þennan leik og hefria
fyrir að Island sló okkur út í HM
fyrir tveimur árum,“ sagði norski
fyrirliðinn.
í bronsleiknum sigruðu Danir
heimamenn nokkuð örugglega,
22-27. - GÞÖ
íslandsmet hjá Guðleifu
Mjög góður ííraiigur
varð á vormóti FH í
frjálsum íþróttum uni
belgina og voru sett
þar tvö íslaudsmet.
Flest besta frjálsíþróttafólk
landsins sem æfir hér heima var
meðal þátttakenda á vormóti FH,
sem fram fór í Kaplakrika um
helgina. Þetta var fyrsta alvöru
mótið á keppnistímabilinu og
lofar árangurinn góðu. Það vakti
athygli hve margt ungt og efni-
legt frjálsíþróttafólk var að ná
mjög góðum árangri og augljóst
að veturinn hefur verið vel not-
aður til æfinga.
íslandsmet hjá Guðleifu og
Björgvini
Besta aftek mótsins vann Guð-
leif Harðardóttir, kastari úr ÍR,
en hún kastaði sleggjunni 45,27
m og bætti þar með vikugamalt
íslandsmet sitt, sem hún setti á
kastmóti fyrr í vikunni. Þetta er
glæsilegur árangur hjá Guðleifu
svo snemma keppnistímabilsins
og því mikils að vænta af henni í
sumar.
Björgvin Víkingsson, ungur og
efnilegur hlaupari úr FH, sigraði
í 400 m hlaupi karla á tímanum
51,04 sek. og setti þar með nýtt
íslenskt sveinamet (15-16 ára).
I 400 m hlaupi kvenna sigraði
hin unga og efnilega Ylfa Jóns-
dóttir úr FH nokkuð örugglega
og hljóp á 60,32 sek.
Silja Úlfarsdóttir, 18 ára
spretthlaupari úr FH, sigraði
bæði í 100 og 200 m hlaupi
kvenna. Hún hljóp 100 metrana
á 12,33 sek. og 200 metrana á
24,98 sek.
FH-ingurinn Bjarni Þór
Traustason sigraði einnig í 100
og 200 m hlaupunum, en hann
hljóþ 100 metrana á 10,98 sek.
og 200 metrana á 22,47.
Jón Asgrímsson úr FH sigraði í
spjótkasti karla, kastaði 67,93 m,
og Sigrún Fjeldsted, FH, sigraði f
spjótkasti kvenna með kast upp á‘
39,10 m, með nýja spjouna.
Bima nálgast íslandsmet
Ragnheiðar í 800 m
Gamla sundkempan Birna
Björnsdóttir úr FH sigraði með
yfirburðum í 800 m hlaupi
kvenna og var stutt frá sínum
besta tíma. Birna á örugglega
eftir að bæta sig verulega á þessu
ári og er jafnvel búist við íslands-
meti hjá henni 1 sumar. Sú sem á
íslandsmetið, sem er 2:04,90
mín. sett 1983, er engin önnur
en Ragnheiður Olafsdóttir, þjálf-
ari Birnu.
í 800 m hlaupi karla var
hörkukeppni og þar hafði Stefán ’
Már Ágústsson, IR, sigur eftir
hörkukeppni við hinn 17 ára
Daða Rúnar Jónsson úr FH.