Dagur - 22.05.1999, Qupperneq 6

Dagur - 22.05.1999, Qupperneq 6
6 -LAVGARDAGVR 22. MAÍ 1999 ÞJÓÐMÁL Utgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Simar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Netfang auglýsingadeildar: Símar augiýsingadeiidar: Símbréf augiýsingadeiidar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVIK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.800 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 omar@dagur.is (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir 460 6161 460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Pissað í skóiim í fyrsta lagi Auðvitað er það rétt hjá Jakob Björnssyni, fyrrum bæjarstjóra, að það eru svik hjá Sölumiðstöðinni að leggja niður starfstöð sína á Akureyri. Sölumiðstöðin átti í samkeppni við Islenskar sjávarafurðir um viðskipti Utgerðarfélags Akureyringa og hafði betur. Astæðan fyrir því að SH hafði betur var einfaldlega sú að tilboðið sem hún gerði var talið hagstæðara en tilboð IS. I eðli sínu var þetta hreinn og klár viðskiptasamningur. Lengi hefur verið umræða um að aðeins hafi verið staðið við brot af því sem lofað var, en nú er samningnum hreinlega kastað burt sem hverju öðru rusli. í öðru lagi Lögfræðilega er Sölumiðstöðin þó trúlega í fullum rétti þar sem kringumstæður á sínum tíma réðu því að ekki var gengið frá þessum samningi sem formlegum viðskiptasamningi. Að- stæður hafa nú breyst hjá Sölumiðstöðinni og rekstrarerfið- leikar knýja á um skipulagsbreytingar. Afstaða SH og hagsmun- ir eru því í sjálfu sér skiljanlegir. En menn hljóta að spyrja um það viðskiptasiðferði að ná til sín eftirsóttum viðskiptum með yfirboðum, en standa ekki við þau af því þau kosta svo mikið! Sorglegast er þó að sjá sveitarstjórnarmenn afsaka slíkt með því að segja að þrátt fyrir allt hafi nú verið staðið við eitthvað af því sem boðið var! í þriðjalagi Lærdómurinn sem draga má af þessu SH máli er að atvinnu- uppbygging úti á landi verður ekki rekin sem einhver góðgerð- arstarfsemi. Það hefur alltaf legið fyrir, að öfugt við IS hafði SH engan áhuga eða áform um að fara norður og leit á það sem fórnarkostnað. Atvinnuuppbygging á landsbyggðinni þarf að hafa þar sína sökkla og það þurfa að vera einhverjar raunveru- legar forsendur íyrir staðsetningu uppbyggingarinnar utan höf- uðborgarsvæðisins. Enn og aftur kemur í ljós að það er skamm- góður vermir að höfuðból stingi dúsu upp í hjáleiguna til að kaupa sér frið. Hjáleigurnar eiga einfaldlega ekki að sætta sig við dúsur og höfuðbólin eiga ekki að geta keypt sér frið. Ann- ars eru menn bara að pissa í skóna. Birgir Guðmimdsson Mngeysk loftbóla Garri er ekki Þingeyingur og hefur líkast til liðið fyrir það eins og flestir íslendingar sem ekki eru líka Þingeyingar. Af þeirri einföldu meginástæðu að Garri hefur skynjað að Þingeyingar sitja og hafa setið skör hærra en aðrir lands- menn á flestum sviðum á þess- ari öld og bróðurpartinn af þeirri síðustu. Þingeyinjgar eru eiginilega „gyðingar“ Islands. En eins og kunnugt er eiga gyðingar sér meiri og merki- legri sögu en flestar aðrar þjóðir og hafa átt fleiri hæfi- leikamenn, miðað við höfðu- atölu en aðrir, samanber það að um 12% Nóbels- verðlaunahafa frá upphafi hafa verið Gyðingar. Flest helstu stórmenni Islands- sögunnar hafa ver- ið Þingeyingar. Nægir að nefna menn á borð við Náttfara, fysta Iandnámsmanninn, sem gat valið sér hvaða skika sem var af Iandinu en kaus Þing- eyjarsýslu (sem þá var reyndar ónefnd); Kristján Jóhannsson, Halldór Blöndal og Arnór Guðjohnsen. Og raunar er það svo að ef einhver landsmanna skarar fram úr á einhverju sviði, þá má gera því skóna að í æðum hans renni þingeyskt blóð. Maklegt mont? Þjóðin hefur löngum verið sér meðvituðuð um þessa (meintu?) yfirburði Þingey- inga, fyllst öfund í þeirra garð og sagt þá montna í niðurlæg- ingarskyni. Því það er eðli smámenna að vilja draga stór- mennin niður á flatneskjuna ^il sín og upphefja sjálfa sig með þeim hætti. Enda augljós þjóðaríþrótt á Islandi að gera ætíð lítið úr afrekum mikil- menna, að skjóta þá viðstöðu- laust nýkomna niður af stallin- um. Því kætist hin and-þing- eyska þjóð þessa dagana yfir hremmingum Kaupfélags Þingeyinga, sem hefur löngum verið flaggskip og táknmynd hins þingeyska mikilleika og stolts og víða verður vart þess sem Þjóðverjar nefna „schadenfreude". „Þarna fengu þessir mont- hanar á baukinn, nú hætta þeir vonandi að hreykja sér eins og hanar á haug.“ Orð í þessa veru heyrast víða þessa dagana. Sómi að En líklega verður þjóðinni ekki að ósk sinni. Garri hefur nefnilega aldrei heyrt Þingeyinga viður- kenna að þeir séu montnir. Þeir segjast hinsvegar ævin- lega vera tilbúnir til „að segja þann sannleika um sjálfa sig sem sómi er að.“ Og það munu þeir örugglega halda áfram að gera og halda kjafti yfir hinu, sem ekki er eins til eftir- breytni. Þessvegna munu Þingeyingar ugglaust lítið vilja ræða á næstunni um Kaupfé- Iag sitt, þessa 117 ára loftbólu sem nú er loksins sprungin og sem verið hefur þeirra helsta þjóðarstolt til þessa dags. Þeir munu aftur á móti örugglega fljótlega finna sér eitthvað annað til að hreykja sér af ef þjóðin og Garri þekkir þá rétt. GARRI. ODDUR ÓLAFSSON skrifar Nokkrir áhugamenn um hnefa- leika hafa verið dæmdir þvers og kruss á fleiri dómstigum og nú síðast í Hæstarétti. Þar með er staðfest að box er bannað á Is- landi. Það vissu raunar allir áður því fjömiðlaveldið fylgist með þessum slagsmálum milli áhuga- manna um box og framkvæmda- valdsins og síðar dómsvaldsins af meiri áhuga en flestum málaferl- um öðrum. Það eru mannréttindi að fá að lumbra á náunganum og því verður málinu haldið áfram og mun það næst verða flutt fyrir mannréttindadómstóli Evrópu. Þar mun væntanlega fást úr því skorið hvort Alþingi hafi nokkra heimild til að banna hnefaleika fremur en aðrar heilsuspillandi íþróttir. Að vísu er boxið ekki heilsu- spillandi fyrir þá sem hafa yfír- höndina og eru flinkir að lúberja andstæðinginn en leyfa honum Maimréttindi að lemja náimgaim ekki að Iemja sig. En sá sem er laminn í hnefaleikahringnum á líka rétt á að þola högg andstæð- ingsins, sem veitt eru af mikilli íþrótt, sem kallast olympískir hnefaleikar og er göfug íþróttagrein miðað við boxið þar sem dáðustu og rík- ustu boxarar heims eru líka seigir að bíta andstæðinga sína og hljóta mikið lof fyrir og mikla peninga. MiMl lagabrot Ávallt er mikið um að vera í íjölmiðlaheim- inum þegar boxið er á dagskrá. Mikið er myndað þegar lögreglan hirðir græjurnar úr íþróttasölum, en það er bannað að eiga slík tæki, það er bannað að iðka hnefaleika, það er bannað að kenna box, og það er bannað að keppa í íþróttinni og það er bannað að sýna það opinberlega. Það eru því ótal greinar hegn- ingarlaga sem boxararnir bijóta þegar þeir fara að boxa. Og er von að þeir veki verðskuldaða at- hygli, því að í liðinu eru ekki aðeins höggþolnir íþróttagarpar á ferð, heldur landsfrægir og dáðir skemmti- kraftar og elskhugar sem skreyta litprúð- ar síður afþreyingar- rita svo um munar. Boxið er því engin almenningsíþrótt þar sem óþekktir labbakútar lumbra hver á öðrum. Það er öðru nær. Rjóminn af glæsigæj- um fjölmiðlunarinnar eru þar nærri sem boxað er og reka hat- ramma baráttu fyrir að íþróttin verði Iögleidd. Logleg barsmið Merkilegt má telja að enginn stjórnmálaflokkur reynir að afla sér vinsælda meðal þeirra frægu og fallegu með því að taka lög- leiðingu hnefaleika upp f sín kosningaloforð. Með box á stefnuskrá væri hægt að ná til áhrifamikilla einstaklinga, sem unga fólkið hlustar á. En þeir verða að sækja magt sína að utan og mun nú reyna á hvort mannréttindadómstóll Evrópu verður að skerast í leik- inn til að leyfa íslendingum að lumbra hver á öðrum á löglegan hátt. Það er margt skrítið í kýr- hausnum og vandasamt að greina á milli ills og góðs þegar reyna á hvort það er ekki brot á lögum um mannréttindi, að fá ekki að lemja náunga sinn í hausinn og rota hann sér og öðr- um til skemmtunar. snuftla svairaö Spurt í Hrísey. Erþað íbúum Hríseyjar einhvers virðiaðfáfor- seta Íslands í opinbera heimsóhn? Gunnhildur Njálsdóttir „Ég hafði ekld tök á því að hitta hann en ég sá honum bregða fyrir. Það er mjög gott fyrir byggðarlag eins og Hrís- ey að forsetinn skuli koma í heimsókn því það vekur athygli á því sem hér er verið að gera, sem er býsna margt.“ Birgir Sigurjónsson „Það er mjög gott fyrir landsbyggð- ina alla, ekki bara okkur Hríseyinga, að forsetinn skuli tjá sig um vanda landsbyggð- arinnar, m.a. fólksflóttann, og að virkja eigi heimamenn til sóknar því það gera engir aðrir fyrir okk- ur. Ég er mjög ánægður með það en til þessa hefur það ekki talið vera við hæfi að forseti Islands nýtti sér málfrelsið. Ég er bara andvígur því.“ Ingimar Ragnarsson „Það er mjög mikils virði að fá forseta lýðveldisins í heimsókn. Það er já- kvæð kynn- ing fyrir Hrísey og það sem hér er verið að gera í atvinnulífinu.“ Theodóra Kristjánsdóttir „Já, alveg ör- ugglega. Þannig er forsetinn betur í stakk búinn til að tjá sig um líf- ið hér í eyj- unni og kynna þær vörur á erlendum mörkuðum sem hér eru framleiddar." Siguróli Björgvin Teitsson „Það var gaman að fá forsetann í heimsókn í skólann því ég hef aldrei séð hann áður, bara í sjónvarpi. Við höfum verið mjög spennt að fá hann í heimsókn."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.