Dagur - 22.05.1999, Side 2

Dagur - 22.05.1999, Side 2
2-LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999 , FRÉTTIR Ekki lögmál að ferða- memtskan dreifist Ferðameim sem gista á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum eru hlutfalls- lega miklu færri en anu- ars staðar á laudinu. Ferðamálastjðri segir heimamenn ráða nokkru um þessa þróun. Hagstofa íslands hefur kynnt fjölda gistinátta hjá ferðamönnum á landinu og kemur í Ijós að mjög fáir ferðamenn hafa næturstað á t.d. Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Magnús Odds- son ferðamálastjóri segir enga ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af þessu. Óraunhæft sé að ferðamenn dreifi sér jafnt á landshlutana en hann ítrekar einnig að frumkvæði heimamanna eigi stóran þátt í framvindunni. „Gistinætur eru verulega hlutfalls- lega færri þarna en á öðrum svæðum og það er ekkert nýtt. Menn geta velt fyrir sér skýringum á þessu fram og til baka. Eg hef sagt það margoft að þess- ir landshlutar eiga ekkert endilega að vera jafn vel fallnir til þessa atvinnu- rekstrar en einhvers annars. Umfang sauðíjárbúskapar er t.d. ekki það sama á Vestfjörðum og Suðurlandi. Það er ekkert náttúrulögmál að ferðameenn dreifi sér jafnt á landshlutana. Hins vegar hafa ákveðin svæði landsins orð- ið ferðamönnum sýnilegri en önnur gagnvart umheiminum í seinni tíð s.s. Suðausturland og Norðurland. Heima- menn eiga mismunandi stóran þátt í þessari þróun. Sums staðar eiga þeir allan hciðurinn," segir Magnús. Hefðin siuns staðar of sterk? I Degi í gær kom fram að nemendur ferðamálabrautar í Hólaskóla komust að þeirri niðurstöðu í lokaverkefni sínu að neikvæð ímynd væri vandamál í V- Húnavatnssýslu og töldu þeir það einn helsta vankantinn á möguleikum í ferðaþjónustu þar. Um það hvort þörf sé á ímyndarbreytingu á landsvísu seg- ir Magnús Oddsson: „Það er erfitt að svara því en það má velta þessu upp frá annarri hlið. Viðhorfið til nýrrra at- vinnugreina er mjög mismunandi eftir landssvæðum eftir því hvað hefð- bundnar atvinnugreinar hafa skapað fastmótað viðhorf. Þetta á sérstakega við, þar sem annað hvort sjávarútvegur eða landbúnaður eru svo rótgrónir í at- vinnusköpuninni að viðhorf til nýrra atvinnuvega á stundum erfitt upp- dráttar." Afsakið á imdanhaldi Sjálfsímyndin er ekku nægilega sterk að mati Hólanema en Magnús segir þessi mál hafa breyst mikið að undan- förnu. „Auðvitað þekkir mín kynslóð að fólk var stöðugt að biðjast afsökun- ar á sjálfu sér. Húsmæður sögðu „fyrir- gefðu“ þegar þeim var þakkað fyrir veitingarnar og þannig er e.t.v. gamal- gróið vanmat hjá Islendingum sem þjóna fólki. En þetta hefur gjörbreyst að undanförnu. Sem betur fer.“ - BÞ í pottinum voru menn að gæla við það að þeir Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson myndi nýja 12 manna ríkisstjóm um helg- ina. Þetta yrði þá „hvitasunnu stjóm“. Eins og allir samikristn ir menn vita töluðu postulamir tungum um hvítasunnuna, og því velta pottveijar því fyrir sér hvort eins verði um ráðherrana, að þeir tali tungum út kjörtímabilið.... Davíö Odd- son. Það er ýmislegt sem ferðast um á Netinu og 1 pottinum vora menn að vitna í gullmola úr minningargreinum sem birst hafa. Mcðal ann- ars vom þar þessi dæmi: „Jafnvel dauðann sem alla leggur, sigraði hún á sinn hátt með brosi á vör. “ .....,Hann giftist eftirlifandi konu sinni og átu þau tvö böm. “ ....,Gönguferðin þeirra varð styttri en menn von- iiðu. Banvænn sjúkdömur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt tiljarðar. “ í heita pottinum ræddu menn um mynd Sigmuiid í Mogganum í gær en þar leggur hann út af ummælum Páls Péturssonar mn að hann sé svo endurnýjaður „... „. maður eftir uppskurð að liann sé son „ems og sex vetra graðfoli. Hag- _ yrðingurinn í pottinum kastaði þá fram þessari vísu: Ástin blómstrar mest sem má margarbíða þess í röðum, aðfyrri kröfum safni sá, sex vetra frá Höllustöðum. FRÉTTAVIÐTALIÐ Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur hjá íbúðalána- sjóði Húsnæðislánakeifiðer í auknum mæli aðfærastyfir til hankanna ogþátturhins opinbera á sviði húsnæðis- mála óðum að hreytast. Opiiibert húsnæðislánakerfi að verða tímaskekkja - Hvað átt þú við með þvi að rekstur op- inbers húsnæðislánaketfis sé óðum að verða tímaskekkja? „Svið húsnæðismálanna hefur víða verið að breytast. Hlutverk ríkisins er að breytast frá því að gera fólki mögulegt að fjármagna íbúðakaup - sem kom til eftir stríð þegar bankar voru vanmáttugir. En undanfarin ár höfum við séð þessa miklu markaðsþróun á fjármálamarkaðnum, þannig að ekki er lengur sama þörf fyrir þetta fjármögnunar- framtak ríkisins. Húsnæðismál eru líka að verða minna pólitísk en áður. Hugmyndir samfylkingar- fólks um að endurreisa félagslegt húsnæðis- kerfi eru t.d. ekki í takt við það sem aðrir hafa verið að gera. Þetta hafa sænskir krat- ar t.d. ekki gert eftir breytingar Carls Bildts og þetta gerði Blair ekki, nema síður sé, eft- ir að hægrimenn höfðu gert róttækar breyt- ingar á húsnæðiskerfinu. Hin mikla sér- staða sem húsnæðismálin fengu f allri eftir- stríðsárapólitík, stafaði eflaust af því að þá þurfti að byggja yfir heilu þjóðirnar. Því er nú víðast Iokið. Islendingar eru t.d. komnir með 50 m íbúðarhúsnæði á mann, þannig að það er rækilega búið að byggja yfir okkur. Þessi sérstaka áhersla á húsnæðismál er því mikið til að deyja út.“ - Að markaðurinn geti og eigi alfarið að sjá um þetta? „Ég er kannski ekkert sérstaklega ánægð- ur með þessar breytingar. En ég er bara bú- inn að starfa svo Iengi við þennan mála- flokk, að ég sé að þetta er hin óhjákvæmi- lega þróun víðast hvar - hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Enda svo komið að bankarnir ráða nú við þetta og eru m.a.s. komnir á fullt á þessu húsnæðislánasviði.“ - En eru þeir ekki lítið spenntir fyrir landsbyggðinni? „Ríkið fer auðvitað ekkert alfarið út úr þessum húsnæðismálum, þótt sjálfur fjár- mögnunarþátturinn geti meira og minna farið til bankanna. En húsnæðismál geta ekki orðið eingöngu bankamál, því þau eru allt of mikil félagsmál til þess. Ríkið þarf að vera leiðandi afl, eftirlits- og stuðningsaðili, sem gerir kannski öðrum öflum kleift að framkvæma hlutina. Það er t.d. augljóst að ríkið getur ekki horft upp á að landsbyggðin verði þarna útundan. Síðan er ýmislegt í hinum félagslega þætti sem áfram mun snúa að hinu opinbera." - Þú hefur Itka sagt að á næstu misser- um blasi við það mikilvæga verkefni að styrkja leigumarkaðinn, bæði félagslegan á sviði sveitarfélaganna og ekki síður al- mennan leigumarkað sem rekinn væri á markaðsgrundvelli? „Grundvallarhugsunin hefur verið að fær- ast frá almennum aðgerðum yfir í sértækar aðgerðir. Síðasta ríkisstjórn - og núverandi - sem er mið- og hægristjórn, hefur samt greinilega valið þann kostinn að leggja tölu- vert upp úr leiguhúsnæði. Það var m.a. efnt til könnunar meðal sveitarfélaga og félaga- samtaka á þörf fyrir leiguhúsnæði í Iandinu og væntanlega verður greint frá niðurstöð- um hennar innan tíðar. Það er ljóst að það er almennur vilji að styrkja leigumarkaðinn. Það er líka tilhneiging í gangi að breyta fé- lagslegum eignaríbúðum yfir í leiguíbúðir. Með sameiningu sveitarfélaga hafa Iíka myndast nægilega stór sveitarfélög til þess að ráða við svona rekstur, sem var mörgum minni sveitarfélögum ofviða. Húsaleigubæt- urnar eru auðvitað líka þáttur í þessari vax- andi leiguíbúðastefnu." - hei -

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.