Dagur - 11.06.1999, Page 4

Dagur - 11.06.1999, Page 4
4 - FÖSTUDAGVR 11. JÚNÍ 1999 Ny sendmg væntanfeg Glæsilegt úrval Nýjar gerðir af gosbrunnum, úti og inni, styttum, dælum og Ijósum, garðdvergum ' aHL fuglum o.fl. til garðskreytinga GÆÐAMOLD MOLDBLANDAN - GÆDAMOLD EHF. Pöntunarsími 567 4988. Vörufell hf. v/Suðurlandsveg, Hellu Sími 487 5470 Gæðamold í garðinn Grjóthreinsuð mold, blönduð áburði, skeljakalki og sandi. Þú sækir eða við sendum. Afgreiðsla á gömlu sorphaugunum í Gufunesi. Sænsku bjálkahúsin frá Stevert AB i o - 20 - 27 og 40 m2 Sýningarhús á horni Hátúns og Sólfúns. - Sumarhús Sími 581 4088 og 699 6303 S JÍOPi SLATTUVELAR VETRARSOL Landsþekkt varahlutaþjónusta HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864 HÚS& GARÐAR Maggnús Víkingur innanum sólstofuefnið. - mynd: teitur I sólstoítmni er varminn allt árið íslenska sumaríð er stutt og stundum er eins ogþaðgleymi að koma. Þá erugóð ráð dýr. „Upp úr stríðsárunum fer fólk, einkum í þéttbýli, að huga að görðum og ræktun þeirra. Þá brugðu banghagir menn á það ráð að gera svokallaða vermireiti (trékassi með glerloki) til að lengja sumarið fyrir konuna." Þessa gullvægu setningu er að finna í bæklingi frá Gluggum og garðhúsum og höfundur hennar er Maggnús Víkingur fram- kvæmdastjóri. Og hann heldur áfram: „I öðrum tilvikum höfðu hagleikmennirnir sjálfir gaman að ræktuninni og slógu þá upp sjálfstæðu húsi í garðinum og þótti mikið til koma, j?ar mátti jafnvel koma fyrir stól og fá sér kaffisopa. Næst fóru menn að tengja þessa garðskála við sjálft íbúðarhúsið og upp úr því taka framúrstefnuarkitektar að hanna íbúðarhús með sólskál- um, þar sem um eitt og sama húsrýmið er að ræða. I dag þykir sjálfsagt að hafa sólstofu, en það er vandasamt að byggja hús úr gleri á þann veg að notalegt sé til íveru, hvort heldur úti sé 20 stiga frost og rok, 20 stiga hiti og logn eða lemjandi slagveður." Eins og vænta má kemur svo í framhaldi af þessari klausu stað- hæfing um að Gluggar og garð- hús hafi fundið bestu lausnirnar á vandanum og þvf er eðlilegt að spurt sé: Hver er galdurinn? því svarar Maggnús svo: „Ja, við höfum unnið að þessari þróun í 15 ár og þar sem saman fer ís- lenskt hugvit og afburða efni þá fer ekki hjá því að útkoman er góð.“ Efnið sem Maggnús á hér „Ef þíí vcerir gltiggi þd bceðir þú um að vera hvítur.“ við er gler og plast frá þýska framleiðandanum Kömmerling. „Þetta plast er efni sem rakinn vinnur ekki á, fúasveppurinn kemst ekki að og sem veðrast ekki neitt,“ segir Maggnús. Hann segir plastrammana bara til í hvítu því fyrirtækið forðist að nota liti sem vegi að efninu sjálfu. „Sólarljósið er versti ó\án- ur glugganna og ef þú værir gluggi þá bæðir þú um að fá að vera hvítur því hvíti Iiturinn þenst minnst út,“ útskýrir hann. Flottustu sóUiúsin eru á ís- landi Maggnús segir framleiðendur efnisins í Þýskalandi hafa á orði að hvergi í heiminum séu jafn flott sólhús og hér á Islandi. „Þeim finnst við hafa náð at- hyglisverðum tökum á hitastýr- ingu í húsunum í því sveiflu- kennda veðurfari sem hér ríkir,“ segir hann og er greinilega ánægður með þann vitnisburð. „Við mælum með hitaspírölum í gólfin því það er ónotalegt að stíga á ísköld gólf þegar maður ætlar að láta fara vel um sig.“ Um smíðina segir Maggnús að fyritækið reyni að uppfylla kröf- ur og þarfir kaupendanna hvers fyrir sig.“ Þetta er allt sérsmíði og við þjónum bæði sérvitring- unum og hinum sem fara troðn- ar slóðir." Hann kveður verðið á fermetranum nánast það sama og í öðru fbúðarhúsnæði á höfðuborgarsvæðinu eða nálægt 100 þúsundum. „Þetta er ekkert annað en fbúðarhúsnæði sem hægt er að nota allt árið um kring því þar er alltaf ylur. Sum- ir halda að það sé einkum þægi- legt á sumrin en staðreyndin er sú að það er ekki síður notalegt á öðrum árstímum. Við tölum stundum um gluggaveður þegar sólin skín úti en kuldinn nístir um leið og komið er út fyrir dyr. Sólstofan gerir okkur hinsvegar Ideift að njóta gluggaveðursins, með stóru N í njóta.“ Þessi síðasta staðhæfing Maggnúsar kveikir á einni óskyldri spurningu í lokin: Af hverju hefurðu tvö g í Maggnús? „Magnus er lanteskt lýsingarorð sem þýðir mikill og útlendingar bera það fram með opnu gi. Þegar það hinsvegar er skrifað með tveimur g-um þá bera þeir það rétt fram þannig að Maggn- ús er nothæfara nafn á alþjóða- vettvangi." — GUN

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.