Dagur - 22.07.1999, Side 5
FRÉTTIR
L.
n *• • * < i fi i c r a i mi r. c .'f i rn
FIMMTUDAGUR 22. JÚlí 1999 -
s
*
Skáliim á Hvera-
vöHum látiim víkja
Oddv iti Svmavatns-
hrepps segir að þótt
gera verði nýtt
deiliskipulag á Hvera-
vöHum verði nýr skáli
Ferðafélags íslands og
salemisaðstaðan að
víkja fyrir nýrri þjón-
ustumiðstöð. - Báðir
aðHar tala um nauð-
syn þess að ná sáttum.
Urskurðarnefnd skipulagsmála
hefur dæmt deiliskipulag á
Hveravöllum ógilt og lagt fyrir að
það verði unnið upp á nýtt. Það
var Ferðafélag Islands sem kærði
deiliskipulagið til úrskurðar-
nefndar á sínum tíma en Svína-
vatnshreppur í Húnavatnssýslu
hefur með yfirstjórn Hveravalla
að gera.
„Frá okkar bæjardyrum séð var
verið að skipuleggja Ferðafélagið
og eignir þess á Hveravöllum út
af svæðinu. Við áttum sam-
kvæmt skipulaginu að íjarlægja
nýja skálann okkar og alla sal-
ernisaðstöðu. Gamli skálinn var
eiginlega látinn vera í lausu lofti.
Þessu gátum við ekki unað og
kærðum til úrskurðarnefndar og
unnum hluta af málinu.
Deiliskipulagið var dæmt ógilt
sem þýðir að það verður að vinna
það upp aftur,“ segir Haukur Jó-
hannsson, formaður Ferðafélags
Islands.
Hvort Ferðafélagið verður aft-
ur skipulagt út af svæðinu með
nýju deiliskipulagi segir Haukur
að eigi bara eftir að koma í ljós.
„Ég reikna nú með að við setj-
umst niður í haust með þeim
Svínvetningum til að ræða þessi
mál. Það er komin ákveðin nið-
urstaða í málið og það er því ekki
til neins að halda áfram án þess
að ná samkomulagi um
deiliskipulagið," segir Haukur
Jóhannsson.
Skálinn verður að vikja
Jóhann Guðmundsson, oddviti
Svínavatnshrepps, tekur undir
með Hauki um að menn verði að
setjast niður og ná sáttum. Hann
segist vonast til að Ferðafélags-
menn komi til samstarfs við
hreppinn um uppbyggingu nýrr-
ar þjónustumiðstöðvar á Hvera-
völlum. Varðandi það að verið sé
að skipuleggja skála og salernis-
aðstöðu FI út af svæðinu segir
Jóhann að gert sé ráð fyrir að
önnur mannvirki komi í stað
nýrri skálans og salernisaðstöð-
unnar. Hann bendir á í því sam-
bandi að bæði nýi skálinn og sal-
ernisaðstaða séu ósamþykkt hús,
fyrir þeim hafi byggingarleyfi
aldrei verið veitt. Það sé alveg
ljóst að þau mannvirki verði að
víkja fýrir nýrri þjónustumiðstöð.
Jóhann segir Ferðafélagið
aldrei hafa svarað málaleitan
þeirra Svínvetninga um að koma
til samstarfs við að leysa þessa
þætti. Aftur á móti hafi Ferðafé-
Iagið sett fyrir Svínvetninga alls
konar þröskulda.
„Mér sýnist að það sem við
gerum nú sé að stoppa í götin og
ljúka því sem ljúka þarf með nýju
deiliskipulagi. Ég vona að Ferða-
félagið komi nú til samstarfs við
okkur um að leysa þessi deilumál
og að okkur takist að ljúka mál-
inu með sóma,“ sagði Jóhann
Guðmundsson. - S.DÓR
Atvúmumál
liinna f'dtl
uðu óleyst
Fötluðu einstaklingarnir fjórir,
sem sagt var upp störfum hjá
borginni sl. vor, hafa enn ekki
fengið nýja vinnu hjá borginni.
Samkvæmt minnisblaði frá
Agústi Jónssyni skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, sem lagt var
fram í borgarráði sem svar við
fyrirspurn D-listans, er ráðgert
að bjóða þeim tímabundna ráðn-
ingarsamninga „uns heppilegar
lausnir fást“.
Fram kemur að mikil fundar-
höld hafi átt sér stað um atvinnu
fyrir hina fötluðu, með þátttöku
m.a. Eflingar og Þroskahjálpar,
þar sem Ieitað hefur verið eftir
„hugmyndum um lausn á vanda
mannanna", en án árangurs enn
sem komið er. Stendur til að
leita tii sérfræðings og von er á
mati trúnaðarlæknis. Mennirnir
eru enn í vinnu hjá borginni, en
skammt er eftir af uppsagnar-
fresti þeirra. - FÞG
Hninhjá
Samíylk
ingu
Samfylkingin tapar 8% fylgi
miðað við alþingiskosningarnar
ef marka má nýja skoðanakönn-
un Gallups. Sjálfstæðisflokkur-
inn bætir við sig 5% fylgi og
vinstri-grænir sömuleiðis. Fram-
sókn stendur nánast í stað en
frjálslyndir dala úr 4% í 3.
Ef kosið væri nú fengi D-listi
45%, Samfylking 18%, framsókn
17%, VG-framboðið 14% og
frjálslyndir 3%. Aðrir fengju 3%
skv. frétt Sjónvarpsins í gær-
kvöld.
Tatsvert harður árekstur varð við Kristnes í Eyjafirði um miðjan dag í gær. Um aftanákeyrslu var að ræða og ók
fólksbfll aftan á jeppa. Sjúkrabíll var kallaður á vettvang og þurfti að flytja báða ökumenn á slysadeild, en óljóst
var um meiðsli þeirra þegar Dagur fór í prentun. Ökumennirnir voru einir í bílum sínum. mynd brink
Kostnaðarsamar úrbæt-
ur á Ráðhúsi Akureyrar
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir í Ráðhúsinu á Akureyri. Nú
er verið að vinna í framkvæmd-
um á fyrstu hæð hússins og end-
urbæta aðstöðu þar til muna. Að
sögn Ásgeirs Magnússonar, for-
seta bæjarráðs, hefur verið byggt
og lagfært fyrir um það bil 32
milljónir á þessu ári, með þeim
kostnaði sem færður var yfir ára-
mótin á fjárhagsáætlun bæjarins.
Talsvert á þó enn eftir að gera
til að fyrsta hæðin verði tilbúin,
meðal annars laga símalagnir og
annað tengt tölvukerfinu. Einnig
er stefnt að því að fara í endur-
bætur á öllu húsnæðinu á næstu
32 milljónum hefur þegar verið
ráðstafað í framkvæmdir innan-
húss í Ráðhúsinu á Akureyri.
árum og á kostnaðurinn eftir að
aukast talsvert með tímanum.
Ásgeir segir að það hafi verið
mikil þörf á að fara í þessar fram-
kvæmdir, enda starfsaðstæður
fólks í ráðhúsinu lélegar. „Það er
orðið löngu tímabært að lagfæra
starfsaðstöðu starfsfólks bæjar-
skrifstofanna, sem menn hafa ýtt
á undan sér í fjölda mörg ár. Það
er full ástæða til þess að starfsað-
staða þessa fólks verði viðun-
andi, til þess að við fáum nægj-
anlega mikið út úr því. Það er
mjög mikil ástæða fyrir því að
koma þessu í betra horf og það
verður reynt að gera það eins
hratt og hægt verður," sagði Ás-
geir. - AÞM
Hættuástandi
aflýst
Almannavarnanefnd Mýrdals-
hrepps aflétti hættuástandi á
Mýrdalsjökli í gær þrátt fyrir að
enn sé svolítill órói á svæðinu þó
skjálftavirkni sé lítil. Vatnsmagn
hefur farið þverrandi í ám, m.a.
í Múlakvísl. Jarðvísindamenn
telja ekki meiri líkur á Kötlugosi
nú en oft áður. Viðbúnaðarstig
samkvæmt neyðarskipulagi AI-
mannavarna er því ekki Iengur í
gildi og lögreglan í Vestur-
Skaftafellssýslu hefur numið úr
gildi bann við ferðum um Mýr-
dalsjökul, en þar sem og á Sól-
heimajökli eru miklar sprungu-
myndanir sem geta verið vara-
samar. - GG
Björn JósefArn-
viðarson.
Hafnaði frávísun
Yfirheyrslum í
máli skipstjór-
ans á norska
nótaskipinu
Osterbris,
John Harald
Ostervold,
lauk í gær. Við
lok þeirra
krafðist lög-
maður skip-
stjórans,
Gunnar Sólnes hrl., þess að
málinu yrði vísað frá vegna þess
að gögn sýslumannsins, Björns
Jósefs Arnviðarsonar, væru
ófullnægjandi. Dómarinn, Ás-
geir Pétur Ásgeirsson, hafnaði
hins vegar þeirri kröfu á þeim
forsendum að lagaákvæðum um
rannsóknarskyldu væri ekki full-
nægt. Málarekstur heldur áfram
í dag.
„Það eru allir íslensku bátarn-
ir með sams konar loðnunætur
og sá norski, Österbris, sem
Landhelgisgæslan tók fyrir
norðan land. Verði hann dæmd-
ur sekur hjá Héraðsdómi Norð-
urlands eystra verður hægt að
taka hring á Hrauninu þegar all-
ir sægreifarnir verða mættir þar
með sams konar nætur. Það
verða uppgrip fyrir ríkissjóð ef af
verður,“ segir Freysteinn Bjarna-
son, útgerðarstjóri Síldarvinnsl-
unnar á Neskaupstað, en út-
gerðin gerir út nokkur nótaskip
með sams konar nót og Öster-
bris. - GG
Hagnaður í
Hnífsdal
Vegna væntanlegrar sameining-
ar Hraðfrystihússins í Hnífsdal
og útgerðarfélagsins Gunnvarar
á Isafirði, sem er stærsti eigandi
Ishúsfélags Isfirðinga, hefur
Hraðfrystihúsið gert árshluta-
reikning fyrir tímabilið janúar til
maí 1999, þ.e. fimm mánaða
uppgjör, og er hann með könn-
unaráritun endurskoðanda.
Samkvæmt því nemur rekstrar-
hagnaður þetta tímabil 58 millj-
ónum króna, en 37 milljónum
króna fyrir skatta.
Rekstrartekjur námu 762
milljónum króna og rekstrar-
gjöld 637 milljónum króna og
nam því hagnaður fyrir afskriftir
125 milljónum króna. Hagnað-
ur tímabilsins nam 30,5 milljón-
um króna. Eignir námu samtals
2,9 milljörðum króna og eigið fé
597,5 milijónum króna. - GG