Dagur - 22.05.1999, Page 4
4r- LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
FRÉTTIR
Ríkisspítalar í TemplarahöUina
Ríkisspítalar hafa tekið Templarahöllina við Eiríksgötu á leigu til 20
ára og verður húsnæðið afhent um næstu áramót. Þá flyst þangað öll
starfsemi spítalans, sem nú er við Rauðarárstíg og Þverholt en á þeim
stöðum er m.a. öll yfirstjórnin, Qármálastjórnun og innkaupadeild en
einnig göngudeild húð- og kynsjúkdóma.
Miklar endurbætur standa yfir á Templarahöllinni og standa lítið
en útveggirnir eftir núna, að því er fram kemur í tilkynningu frá Rík-
isspítölum. Húsið verður endurbyggt og einnig byggt við og verður þá
um 3400 fermetrar.
20 aldar hús friðuð
Menntamálaráðherra
hefur að tillögu Húsa-
friðunarnefndar
ákveðið að friða fimm
20. aldar byggingar á
höfuðborgarsvæðinu.
Það eru nýmæli því
hús frá þessu bygg-
ingarskeiði hafa ekki
verið friðuð.
Þetta eru hús Bún-
aðarbankans íAustur-
stræd 5, Neskirkja,
Melaskólinn, Rann-
sóknarhús 2 að Keld-
um og einbýlishús við Ægisgötu 80 í Reykjavík. Arkitektar húsanna
eru Gunnlaugur Halldórsson, Agúst Pálsson, Einar Sveinsson, Sig-
valdi Thordarson og Hannes Kr. Davíðsson.
I fréttadlkynningu ffá Húsafriðunarnefnd segir að fyrir henni hafa
vakið að friða hús eftir brautryðjendur í íslenskri byggingarlist.
Melaskóli hefur verið friðaður.
Úthlutað úr menniugarsjoði útvarpsstöðva
Menningarsjóður útvarpsstöðva hefur úthlutað tæpum 65 milljónum
króna en styrkumsóknir námu samtals 600 milljónum króna.
Til undirbúnings og framleiðslu dagskrárefnis fyrir sjónvarp fengu
tuttugu og tveir einstaklingar og fyrirtæki styrki til tuttugu og sjö
verkefna, samtals tæpar 53 milljónir króna. Hæsti styrkur til eins
verkefnis er sjö milljónir og hann fær Anna Th. Rögnvaldsdóttir vegna
verkefnisins „Allir lidr hafsins eru kaldir". RUV fær sex milljónir til
verkefnisins „Herbergi ssx“.
Til undirbúnings og framleiðslu dagskrárefnis fyrir hljóðvarp fengu
nítján einstaklingar og fyrirtæki samtals styrki til tuttugu og eins verk-
efnis að upphæð tæpar 12 milljónir króna. Hæsti einstaki styrkurinn
fer til Sævars Ara Finnbogasonar vegna verkefnisins „Mannamál",
1,4 milljónir. - HI
íslenski hesturinn á vefími
Nú er hægt að
finna mikið af
upplýsingum um
íslenska hestinn á
heimasfðum
Bændasamtaka Is-
lands,
www.bondi.is. Þar
er hægt að skoða
ýmislegt varðandi
búskap og búrekst-
ur. Með því að
velja búgreinar og
síðan hrossarækt
má finna margt
sem gleður auga
hestamannsins.
Auk þessa er
Veraldarfengur á heimasíðu Bændasamtakanna en það er leitar- og
uppfletdsíða, sem er tengd við gagnagrunn samtakanna um íslenska
hestinn. Síðan hefur lengi verið á íslensku og ensku en fljótlega
munu þýskir áhugamenn geta skoðað gagnagrunninn. Uppfært verð-
ur fljótlega eftir hveija kynbótasýningu í sumar, eða á 7 til 14 daga
fresti. Slóðin inn á Veraldarfeng er www.bondi.is/fengur en aðgangur
að gagnagrunninum kostar 1.900 krónur í 3 mánuði.
-GG
Nýr skrifstofuhugbúnadnr
Nýjasta útgáfan af hugbúnaðinum
Microsoft Office er komin á mark-
að. Fyrsta eintakið af Microsoft
2000 sem selt var hér á landi keypti
Tryggingarmiðstöðin við opnun
verslunar Tæknivals á fimmtu-
dagsmorguninn var. I fréttatil-
kynningu frá Tæknivali segir að
þetta hafi að Iíkindum einnig verið
fyrsta eintakið sem selt var í heim-
inum.
Tæknival kynntí hugbúnaðinn
nýja á ráðstefnu í Kópavogi um
miðjan mánuðinn og segir hann
„auka afköst og auðvelda aðgengi
og greiningarvinnu við mikilvægar
upplýsingar."
Guðmundur Gunnarsson, deildar-
stjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, og
Árni Sigússon, forstjóri Tæknivals.
Briggs kveður Harald Ólafsson fangavörð á Akureyri í gær er hann yfirgaf fangageymslur lögreglunnar. -mynd bþ
„Guð er besti
lögmaðuriim66
Kio Briggs er að
minnsta kosti um
stundarsakir frjáls
maður eftir að hafa
setið í gæsluvarðhaldi
í níu mánuði þar sem
ýmislegt gekk á. Hann
segir rasisma á Litla-
Hrauni og hyggst
dvelja á Akureyri.
Héraðsdómur Norðurlands
eystra ógilti í gær kröfu um
áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir Kio Alexander Briggs, en
hann hefur setið í gæsluvarð-
haldi frá í september vegna fíkni-
efnamáls. Briggs var handtekinn
í Keflavík með 2000 E-töflur.
Héraðsdómur dæmdi hann í 7
ára fangelsi sem er þyngsti dóm-
ur vegna fíkniefnamáls hér á
landi en Hæstiréttur ógilti úr-
skurðinn vegna galla og úrskurð-
aði að málið skyldi tekið upp að
nýju. Krafist var áframhaldandi
gæsluvarðhalds, en Héraðsdóm-
ur á Akureyri hafnaði því. Sak-
sóknari hefur kært þá niður-
stöðu og mun Hæstiréttur taka
það mál fyrir innan skamms.
Fram að því er Briggs frjáls mað-
ur að öðru leyti en því, að hann
má ekki yfirgefa Iandið.
Dagur náði viðtali við Briggs
um leið og hann gekk út úr
fangageymslum lögreglunnar á
Akureyri í gær. Hann heldur fast
við sakleysi sitt og segir að það
hafi ekki komið honum á óvart
að hann skyldi losna úr gæslu-
varðhaldinu. „Eg framdi engan
glæp. Eg kom til Islands til að
vinna. Eg hef aldrei komið ná-
lægt fíkniefnum og þess vegna
get ég ekki verið hissa á að fá
frelsið á ný. Maður fer ekki til Is-
lands til að dreifa fíkniefnum,
frekar til Jamaica," sagði Briggs.
Áfrýjað til réttlætisgyðjunnar
Briggs segist nú munu einbeita
sér að því að byggja upp líf sitt.
„Eg er búinn að missa konuna
mína, þökk sé saksókninni. Mig
langar að áfrýja til réttlætisgyðj-
unnar í þessu landi. Eg er búinn
að sitja níu mánuði saklaus í
fangelsi vegna þess að einhverjir
menn púsluðu brotunum saman
á þann hátt að ég hefði framið
þennan glæp. Eftir niðurstöðu
Hæstaréttar er ég bjartsýnn. Eg
er með besta lögfræðing sem
hægt er að hafa,“ sagði Briggs og
gaf til kynna með látbragði sínu
að þar ætti hann við guð almátt-
ugan.
Rasismi á Litla-Hraimi
Aðspurður um fordóma gagnvart
sér á Islandi sagði Briggs að á
Litla-Hrauni hafi nokkrir ein-
staklingar ekki virst allt of
ánægðir með hörundslit hans.
Það væri þeirra vandamál en
ekki hans. Briggs var fluttur frá
Litla-Hrauni til Akureyrar eftir
róstur og átök sem urðu milli
hans og samfanga og hann Iætur
vel af veru sinni á Akureyri. Þar
hafi hann aðeins hitt „fullorðið
fólk“ en ekki „krakka“. Á Litla
Hrauni sé of mikið af fólki með
alvarleg vandamál og hann hafi
alltaf verið í þeirri aðstöðu að
neyðast til að grípa til varna, en
á Ákureyri hafi allt gengið vel.
Hatar ekki Guðmund
Aðspurður um tilfinningar sínar
gagnvart vitninu Guðmundi
Þórðarsyni, sem ber að hann
hafi séð Briggs fela fíkniefnin,
segist hann ekki hata hann,
reyndar óski hann honum alls
hins besta, enda sé hann kristinn
maður. Hins vegar skilji hann
ekki af hveiju Guðmundur hafi
gert sér miska.
Briggs hefur fengið inni í gisti-
heimili á Akureyri og hann von-
ast til að geta dvalið þar án þess
að verða fyrir áreitni. Ef sekt
hans verður endanlega sönnuð,
segist hann helst vilja afplána
dóminn á Akureyri. Fangaverðir
á Akureyri staðfesta að engin
vandræði hafi komið upp varð-
andi Briggs frá því að hann var
fluttur frá Litla-Hrauni. -bþ
Minna kal en búist var við
Sprettutímiim viröist
fara af stað á svipuð-
um tíma um land aUt,
og m i n n i munur á
EyjafjöUunum og öðr-
um svæðum en oftast
áður.
Mun minna virðist vera um kal í
túnum en reiknað var með fyrr í
vor. Ottar Geirsson, jarðræktar-
ráðunautur hjá Bændasamtök-
um íslands, segir að helst hafi
verið búist við kali í Húnavatns-
sýslum og utanverðum Skaga-
firði auk Fljóta en þar snjóaði
mest í byrjun nóvembermánaðar
1998. Kal í túnum hefur verið
viðvarandi í Fljótum undanfarin
ár en nú virðist sem kal ætli að
verða þar sáralítið.
„Eg held að oltkur væri búið að
berast það til eyrna ef einhvers
staðar liti út fýrir að verulegar kal-
skemmdir yrðu, en slíkar tilkynn-
ingar hafa ekki borist. Eg hef ekki
mikla trú á því að tún séu nú bet-
ur undir það búin að veijast kali
en á árum áður. Grasspretta er eig-
inlega hvergi komin neitt af stað
nema undir Eyjafjöllum en annars
virðist sprettan vera mun jafnari
um allt land en oftast áður, þ.e.
sprettutíminn virðist fara af stað á
svipuðum tíma um land allt. Á
Vestljörðum og á norðausturhorni
landsins er grasspretta )Tirleitt
mun Iengra á eftir í venjulegu ár-
ferði en nú virðist vera og munur-
inn á þessum Iandshlutum og
Eyjafjöllunum lítill. Því kann að
vera að menn taki síður eftir kal-
blettum en annars væri,“ segir
Ottar Geirsson. -GG