Dagur - 22.07.1999, Side 1
Prestar blessa
sambúð homma
Mikill meirihluti
presta er hlyimtiir
kirkjulegri blessim á
samhúð samkyn-
hneigðra.
72% íslenskra presta eru frekar
eða mjög sammála að rétt væri
að kirkjan blessaði sambúð sam-
kynhneigðra. 37% presta vilja að
samkynhneigðir fái að ættleiða
börn en 28% eru á móti því. Aðr-
ir taka ekki afstöðu til málsins.
Hins vegar eru einungis 18%
presta sem myndu gefa fólk af
sama kyni saman í hjónaband en
64% þeirra myndu alls ekki gera
það. Þetta kemur fram í könnun
sem rit félags Guðfræðinema,
Orðið, stóð fyrir meðal presta.
Arið 1996 voru sett lög sem
gerðu samkynhneigðu fólki kleift
að ganga í staðfesta samvist en
staðfest samvist hefur nákvæm-
lega sömu réttaráhrif og hjú-
Guimartil
skoðimar
Óánægja sókn-
arnefndar Holts-
sóknar í Önund-
arfirði með störf
sr. Gunnars
Björnssonar
sóknarprests,
hefur orðið til
þess að Urskurð-
amefnd íslensku
Þjóðkirkjunnar
hefur tekið mál-
ið til umfjöllun-
ar. Samstarf
Gunnars og sóknarbarna hefur
verið mjög stirt um alllangt skeið
og er prestinum gefinn frestur
fram í miðjan ágústmánuð til þess
að tjá sig eða skila greinargerð
vegna málsins.
Eftir að úrskurðarnefnd hefur
fengið í hendur gögn frá sr. Gunn-
ari mun hún halda vestur í Ön-
undarfjörð og funda með málsað-
ilum. Aður hefur nefndin fengið
gögn frá sóknarnefnd Holtskirkju,
upphaflegum málshefjanda en
einnig frá nokkrum sóknarbörn-
um sem sent hafa úrskurðar-
nefndinni gögn óbeðin. GG
Úánægja er
með störfsr.
Gunnars
Björnssonar.
skapur fyrir utan rétt-
inn til ættleiðinga
barna og réttinn á
tæknifijóvgun. Einnig
hefur kirkjan litið á
þessi tvö sambúðar-
form með mismun-
andi augum.
72% íslenskra presta vilja að kirkjan blessi sam-
búð samkynhneigðra.
Kastað
til þess hendi
A nýafstaðinni presta-
stefnu og á presta-
stefnunni í fyrra var
lítið sem ekkert
ákveðið um málefni
samkynhneigðra inn-
an þjóðkirkjunnar en í
samþykktum prestastefnunnar
árið 1997 var hvatt til áfram-
haldandi guðfræðivinnu og
fræðsluátaks í málinu og átti
helgisiðanefnd að undirbúa bæn
og blessun fyrir samkynhneigt
fólk sem hefur staðfest samvist
sína. Að sögn Ólafs Odds Jóns-
sonar sóknarprests í Keflavík
hefur helgisiðanefndin hins veg-
ar ekki einu sinni komið með
nein dæmi um tillögu í sam-
bandi við bæn og blessun á sam-
búð samkynhneigðra. „Mér
finnst að kastað hafi til þess
hendi hvernig helgisiðanefndin
stóð að þessu verki,“ segir Ólafur
Oddur.
íhaldssöm öíl ráða
Að sögn Ólafs hefur ekkert
markvert gerst í þessum málum
síðan nefnd sem átti að fjalla um
málefni samkynhneigðra skilaði
af sér greinargerð um málið
haustið 1996. „Núna er málið í
biðstöðu innan kirkjunnar. Að
mínu mati verða stofnanir kirkj-
unnar að álykta um málið, ann-
aðhvort með eða á móti. Ef
stofnanirnar gera það ekki þá er
það ekkert annað en vanhæfi.
Það verður að fást niðurstaða í
málinu,“ segir Ólafur Oddur. Að
sögn Ólafs hafa einstaka prestar
blessað sambúð samkynhneigðra
upp á sitt einsdæmi og rúmast
það innan sálgæslu prestsins.
„Það eru hins vegar ákveðin
íhaldssöm öfl innan kirkjunnar
sem hafa gífurleg áhrif á kirkju-
stjórnina og í raun miklu meiri
áhrif en hinir víðsýnu." Ekki
náðist í biskup Islands vegna
sumarleyfa. -ÁÁ
Loksins, loksins sögðu höfuðborgarbúar i gær þegar blíðviðri mildaði geðslagið eftir rysjutíð að undanförnu. Ekki
síst kættust börnin yfir sólinni en misstu þó ekki einbeitinguna eins og sjá má á myndinni. mynd: teitur
HBBBBBBBBHHBHBBBiHBBBBHBHHBHBBflnBBBBII^BI^^HUBBnBBBBBBIBBBHBBBHMHBBB
Á þessari lóð gegnt Einarshúsi á
að rísa 1.438 fermetra verslunar-
og íbúðarhús þrátt fyrir mótmæli.
Umdeilt hús
samþykkt
Bygginganefnd Hafnarfjarðar
samþykkti í gær byggingaleyfi
fyrir 1.438 fermetra verslunar-
og íbúðahús við Fjarðargötu 19
(Strandgötumegin), þrátt fyrir að
fyrirhuguðum framkvæmdum
hefði verið mótmælt af íbúum í
grennd. Byggingarnefndin var þó
ekki einhuga um málið og sat
Asta María Björnsdóttir, fulltrúi
Fjarðarlistans, hjá við afgreiðslu
málsins. Aður hafði minnihluti
bæjarstjórnar mótmælt bygging-
unni í bæjarráði, þar sem Fjarð-
arlistinn hafnaði henni en Al-
þýðuflokkurinn sat hjá.
Viðkomandi lóð hefur verið í
eigu Einars Þorgilssonar ehf. eða
Mathiesen-fjölskyldunnar. I
mars sl. keypti verktakafyrirtæk-
ið Ingvar og Kristján byggingar-
réttinn á lóðinni og hóf fyrirtæk-
ið nýlega framkvæmdir, þrátt fyr-
ir að byggingarleyfi væri ekki
endaniega komið í gegn. Vænt-
anlegt hús er á þremur hæðum
auk kjallara og er gert ráð fyrir
verslun og þjónustu á jarðhæð-
inni, en Ijórum íbúðum á næstu
tveimur hæðum.
Tók breytingum
Samkvæmt heimildum Dags tók
fyrirhuguð bygging breytingum á
hönnunarstiginu, hún var færð
til og stækkuð. Þurfti að breyta
deiliskipulagi miðbæjarins þess
vegna. A borgarafundi, þar sem
framkvæmdirnar voru kynntar,
kom meðal annars fram að fyrir-
huguð bygging hefði verið færð
til á lóðinni að ósk íbúa Strand-
götu 49. Það er einmitt svokallað
Einarshús, þar sem býr Þorgils
Óttar Mathiesen, bæjarfulltrúi
og yfirmaður hjá Islandsbanka.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er fyrirhugað að Islandsbanki
opni útibú í húsinu, en nýlega
keypti bærinn hús íslandsbanka
við Strandgötu. Ekki náðist í
Þorgils Óttar í gær. - FÞG
Sigling yfir Breiöafjörð er
ógleymanleg ferð inn í stórbrotna
náttúru Vestíjarða. A
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524
WORLDW/DC EXPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100