Dagur - 22.07.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 - 3
FRÉTTIR
Guðmimdur Ami
í formeimsku?
Guðmimdur Árni Stef-
ánsson alþmgismaður
hefur verið á ferðalagi
um landið undanfarið
til að ræða við kjós-
endur. Haun segist
ekkert útiloka varð-
audi formennsku hjá
Samfylkmgunni þegar
þar að kemur.
Það hefur vakið nokkra athygli að
Guðmundur Arni Stefánsson al-
þingismaður hefur farið vítt og
breitt um landið í sumar og rætt
við kjósendur. Setja menn þetta í
samband við að hann ætli sér í
formannsslag þegar Samfylkingin
kýs sér formann á næsta ári. Guð-
mundur Ami bauð sig fram gegn
Sighvati Björgvinssyni til for-
manns í Alþýðuflokknum en tap-
aði með litlum mun.
Þá benda Iíka margir á að á
hinu stutta sumarþingi í júní síð-
astliðinn hafi Guðmundur Árni
haft á sér foringjasvip, verið mun
röggsamari og flutt betri ræður en
oft áður, og vildu tengja það því að
hann ætlaði sér forystuhlutverk í
Samfylkingunni. Margir af stuðn-
ingsmönnum Guðmundar, sem
Dagur hefur rætt \ið, staðfesta að
Guðmundur muni vera að hugsa í
alvöru til formennskunnar í Sam-
fylkingunni þegar þar að kemur.
Guðmundur Ami var spurður
hvort hann væri að undirbúa að
sækjast eftir formennsku í Sam-
fylkingunni þegar þar að kemurr
„Eg útiloka ekki neitt í því sam-
bandi, það er allt eins og opin bók,
menn halda bara sínum kortum
og sjá til hveiju iram vindur,“
sagði Guðmundur Ami í gær.
Hann segir að það sé í sjálfu sér
Hann sagðist vonast til að
hafist yrði handa um leið og sum-
arfríum Ijúki í næsta mánuði.
Eins og skýrt var frá í Degi á
dögunum eru tvær nefndir að
störfum varðandi undirbúning að
flokksstofnun Samfylkingarinnar.
I því sambandi hafa menn talað
um að formleg flokksstofnun gæti
átt sér stað næsta vor eða sumar,-
S.DÓR
engin ástæða til að tengja
endilega saman ferðalag
sitt um landið í sumar og
formannskjör í Samfylk-
ingunni. Hann líti svo á
að alþingismenn eigi að
fara um og heyra í fólki og
það út fyrir sitt kjördæmi.
Það hafi hann einmitt
verið að gera í sumar.
Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, hefur farið víða að
undanförnu og er hugsanlega á leið í formannsslag.
Flokksstofnun
Varðandi undirbúning að
flokksstofnun hjá Sam-
fylkingunni sagði Guð-
mundur Ami nauðsynlegt
að fara að vinna ákveðið
samkvæmt skipulögðu
plani hvernig eigi að
formfesta samtökin.
Einar Benediktsson, forstjóri Olís.er
sagður hafa hafnað óskum um að
hann taki að sér formennskuna í
samtökum atvinnurekenda.
Eiiiar
sagði nei
Enn hefur ekki verið ákveðið hver
verði formaður hinna nýju sam-
taka atvinnurekenda sem verið er
að stofna. Olafur Ólafsson, for-
maður Vinnuveitendasambands-
ins, sagði í samtali við Dag í gær
að ákvörðun hefði enn ekki verið
tekin. Erfitt hefur reynst að ná
mönnum saman til funda um
málið vegna sumarleyfa.
Samkvæmt heimildum Dags
hefur Einar Benediktsson, for-
stjóri Olís, hafnað óskum um að
hann taki að sér formennskuna í
samtökunum. Og þar sem for-
maður hefur ekki verið fundinn
hefur nýr framkvæmdastjóri ekki
verið ráðinn, en Þórarinn V. Þór-
arinsson, sem var framkvæmda-
stjóri VSI, hefur verið ráðinn for-
stjóri Landssímans. Jón Sigurðs-
son var framkvæmdastjóri Vinnu-
málasambandsins. -S.DÓH
ítrekuð skemmdarverk hafa verið unnin í skólagörðunum á Akureyri. Smiðir og garðyrkjumenn framtíðarinnar
botna ekkert í óréttlæti heimsins. mynd: billi
Sár og hissa
Töluvert hefur borið á skemmd-
arverkum í skólagörðunum við
Vestursíðu á Akureyri að undan-
förnu. A.m.k. fjórum sinnum
hafa kofar barnanna verið
skemmdir og síðast í fyrrinótt.
Aukinheldur hafa gulrætur barn-
anna verið riíriar upp úr beðum
og eyðilagðar. Eini tilgangurinn
hefur verið að eýðileggja.
„Það er búið að skemma kof-
ana öðru hverju og rífa upp
grænmetið. Þetta er opið svæði
og óvarið. Ég veit ekki hverjir
standa á bak við þetta en líkleg-
ast er að það séu eldri krakkar,"
segir Linda Óladóttir, forstöðu-
maður unglingavinnunnar hjá
Akureyrarbæ.
Þeir sem stunda skemmdar-
verk af fyrrnefndu tagi gera sér
sennilega ekki grein fyrir áhrif-
unum sem niðurrifið hefur á
garðyrkjumenn og húsasmiði
framtíðarinnar. „Börnin verða
óskaplega sár, því það fer oft gíf-
urleg vinna forgörðum hjá þeim.
Þau botna ekkert í þessu,“ segir
Linda.
Dagur skorar á skemmdar-
varga um allt land að leyfa
yngstu kynslóðinni að starfa í
friði. bþ
Lenti í átökum viö Agnar
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson,
sem að svo stöddu er eini grunaði
aðilinn að morði Agnars W. Agn-
arssonar, situr nú í fimm mánaða
gæsluvarðhaldi í fangageymslum
lögreglunnar. Hilmar Ingimund-
arson, sem er dómskipaður veij-
andi Þórhalls, hefur kært gæslu-
varðhaldsúrskurðinn til Hæsta-
réttar með það í huga að reyna fá
hann styttan. Hilmar vildi ekkert
fjá sig um efnisatriði málsinsjpg
vísaði í trúnað og þagnarskyldu
gagnvart skjólstæðingi sínum.
„Málið er núna einfaldlega i rann-
sókn,“ segir Hilmar.
Hilmar hefur áður verið lög-
fræðingur Þórhalls en þó ekki í
Vatnsberamálinu svo kallaða frá
árinu 1995. Hilmar var lögfræð-
ingur Þórhalls nóttina sem Þór-
hallur var stöðvaður fyrir ölvun-
arakstur stuttu eftir að Agnar
hafði verið myrtur en þar sem lög-
reglan hafði ekkert á Þórhall á
þeim timapunkti var honum
sleppt daginn eftir. Um 20 tímum
seinna fannst lík Agnars. Að sögn
lögreglu miðar rannsókn málsins
vel en er þögul um sjálfa rann-
sóknina. Þórhallur á þó að hafa
viðurkennt hjá lögreglu að hafa
lent í átökum við Agnar vegna
gamalla deilumála og skilið Agnar
eftir í blóði sínu umrædda nótt.
Höröur til Korts
Hörður Helgason hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Korts hf., nýs þjónustufyrirtæk-
is á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar og fjár-
málaþjónustu. Fyrirtækið mun einbeita sér
að snjallkortatækni sem nú er óðum að ryðja
sér til rúms í greiðslumiðlun. Hörður er við-
skiptafræðingur að mennt, fyrrum aðstoðar-
forstjóri Olís, framk\|,æmdastjóri Baugs og nú
síðast stýrði hann markaðsmálum hjá Borg-
arplasti hf. Hörður er kvæntur Dórótheu Jó-
hannsdóttur, matvæla- og hagfræðingi, og
eiga þau þijár dætur.
Frímerkjablaðið - nýtt blað
Fyrsta tölublað Frímerkjablaðsins er komið út en það er Islandspóst-
ur sem gefur blaðið út í samráði við Landssamband íslenskra frí-
merkjasafnara. Tilgangur blaðsins er að efla
almennan áhuga á frímerkjasöfnun og bæta
úr miðlun upplýsinga til þeirra sem safna
frímerkjum. Stefnt er að því að blaðið komi
út 2-4 sinnum á ári. Tvö tölublöð koma út
á þessu ári, það seinna í október næstkom-
andi. Blaðið verður sent endurgjaldslaust til
allra áskrifenda Frímerkjasölu Islandspósts
og ákveðnum hópum til kynningar hverju
sinni. Ritstjóri Frímerkjablaðsins er Svanur
Valgeirsson, fræðslufulltrúi hjá Islands-
pósti, og auk hans eru i ritnefnd Eðvarð T.
Jónsson frá Islandspósti og Þór Þorsteins,
Hálfdán Helgason og Sveinn Ingi Sveins-
son frá landssambandi frímerkjasafnara.
Rússar rannsaka
makríl fyrir Norðurlandi
Hópur rússneskra Msindamanna hefur um þessar mundir aðsetur á
Egilsstöðum með sérútbúna flugvél til rannsókna í hafinu norður af
íslandi. Vísindamennirnir vinna að rannsóknum á göngu makríls um
alþjóðlega hafsvæðið norður af landinu. Hópurinn samanstendur af
10 vísindamönnum, nokkrum flugmönnum og tæknimönnum, alls
18 manns.
Venjulegir bergmálsdýptarmælar í skipum nema ekki makrílinn að
neinu gagni vegna þess að hann er ekki með sundmaga en rússnesku
vísindamennirnir nota meðal annars innrauðar myndavélar til að
fylgjast með göngunum. Þeir verða á Egilsstöðum fram að helgi en
áætlað er að fara 4 til 5 flugferðir norður fyrir land ef veður leyfir. GG
Jiolnmiír' .6 ninutii éiiov iio
Forsíða Frímerkjablaðsins.
Hörður Helgason.