Dagur - 15.07.1999, Síða 1

Dagur - 15.07.1999, Síða 1
FIMMTUDAGUR 15. júlí 1999 2. árgangur - 22. Tólublað Rífandi gangur í fasteignasölu Sveifla á fasteignamark- aði á Suðurlandi. Góð sala í einbýlishúsum og blokkaríbúðir seljast á stundinui. Ldðaskortur vandamál á Selfossi, en úr honum er að rætast. „Sveiflan sem er á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu er nú að skila sér hingað austur fyrir fjall," segir Guðjón Ægir Sigurjónsson hdh, sölumaður hjá Lögmönnum Suður- landi. „Uppsveiflan á markaðnum fór af stað í fyrrahaust og hún hefur haldist alveg síðan. Þetta er nokkuð jafnt yfir svæðið, alveg frá Hvera- gerði og austur á Hvolsvöll. Að mín- um dómi mun þessi uppsveifla hald- ast áffam og fólk sem er að flytja utan af landi og suður á bóginn mun allt eins líta hingað austur fyrir íjall þar sem hér er að hafa alla þá þjónstu sem fólk þarf og gerir kröfu um.“ Reykvíldngar vilja austur Guðjón segir að talsvert framboð sé af ein- býlis- og raðhúsum á Suðurlandi og yfirleitt sé góð sala í þeim. Blokkaríbúðir seljist einnig fljótt, fari nánast um leið og þær koma á söluskrá. „Sem fyrr er Selfoss vinsælasti stað- urinn, en Hveragerði er einnig að koma sterkt inn í myndina. Verð á fasteignum þar er að verða mjög svipað því sem gerist á Sel- fossi, hér austanfjalls er gangverð á góðum einbýlishúsum með bílskúr gjarnan þetta 10 til 11 milljónir sem er svipað verð og er á blokkaríbúðum í Reykjavík. Almennt hefur þó fasteignaverð á Suðurlandi verið að hækka nokkuð að undanfömu." „Það er skortur á fasteignum á Arborgar- svæðinu og það sem einkum veldur er áhugi fólks af Reykjavíkursvæðinu og reyndar víðar að flytja austur,“ segir Þröstur Ama- son hjá Fasteignasölunni Bakka á Selfossi. „Gjarnan er fólk að selja í Reykjavík á yfirverði og kaupir sfðan eignir hér eystra. I raun er það straumur annarsstaðar frá sem núna veldur tilfinnanlegum skorti eigna á söluskrá. Ef fólk er á þeim buxunum að selja sínar fasteignir er rétti tím- inn núna, verðið sem fæst er mjög gott. Annars er að ganga upp núna sú spá sem ég setti fram um áramót þegar ég sagði að mikil sveifla yrði á fasteignamarkaði hér á þessu ári. Og það sér ekki fyrir endann á þessum fjörlegu viðskipum." Suðurbyggö tilbúin í haust Þröstur Arnason segir að í raun sé lóðaskortur helsta vandamálið sem við sé að glíma á fasteignamarkaði á Selfossi um þessar mundir. Ur því mun þó rætast í haust þegar til út- hlutunar koma fyrstu lóðirnar í nýju hverfi, Suðurbyggð, sem er sunnan Engjahverfis. Að sögn Helga Helgason, bæjarritara Árborgar, er nú unnið að gerð deiliskipulags hverfisins og komi ekkert uppá gætu byggingafram- kvæmdir í hverfinu að geta hafíst í september eða október. „Þar verða einbýlis-, par- og rað- húsalóðir og er þegar komið fólk á skrá. Lóð- ir fyrir fjölbýlishús eigum við hinsvegar enn í Tjamarhverfí og þær hafa byggingaverktakar aðeins verið að skoða.“ -SBS. PelastLkk og varðeldar Búist er við allt að 5.000 gestum á landsmót skáta sem sett var á Ulfljótsvatni í Grafningi á þriðjudaginn. Mótið stendur fram á sunnudag og verður mik- ið um dýrðir í þeim anda sem skátar eru þekktir fyrir, svo sem gftarspil og söngur við varðelda og einnig mun fólk reyna með sér í að hnýta pelastikk og reisa kastala og klifurgrindur úr reka- trjám. Rúmlega 1000 erlendir skátar frá 25 þjóðlöndum og fimm heimsálfum taka þátt í mótinu. A landsmóti munu því íslensk ungmenni upplifa í raun hið al- þjóðlega samfélag sem skáta- hreyfingin er. Tugir erlendra skáta verða í starfsliði mótsins. Ungir skátar fá því tækifæri til að kynnast því í reynd að skáta- hreyfíngin þekkir engin landa- mæri. Meðan á mótshaldinu stendur verður Ulfljótsvatn eitt Ijölmennasta byggðarlag lands- ins og verður þar starfræktur banki, pósthús, sjúkrahús, kirkja og eldhús sem frá verður dreift allt að 12.500 máltíðum á dag. - Sjá nánar bls. 19. * Þó hellirignt hafi á Úlfljótsvatni í fyrrakvöld við upphaf landsmóts skáta, sem þar er nú haldið, skein gleðin úr hverju andliti og brugðið var á leik í anda þess sem skátar eru best þekktir fyrir. Landsmótið stendur fram yfir helgi og sækja það um fimm þúsund manns, bæði hér að heiman og einnig mikill fjöldi skáta erlendis frá. mynd: -teitur. Frá Hellu. Verði Rangárþing allt sameinað í eitt sveitarfélag er stóra spurningin sú hvort Hella eða Hvolsvöllur verði höfuðstaður héraðsins. Ólisafnar upplýsingum Starfsmaður ráðinn til söfuunar upplýs- inga vegna samein- ingar sveitarfélaga í Rangárþingi. Samein- ingarvinna á fullt í haust. Sameiningameftid sveitarfélaga í Rangárvallasýslu hefur ráðið Óla Má Aronsson, oddvita Rangárvallahrepps, til að annast gagnasöfnun hjá sveitarfélögum í sýslunni um viðhorf manna og stöðu þeirra mála sem þau hafa á sinni könnu. Ur þessum svör- um verður síðan unnin skýrsla sem verður heilstætt yfírlit um stöðu mála og hægt verður að nota við gerð tillögu um samein- ingu sveitarfélaga í sýslunni. „Eg held að almennt megi segja að viðhorf gagnvart sam- einingu sveitarfélaga eru al- mennt jákvæð,“ segir Elvar Eyvindsson á Skíðbakka í Landeyjum, formaður sameiningarnefndar. “Ég skal ekki segja til um hver okkar til- laga um sameiningu verður, hvenær hún verður tilbúin eða um hana kosið. Ég hygg þó að heppilegast sé að það verði sem fjærst almennum kosningum þannig að pólítísk viðhorf bland- ist síður inn í þetta." Vegabætur við Villingaholt Vegaframkvæmdir eru fyrirhug- aðar í haust við uppbyggingu Villingaholtsvegar frá Hróars- holtsafleggjara að Kolshólti. Þetta er um fimm km vegarkafii og áætlar Vegagerðin að kostn- aður verði 56 millj. kr. Verkið verður boðið út í næsta mánuði. Að sögn Steingríms Ingvars- sonar, umdæmisstjóra Vegagerð- arinnar á Suðurlandi, eru frek- ari vegabætur í lágsveitum Ar- nessýslu fyrirhugaðar á næstu vegum, t.d. á Gaulverjabæjar- vegi frá Glóru og niður fyrir Súluholtsafleggjara. - Almennt þykja vegabætur í lágsveitum sýslunnar brýnt mál, enda veg- irnir afleitir að margra mati.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.