Dagur - 10.07.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 10.07.1999, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 -JJI Thypr MINNINGARGREINAR Sverrir Tryggvason Sverrir Tryggvason var fæddur 15. júlí 1920 í Víðikeri, sonur hjónanna þar Tryggva Guðna- sonar, fæddur 6 nóvember 1876 á Hallbjarnastöðum í Reykjadal, hann var bóndi í Víðikeri í Bárðardal og Sigrún- ar Ágústu Þorvaldsdóttur, fædd 2. október 1878 í Syðri Vill- ingadal í Eyjafirði. Systkini Sverris: Helga fædd 1900, Höskuldur fæddur 1902, Kári fæddur 1905, Hörður fæddur 1909, Egill fæddur 1911, Kjartan fæddur 1918. Sverrir kvæntist 18. apríl 1949 Hólmfríði Pétursdóttur firá Reynihlíð í Mývatnssveit og reistu þau nýbýlið Víðihlíð 1958 og bjó hann þar til ævi- loka. Börn þeirra: Héðinn, fæddur 20. september 1949, íyrrver- andi kona hans Hulda Finn- laugsdóttir, þau eiga fjögur börn; Sigrún fædd 9. maí 1953, maður hennar Friðrik Lange Jóhannesson, þau eiga tvo syni; Kristín Þuríður fædd 6. desember 1959, hún á einn son, sambýlismaður hennar er Daníel Sigmundsson; Gísli fæddur 18. maí 1961, kona hans Lilja Sigríður Jónsdóttir, þau eiga þrjú böm. Utförin fór fram frá Reykja- hlíðarkirkju laugardaginn 19. júní sl. Með þessum fátæklegu orðum Iangar mig að kveðja fyrrverandi tengdaföður minn, Sverri í Víði- hlíð. Honum kynntist ég fyrst sumarið 1970, þá ung að árum. Eg fann fljótt hversu hlýr og um- hyggjusamur Sverrir var og tilbú- inn að gera gott úr öllu. Eg man t.d. eitt sinn er hann lánaði mér langa Land-Roverinn sinn og ég byrjaði á að bakka honum ofan í hitaveituskurð fyrir utan Víði- hlíð. Þá var ekki hávaðinn eða skammimar yfir klaufaskapnum í stelpunni. Hann brosti bara góð- látlega, talaði um að þetta gæti nú alla hent og fór síðan að hjálpa mér að ná bílnum upp. Sverri féll sjaldan verk úr hendi og mörg handtökin átti hann í húsinu okkar, þegar við vorum að byggja. Og hann kom oft í Strönd til að rétta hjálparhönd eða til að „bardúsa" eitthvað eins og hann kallaði það. Og ýmislegt bardús- uðum við saman í gegn um tíðina s.s. við kartöfluupptöku og veiði- skap, bæði sumar og vetur. Hvergi fannst mér Sverrir njóta sfn betur en einmitt í veiðiskapn- um, því hann var veiðimaður í húð og hár. Og hann var dugleg- ur að miðla af fróðleiksbrunni sínum þegar maður var í verki með honum. Hann átti ríkulegt málfar og brá oft fyrir sig hnyttn- um orðatiltækjum. Barnabömin kunnu vel að meta samveru- stundirnar með afa og málfarið drukku þau í sig, en ekki fór hjá því að maður glotti stundum út í annað þegar þau voru að reyna að bregða því fyrir sig, en kunnu ekki með að fara. Svona man ég Sverri þegar hann var upp á sitt besta og svona langar mig að geyma hann í endurminningunni. Hann var sérstakur persónuleiki og mér finnst ég ríkari af að hafa fengið að kynnast honum. Hafðu hjartans þökk, kæri Sverrir, fyrir allt sem þú gafst mér og varst mér. Fríðu og fjöl- skyldunni allri sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið Guð að blessa þau. Hulda Finnlaugsdóttir *** Þegar hugsað er til upphafs byggðar á Islandi er það meðal annars tími víkingaferða og hern- aðar sem menn leiða hugann að. Ekki fínnst okkur við fyrstu sýn, að mannslíf hafí verið hátt metin í þeim hernaðarátökum sem ein- kennir tíma víkinganna. En þeg- ar betur er að gætt, kemur samt sem áður í ljós, að á þessum róstutímum var það talið gæfu- merki að bjarga mannslífum. Leifur Eiríksson, sá er sagnir herma að fyrstur hafí fundið Am- eríku hlaut ekki viðurnefnið Leif- ur heppni fyrir landafundinn, heldur fyrir að bjarga skipbrots- mönnum af skeri í bakaleiðinni. Föðurbróðir minn, Sverrir Tryggvason frá Víðikeri í Bárðar- dal sem ég minnist í þessari grein, var einn þeirra manna sem á unga aldri bjargaði mannslífi. Þann 26. maí 1944 var hann að koma heim af greni, þegar hann sá hest fyrir kerru fælast heima við bæinn og detta á sleipu tún- inu ofan á ekilinn, sem ekki var hár í loftinu. Með ótrúlegu snar- ræði og ofurmannlegum kröftum tókst honum að lyfta hestinum af ökumanninum og bjarga Iífi 8 ára frænda síns, sem hesturinn var búinn að lærbijóta og var í þann veginn að leggja saman btjóst- kassann á. Þessi Iitli frændi hans er sá sem ritar þessar línur. Síð- an hefur mér fundist Sverrir frændi eiga meira í mér en aðrir menn á lífsleiðinni. I minningargrein sem ég ritaði eftir andlát Kára Tryggvasonar rithöfundar, bróður Sverris, er birtist í Morgunblaðinu 26. janú- ar sl. lýsti ég bernskuheimiíinu í Víðikeri. Þar sem svo skammt er liðið síðan sú grein birtist, mun ég ekki endurtaka þá lýsingu hér heldur leitast við að bregða upp minningabrotum tengdum sam- skiptum við Sverri og fjölskyldu hans. Eg minnist Sverris sem stóra og myndarlega frændans sem alltaf vildi okkur börnunum í Víðikeri það besta .og var ætíð reiðubúinn að hjálpa ef þess þurfti með. Sá áhugi hans á vel- ferð okkar hefur fylgt okkur alla tíð. Sverrir var mikið náttúrubarn og einstakur veiðimaður hvort sem um var að ræða stangveiði eða skotveiði. Hann bar óblandna virðingu fyrir þeim dýr- um sem hann veiddi og gætti þess svo vel sem kostur var á, að missa ekki frá sér særð veiðidýr. Næmur skilningur hans á ís- lenskri náttúru, bæði lifandi og dauðri, gerði hann eftirsóttan leiðsögumann erlendra ferða- manna. Ollum sýndi hann sama viðmót, háum sem lágum. Sem dæmi um það minnist ég heim- sóknar Filipusar eiginmanns El- ísabetar Bretadrottningar til Mý- vatns, þar sem Sverrir var í hópi fylgdarmanna. Eitthvað hafði feimnin við þennan fræga mann valdið tunguhafti hjá þeim sem fræða áttu gestinn um landið. Skömmu áður en þetta gerðist hafði fálki ráðist á föður minn og rifíð hann til blóðs á höfðinu þar sam honum fannst hann full nærgöngull við hreiður sitt. Þessa sögu sagði Sverrir gestin- um, sem þótti mikið til sögunnar koma. Kom þá glöggt fram, að þessum tigna manni þótti meira um vert að heyra líflegar frásagn- ir náttúrubarnsins en spreng- lærðar ræður fræðimanna í fylgd- arliðinu. Á skólaárum mínum var ég meira og minna viðloða Mývatns- sveit í þijú sumur. Fyrst við að byggja íbúðarhús þeirra Sverris og Fríðu, Víðihlíð og í ýmsum störfum fyrir heimilið og síðar í vegavinnu þar sem Pétur Jóns- son, tengdafaðir Sverris var verk- stjóri. Þessi sumur var ég meira og minna inni á heimili þeirra hjóna og kynntist þá Fríðu og börnunum. Síðan hefur það heimili ætið staðið opið mér og mínum og tengs milli Ijölskyldn- anna verið mjög náin. Á Húsavíkurárum okkar Sig- rúnar fórum við nokkrum sinn- um í útilegur með börnin okkar að Eilífsvötnum á Mývatnsöræf- um. Tvisvar kom Sverrir með okkur. Þegar komið var inn á ör- æfín, og vélaskrölt byggðarinnar að baki var Sverrir í essinu sínu. Þar naut veiðimaðurinn sín. Á þessum árum stundaði ég refa- veiði á vorin með bróður mínum, Tryggva bónda í Svartárkoti. Ég minnist þess að eitt sinn kom Sverrir með okkur í grenjaleit inn í Ódáðahraun. Við fundum tófu á greni í Laufrandarhrauni. Eins og venjulega voru vaktaskipti við að fylgjast með greninu. Það kom í minn hlut að taka vaktina seinni hluta nætur. Á slíkum nóttum getur tíminn verið lengi að líða, en þær stundir gefa manni Iíka einstakt tækifæri til að lifa sig inn í náttúruna og finna sig sem hluta hennar. Und- ir morgunsárið getur orðið nokk- uð kalt og það var óneitanlega kominn nokkur kuldahrollur í mig þegar ég sá Sverri koma til mín. Ekki kom hann tómhentur heldur rétti mér hitabrúsa með nýlöguðu tei blönduðu með skosku vískíi. Enn finn ég keim- inn af þessum drykk og finn hita- strauminn fara um Iíkamann við tilhugsunina. Sverri hafði yndi af hljóðfæra- leik. Lék hann sjálfur á harmon- iku, orgel og píanó. Ekki hafði hann fengið tilsögn á þessi hljóð- færi heldur lék hann á þau eftir eyranu. Til þess að gera slíkt þarf gott tóneyra. Undraðist ég oft næmi hans við raddsetningar laga. I tónlistinni áttum við Sverrir saman margar ánægju- stundir og ég minnist þess tæpast að við höfum hist hin síðari ár án þess að gripið væri í harmoniku og píanó. Eitt síðasta lag Sigfúsar Hall- dórssonar, tónskálds, var við kvæðið Söknuður eftir Þorstein Valdimarsson. Þetta gullfallega Iag spilaði ég æði oft fyrir Sverri sem var hrifínn af því. Tæknin leyfír ekki að láta lagið fylgja þessum minningarorðum en ljóðið kemur æ oftar upp í huga minn eftir þvi sem samferða- menn frá uppvaxtarárunum norður í Þingeyjarsýslu týna töl- unni. Ég kveð elsku ffænda minn og vin með þessu ljóði. Jafnframt sendum við Sigrún Fríðu og öll- um öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hver af öðrutn til hvíldar rótt hallar sér nú og gleyma vöku dagsins um væra nótt vinimir gömlu heima. Þó leið þtn sem áður þar liggi hjá, er lyngið um hálsa brumar, mörg höndin, sem kærast þig kvaddi þá, hún kveður þig ekki í sumar. Andlitin, sem þér ætíð fannst að ekkert þokaði úr skorðum -hin sömu jafn lengi og lengst þú manst - ei Ijóma nú við þér sem forðum. Og undrið stóra, min æskusveit, mun önnur og smærri sýnast. Og loksinsfelst hún i litlum reit af leiðum, sem gróa og týnast. Hvíl í Guðs friði, elsku frændi og vinur Haukur Harðarson frá Svartárkoti. *** Undarlegt frændi, er ég minnist þín altekur hugann voldug fjallasýn. Öræfalandslag, heiður himinn tær, hrynjandi elfur, hvítur jökulsnær. Þetta erindi úr kvæði eftir Kára föður okkar kom upp f hugann þegar við stungum niður penna til að minnast Sverris föðurbróð- ur okkar, en Kári orti þetta kvæði um Tómas Tryggvason frænda þeirra bræðra. Við sem ólumst upp í Víðikeri þar sem þrír bræður, Kári, Hörð- ur og Kjartan, bjuggu með fjöl- skyldum sínum og amma með sonum sínum Agli og Sverri, minnumst þess hve gaman var að eiga heima á svo fjölmennu heimili. Þar var oft mikil glað- værð. Yngri bræðurnir þrír spil- uðu bæði á harmonikku og orgel. Var mikið sungið og jafrível sleg- ið upp balli er gesti har að garði, þar sem allir dönsuðu, jafnt ung- ir sem aldnir. Sverrir frændi var mjög skemmtilegur, hló mikið og var sagnamaður góður, fylgdi honum alltaf hressandi andblær. Hann var mikill útilífsmaður og hafði gaman af ýmsum ævintýrum og ferðalögum. Eftir tvítugt fór Sverrir til vinnu annars staðar en var heima á sumrin við heyskap- inn. Eitt sinn eftir dvöl í Mý- vatnssveit þar sem hann vann við smíðar á hótel Reynihlíð, kom hann heim með kærustu, hana Fríðu. Við systur urðum strax hrifnar af þessari greindu og kátu stúlku úr nágrannasveitinni. Sverrir og Fríða hafa alla tíð búið í Mývatnssveit. Húsið sem þau byggðu þar nefndu þau Víði- hlíð og sameinuðu þar nöfn bemskuheimila sinna. Þau eign- uðust fjögur börn og var Sverrir alla tíð mikill fjölskyldumaður. Til þeirra hjóna var gott að koma enda bæði hjónin gestrisin. Sverrir stundaði jafnan mikið veiðiskap. Veiddi silung og lax og skaut rjúpur og gæsir. Hann sagði oft að hann vildi helst Iifa á landsins gæðum og það gerðu þau hjón að mörgu Ieyti. Þau ræktuðu kartöflur og grænmeti og veiði Sverris og heimaræktaða grænmetið matreitt af Fríðu, sem er listakokkur, hefur nú aldrei verið neinn hversdagsmatur. Sverrir var mörg ár leiðsögu- maður ferðamanna, innlendra sem erlendra. Hann var fróður um land og þjóð og ágætur tungumálamaður. Fékk hann oft póstkort, kveðju og jafnvel heim- boð frá þakklátum ferðamönnum erlendis frá og ekki ósjaldan frá konum sem höfðu kannski litið hýru auga þennan hávaxna og myndarlega íslenska víking. Þá hló frændi og hafði gaman af. Sverrir var mjög músikalskur og spilaði ágætlega á harmoniku, orgel og píanó. Síðast þegar við heyrðum Sverri spila var þegar hann greip í gamla orgelið heima í Víðikeri á ættarmóti fyrir nokkrum árum. Þá söfnuðumst við frændsystkinin í kring um hann rétt eins og í gamla daga. Móðir okkar Margrét, við syst- urnar og fjölskyldur okkar kveðj- um frænda með þökkum fyrir allt sem hann var okkur. Frfðu og fjölskyldunni sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Enn varst þú sannur dáðadrengur knár, dalsins ogfjallsins þegn með hvassar brár, glaður og hress í sölum bergs og báls, bundinn af skyldum, en þó heill ogfrjáls. (Kári Tryggvason) Hildur, Sigrún og Rannveig Káradætur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.