Dagur - 05.06.1999, Page 7

Dagur - 05.06.1999, Page 7
 LAUGARDAGUR 5. /ÚJV/ 1999 - 7 RITS TJÓRNARSPJALL Tími stö ðuglelk ans er liðum The Economist varar við „gleymdu hættunni" og „nýju hættunni", sem eru óhófleg skuldasöfnun og verðhjöðnum og verðbóiga, sem skekja mun efnahagslífið. Hlutabréfamarkaður er skrítinn skepna. Gengi bréfanna byggir ekki síður á mannlegum tilfinn- ingum og væntingum en verð- gildi, sem hægt er að mæla í framleiðslu og verðmætasköpun þeirra fyrirtækja sem seld eru eða keypt á opnum markaði. Dæmi um undarlegheitin er fyr- irtæki sem allir upplýstir notend- ur veraldarvefsins þekkja vel, bókasalan Amazon, sem sögð er vera sú umfangsmesta í heimi hér. Hlutabréf í henni hafa hækkað um hundruð prósenta, gott ef ekki þúsund, á nokkrum árum. En bréfin hafa aldrei skil- að beinum hagnaði því fyrirtæk- ið hefur ávallt verið rekið með mildu tapi, en rekur sjálft sig með linnulítilli hlutabréfaút- gáfu. A þetta líst fjárfestum dæmalaust vel, enda hafa margir grætt vel á því að kaupa hluta- bréf í tapfyrirtækinu og selt þau með góðum hagnaði. Þetta er langt frá því að vera einsdæmi því huglægt mat á fyr- irtækjum, ekki síst þeim sem tengjast veraldarvef og hugdett- um hugbúnaðargúrúa hefur æst upp hlutabréfamarkaði á síðari tímum ekki síður en Ijarlægar gull- og demantanámur gerðu á bernskuskeiði hlutbréfamark- aða, og kváðu slíkar námur enn hafa mikið aðdráttarafl þeirra sem hyggja á skyndigróða af meira kappi en forsjá. En væntingar og tiltrú pen- ingamarkaðar eru ekki bundin við kauphallir eru hvati á allt efnahagskerfi þjóða og alþjóða- markaðar. Þess vegna er mikil- vægt að fólk trúi á stöðugleika og velgengni í efnahagslífinu og gera stjórnendur sitt besta til að viðhalda bjartsýni og trú á stjórn- visku þeirra. Bankar og verðbréfamiðlarar hafa undanfarna daga verið að vara við verðbólguþróun sem þeir sjá fyrir. Geir Haarde fjár- málaráðherra og Birgir Isleifur Gunnarsson seðlabankastjóri ganga fram fyrir skjöldu og tor- tryggja spárnar og láta að því liggja að óábyrgir aðilar séu farn- ir að rugga stöðugleikaskútunni að óþörfu. Samt neita seðla- bankamenn því ekki að þeir muni hækka vexti innan tíðar, sem er öruggt merki um verð- bólguhættu. Trúin flytui fjármagn Trúin á hagvöxt og hátt verðgildi hlutabréfa er einn meginþáttur- inn í því að halda uppi framför- um og velsæld á Vesturlöndum, andstætt því sem orðið hefur í hagkerfum austar og sunnar á hnettinum. En fari að hrikta í undirstöðum er hætta á að trún- aðartraustið bresti og stigmögn- un leiði til meiri ófara en stjórn- málamönnum og peningafurst- um þykir hollt að horfast í augu við. The Iconomist birti í nóvem- ber s.l. greinaflokk um það sem kölluð var „gleymda hættan'1 og í febrúar var aftur á móti fjallað um „nýju hættuna". I fyrrnefnda tölublaðinu var varað við hinum gífurlegu lántökum fyrirtækja og einstaklinga. Einkum þykir ástandið ískyggilegt í Bandaríkj- unum, þar sem efnahagskerfið er á hraðferð upp á við og vel- megunin og eyðslan meiri en nokkru sinni fyrr í sögunni. Bankar og sjóðir keppast við að lána hver sem betur getur því ávaxta þarf meira peningamagn en áður eru dæmi um. Lántak- endur og eyðsluklær standa því undir efnahagsbatanum. Blaðið spyr ekki hvort blaðran spryngi, heldur hvenær, en það verður þegar skuldararnir ráða ekki lengur við afborganir og vaxta- greiðslur vegna illa grundaðra fjárfestinga og eyðslu sem er langt fram yfir fjárhagslega getu sína. Nýja hættan sem blaðið varaði við í febrúar er verðhjöðnun sem óheft samkeppni og lágt verð á innflutningsvörum frá illa stæð- um iðnríkjum getur valdið. Margir fleiri þættir koma þar til, svo sem þegar kaupgeta eyðslu- fíklanna minnkar með þverrandi lánstrausti. En svo mótsagna- kennt sem það kann að virðast getur verðhjöðnun og verðbólga farið saman. Ef til að mynda laun hækka og framleiðslukostn- aður stendur ekki undir vöru- verði er hætta á ferðum. Ofhitnun í efnahagsliflnu Þau einkenni sem hér er minnst á eru vel þekkt hér á landi. Stöð- ugleiki og hagvöxtur undangeng- inna ára bendir ekki til neinna kreppueinkenna á yfirborðinu. Óburðugur hlutabréfamarkaður sýnir svipuð einkenni og þróuð viðskipti í kauphöllum vestan hafs, bréfin eru á stöðugri upp- leið og er markaðsverð þeirra löngu komið yfir á það stig sem efasemdarmenn kalla ofhitnun í hagkerfinu. En óhefti markaður- inn er ekki alltaf eins skynsamur og hann er drottnungargjarn. Verðbólgueinkennin sem ráða- menn efnahagsmála reyna nú að afneita til að magna ekki upp ótrú á kerfin, eru sýnu alvarlegri en þau sýnast vera á kyrrlátu yf- irborði stöðugleikans. Og komist verðbólgan á skrið er enginn barnaleikur að stöðva hana. Það sem við blasir er að verðtryggðar skuldir munu hækka í takt við aðrar hækkanir. Vextir munu hækka að sama skapi. Skuldir heimila magnast og verður enn erfiðara að standa í skilum eftir því sem tímar líða. Verðhjöðnun fasteigna og lausa- fjármuna getur fylgt í kjölfarið og þarf ekki mikið Qármálavit til að sjá til hvers slík þróun leiðir. Verðbólguhrautm rudd Það undarlega gerist, að það eru stjórnvöld og nokkur öflugustu fyrirtæki landsins sem kveikja eldana og kynda undir það ófrið- arbál, sem þeir geta orðið að. Ríkið, tryggingafélögin og olíu- risarnir ryðja verðbólgubrautina með ótímabærum verðhækkun- um og bankarnir eru ekki seinir á sér að tilkynna vaxtahækkanir. Stjómmálamenn og hálaunað- ir viðhlægjendur þeirra veija fá- ránlegar kauphækkanir, sem glámskyggnir kjarardómarar færa ráðherrum, alþingisfólki og æðstu embættismönnum á gull- diskum. Flottræflamir í Kjara- dómi umbuna pólitíkusunum með peningum sem sóttir eru beint í grunna vasa skattgreið- enda. Nú heimta lægra settir embættismenn líka sínar kaup- hækkanir og eru samanburðar- fræðin í hávegum höfð meðal flestra stétta opinberra starfs- manna. Reynt er að afsaka bjálfaskap- inn með því að hækkunin á laun- um þeirra sem Kjaradómur ber fyrir bijósti nemi Iitlum upphæð- um miðað við önnur ríkisútgjöld. Það má satt vera, en hitt gleym- ist, að launakjör eru tilfinninga- mál og að Iaunþegum almennt er gróflega misboðið þegar lands- feðurnir nota aðstöðu sína til að hygla sér og sínum á óskamm- feilinn hátt á viðsjárverðum tím- um. Svo biður þetta sama fólk al- menna launþega að sýna hóg- værð og biðlund til að viðhalda þeim stöðugleika sem póli- tíkusarnir hampa sem dæmi um eigin stjórnvisku. Allir tapa Eins og að framan greinir byggist velgengni á verðbréfaviðskiptum á trú á Ijárfestingum og vænting- um um að þær skili arði. Ef menn hafa trú á stjórnendum fyrirtækja sem eru á hlutabréfa- markaði og halda að þeir muni reka fyrirtækin af viti og forsjá, eykst eftirspurnin eftir hluti í þeim félögum og verðið hækkar. Ef stjórnendur aftur á móti standa ekki undir væntingum, svo ekki sé talað um að þeir séu spilltir og lagnir að skara eld að eigin köku falla aksíurnar og all- ir tapa. Þegar alþingismenn og ríkis- stjórn ganga á undan með slæmu fordæmi í launamálum og verðhækkunum og njóta at- fylgis stærstu fyrirtækja landsins, verður trúnaðarbrestur. Það er engu líkara en að stjórnendur hafi enga hugmynd um að al- mennir kjarasamningar eru í nánd og að launakjör eru líka til- finningamál, engu síður en gengi fyrirtækja á verðbréfamörkuð- um. Þegar að kröfugerð og samn- ingum kemur munu ráðherrar og atvinnurekendur spila á tilfinn- ingar og heQa sinn hræðsluáróð- ur. Þeir munu benda á verð- bólguhættuna og sýna hvernig verðtryggðu skuldirnar munu bólgna út og margfaldast. Föður- legar áminningar um hættu á at- vinnuleysi munu magna áhyggj- ur skuldugra einstaklinga. Þenslumerkin blasa hvarvetna við og lætur það opinbera ekki sitt eftir Iiggja að ráðst í fram- kvæmdir og hækka kaup þeirra sem eru sólarmegin í launaskal- anum. Láglaunafólki í fiskverk- un og nokkrum öðrum „úreltum" atvinnugreinum er sagt upp í stórum stíl. Sýnast uppsagnirnar einkum vera í landshlutum þar sem sífellt er kappkostað að leita byggðajafnvægis, hvað sem það kann að merkja? Ofhitnun í peningakerfinu, launahækkanir og uppsagnir, skuidasöfnun og þensla og verð- bólga og verðhjöðnun. Allt eru þetta vel sýnilegir þættir í ís- lensku efnahaglífi, en er samt af- neitað vegna þess að markaðs- hyggjan byggir ekki síður á til- finningu og óskhyggju en raun- verulegu verðmætamati. Hún á það sameiginlegt með sósíalism- anum. Ef til vill er tími til kominn að láta stöðugleikann sigla sinn sjó. Góðærið sem honum er samfara hefur hvort sem er aldrei náð nema til helmings þjóðarinnar, eins og jafn glöggur efnahags- rýnir og Sigurður B. Stefánsson er, hefur bent á. Hvað við tekur er best að spá sem minnstu um, en það verður ekki sú kyrrstaða sem mörgum þykir eftirsóknarverð. En nýlega tók Vísbending undir með fyrr- nefndu bresku tímariti um efna- hagsmál, að innan tíðar muni stóráföll ríða yfir verðbréfa- og peningamarkaði í okkar heims- liluta eins og öðrum. Spurningin er ekki hvort heldur hvenær?

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.