Dagur - 23.06.1999, Blaðsíða 1
Lífshætta leynist
í fótholtamarkmu
Minnstu mimaði að stórslys
yrði á æfíngu í 5. flokki
Völsuugs í fyrri viku þegar
fótboltamark fauk í hvass-
viðri.
Æfingin fór fram á Húsavíkurvelli í leið-
indaveðri og miklum vindi. Strákarnir
höfðu skipt í lið og voru að spila á
„stóru“ mörkin og Arnór Ragnarsson
stóð í markinu öðrum megin. I einni
vindhviðunni skipti engum togum að
markið sem Arnór stóð í fauk um koll.
Fyrir einskaera heppni varð hann þess
var og sýndi mikið snarræði þegar hann
kastaði sér aftur á bak og undan
markslánni áður en hún féll á hann.
Hann lenti inni í markinu og varð ekki
meint af, en kvaðst hafa verið mjög
hræddur á eftir. Félagar hans sögðu að
það hefði komið rosalegur dynkur þegar
markið féll í völlinn. Tæplega hefði þurft
að spyija að leikslokum ef marksláin
hefði fallið á drenginn.
Mörkin voru ekld fest niður eins yfir-
leitt er krafist og ástæðan íyrst og fremst
sú að stöðugt er verið að færa mörkin til
á vellinum því þar æfa margir flokkar og
nota misstóran hluta vallarins. Því vill
gleymast að festa mörkin niður eftir
flutning og þegar Víkurblaðið leit við á
æfingu í 5. flokki á mánudag voru mörk-
in enn ófest.
Sveinn Hreinsson, tómstundafulltrúi
Húsavíkur sagði í samtali við Víkurblað-
ið að svona nokkuð mætti auðvitað ekki
Arnór Ragnarsson í markinu sem nærri féll á höfuð hans á
æfingu á dögunum.
eiga sér stað. Hann vissi ekki af þessu at-
viki en sagði að vallarstarfsmenn undir
hans stjóm bæru ábyrgð á því að fylgast
með öryggismálum á völlunum. Aðalvall-
arstarfsmaður var reyndar ekki við í sfð-
ustu viku sem kann að vera skýring. „En
mér sýnist að við verðum að fylgjast mjög
vel með þessum málum eftir þetta atvik,
það verður einfaldlega að koma í veg fyr-
ir að svona lagað geti gerst," sagði Sveinn.
Þeir sem til þekkja á æfingasvæðinu
vita að stöðugt er verið að færa mörkin til
og því erfitt um vik fyrir vallarstarfsmenn
að fylgjast með því að mörkin séu ávallt
tryggilega fest niður. Það væri því kannski
eðlilegt að beina því til þjálfara allra flok-
ka að fýlgjast með því að fyllsta öryggis sé
gætt hvað þetta varðar í upphafi æfinga,
sérstaldega í hvassviðri eins og á dögun-
um.
Og það eru fleiri mörk í bænum en á
fótboltavellinum. Þau eru til staðar á
Ieikvöllum og fyrir skömmu féll niður
mark á leikvelli og Ienti á rist ungrar
stúlku og hefði getað farið illa. Sveinn
segir að bæjarstarfsmenn fylgist stöðugt
með festingum á þessum mörkum, en
krakkamir væru sífellt að losa þau og
flytja til. Þau héngu í mörkunum og
gerðu sér leik að því að fella þau og þeg-
ar for myndaðist framan við mark væru
þau umsvifalaust færð til. „Þama þurfum
við líka að fylgjast betur með og jafnvel að
vera með starfsmann á stöðugri ferð milli
leikvallanna á hveijum degi. Því þó mörk-
in þar séu minni en á fótboltavellinum,
þá geta þau líka valdið slysurn." JS
Jón ingi
Guömundsson,
sem án efa er
langsterkastur
Þingeyinga, stóð
sig frábærlega á
Hálandaleikunum
á Húsavík í síðustu
viku. Hann hafnaði
í 3. sæti eftir
harða keppni við
sterkustu menn
íslands.
Enn óvissa
hjáFH
Að sögn Rein-
hards Reynis-
sonar, bæjar-
stjóra og stjóm-
armanns í Fisk-
iðjusamlagi
Húsavíkur, hafa
engar ákvarðan-
ir verið teknar
um aðgerðir í
kjölfar sölu FH Reinhard
á Húsvíkingi til Reynisson
Noregs. „Málin
eru í vinnslu og
skoðun og ýmsar þreifingar í
gangi, en á þessu stigi er ekkert
hægt að segja um til hvers þær
leiða. FH er lykilfyrirtæki í at-
vinnulífnu sem komið var í nokk-
ur vandræði sem við teljum okkur
hafa losað það úr með sölunni á
skipinu og nú þarf að byggja það
upp á ný. Á þessu stigi liggur ekki
fyrir hvaða leið verður valin í því
skyni,“ sagði Reinhard. JS
(ierjtni í
atvinnnlífinn
Að sögn Ama Jósteinssonar hjá
Atvinnuþróunarfélagi Þingey-
inga, hafa á síðustu mánuðum
verið stofnuð eða endurgerð, með
útvíkkun á starfssviði, á fjórða tug
fyrirtækja í Þingeyjarsýslum.
Þrátt fyrir áföll á ýmsum sviðum
atvinnulífsins virðist vera geijun á
öðrum. Að sögn Ama eru þetta
mestmegnis smá fyrirtæki, en
þau hafa þegar skapað um 40 ný
atvinnutækifæri sem gætu orðið
um 200 þegar upp er staðið.
Stærstu fyrirtækin em Miðlun á
Raufarhöfn, meðferðarheimilið
Rerg í Aðaldal og Mýflug, sem
hefur aukið starfsemi sína veru-
lega með áætlun á leiðinni Húsa-
vík-Reykjavík. Þá má nefna að í
Norðursýslunni er kúfiskvinnsla
að hefjast á ný og þar hefur verið
stofnuð bátaleiga.
„Það er mjög margt í deiglunni
og ég efast um að í annan tíma
hafi verið jafn mikið í gangi á jafn
skömmum tíma,“ segir Ami. Og
bendir á því til staðfestingar að
aldrei hafi borist fleiri umsóknir
um styrki og hlutafé til Kísilgúr-
sjóðs, sem veitir fé til nýjunga í
atvinnulífinu, en 38 erindi hafa
borist sjóðnum að undanförnu. JS
Tap í
heimalelk
Völsungar töpuðu fyrsta heima-
leik sínum í 2. deildinni, 1-3
gegn Sterku liði Leiknis. Hínir
ungu Völsungar eru mjög efni-
legir en skortir enn tilfinnánlega
reynslu og sjálfstraust. En þeir
reyndu að spila knattspyrnu all-
an tíman og gáfust aldrei upp.
Þeirra tími mun koma. Mark
Völsunga gerði J.R Matthews úr
vítaspyrnu. Maður leiksins var
kosinn, varnarjaxlinn, Sigþór
Jónsson. JS