Dagur - 22.05.1999, Side 8
8 -LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1999
ro^ir
FRÉTTASKÝRING
Skattar ekki hæ
Fiimur Ingólfsson,
iðnaðax- og viðskipta-
ráðherra, fullyrðir í
samtali við Dag að
skattar verði ekki
hækkaðir í viðspymu
við þenslu og vísitölu-
hækkun. Rætt verður
um skiptingu ráðu-
neyta og ráðherra um
helgina.
Myndun nýrrar ríkisstjórnar er
komin vel á veg og hafa varafor-
menn stjórnarfíokkanna, Finnur
Ingólfsson og Geir H. Haarde að
mestu lokið við gerð nýs stjórnar-
sáttmála, ásamt lögfræðingum
flokkanna, Hreini Loftssyni og
Jóni Sveinssyni. Það sem eftir er
við gerð stjórnarsáttmálans er að
formenn flokkanna fari yfir hann
og fínpússi, skipti síðan ráðuneyt-
um milli flokkanna og skipi ráð-
herra. Halldór Asgrímsson, for-
maður Framsóknarflokksins, kom
til landsins í gærkveldi, eftir
langa útivist, og mun um helgina
funda með Davíð Oddssyni um
stjórnarmyndunina. Ekki er búist
við að til verði hvítasunnustjórn,
heldur muni ný ríkisstjórn ekki
sjá dagsins ljós fyrr en um næstu
helgi.
Aðvaranir streyma nú frá
Seðlabankanum, OECD og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðnum vegna
mikillar þenslu í efnahagslífinu
og hraðvaxandi verðbólgu. Fyrir
kosningar voru þessir þættir Iítið
ræddir og stjórnarflokkarnir töl-
uðu um að viðhalda stöðugleik-
anum. Nú eru hins vegar blikur á
lofti og Alþjóða gjaldeyrissjóður-
inn bendir ríkisstjórninni á að
hækka verði skatta eða vexti og
auka aðhald í peningamálum.
Seðlabankinn hækkaði vexti fyrr
á árinu og segir að meiri vaxta-
hækkun geti verið í pípunum.
Skattar hækki ekki
Finnur Ingólfsson, varaformaður
Framsóknarfloltksins, sem setið
hefur við að semja nýjan stjórnar-
sáttmála, var spurður hvernig
stjórnarflokkarnir ætli að mæta
þenslunni, verðbólgunni og að-
vörunum Ijármálastofnana. Hann
segir skattahækkanir ekki
framundan. „Nei, skattar verða
ekki hækkaðir."
„Að mínum dómi er bara um
tvær leiðir að ræða. Annars vegar
að beita aðhaldi í ríkisfjármálun-
um og hins vegar að auka sparn-
að til að draga úr þenslu á hinum
almenna peningamarkaði. Ég tel
að þarna verði að vera samspil.
Varðandi ríkisljármálin lít ég svo
á að auka megi sparnað með því
að selja ríkiseignir og ég hef nefnt
í því sambandi Landssímann og
ríkisbankana. Menn tala um
nauðsyn vaxtahækkana. Um það
er ekkert hægt að segja á þessari
stundu. Og ég vil endilega taka
fram að menn mega ekki gera of
Varaformenn flokkanna þeir Finnur Ingólfsson Framsóknarflokki og Geir Haarde Sjálflstæðisflokki hafa ásamt lögfræðingunum Hreini Loftssyr
mikið úr þessari þenslu og verð-
bólgutali. Ef við horfum á vísi-
töluhækkunina þá vegur húsnæð-
isþátturinn þar mjög þungt vegna
þeirra hækkana sem orðið hafa á
húsnæði. Það gæti stafað af því
að það er lóðaskortur í Reykjavík
sem stendur og á meðan svo er
verður eftirspurnin meiri en
framboðið. Þess vegna geta það
verið svona stundarfyrirbrigði
sem valda hækkun vísitölunnar
og því vil ég ekki gera jafn mikið
úr þessu og sumir aðrir þótt ég sé
heldur ekki að gera neitt lítið úr
hækkuninni. Það þarf að sjálf-
sögðu að grípa til aðhalds í ríkis-
búskapnum til þess að tryggja
stöðugleikann," segir Finnur.
Kosningaloforðin
- Hvað verður þá með kosningalof-
orð ykkar framsóknarmanna um
bamakortin, skatt á kvótagróða og
einn milljarð til fíkniefnavand-
ans?
„Við sjáum hvernig það lítur út
þegar stjórnarsáttmálinn kemur.
Þetta eru auðvitað aðgerðir sem
snúa að mestu leyti að skattamál-
um. Þess vegna verður að gæta
þess að tímasetja þær með það í
huga að ýta ekki undir þensluna."
- Eftir rúmt hálft ár eru flestir
kjarasamningar lausir og verka-
lýðshreyfingin, sem telur sig hafa
verið hlunnfama, ætlar fram með
miklar kröfur. Hafið þið rætt
hvemig þeim verður mætt?
„Þessu er ekki hægt að svara
fyrr en maður hefur séð hver
kröfugerðin verður. Hins vegar
óttast ég ekki að kjarasamning-
arnir ógni stöðugleikanum. Þessi
ríkisstjórn hefur sýnt að henni
hefur tekist að ráða við stjórn
efnahagsmála á þenslutímum og
okkur mun takast það áfram,“
segir Finnur.
- Bankastjóri íslandsbanka hef-
ur sagt að sala á ríkiseigmtm hafi
ekki dregið úr þenslu heldur auk-
ið hana vegna þess að fólk tekur
lán til að kaupa bréfí þessum rfk-
iseignum. Hverju svarar þú þessari
ábendingu?
„Það er rétt að starfsmönnum
bankanna voru boðin sérstök kjör
og ýmsum fleirum voru veitt lán.
Hins vegar tel ég að það skipti
miklu máli hvernig að sölu ríkis-
eigna verður staðið ef af þeim
verður. Sala á ríkisfyrirtækjum
sem hefur það að megin mark-
miði að auka sparnað í þjóðfélag-
inu, hún slær á þenslu," segir
Finnur Ingólfsson.
Því má skjóta hér inn að nokkr-
ir þingmenn Framsóknarflokks-
ins, sem Dagur ræddi við í gær,
segja að ekki komi annað til
greina en að hin þrjú kosninga-
loforð flokksins verði sett inn í
stjórnarsáttmálann.
Skipting ráðuneyta
Allir þingmenn stjórnarflokk-
anna, sem Dagur hefur rætt við,
eru sammála um að skipting
ráðuneyta og skipan ráðherra sé
algerlega eftir. Þeir Finnur og
Geir hafi ekkert rætt um þau mál
enda ekki á þeirra könnu heldur
formanna flokkanna.
Vitað er að Sjálfstæðisflokkur-
inn sækir það stíft að fá heilbrigð-
isráðuneytið. Um það vitna Iíka
landsfundarsamþykktir hans.
Framsóknarmenn hafa líka sýnt
áhuga fyrir því að fá menntamála-
ráðuneytið, ekki síst til að bjarga,
efla og styrkja ríkisútvarpið. Þá
hefur Dagur einnig heimildir fyrir
því að Ingibjörg Pálmadóttir hafi
áhuga fyrir því að halda áfram
sem heilbrigðisráðherra enda hef-
ur hún verið að ná vopnum sínum
þar síðustu misserin.
Hins vegar hefur það komið
fram nú allra síðustu daga að
sjálfstæðismenn vilja eldd sleppa
menntamálaráðuneytinu og mun
þar koma til ósk Björns Bjarna-
sonar um að halda áfram sem
menntamálaráðherra, þar sem
hann fær trauðla utanríkisráðu-
neytið, sem er stóri draumurinn
hans.
Enda þótt framsóknarmenn
hafi oft talað um nauðsyn þess að
„fá Halldór Asgrímsson heim,“ þá
mun hann þrátt fyrir allt hafa
mestan hug á að halda áfram í ut-
anríkisráðuneytinu.
Hugmyndir eru uppi um að
breyta ráðuneytaskiptingu frá því
sem nú er enda stendur til að
fjölga ráðherrum úr 10 í 12. Það
liggur enn ekki fyrir hvernig ráðu-
neytisskiptingin verður.
Ráðherraefni Framsóknar
Eins og áður hefur verið skýrt frá
er ljóst að Halldór Ásgrímsson,
Finnur Ingólfsson, Ingibjörg
Pálmadóttir og Guðni Agústsson
verða ráðherrar í næstu ríkis-
stjórn fyrir Framsóknarflokkinn.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sækir það fast að verða ráð-
herra áfram, þrátt fyrir heilsu-
leysi, og menn þora ekki að spá í
hvernig formaður flokksins ræður
fram úr því.
Fari svo að Páll verði ráðherra
áfram mun baráttan standa milli
Valgerðar Sverrisdóttur og Sivjar
Friðleifsdóttur auk þess sem
Hjálmar Arnason gerir tilkall t '
ráðherrastóls, einkum ef fran
SIGURDÓR
SIGURDÓRS-
SON
SKRIFAR