Dagur - 11.06.1999, Síða 10

Dagur - 11.06.1999, Síða 10
10 — FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 rD^tr HÚS& GARÐAR poore þegar við vorum þar á ferð,“ segir Agúst. Sturlaugur Þorsteinsson sá um burðarþol hússins og hornfirskir smiðir, Leifur í Sætúni og Sveinn Sig- hvatsson, smíðuðu það, auk Agústs. „Það er óupphitað en við settum í þetta svokallað K- gler, sem er með einangrun- arfilmu og því nægir birta til að hita það upp. Reyndar er heil- mikill munur á hitanum niðri í stofunni og uppi á svölunum," segir hann. Frúin skýtur inn í að húsið geti líka verið ágæt kæli- geymsla. „Við förum gjarnan með jólamatinn hingað út því í skammdeginu er þetta öndvegis kælir.“ Dýrt? „Jú, þetta var rán- dýrt í upphafi en viðhaldskostn- aður hefur verið Iítill og þegar við tókum glerhúsið í notkun Iækkaði kyndingarkostnaðurinn töluvert. Grindin er gerð úr lím- tré og furu og hana þarf að mála og bera á reglulega en glerið hefur staðið vel tímans tönn.“ Glæsilegt útsýni af svölunuin Útgerðarmennirnir Agúst og Halldóra Bergljót, eða Gústi og Begga eins og þau eru gjarnan kölluð, hafa glæsilegt útsýni af svölunum, suðvestur yfir fjörð- inn og eyjarnar, sem tignarleg fjöll og sjálfur Vatnajökull mynda bakgrunn við. „Maður formar helst ekki að setjast með kaffibollann sinn annars staðar en hér á svölunum," segir Gústi og Begga tekur undir það. Hún viðurkennir hinsvegar að ann- ríki þeirra hjóna valdi því að þessi paradís sé minna notuð en skyldi. „Hjá mér fer tíminn mest í rekstur útgerðarinnar og sveitarstjórnarmálin og Gústi getur ekki setið auðum hönd- íslendingarbúa við nóttlausa voraldarver- öld á þessum árstíma en víðagerirhafgolan vart við sig með morgni. Gústi og Begga á Homafirði kunnu að setja undir þann leka. „Við vorum orðin svo þreytt á gjólunni hér á svölunum að við ákváðum að byggja yfir þær og þá var eins gott að gera það al- mennilega," segir Agúst Þor- björnsson, sem býr ásamt konu og fjórum börnum i húsinu nr. 13, við Hrísbraut á Hornafirði. Þau byggðu hátt og rismikið glerhús fyrir 12 árum og myndar það einskonar fordyri við íbúðar- húsið. „Það er þægilegur hiti í glerhúsinu allt að því 8 mánuði á ári, frá því í endaðan febrúar og fram i endaðan október, það er að segja þegar bjart er í veðri,“ segir Agúst. Húsið er um 30 fermetrar að grunnfleti og inn í það er gengið af stéttinni. Þegar inn er komið liggja tröpp- ur bæði upp og niður. Annars vegar niður í sólstofu þaðan sem hægt er að ganga út í garð og Iíka inn í kjallara, hinsvegar upp á svalir þar sem aðalinngangur- inn er í húsið. Arni Kjartansson, arkitekt, teiknaði og hannaði glerhúsið og hann gerði reyndar betur því hann færði fjölskyldunni fyrstu plöntuna, risavaxna monsteru, sem aldrei var kölluð annað en skrímslið. „Við sáum slíka plöntu vaxa villta úti í Singa- Það er upplagt að forrækta ýrrtsar tegundir innan við glerið. - mynd: ólafur pétur um. Auk þess að sinna útgerð- inni er hann þessa stundina að byggja við húsið hinum megin og svo er hann mikill ræktunar- maður." Gústi vill sem minnst úr þeim eiginleikum gera en segist samt vera þátttakandi í Þegarvið tókum glerhúsið í notkun lækkaði kyndingar- kostnaðurinn. skemmtilegu verkefni á vegum landgræðsluskóga á Meðalfelli í Hornafirði, þar sem í vor verða settar niður 18.000 skógarplöntur. En notar hann þá ekki glerhúsið til ræktunar líka? „Jú, ég hef haft gaman af að forrækta þar ýmsar tegundir, sem ég fer síðan með út í garð eða upp að sumarbústaðnum í Stafafellsfjöllum. Ræktunin hér er mismikil eftir árum," segir Gústi og bætir við hlæjandi: „Eg held að besta lagið á henni hafi nú verið eitt vorið þegar við Begga fórum til Mallorka og Jóhanna, vinkona okkar, hugs- aði um plönturnar. Þá var hér svo mikið blómahaf þegar við komum heim að við gleymum því aldrei." G.ústi og Begga halda vinum sínum stundum herlegar veislur í sólskálanum og opna þá gjarn- an út í garðinn, sem hefur líka upp á margt að bjóða, ræktarleg tré, hornfirskt gabbró og rótar- hnyðjur af IJörunum. Þar er grillaður humar, lúra og annað sjávarfang og ekkert skorið við nögl. „Við kunnum vel að meta það sem við höfum hér á Hornafirði og ekki spillir þegar fleiri koma og njóta þess með okkur.“ - GUN Hér er sumarstemmning 8 mánuði á ári. - mynd: ólafur pétur VIÐ hófum ianga reynslu í ræktun bloma og urvatid af sumarbtómum, fjöímrum btómum, rósum og kálptóntum hefur aldrei veríð me 'ra en í ár, KOMtD, SKO0IÐ EDA HFUNQID. PAÐ BORQAHSIQ. GARÐYRKJUSTÖÐ INGIBJARGAR SIGMUNDSDÓTTUR HEfÐMÖRK 38 • HVERAGERÐI SÍM! 483 4800 • HS 483 4259 • FAX 483 4005 t___......~ -____2 Sáð í mjúka mold í skólagörðunum er fjöldi barna að stíga sín fyrstu skref á rækt- unarbrautinni. Slíkir garðar eru reknir af sveitarfélögum víða um Iand og starfsemi þeirra hefst þegar skólunum lýkur á vorin. I Skólagörðum Reykjavíkur hefur eldri borgurum einnig gefist kostur á landi til ræktunar á síð- ari árum og hefur það mælst vel fyrir. Þar mætast æskan og ellin og eru hvor annarri til stuðnings og yndisauka. Skólagarðar Reykjavíkur eru 8 og dreifast um borgina. Þetta árið hafa um 1000 börn á aldrin- um 8-12 ára og 40 eldri borgar- ar skráð sig til leiks. Landið sem hver og einn fær er um 18 fm að stærð og gjaldið er 2.000 kr. fyrir aðstöðu og efni. Plönturnar sem unga og eldra fólkið fær til gróð- ursetningar eru forræktaðar í Ræktunarstöð Reykjavfkur i Laugardal. „Tegundunum er alltaf að fjölga sem fara í skólagarðana," segir Anna Rún Hrólfsdóttir yfir- verkstjóri. Fyrir utan þessar hefðbundnu eins og grænkál, hvítkál, blómkál, rófur og rauð- kál erum við t.d. með hnúðkál, púrrulauk, sellerí, timjan og stein- selju. Auk þess eru sett niður sumar- blóm og kartöflur og sáð þremur teg- undum af fræi, næpum, spínati og radísum. Það er heilmikið að gera fyrstu dagana með- an verið er að planta og sá. Ahuginn hjá krökkunum er Iíka mikill og kappið svo verkstjórarnir mega hafa sig alla við að leið- beina þeim og skipuleggja starf- ið. Síðan tekur umhirða beðanna við sem stendur allt sumarið og vökvun tvisvar í viku, ef ekki rignir. Aðspurð um uppáhalds- tegundir barnanna segir Anna Rún að þau séu spenntust fyrir öllu stóru, stórir hvítkálshausar og stórar rófur gleðja þau mjög undir haust og þar sjá þau líka árangur erfiðisins. Skólagarðarnir í Laugardaln- um eru við Holtaveg. Mæðgurn- ar Sólveig María og Auðbjörg voru þar að setja niður kál. Sól- veig María sagðist hafa fengið mömmu í lið með sér því þær hefðu verið í sumarbústað og hún hefði því ekki getað mætt fyrstu tvo dagana. En hefur hún ræktað grænmeti áður? „Já, ég hef hjálpað ömmu á Hjalteyri í garðinum og svo var ég með garð hér í fyrra.“ — GUN

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.