Dagur - 22.05.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 22.05.1999, Blaðsíða 9
LAUGAROAGUR 22. MAÍ 1999 - 9 ti og Jóni Sveinssyni unnið að undirbúningi stjórnarsáttmálans. sókn fengi menntamálin. Vegna hugsanlegra breytinga á ráðuneytum spá menn ekki í það enn sem komið er hver fær hvaða ráðuneyti. Eftir því sem næst verður komist stefna framsóknar- menn á að geta boðað til mið- stjórnarfundar strax um næstu helgi til að fara yfir málefnasamn- inginn. Ráðherraefni Sjálfstæðis- flokksins Eini umtalsverði spenningurinn varðandi ráðherraefni Sjálfstæðis- flokksins er um það hvaða kona úr röðum þingmanna flokksins verð- ur ráðherra. Eins og staðan var í gær veðjuðu flestir á að Halldór Blöndal myndi halda ráðherrastól þótt ýmsir hafi talið að hans tími sem ráðherra væri liðinn og ann- arra kominn. Siðferðislega segja menn útilokað að ganga fram hjá 1. þingmanni Norðurlands eystra þegar valinn er ráðherra fyrir flokkinn. Því er staðan sú að Dav- íð Oddsson, Geir H. Haarde, Björn Bjarnason, Árni M. Mathie- sen og Halldór Blöndal verði ráð- herrar. En konurnar þrjár sem keppa um þann eina ráðherrastól sem þá eftir eru Sigríður Anna Þórðar- ittir af Bevkjanesi, Arnbiöre Sveinsdóttir af Austurlandi og Sól- veig Pétursdóttir úr Reykjavík. Það eru afar misvísandi svör og spádómar, sem maður fær þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru spurður um hver þeirra sé líkleg- ust til að hreppa hnossið. Má segja að menn skiptist í þrjá hópa í því máli. Ymsir benda á að með því að skipa Arnbjörgu Sveinsdóttur í ráðherraembætti slái Davíð tvær flugur í einu höggi. Hún er kona og hún er landsbyggðaþingmaður. Þeir sem halda með Sigríði Önnu benda á að þrír ráðherra komi úr Reykjavík en einn af Reykjanesi í örugga hópnum. Sjálfstæðisflokkurinn á 8 þing- menn í Reykjavík og 6 á Reykja- nesi. Þess vegna séu tveir ráðherr- ar þaðan sanngirnismál. Konurnar sem studdu Sólveigu Pétursdóttur við varaformannskjör í vetur halda henni fram nú sem ráðherraefni. Það eina sem Sól- veig hefur gegn sér er að hún yrði fjórði ráðherrann úr Reykjavík. Svona standa málin þegar loka- spretturinn er hafin við myndun nýrrar 12 manna ríkisstjórnar sem væntanlega tekur við völdum um næstu helgi. FRÉTTIR L. A Traktorar og traktorskerrur eru helstu farartækin í Hrísey. Úlafur Ragnar ferðaðist einmitt með slíkum hætti, en traktorinn var skreyttur f tilefni heimsóknarinnar. mynd gg Sköpirn gegn byggðavanda Vænlegasta leidin til að ná tökum á byggða- vandamun er að efla þennan sköpunarkraft byggðanna sjálfra, sagði forseti íslands á lokadegi opinberrar heimsóknar til Eyja- Ijarðar. Forseti Islands, hr. Ólafur Ragn- ar Grímsson, er fyrsti forseti lýð- veldisins sem kemur í opinbera heimsókn til Hríseyjar. Asgeir As- geirsson, kom þangað og fór á handfæraveiðar, en þar var ekki um opinbera heimsókn að ræða. Forsetinn var spurður á leið sinni með feijunni úr Hrísey, á síðasta degi opinberrar heimsóknar hans til Eyjafjarðar, hvernig móttök- urnar hefðu verið. „Laufás er eini staðurinn sem ég hafði aldrei heimsótt áður og ég hef ekki heldur komið til Grímseyjar. Móttökurnar hafa verið einstaklega hlýlegar og glæsilegar og gestrisni og hug- kvæmni mikil. Eg met það mikils að finna þennan hlýhug f minn garð og míns embættis. Það er mér mjög mikilvægt að fá að heimsækja byggðir Iandsins og kynnast því hvað fólk er að hugsa og gera. Það er mikinn nýsköp- unarkraft að finna í hinum smærri byggðarlögum Eyjafjarð- ar og sóknarhug, og mun meiri en ég átti von á. Eftir alla þessa umræðu um varida landsbyggð- arinnar er mikilvægt að átta sig á því að hér við Eyjafjörð er verið að hrinda í framkvæmd fjölmörg- um nýjungum í atvinnulífi, menningarlífi og menntamálum sem öll þjóðin ætti að veita milda athygli. Allar þessar breytingar sýna það að með landsbyggðar- fólkinu býr mikill kraftur. Hér er það fólkið sjálft sem er að breyta atvinnulífinu, skólunum og fé- lagsháttunum. Það er alls ekki að bíða eftir því að einhverjar nefndir eða ráð fyrir sunnan eða stjórnmálamenn þar leggi línuna um þróun byggðarinnar. Það er því nauðsynlegt að efla þennan sköpunarkraft byggðanna sjálfra, það er vænlegasta leiðin til að ná tökum á byggðavandanum,“ sagði fForseti Islands. Einstakt menntastarf í sveitaskóliuuun Þú hefur sýnt slzólunum mikinn áhuga i þessari heimsókn og gefið þér tíma til þess að ræða við höm- in. „I litlu sveitaskólunum hér við Eyjafjörð og í Hrísey er verið að vinna alveg einstakt menntastarf. Þar er verið að skapa nýtt náms- efni, breyta kennsluháttum, Iaga sig að nýjum aðstæðum. Ég spyr, hvaða maður, nefnd eða ráð er með patentlausn á því hvemig menntun nýtist best á 21. öld- inni? Er það ekki sköpunarkraft- ur hvers og eins sem er besta vegarnestið. Eg sé það á krökk- unum sem ég hef hitt hvað þau eru frjálsleg, skemmtileg, orð- heppin, djörf og hugmyndarík, hversu vel hefur tekist til í þess- um litlu skólum í uppeldisstarfi. Það er líka gaman að skynja það hversu metnaðarfullir kennar- arnir eru og ánægðir. Ég vona þess vegna að við förum betur að huga að því á landsvísu, þessu merka starfi sem verið er að vinna í þessum skólum því þang- að er greinilega að sækja margan góðan vegvísinn." Endurskoða þarí mennta- stefnuna Hefur eitthvað sérstakt komið þér á óvart í þessari heimsókn til Ey- firðinga? „Nýsköpunarkrafturinn í at- vinnulífinu hefur komið mér á óvart. Heimsóknin í lúðueldið á Hjalteyri sýndi mér og sannaði þann einstæða árangur sem þar hefur náðst af rannsóknarstarfi, vísindalegri þekkingu og þolin- mæði og hvernig þekkingin getur leitt atvinnulífið til árangurs þeg- ar við höfum þolinmæði til að bíða eftir því. Þessar tvær 5 ára stelpur sem ég hitti úti í Hrísey og hafa verið í skólanum í vetur í blóra við öll lög og reglur, orðnar næstum Iæsar og farnar að reikna, voru mér áminning um það að við höfum ekki verið á réttri leið að takmarka aðgang barna að menntun. Við þurfum að bytja miklu fyrr og veita sérhverju barni sem er námsfúst tækifæri til að hefja sitt nám þegar það hefur löngun til. Við megum ekki drepa í reglugerðir eða dróma þessa miklu námshvöt þessarar kynslóðar sem nú er að vaxa upp í okkar landi, því hún er mesta auðlindin sem við eigum. Stjórn- endur í landinu, kennarastéttin, yfirmenn skóla- og byggðamála og fleiri þurfa að endurskoða þessa menntastefnu sem við búum við,“ sagði forseti íslands, hr. Olafur Ragnar Grímsson. - GG 94n<nnéÍtUuýasi otý UunÁi/i Trésmiðjon fllfa ehf. • óseyri la • 603 flkureyri Sími 461 2977 • Fox 461 2978 • Forsími 85 30908

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.