Dagur - 10.07.1999, Síða 8
Vni-LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
MINNINGARGREINAR
L
X^MT
Jón Þór Haraldsson
Jón Þór Haraldsson vélfræðing-
ur var fæddur 15. janúar 1931
í Litladal í Saurbæjarhreppi,
Eyjafirði. Hann lést að heimili
sínu hinn 15. júní síðastliðinn.
Foreldrar Jóns voru Haraldur
Magnússon, málarameistari í
Reykjavík, f. 5. 7. 1900 í
Reykjavík, d. 19.9. 1970, og
kona hans, Unnur Jónsdóttir
Trampe, f. 8.7. 1912 í Litladal,
d. 30.7. 1944. Föðurforeldrar
Jóns voru Magnús Júlíus Dal-
hoffsson, gullsmiður í Reykja-
vík, og kona hans Gíslína Oli-
versdóttir, húsfreyja í Reykja-
vík. Móðurforeldrar hans voru
Jón Pétur Trampe, bóndi í
Litladal, og kona hans, Þórdís
Arnadóttir kennari.
Jón Lauk farskóla Saurbæjar-
hrepps í Eyjafirði 1945, minna
mótorvélstjóraprófi á Akureyri
1948, Iðnskólanum á Akureyri
1951, var í rafvirkjanámi 1952
en lauk sama ár sveinsprófi í
vélvirkjun hjá Vélsmiðjunni
Atla hf. á Akureyri. Hann hlaut
meistararéttindi 1965. Hann
lauk vélstjóraprófi í Vélskólan-
um í Reykjavík 1954 og raf-
magnsdeild 1955. Jón vann við
landbúnað til 1946, í Trésmiðj-
unni Skildi hf. á Akureyri
1946-48, í Vélsmiðjunni Atla
1948-52, var á Stjörnunni RE 3
hjá Sjöstjörnunni hf. í Reykja-
Kirkjustarf________________________
Akureyrarkirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Þátttakendur i
sumartónleikunum taka þátt í messunni.
Ferðafólk velkomið og æskilegt að sjá sem
flest safnaðarfólk. Sumartónleikar í Akureyr-
arkirkju kl. 17:00. Christian-Markus Raiser,
orgel, Þýskalandi. Allir velkomnir. Aðgangur
ókeypis.
Glerárprestakall.
Ath. Kvöldmessa verður í Lögmannshlíðar-
kirkju kl. 21:00. Sr. Gunnlaugur Garðarson.
Hvítasunnukirkjan, Akureyri.
Bænastund á laugardag kl. 20:00.
Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11:30.
Biblíukennsla fyrir alla aldurshópa.
Léttur hádegisverður á vægu verði kl.
12:30. G. Theodór Birgisson sér um kennsl-
una.
Vakningasamkoma kl. 20:00. Fjalar Freyr
Einarsson mun predika. Mikill og líflegur
söngur. Fyrirbænaþjónusta. Barnapössun
fyrir börn 6 ára og yngri.
Ath. alla morgna eru bænastundir kl. 06:30.
Allir eru velkomnir.
Villingaholtskirkja í Flóa.
Kvöldmessa kl. 21:00. Kristinn Á Friðfinns-
son.
Árbæjarkirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00 árdegis. Altaris-
ganga. Organleikari Ravel Smid. Fermd
verður í guðsþjónustunni Ellen Svava Rún-
arsdóttir. Heimilisfang hennar er:
Værebrovej 102, 2880 Bagsværd, Kaup-
mannahöfn, Danmörku. Prestarnir.
Breiðholtskirkja.
Messur falla niður vegna sumarleyfa starfs-
fólks fram í miðjan ágúst. Bent er á guðs-
þjónustur í öðrum kirkjum prófastsdæmis-
ins.
Digraneskirkja.
Kl. 20:30. Kvöldsöngur með altarisgöngu.
Prestur: Sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti:
Kjartan Sigurjónsson.
Fella- og Hólakirkja.
Guðsþjónusta kl. 20:30. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Einleikari á píanó: Ólafur Elías-
son. Prestarnir.
Bænastund og fyrirbænir mánudaga kl.
18:00. Tekið á móti bænaefnum í kirkjunni.
Grafarvogskirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnar-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti
er Guðmundur Sigurðsson. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Prestarnir.
Bænahópur kl. 20:00. Tekið er við bænar-
efnum í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9:00-
17:00 í sima 567-9070.
Hjallakirkja.
Guðsþjónustur í Hjallakirkju falla niður í júlí-
mánuði. Fólki er bent á helgihald í öðrum
kirkjum prófastsdæmisins. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.
18:00. Prestarnir.
vík 1952 og Hvali 4 í skólafríi
1953. Hann var yfirvélstjóri hjá
ÚA á Sléttbaki EA 4 1955-59,
stöðvarstjóri Laxárvirkjunar
1959-82, vann í Vélsmiðju Sig-
urðar H. Þórðarsonar í Kópa-
vogi 1982-84, en eftir það hjá
Marel hf. í Reykjavík. Hann var
formaður prófiiefndar vélvirkja
á Húsavík 1964-72 og bygging-
arnefndar Hafralækjarskóla í
Aðaldal 1966-81.
Hinn 18. maí 1956 kvæntist
Jón Þóru Guðríði Stefánsdótt-
ur, f. 13. 11. 1928 í A-Skafta-
fellssýslu. Foreldrar Þóru voru
Stefán Þórarinsson, oddviti í
Borgarhöfn, f. 19.5. 1887 á
Skálafelli í Suðursveit, d.
10.11. 1967, og kona hans,
Helga S. Sigfúsdóttir, f. 19.4.
1902 í A-Skaftafellssýslu, d.
18.11. 1989. Börn Jóns og
Þóru eru: a) Pétur, f. 25. 9.
1953 í Reykjavík, rafmagns-
verkfræðingur í Reykjavík; b)
Jóna Gígja, f. 4.7. 1955 í
Reykjavík, leikskólakennari í
Málmey í Svíþjóð; c) Unnur El-
ísa, f. 16.6. 1958 á Akureyri,
skrifstofumaður í Reykjavík.
Barnabarn þeirra er Jón Pétur
Georg Bosson Gren.
Útför Jóns Þórs Haraldssonar
fór fram frá Fella- og Hóla-
kirkju fimmtudaginn 24. júní
síðastliðinn.
Kópavogsklrkja.
Vegna sumarleyfis starfsfólks fellur guðs-
þjónustan niður, en kirkjan verður opin á
messutíma. Sóknarprestur.
Seljakirkja.
Guðsþjónusta kl. 20:00. Sr. Ágúst Einarsson
prédikar. Altarisganga. Tríó Eddu Borg flytur
tónlist. Organisti er Sigurður Guðmundsson.
Prestarnir.
Áskirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Árni Bergur Sigur-
björnsson.
Bústaðakirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Prestur sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Organ-
leikari Marteinn H. Friðriksson.
Elliheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl. 10:15.
Grensáskirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00 í umsjá sr. Hreins
Hákonarsonar. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr.
Ólafur Jóhannsson.
Hallgrímskirkja.
Orgeltónlist kl. 12:00 laugardag. Gúnter Eu-
mann frá Duisburg í Þýskalandi leikur.
Messa kl. 11:00. Sögustund fyrir börnin.
Hópur úr Mótettukór syngur. Örganisti Dou-
glas A. Brotchie. Sr. Jón D. Hróbjartsson.
Orgeltónleikar kl. 20:30. Gúnter Eumann frá
Duisburg í Þýskalandi leikur.
Landspítalinn.
Messa kl. 10:00. Sr. Kristin Pálsdóttir.
Háteigskirkja.
Messa kl. 11:00. Organisti Halldór Óskars-
son. Sr. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja.
Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta
kl. 11:00 i safnaðarheimilinu. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Organisti Ólafur Finns-
son. Kaffisopi eftir messu.
Laugarneskirkja.
Kvöldmessa kl. 20:30. Prestur sr. Bjarni
Karlsson.
Neskirkja.
Guðsþjónusta kl. 11:00 í safnaðarheimilinu.
Prestur sr. Halldór Reynisson. Organisti
Reynir Jónasson.
Seltjarnarneskirkja.
Kvöldmessa kl. 20:00. Athugið breyttan
messutíma. Prestur sr. Sigurður Grétar
Helgason. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir
Friðrikskapella.
Kyrrðarstund í hádegi á mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu að
stundinni lokinni.
Oft dettur mér í hug, þegar ég
sé börn að leik, á afgirtum litlum
leikvöllum, hvað við bræður vor-
um í raun lánsamir að fá að alast
upp í sveitinni hjá afa og ömmu,
sem þeirra yngstu börn. Og
frændsystkinin öll, voru okkur í
senn, sem bæði systur, bræður og
foreldrar. Og frelsið sem við höfð-
um, víðáttan, fjöllin og dalirnir,
allt var þetta okkur leikvöllur. En
ungdómsárin í sveitinni voru síð-
ur en svo eintómur Ieikur. Þar
þurftu allir að vinna, og furðu
stuttir voru fæturnir, þegar hver
og einn fékk sín ákveðnu verk að
vinna.
A vorin var látlaus eltingarleik-
ur við sauðféð, sem rásaði fram
um fjöll og dali með lömbin,
hvenær sem af þeim var Iitið, og
þá var tófan jafnan á næstu grös-
um. Það þurfti að reka kýmar eft-
ir mjaldr, sækja hrossin, fara með
mjólkina í veg fyrir mjólkurbílinn,
bera á túnin, herfa, raka af og svo
tók heyskapurinn við, svo fátt eitt
sé nefnt. Og húsdýrin, stór og
smá, urðu leikfélagar okkar rétt
eins og mannfólkið. En gjarnan
gátum við gert okkur vinnuna að
Ieik Iíka. Að loknu verki höfðum
við unnið sigur, í einhverjum leik,
sem við bjuggum til, við verkið.
Leikföng, eins og nú fást í
hverri búð, fengust ekki á okkar
unglingsárum. En það kom ekki
að sök. Jón var ótrúlega útsjónar-
samur við að smfða hitt og þetta
Jenny Helga
Hansen
fæddist í
Vestre Vell-
ing á Jót-
landi, Dan-
mörku, 24.
ágúst 1911
og ólst upp í
Ommstrup.
Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur 11. júní
síðastliðinn. Foreldrar hennar
voru Hans Carl Hansen og
kona hans Ane Hansen, fædd
Christiansen, sem bjuggu í
Ommstrup á Jótlandi. Systkini
hennar: Jens Cristian, Asta,
Börge, Arne og Tage. Asta er nú
ein eftirlifandi. Hún býr á Jót-
landi.
Árið 1933 kom Jenny til ís-
lands og settist að á Akureyri.
Arið 1935 giftist hún Ingva
Jónssyni frá Klúkum í Eyjafirði.
Þau skildu 1948.
Börn þeirra: 1) Anna Carla f.
í janúar 1936, lést ársgömul. 2)
Hrafn, f. 5. ágúst 1937, kona
hans er Olafia Guðrún Stein-
grímsdóttir, f. 27. október
1939. Þau eiga þrjú börn. 3)
Már, f. 12. október 1942,
ókvæntur og barnlaus. 4) Anna
Carla, f. 10. september 1945,
maki Ámundi Ævar, f. 8. ágúst
1943. Þau eignuðust þrjú börn
en skildu.
Hinn 21. september 1957
giftist Jenny seinni manni sín-
um, Orlygi Björnssyni frá Or-
lygsstöðum í Skagahreppi í
Austur-Húnavatnssýslu, f. 24.
desember 1914, d. 19. janúar
1991. Þau bjuggu i Beykjavík.
Jenny og Orlygur ólu upp dótt-
urson Jennyar, Árna Má Mika-
elsson, f. 9. ágúst 1962. Barna-
barnabörn Jennyar eru tólf og
eitt barnabarnabarnabarn.
Útför hennar fór fram frá Bú-
staðakirkju þriðjudaginn 22.
júní síðastliðinn.
og endurbæta annað. Sverð,
sldldir og atgeirar voru í vopna-
safninu þegar okkur datt í hug að
vera Skarphéðinn eða Gunnar á
Hlíðarenda, að ógleymdum örva-
byssu, sem þá voru óþekkt fyrir-
bæri annars staðar, svona ef við
þyrftum nú að beijast við indj-
ána. Allt var þetta smíðað úr tré,
sem ekki var nothæft til annars.
En Jón fór snemma að gefa járn-
inu auga og margt, sem aðrir sáu
sem járnarusl, sá hann sem efni í
nytsama hluti. Sem unglingur var
Jón þrekmaður mikill og var því
við brugðið, er hann á fermingar-
aldri tók tvö hundruð punda síld-
armjölssekki og hljóp með þá,
sem heypokar væru.
Þegar afa og ömmu naut ekki
Iengur við skildu leiðir okkar að
hluta eins og gengur, þar eð störf
okkar réðu stað okkar og tíma.
Dvöl Jóns að Laxárvirkjun var
að mörgu leyti skemmtileg, en
jafnframt mjög erfið. Á vorin
skemmdust vélarnar af sandburði
svo að oft þurfti að taka þær til
gagngerðra viðgerða, og veturinn
var nánast samfelld sólarhrings-
vakt, í baráttu við krapastíflur og
ísingu og voru dæmi þess að
hann þurfti að hlaupa um miðjar
nætur, á nærfötunum einum
saman, í blindbyl, niður í stöð, ef
eitthvað bjátaði á.
En heimsóknir mínar að Laxár-
virkjun til þeirra Jóns og Þóru all-
mörg haustin, til að fara í veiði-
Hverjum og einum er það
drjúgur fjársjóður að eiga góða
nágranna. Þegar við hjónin flutt-
um í Blesugróf á öðrum mánuði
ársins 1949 urðu þau Orlygur
Björnsson og Jenny Hansen
ásamt börnum hennar tveim
næstu nágrannar okkar. Ekki voru
nema nokkrir metrar á milli hús-
anna og við í þessu afrækta hverfi
bæjarins öllum ókunnug. Hvernig
kynni okkar hófust við fjölskyld-
una í húsinu þeirra er tilviljun í
lífshlaupinu en kannski eins al-
gengt að leiði til gagnkvæms vin-
skapar, nálægðar og hjálpsemi öll
árin sem síðan eru liðin. Þann
dag voru treyst bönd sem aldrei
hafa rofnað.
Það var á virkum degi að konan
mín var heima með drenginn okk-
ar sem var nýlega byrjaður þriðja
árið. Hún var að þrífa og þvo eld-
húsið og meðal annars tvær eða
þrjár skúffur sem voru úr litlu
borði sem var öll innréttingin.
Drengurinn sat á borðinu undir
glugganum. Veðrið var gott og
sólin skein. Þegar konan hafði
þvegið skúffurnar datt henni í
hug að setja þær út fyrir dyrnar og
láta hreina Ioftið og sólina þurrka
þær til fulls. En þá varð óhappið.
Útidyrahurðin féll óvart að stöf-
um á hæla henni og lokaðist og
lykillinn var inni í húsinu. Dreng-
urinn sat enn á borðinu og hann
yrði varla lengi rólegur þegar
mamma var ekki nálæg. Það var
lítill tími til að hugsa sig um og
konunni datt strax í hug drengur
sem við höfðum séð að átti heima
í næsta húsi. Það var möguleiki
að fá hann lánaðan, láta hann
skríða inn um þröngan glugga og
opna dyrnar sem voru lokaðar
með smekklási.
Erindinu var vel tekið af móður
drengsins, Jenny Hansen, og
drengurinn Már að nafni, sex ára
gamall, var fús að hjálpa. Allt
gekk þetta vel og við fengum að
vita að húsið þeirra hét Eystri-
skap, voru mér jafnan mikið æv-
intýri. Móttökurnar voru jafnan
stórkostlegar. Þótt Jón væri alla-
jafna mjög upptekinn að haust-
lagi, þá sætti hann lagi, ef því
varð við komið, að skjótast með í
veiðiferð. Og þóttist maður þá
nokkuð góður, ef maður varð
hálfdrættingur hans í veiðinni.
Á heimleið eftir eina slíka kom
upp í hugann:
Á Þeistareykjum þögnin djúpa
ríkir,
á þúfu situr mannkerti og kíkir.
Sjónauka yfir sviðið er að beina,
skyldi leynast rjúpa milli steina.
Hrósar stoltur happi veiðimaður,
hnýtir saman veiði sína glaður,
hendist stðan yfir hóla og kletta,
heldur betur vill úr spori spretta,
bæði laus við borgarstreð og
streitu,
bara að fá nú ekki slag, af þreytu.
Það er mikill missir að Jóni Þór,
því hann var besti bróðir
bræðra hér um slóðir,
en mestur er þó missir þeirra
Þóru, Péturs, Jónu Gígju, Unnar
Elísu og Jóns Péturs, en minn-
umst þess að þótt
„sorgarhjör mér sviða gerði,
samt ei vann mér slig,
því lífsteinn var t sáru sverði
sem að græddi mig. “
Friður sé með þér bróðir.
Svan
hóll. Þannig hófst áratuga vinátta
og nágrenni, samhjálp og traust
sem enginn skuggi féll á.
Við hjónin í Sandhól, en svo
hét húsið okkar, kynntumst þessu
ágæta fólki kannski nánar en
margir aðrir bæði í gleði og sorg.
Börn beggja urðu góðir félagar í
leik og starfi og börnum okkar var
Jenny alltaf svo góð að vart verð-
ur fullþakkað.
Þegar húsin okkar urðu að víkja
fyrir Reykjanesbrautinni kom vel í
Ijós þolgæði Jenny og dugnaður
meðan fjölskylda hennar varð að
hrekjast milli meðan húsið sem
þau byggðu sér í Blesugróf númer
1 reis af grunni og sem varð
heimili hennar til hinsta dags. Og
gæfa okkar hjónanna var mikil að
geta einnig byggt okkur hús í ná-
Iægð. En þó hefði vegalengd
aldrei slitið þau bönd sem tengd
voru þau ár sem við áttum í
gömlu húsunum okkar.
Jenny kom ung að árum til Is-
lands, tókst á við venjur og siði
gjörólíka því sem hún hafði alist
upp við. En hún átti þor til að
takast á við lífsbaráttuna, láta
hvergi undan síga meðan heilsa
og þrek entist. Við hálfrar aldar
kynni kemur margt upp í hugann
sem of langt yrði upp að telja.
Minningarnar hlýju eigum við
sem nutum samfylgdarinnar.
Og nú þegar við hjónin þökkum
Jenny Hansen fyrir allt sem hún
var okkur og börnum okkar leitar
hugur okkar sérstaklega til
drengsins hennar, Mása, sem
fylgt hefur móður sinni alla tíð og
verið henni sú trausta stoð að
ekki verður á betra kosið. Samúð
okkar er tjáð honum okkar besta
fjölskylduvini, einnig systkinum
hans Hrafni og Onnu og öllum
öðrum aðstandendum.
Að lokum innilegar samúðar-
kveðjur frá fjölskyldum okkar
með þökk fyrir vináttu og tryggð.
Óskar Þórðarson
Svanfrtður Ömólfsdóttir
Jenny Helga Hansen