Dagur - 11.06.1999, Page 5

Dagur - 11.06.1999, Page 5
Tfc^wr. HÚS & GARÐAR FÖSTUDAGUR 11. JÚ\Í 1999 - s í skeifunni er skjóiið. - myndir: teitur Þau hafa ræktaðgarð- inn sinní20 árog þykirhvergi betra að vera. Húsið Skeifa við Breiðholtsveg lætur ekki mikið yfír sér þegar rennt er framhjá því, né heldur garðurinn umhverfis það en þegar að garðshliðinu er komið kemur mikil paradís í ljós. Þarna búa hjónin Kristín Viggósdóttir og Birgir Dýrfjörð og hafa gert í 20 ár. Þótt þau séu aðeins nokkra metra frá einni mestu umferðargötu borgarinnar, Reykjanesbrautinni, virðist ys- inn víðs Ijarri þegar komið er inn í garðinn. Þegar haft er orð á því við húsmóðurina tekur hún undir það og segir: „Við þurfum heldur engan sumarbú- stað. Við erum hér í garðinum allt sumarið. Hér er alltaf hópur af fólki hverja einustu helgi og mikið um að vera. Við grillum oft úti og dreifum þá borðum hér um blettinn. Þetta er sko enginn sparigarður," bætir hún við með áherslu. Skeifa stendur skammt frá Bláhorninu við Smiðjuveg í Kópavogi. Umhverfis húsið er 1200 fermetra stór garður, sem sameinar það sem góðir garðar eiga að gera, notalegheit og nyt- semd, fegurð og fijálsræði. Kristín hefur orð á að garðurinn sé alls ekki kominn í skrúðann sinn og hún sé ekki einu sinni búin með öll vorverkin enn, enda sé hún í fullri vinnu utan heimilisins. „Eg á eftir að setja sumarblómin út og fylla öll ker- in,“ segir hún og bendir um leið inn í forstofuna, þar sem blasa við kassar með sumarblómum sem hún er búin að forrækta. Þar má m.a. sjá pattaralegar stjúpur og aðeins minna pattara- legar morgunfrúr. „Eg ræktaði óvenjulítið af sumarblómum þetta árið, það hefur verið svo mikið að gera hjá mér í öðru,“ segir Kristín afsakandi. Hún segist byija sáningu sumar- kné. Rabarbarinn er kominn vel á legg og sólberjarunnar og rifs- berjarunnar gefa fyrirheit um fullar sultukrukkur með haustinu. Jarðarberjaplöntur eru í tveimur kössum. „Þetta eru mjög góðar plöntur sem gefa vel af sér,“ segir Kristín. Hún kveðst ekki þurfa að verja þau fyrir fuglum. „Börnin tína þau jafnóðum,“ segir hún brosandi og sér greinilega ekki eftir upp- skerunni upp í litla munna. Skeifan hans Birgis í Skeifu Birgir segist ekki hafa eins græna fingur og frúin og hann hafi í raun ekki fengið áhuga á garðinum fyrr en á síðustu árum. „Ég er með hjólbörupróf og hef hjálpað til að ganga frá grjóti og Ijósum í beðin,“ segir hann, en bætir við að hann eigi hinsvegar heiðurinn að skeifu- laga hvilft í garðinum, sem hafí verið mikið notuð til sólbaða. „Hér uppi á holtinu var alltaf næðingur áður en trén og runn- arnir komu svo ég safnaði sam- an nokkrum vinum og fékk þá til að grafa þessa holu með mér. Við höfðum þetta sem sérstakt gæluverkefni, vorum með vodka með okkur og úr þessu varð hin besta skemmtun. Hér verður al- ger hitapottur í sólskini á sumr- in,“ segir hann og bendir stoltur á skeifu með borðum og bekkj- um sem sómir sér vel í garðin- um. Hraungrýti af ýmsum stærð- um prýðir garðinn og setur á hann sterkan svip. „Það náðum við í suður í Lönguhlíð á Reykja- nesi. Hraunið laðar til sín fugla og er ekki síður fallegt í snjón- um á veturna en sólskininu á sumrin,“ segir Birgir. Eitt er enn ótalið sem þau hjón rækta, það er sjálf moldin. Kristfn lýsir því: „Við höfum ekki keypt mold í mörg ár heldur erum með þrjá safnkassa og búum til alla þá mold sem við notum utan húss. I því er heil- mikill sparnaður og svo er nú eitthvað göfugt við þessa hringrás svo ánægjan er erfiðis- ins virði." — GUN Rómantíkin blómstrar á bekknum. vel hvað maður afþreytist í garð- inum. Auðvitað getur fólk keypt sér tilbúna garða og dormað þar. Sá stíll er bara ekki fyrir mig. Mér fínnst miklu skemmtilegra að fá náttúrlegt land upp í hend- ur og móta garðinn sjálf.“ Hluti af grasflötinni er hallandi og Kristín segir þau hjón ekki hafa viljað breyta landinu of mikið heldur hafa það sem uppruna- legast. „Þessi garður er sönnun þess að hægt er að gera sér þokkaleg- an reit án þess að kosta miklu til,“ segir Kristín. „Eg hef sáð til margra þeirra blóma sem ég er með. Lyklarnir eru Iangflestir heimaræktaðir, valmúginn, ridd- arasporinn og ýmsar fleiri teg- undir. Mér hefur líka verið gefið mikið af íjölærum blómum. I byrjun gleypti ég við öllu sem mér bauðst en innan um voru óþægar plöntur sem vildu fara um allt. Maður er auðvitað alltaf að læra, færa til plöntur og losa sig við aðrar sem vilja taka stjórnina og sá sér út. Það er allt í lagi að blómin breiði úr sér, þá sting ég bara utan úr þeim og gef öðrum, það er mörg plantan farin úr þessum reit í aðra garða.“ Tcgundirnar skipta liuiiilruduiii Þegar þau Kristín og Birgir sett- ust að í Skeifu fyrir tuttugu árum var garðurinn nánast ónumið land. Þar voru fjögur tré og þrjár tegundir af blómum, lúpína, garðabrúða og jakobsfíf- ill. Nú skipta tegundirnar hund- ruðum. „Þetta er uppáhalds- blómið mitt,“ segir Kristín og bendir á hjartablóm, sem er að taka við sér eftir veturinn og búa sig undir að blómstra í júlí. Sjö tegundir af rósum eru í garðin- um og bera þær allar blóm en Kristín segir staðinn tæpast nógu skjólgóðan fyrir rósir. Þau hjón rækta grænmeti til heimilisnota, sá nokkrum kíló- um af kartöflum og eru með kál í þremur kössum. I einum kass- anum er meira að segja grænkál frá fyrra ári, sem ekki hefur látið íslenska veturinn koma sér á blómanna í febrúar í kössum inni í gluggum og smá venja þau svo við útivistina þegar fer að vora. „Það er mikil vinna í þessu en hún er skemmtileg.“ Frístiiiidiriiar fara í garðinu - En hvernig fer Kristín ctð þvt' að halda beðunum hreinum og snyrtilegum? „Þetta er auðvitað óþrotleg vinna og allar mínar frístundir fara í garðinn yfir sumarið en það er líka heilmikil slökun í því að róta í moldinni. Þegar vinnan er krefjandi þá finnur maður Maður er auðvitað alltafað lcera, fcera tilplöntur og losa sig við aðrar sem vilja taka stjórn- ina og sd sér út. Kristín og Birgir á hlaðinu við Skeifu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.